Fréttablaðið - 01.10.2006, Síða 72
32 1. október 2006 SUNNUDAGUR
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
�������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
��
��
�
���� ����������
Kúba �������
����������
�����������
�����������
�����������
����
�������������������������
�������������������������
����������������
������������������������
���������������
��������������������������������
����������������������������
�������������
�����������
�������������������������������
������������������������������������
������������������������������
���������
�����������
���������������������
�����������������
�
���������������
����
�
����������������
FÓTBOLTI Bolton tók á móti Liver-
pool í gær í ensku úrvalsdeildinni.
Rafa Benitez, framkvæmdastjóri
Liverpool, breytti byrjunarliði
sínu frá síðasta leik og þetta var í
95 skiptið í röð sem hann gerir
breytingu á sínu liði á milli leikja.
Leikurinn endaði með sigri heima-
manna, 2-0, þar sem Gary Speed
og Ivan Campo skoruðu mörkin,
en markið hjá Gary Speed þótti
mjög umdeilt.
Jose Reina, markvörður Liver-
pool, var ranglega dæmdur brot-
legur þegar hann hugðist sparka
fram völlinn en þá flaggaði línu-
vörðurinn og dæmdi hendi, eitt-
hvað sem enginn annar tók eftir.
Upp úr aukaspyrnunni skoraði
Gary Speed og kom Bolton yfir í
leiknum. Þegar sex mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik skoraði
svo Ivan Campo annað mark Bolt-
on með skalla og þar við sat.
„Þetta var frábær frammistaða
gegn einu besta liði deildarinnar.
Við börðumst vel, náðum að loka
vel á þeirra spil og það fór í taug-
arnar á leikmönnum Liverpool.
Við fengum kannski ekki mörg
færi en við nýttum þau og varnar-
leikur okkar var frábær í þessum
leik,“ sagði Sam Allardyce, fram-
kvæmdastjóri Bolton eftir leikinn
í gær.
Þetta var þriðja tap Liverpool í
röð á útivelli í deildinni og Liver-
pool hefur einungis fengið eitt stig
úr fjórum útileikjum liðsins á
þessari leiktíð en það kom í fyrstu
umferð gegn Sheffield United.
- dsd
Umdeilt atvik skipti sköpum í leik Bolton og Liverpool:
Bolton lagði Liverpool
GARY SPEED Skoraði í sínum 750. leik á ferlinum fyrir félagslið. NORDIC PHOTOS/GETTY
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Enska úrvalsdeildin
BOLTON-LIVERPOOL 2-0
1-0 Gary Speed (30.), 2-0 Ivan Campo (51.).
CHELSEA-ASTON VILLLA 1-1
1-0 Didier Drogba (3.), 1-1 Gabriel Agbonlahor
(45.).
EVERTON-MANCHESTER CITY 1-1
1-0 Andy Johnson (44.), 1-1 Micah Richards (90.).
CHARLTON-ARSENAL 1-2
1-0 Darren Bent (21.), 1-1 Robin van Persie (32.),
1-2 Robin van Persie (49.).
SHEFFIELD UNITED-MIDDLESBROUGH 2-1
1-0 Rob Hulse (35.), 1-1 Yakubu (49.), 2-1 Philip
Jagielka (90.).
STAÐAN
CHELSEA 7 5 1 1 12-4 16
BOLTON 7 4 2 1 7-3 14
MAN. UTD. 6 4 1 1 12-4 13
PORTSMOUTH 6 4 1 1 9-1 13
EVERTON 7 3 4 0 12-6 13
ASTON VILLA 7 3 4 0 9-4 13
ARSENAL 7 3 2 1 8-4 11
READING 6 3 1 2 8-7 10
LIVERPOOL 7 3 1 3 8-8 10
BLACKBURN 6 2 2 2 6-8 8
MAN. CITY 7 2 2 3 6-9 8
FULHAM 6 2 2 2 5-9 8
NEWCASTLE 6 2 1 3 6-8 7
WIGAN 5 1 2 2 5-6 5
WEST HAM 6 1 2 3 6-9 5
M‘BORO 7 1 2 4 6-12 5
SHEFF. UTD. 7 1 2 4 4-10 5
TOTTENHAM 6 1 1 4 2-8 4
WATFORD 6 0 3 3 4-7 3
CHARLTON 7 1 0 6 5-13 3
England - Championship
WBA-LEEDS 4-2
Gylfi Einarsson var ekki í hópnum hjá Leeds.
BARNSLEY-LUTON TOWN 1-2
COVENTRY-PLYMOUTH ARGYLE 0-1
DERBY COUNTY-SOUTHEND 3-0
SOUTHAMPTON-QPR 1-2
SUNDERLAND-SHEFF. WEDNESDAY 1-0
BIRMINGHAM-LEICESTER CITY 1-1
STOKE CITY-PRESTON NORTH END 1-1
CARDIFF-WOLVES 4-0
HULL CITY-CRYSTAL PALACE 1-1
England - League 1
BRENTFORD-YEOVIL TOWN 1-2
Ólafur Ingi Skúlason var ekki í hópnum hjá Brent-
ford.
FÓTBOLTI Didier Drogba heldur
áfram að skora fyrir Englands-
meistara Chelsea en hann skoraði
eina mark liðsins í 1-1 jafntefli við
Aston Villa í gær. Drobga kom
Chelsea yfir strax á þriðju mínútu
en Agbonlahor náði að jafna fyrir
Aston Villa rétt fyrir leikhlé. Þar
við sat og Aston Villa er því enn
taplaust í deildinni.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
var allt annað en sáttur eftir leik-
inn. „Annað liðið vildi vinna leik-
inn en hitt liðið vildi ná jafntefli.
Ég er ekki að kenna Aston Villa
um eitt né neitt, liðið kom hingað
til að gera það sem það þurfti.
Markvörðurinn varði mjög vel en
stöngin á marki þeirra stóð líka
fyrir sínu. Þetta var einn af þess-
um leikjum þar sem ég óskaði
þess heitt að skora annað mark og
Martin O`Neill, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, óskaði þess
heitt að leikurinn yrði flautaður
af. O`Neill er góður maður og lið
hans eru þekkt fyrir að berjast
mikið,“ sagði Mourinho eftir leik-
inn.
Hermann Hreiðarsson lék allan
leikinn í liði Charlton sem tapaði á
heimavelli fyrir Arsenal. Hvorki
hefur gengið né rekið hjá Charlton
á þessu tímabili og farið er að
hitna verulega undir Ian Dowie,
framkvæmdastjóra félagsins, en
liðið hefur aðeins unnið einn leik
og tapað sex leikjum það sem af er
tímabilinu. Charlton komst yfir í
leiknum en tvö mörk frá Robin
van Persie tryggðu Arsenal sigur-
inn. Sigurmarkið þótti einkar
glæsilegt en þá fékk van Persie
boltann á lofti við vítateigslínuna
og skaut efst í bláhornið.
„Þetta var ótrúlegt mark, leik-
menn skora ekki mörg svona á
ævinni. Fyrst hélt ég að boltinn
færi yfir markið en svo sá ég að
hann endaði í bláhorninu,“ sagði
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, sem íhugaði að taka
van Persie út af stuttu áður en
hann skoraði sigurmarkið.
Everton hefur komið á óvart í
upphafi tímabilsins og er enn
taplaust eftir sjö leiki. Everton
varð þó að sætta sig við 1-1 jafn-
tefli á heimavelli í gær gegn
Manchester City þar sem Micah
Richards jafnaði fyrir Manchest-
er City á síðustu mínútu leiksins
eftir að Andrew Johnson hafði
komið Everton yfir, hans fimmta
mark á tímabilinu.
Joey Barton, leikmaður Evert-
on, gæti þó verið í slæmum málum
eftir að hann beraði á sér aftur-
endann í fagnaðarlátunum eftir
jöfnunarmarkið. „Lögreglan kom
til mín eftir leikinn og tilkynnti
mér að Barton hafði gert þetta.
Ég sá þetta ekki en ef eitthvað
hefur gerst þá munum við taka á
því máli,“ sagði Stuart Pearce,
framkvæmdastjóri Manchester
City, eftir leikinn en félagið hefur
töluvert verið á milli tannanna á
fólki eftir að Ben Thatcher rotaði
Pedro Mendez í upphafi tímabils-
ins. dagur@frettabladid.is
Aston Villa og Everton enn taplaus
Everton og Aston Villa eru ennþá taplaus í ensku úrvalsdeildinni eftir leiki gærdagsins. Aston Villa náði
jafntefli gegn Chelsea á Stamford Bridge og Arsenal vann góðan útisigur á lánlausu liði Charlton á útivelli.
REKTU HANN ÚTAF DÓMARI Hermann
Hreiðarsson er hér að biðla til dómarans
um að reka van Persie út af í leiknum í
gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
AGBONLAHOR Þessi maður ber þetta skemmtilega nafn og það var hann sem tryggði Aston Villa annað stigið í leik liðsins gegn
Chelsea í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sheffield United sigraði
Middlesbrough í síðasta leik
gærdagsins í enska boltanum
með tveimur mörkum gegn einu.
Sigurmarkið skoraði Paul Jagi-
elka með glæsilegu skoti af um
25 metra færi þegar komið var
fram yfir venjulegan leiktíma en
þetta var fyrsti sigur Sheffield
United á leiktíðinni. Með sigrin-
um náði Sheffield United að lyfta
sér úr botnsæti deildarinnar.
Rob Hulse kom Sheffield
United yfir í leiknum en það var
hans þriðja mark á leiktíðinni.
Þegar fjórar mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik jafnaði Yakubu
metin fyrir Middlesbrough. - dsd
Glæsilegt mark frá Jagielka tryggði Sheff. Utd sigur:
Sheff. Utd úr botnsætinu
FORMÚLA 1 Heimsmeistarinn í
Formúlu 1, Fernando Alonso,
verður á ráspól í Kínakappakstr-
inum eftir að hafa náð besta
tímanum í tímatökum í gær en
helsti keppinautur hans, Michael
Schumacher, þurfti að láta sér
linda sjötta besta tímann.
Það rigndi á ökumennina í gær
og þótt ótrúlegt megi virðast þá
átti Michael Schumacher í
miklum erfiðleikum á blautri
brautinni, en það hefur hingað til
verið talin hans sterkasta hlið að
keyra í rigningu.
Alonso var kokhraustur að
lokinni tímatökunni í gær. „Það
skiptir engu máli fyrir okkur
hvort það verður þurrt eða
bleyta, við verðum í baráttunni
um sigurinn hvort heldur sem
er,“ sagði Alonso. - dsd
Tímataka í gær:
Alonso með
besta tímann
ALONSO OG FISICHELLA Náðu tveimur
bestu tímunum í tímatökunni í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir,
Íslandsmeistari í badminton,
leikur í dag til úrslita á alþjóðlega
meistaramótinu í Ostrava í
Tékklandi sem fram fer þessa
dagana. Í undanúrslitum í gær
bar Ragna sigurorð á Jill Pittard
frá Bretlandi í tveimur lotum
gegn einni.
Ragna mætir danskri stúlku,
Camillu að nafni, í úrslitaleiknum
í dag. - dsd
Badminton:
Ragna í úrslit í
Tékklandi