Fréttablaðið - 01.10.2006, Síða 8
Íbúafjölgun á Suðurlandi hefur
ekki haldist í hendur við meðal-
fjölgun á landsvísu. Ef svo væri
hefði þeim fjölgað helmingi meira
á síðasta aldarfjórðungi en raun
ber vitni.
Íbúum á Suðurlandi hefur fjölg-
að hlutfallslega meira en íbúum
annars staðar á landsbyggðinni á
síðastliðnum 25 árum, að undan-
skildum Suðurnesjum. Fjölgunin
er samt sem áður rúmlega helm-
ingi hægari en meðalfjölgun á
landinu öllu.
Sunnlendingum hefur fjölgað
um 14 prósent á síðasta aldarfjórð-
ungi en Íslendingum hefur fjölgað
um 31 prósent. Ef Sunnlendingum
hefði fjölgað í samræmi við íbúa-
fjölgun á landsvísu á síðasta ald-
arfjórðungi væru þeir því þrettán
prósentum fleiri nú en raunin er,
eða tæp átján þúsund í stað
12.600.
Ef þeim hefði fjölgað í sam-
ræmi við landsmeðaltal væru
íbúar því 4.200 fleiri en þeir eru í
raun, en það eru jafnmargir og
búa nú í Vestmannaeyjum.
Fækkun í átta af fjórtán
Í átta sveitarfélögum af fjórtán
hefur íbúum fækkað á síðustu 25
árum en á síðasta áratug hefur
fækkað í fimm sveitarfélögum.
Mest er fækkunin í Skaftárhreppi,
þar sem íbúar eru nú þriðjungi
færri en fyrir aldarfjórðungi.
Íbúum hefur fjölgað mest í Hvera-
gerðisbæ, eða um 67 prósent á síð-
asta aldarfjórðungi og í Sveitar-
félaginu Árborg þar sem þeim
hefur fjölgað um helming.
Hlutfall útlendinga í landshlut-
anum er hið sama og á landsvísu,
um fimm prósent. Í þremur sveitar-
félögum er hlutfallið þó tvöfalt
hærra; í Hrunamannahreppi, Ása-
hreppi og Sveitarfélaginu Ölfusi,
þar sem um tíundi hver íbúi er
útlenskur.
Tekjur langt undir meðaltali
Meðaltekjur íbúa á Suðurlandi í
fyrra voru með því lægsta sem
þekkist á landinu, 279 þúsund á
mánuði, eða 14 prósentum undir
landsmeðaltali. Meðaltekjur voru
aðeins lægri í tveimur öðrum
landshlutum.
Innan landshlutans voru meðal-
tekjurnar lægstar í Flóahreppi,
þar sem þær voru rúmlega þriðj-
ungi lægri en landsmeðaltal, eða
um 210 þúsund. Hæstu meðaltekj-
urnar voru í Sveitarfélaginu Ölf-
usi þar sem þær voru 14 prósent-
um hærri en landsmeðaltal, 371
þúsund krónur á mánuði. Það var
jafnframt eina sveitarfélagið þar
sem mánaðartekjur voru yfir
landsmeðaltali.
Atvinnuleysi er rétt yfir meðal-
tali í einu sveitarfélagi, Vest-
mannaeyjum, þar sem það mæld-
ist 2,5 prósent á síðasta ári miðað
við 2,1 prósent á landsvísu. Ann-
ars staðar í landshlutanum mæld-
ist atvinnuleysi undir meðaltali.
Fermetraverð niður í 56 þúsund
Meðalfermetraverð íbúðarhús-
næðis á Suðurlandi er langt undir
meðaltali á landinu. Meðalverð í
landshlutanum öllum er um 110
þúsund krónur á fermetrann ef
miðað er við kaupverð íbúðarhús-
næðis árið 2005 þar sem fjöldi
kaupsamninga er þrjátíu eða
fleiri. Hafa þarf þó þann fyrirvara
á að tölurnar eru einfalt meðaltal
kaupverðs. Eignir eru mismun-
andi eftir svæðum og skekkir það
verðsamanburð milli þeirra.
Verðið er lægst í Vestmannaeyj-
um, um 56 þúsund krónur á hvern
fermetra, en hæst í Hveragerðis-
bæ, þar sem það er rúmlega helm-
ingi hærra, 136 þúsund krónur fer-
metrinn. 150 fermetra íbúðar-
húsnæði kostar samkvæmt þessu
8,4 milljónir í Vestmannaeyjum en
rúmar tuttugu milljónir í Hvera-
gerðisbæ. Til samanburðar má
nefna að jafnstór íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu kostar um 29 millj-
ónir að meðaltali. Íbúi í Vestmanna-
eyjum sem selur 150 fermetra
íbúðarhúsnæði sitt og flytur á höf-
uðborgarsvæðið getur því keypt um
44 fermetra íbúð fyrir andvirðið.
Hreyfing í lagi í þremur
Þá má skoða fjölda kaupsamninga
á síðasta ári á hverja þúsund íbúa,
en hæfileg hreyfing á eignum er
gott merki um heilbrigðan fast-
eignamarkað. Meðaltalið fyrir
landið allt var rétt undir 45 samn-
ingum á hverja þúsund íbúa. Í
þremur sveitarfélögum á Suður-
landi var fjöldi kaupsamninga yfir
meðaltali og voru það þau sveitar-
félög sem ekki ættu að fara á
úreldingarlista samkvæmt kenn-
ingum bandarísku landfræðing-
anna, sem fjallað er um hér í töfl-
unni til hliðar; Hveragerðisbær,
Sveitarfélagið Árborg og Sveitar-
félagið Ölfus. Í öllum hinum var
óeðlilega lítil hreyfing á eignum
og lítið um kaup og sölu, og í sex
sveitarfélögum voru fjórir kaup-
samningar eða færri gerðir á
árinu, jafnvel enginn í tveimur
sveitarfélögum.
8 1. október 2006 SUNNUDAGUR
Sunnlendingum fjölgar hægt
Selfoss
Flóttinn af landsbyggðinni SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR
sda@frettabladid.is
Íbúum á Suðurlandi
fjölgar helmingi hægar
en landsmönnum að
meðaltali. Íbúðaverð er
töluvert undir meðal-
verði á landinu öllu og
meðaltekjur sömuleiðis.
Ellefu á úreldingarlista
Einungis þrjú af fjórtán sveitarfélögum á Suðurlandi geta horft til framtíðar með nokkurri bjartsýni ef tekið er mið
af kenningum tveggja bandarískra landfræðinga um framtíðarhorfur sveitarfélaga.*
Viðmiðunarmörk: 1 2 3 4 5 6
Sveitarfélag:
Íbúar eru
helmingi færri
nú en fyrir
aldarfjórðungi
Íbúum hefur
fækkað um tíu
prósent eða meira
á síðasta áratug
Þéttleiki
byggðar er
innan við tvo
íbúa á km2
Meðalaldur
er 38 ár eða
hærri
Meðalmánaðar-
tekjur eru 10%
undir lands-
meðaltali
Fjöldi kaupsamn.
vegna íb.húsn
2005 er undir
landsmeðaltali**
Vestmannaeyjabær nei -12% já -13% nei 241,9 nei 35,5 nei -7% já 34,0
Sveitarfélagið Árborg nei +49% nei +30% nei 44,3 nei 34,8 já -17% nei 62,5
Mýrdalshreppur nei -23% já -11% já 0,66 já 38,8 já -29% já 8,0
Skaftárhreppur nei -29% Já -19% já 0,07 já 42,1 já -31% já 4,1
Ásahreppur nei -15% nei +16% já 0,06 já 38,9 já -28% já -
Rangárþing eystra nei -8% nei -2% já 0,90 nei 36,3 já -23% já 20,9
Rangárþing ytra nei -1% nei +4% já 0,46 nei 36,0 nei -6% já 17,1
Hrunamannahreppur nei +50% nei +16% já 0,55 nei 33,3 nei -7% já 23,5
Hveragerðisbær nei +67% nei +23% nei 183,8 nei 36,6 já -23% nei 63,7
Sveitarfélagið Ölfus nei +34% nei +10% nei 2,48 nei 33,3 nei +14% nei 61,7
Grímsnes- og Grafningshr. nei +8% nei +10% já 0,40 já 38,4 já -24% já 5,6
Skeiða- og Gnúpverjahr. nei -12% nei -7% já 0,23 nei 34,3 já -32% já 7,7
Bláskógabyggð nei +15% nei +16% já 0,28 nei 32,2 já -29% já 17,4
Flóahreppur nei -8% nei 0% já 1,81 nei 35,1 já -36% já -
**Fjöldi kaupsamninga á hverja 1.000 íbúa
Viðmiðunarmörkin sex má sjá í töflunni og hafa verið heimfærð upp á íslenskar aðstæður.
Samkvæmt þessu má setja ellefu af fjórtán sveitarfélögum Suðurlands á úreldingarlista, það eru Vestmanna-
eyjabær, Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur, Ásahreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Hrunamannahreppur,
Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Bláskógabyggð og Flóahreppur. Aðeins Sveitar-
félagið Árborg, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus eiga sér einhverja von.
*Kenningar hjónanna Deborah og Frank Popper voru settar fram í lok níunda áratugarins og miðuðust að því að meta framtíðarhorfur til-
tekinna sveitarfélaga á sléttunum miklu í miðjum Bandaríkjunum. Þær fólust í því að setja fram sex viðmiðunarmörk sem gæfu vísbendingu
um að sveitarfélag ætti sér ekki viðreisnar von. Ef sveitarfélagið uppfyllti tvö eða fleiri skilyrði gat það talist á góðri leið með að fara í eyði.
MEÐALMÁNAÐARTEKJUR
Suðurland 279.421 kr.
Vestmannaeyjabær 305.224 kr.
Sveitarfélagið Árborg 270.600 kr.
Mýrdalshreppur 231.690 kr.
Skaftárhreppur 225.403 kr.
Ásahreppur 234.963 kr.
Rangárþing eystra 252.285 kr.
Rangárþing ytra 307.497 kr.
Hrunamannahreppur 304.257 kr.
Hveragerðisbær 250.567 kr.
Sveitarfélagið Ölfus 371.468 kr.
Grímsnes- og Grafningshr. 248.322 kr.
Skeiða- og Gnúpverjahr. 222.198 kr.
Bláskógabyggð 233.421 kr.
Flóahreppur 210.303 kr.
Höfuðborgarsvæðið 353.724 kr.
Landið allt 326.782 kr.
Þetta er önnur greinin af átta í
greinaflokki Fréttablaðsins um
byggðaþróun. Á morgun verður
fjallað um Suðurnes.
SUÐURLAND
Suðurland nær frá vestanverðum
Skeiðarárjökli og vestur að línu
dreginni frá vestanverðum Þór-
isjökli að Herdísarvíkurhrauni; er
tæpir 25 þúsund ferkílómetrar að
stærð, tæpur fjórðungur Íslands.
Íbúafjöldi er um 22.400, eða rúm
sjö prósent allra íbúa í landinu.
MANNFJÖLDAÞRÓUN
Á SUÐURLANDI 1988–2005
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Íbúar: 521. Fjöldi á km2: 0,23. Meðal-
tekjur: 222.198 kr. Atvinnuleysi: 0,3%
Hrunamannahreppur
Íbúar: 767. Fjöldi á km2: 0,55. Meðal-
tekjur: 304.257 kr. Atvinnuleysi: 0,8%
Sveitarfélagið Árborg
Íbúar: 6.961. Fjöldi á km2: 44,3. Meðal-
tekjur: 270.600 kr. Atvinnuleysi: 1,9%
Hveragerði
Stokkseyri
Eyrarbakki
Hvolsvöllur
Hella
Laugarás
Flúðir
Reykholt
Vík
Flóahreppur
Íbúar: 526. Fjöldi á km2: 1,81. Meðal-
tekjur: 210.303 kr. Atvinnuleysi: 0,7%
Sveitarfélagið Ölfus
Íbúar: 1.799. Fjöldi á km2: 2,48. Meðal-
tekjur: 371.468 kr. Atvinnuleysi: 1,7%
Þorlákshöfn
Hveragerðisbær
Íbúar: 2.089. Fjöldi á km2: 184. Meðal-
tekjur: 250.567 kr. Atvinnuleysi: 1,4%
Ásahreppur
Íbúar: 164. Fjöldi á km2: 0,06. Meðal-
tekjur: 234.963 kr. Atvinnuleysi: 0,0%
Vestmannaeyjabær
Íbúar: 4.175. Fjöldi á km2: 242. Meðal-
tekjur: 305.224 kr. Atvinnuleysi: 2,5%
Rangárþing eystra
Íbúar: 1.672. Fjöldi á km2: 0,90. Meðal-
tekjur: 252.285 kr. Atvinnuleysi: 0,7%
Rangárþing ytra
Íbúar: 1.459. Fjöldi á km2: 0,46. Meðal-
tekjur: 307.497 kr. Atvinnuleysi: 1,1%
Mýrdalshreppur
Íbúar: 503. Fjöldi á km2: 0,66. Meðal-
tekjur: 231.619 kr. Atvinnuleysi: 0,6%
Skaftárhreppur
Íbúar: 490. Fjöldi á km2: 0,07. Meðal-
tekjur: 225.403 kr. Atvinnuleysi: 0,4%
Bláskógabyggð
Íbúar: 921. Fjöldi á km2: 0,28. Meðal-
tekjur: 233.421 kr. Atvinnuleysi: 0,6%
Grímsnes- og Grafningshreppur
Íbúar: 356. Fjöldi á km2: 0,40. Meðal-
tekjur: 248.322 kr. Atvinnuleysi: 0,3%
Vestmannaeyjar
32,1%
19,1%
11,5%
1988
■ Höfuðborgarsvæðið
■ Landið allt
■ Suðurland
KAUPVERÐ ÍBÚÐAR-
HÚSNÆÐIS ÁRIÐ 2005*
200
175
150
125
100
75
50
25
0
*Meðalverð á fermetra eftir sveitarfélögum þar sem
kaupsamningar eru 30 eða fleiri.
Vestmanna-
eyjar
Árborg Rangárþ.
eystra
Hvera-
gerði
Ölfus Höfuð-
borgarsv.
109.818
Suðurland 109.818
Landið allt 161.000
56.437
131.119
90.898
136.126
105.855
ÍBÚAFJÖLDI
Á SUÐURLANDI
Fjöldi 1. des.
2005
Sá fjöldi sem upp á vantar m.v. að
mannfjöldaþróun á Suðurlandi hefði
fylgt landsmeðaltali sl. aldarfjórðung.
22.403
3.321