Fréttablaðið - 01.10.2006, Side 73
SUNNUDAGUR 1. október 2006 33
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Belgíska úrvalsdeildin
SINT-TRUIDENSE-LOKEREN 1-0
Rúnar Kristinsson lék allan leikinn fyrir Lokeren.
ANDERLECHT-GENK 1-4
Ítalska úrvalsdeildin
ATALANTA BERGAMO-REGGINA 1-1
1-0 Simone Loria (2.), 1-1 Giacomo Tedesco (6.).
FC TORINO-LAZIO 0-4
0-1 Tommaso Rocchi (49.), 0-2 Massimo Oddo, víti
(55.), 0-3 Oddo (55.), 0-4 Stefano Mauri (71.).
Hollenska úrvalsdeildin
WILLEM II-RODA JC 0-1
EXCELSIOR-SPARTA ROTTERDAM 3-1
FC TWENTE-RKC WAALWIJK 4-3
Arnar Þór Viðarsson kom ekki við sögu hjá Twente.
Skoska úrvalsdeildin
MOTHERWELL-KILMARNOCK 5-0
ST. MIRREN-HIBERNIAN 1-0
INVERNESS-DUNFIRMLINE 1-0
Spænska úrvalsdeildin
ATHLETIC BILBAO-BARCELONA 1-3
1-0 Francisco Yeste (11.), 1-1 Carles Puyol (45.),
1-2 Eiður Smári Guðjohnsen (61.), 1-3 Javier Savi-
ola (77.).
STAÐA EFSTU LIÐA
BARCELONA 5 4 1 0 13-4 13
REAL MADRID 4 3 1 0 7-1 10
VALENCIA 4 3 1 0 6-2 10
SEVILLA 4 3 0 1 11-5 9
Sænska úrvalsdeildin
HELSINGBORG-IFK GAUTABORG 3-2
Hjálmar Jónsson var í byrjunarliði IFK en var skipt
út af í hálfleik.
GAIS-KALMAR FF 2-2
Jóhann B. Guðmundsson var ekki í hópi GAIS.
Sænska 1. deildin
NORRKÖPING-ÖREBRO 1-3
Stefán Þórðarson lék allan leikinn en Garðar
Gunnlaugsson kom inn á í hálfleik.
STAÐA EFSTU LIÐA
TRELLEBORG 26 17 7 2 40-9 58
BROMMAP. 27 17 3 7 49-35 54
ÖREBRO 27 15 6 6 47-25 51
NORRKÖPING 27 12 9 6 41-28 45
Þýska úrvalsdeildin
WERDER BREMEN-GLADBACH 3-0
1-0 Aaron Hunt (33.), 2-0 Christian Schulz (35.),
3-0 Diego (38.).
NÜRNBERG-MAINZ 1-1
1-0 Jan Polak (24.), 1-1 Christof Babatz (85.).
ARMINIA BIELEFELD-ENERGIE COTTBUS 3-1
0-1 Vlad Munteanu (22.), 1-1 Sibusiso Zuma (48.),
2-1 Artur Wichniarek (62.), 3-1 Ioannis Masmani-
dis (74.).
EINTRACHT FRANKFURT-HAMBURGER SV 2-2
1-0 Alexander Meier (36.), 1-1 Daniel Ljuboja
(51.), 2-1 Ioannis Amanatidis (58.), 2-2 Boubacar
Sanogo (69.).
WOLFSBURG-BAYERN MÜNCHEN 1-0
1-0 Mike Hanke (36.).
AACHEN-BOCHUM 2-1
0-1 Theofanis Gekas (36.), 1-1 Jan Schlaudraff
(48.), 2-1 Sascha Rösler (49.).
STAÐA EFSTU LIÐA
NÜRNBERG 6 2 4 0 7-3 10
W. BREMEN 6 3 1 2 12-9 10
SCHALKE 5 3 1 1 6-3 10
BAYERN M. 6 3 1 2 7-5 10
HERTHA B. 5 2 3 0 8-2 9
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
DHL-deild kvenna
STJARNAN-HK 39-21
Mörk Stjörnunnar: Rakel D. Bragad. 11/3 (13/3),
Alina Petrache 6/1 (10/1), Anna Blöndal 5 (5),
Sólveig Kjærnested 5 (7), Kristín Guðmundsd. 4
(6), Kristín Hansen 4 (7), Elísabet Gunnarsd. 2
(2), Björk Gunnarsd.1 (2), Hildur Harðard. 1 (3).
Varin skot: Florentina Grecce 17, Helga Vala Jóns-
dóttir 5, Sólveig Ásmundsdóttir 2/2.
Mörk HK: Auður Jónsd. 6 (14) 2/2, Arna Pálsd. 4
(7) 1/1, Tatjana Zukovska 4 (8) 0/1, Rut Jónsd. 2
(4), Elva Arnarsd. 2 (6), Autsé Vysniauskoité 2 (6),
Tinna Rögnvaldsdóttir 1 (2).
Varin skot: Ólöf Ragnarsd. 12, Sunna Friðbergsd. 6.
FRAM-GRÓTTA 23-26
Mörk Fram: Anet Köbli 6, Þórey Stefánsd. 1,
Stella Sigurðard. 5, Sara Sigurðard. 4, Sigurbjörg
Jóhannsd. 2, Guðrún Hálfdánsd. 2, Hildur Knútsd.
1, Hekla Daðad. 1, Eva Hrund Harðard. 1.
Mörk Gróttu: Natasa Damiljanovic 9, Anna Guð-
mundsd. 5, Sandra Paegle 4, Eva M. Kristinsd. 4,
Ragna K. Sigurðard. 2, Kristín Þórðard. 2.
FH-HAUKAR 22-29
Mörk FH: Ásdís Sigurðard. 6, Harpa Vífilsd. 4,
Guðrún D. Hólmgeirsd. 4, Kamilla Opsahl 3, Ásta
B. Agnarsd. 3, Linn Mångset 1, Marianne Marx 1.
Mörk Hauka: Erna Þráinsdóttir 5, Sigrún Brynj-
ólfsdóttir 2, Harpa Melsted 1, Sandra Stojko 7,
Hanna G. Stefánsdóttir 9, Tinna Ósk Þorvalsdóttir
1, Ramune Pekarskyte 4.
ÍBV-VALUR 30-26
Mörk ÍBV: Valentina Radu 10, Pavla Plaminkova 9,
Renata Horvath 4, Pavla Nevarilova 3, Andrea Löw
3, Hekla Hannesdóttir 1.
Varin skot: Branka Jovanovic 27.
Mörk Vals: Rebekka Skúlad. 5, Ágústa E. Björnsd. 4,
Alla Gokorian 4, Kristín Collins 4, Hafrún Kristjánsd.
3, Katrín Andrésd. 2, Sigurlaug Rúnarsd. 2, Arna
Grímsd. 1, Drífa Skúlad. 1, Hildigunnur Einarsd. 1.
Varin skot: J. Slapikiene 5, P. Skaronkova 4.
HANDBOLTI Stjarnan tók á móti HK
í Ásgarði í DHL-deildinni. HK
stúlkur sem komu mörgum á óvart
með því að vinna lið ÍBV í fyrstu
umferð sáu ekki til sólar í Garða-
bænum og unnu Stjörnustúlkur
sannfærandi 39-21. Stjarnan byrj-
aði strax af krafti og ætlaði ekki
að gefa neitt eftir. HK-stúlkur
reyndu hvað þær gátu en Stjörnu-
stúlkur áttu svör við flestöllum
sóknartilburðum þeirra. Góður
sóknarleikur, skipulögð vörn og
góð markvarsla kom þeim í stöð-
una 15-8 í leikhléi.
Í seinni hálfleik bættu heima-
stúlkur í og juku forskotið smátt
og smátt. HK-stúlkur reyndu hvað
þær gátu en eins og í fyrri hálfleik
sáu heimamenn við flestum sókn-
artilburðum þeirra. Kópavogs-
stúlkur pirruðust við mótlætið og
ekki hjálpaði það þeim en á sama
tíma gekk allt upp hjá Stjörnunni.
Rakel Dögg Bragadóttir átti stór-
leik fyrir Stjörnuna og skoraði 11
mörk. Atkvæðamest í liði HK var
Auður Jónsdóttir með 6 mörk.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, var að vonum sáttur
eftir leikinn. „Liðið var að spila
vel í dag og ég er mjög sáttur.
Allar voru að berjast fyrir liðið og
andinn er mjög góður í hópnum,“
sagði Aðalsteinn. „Við vorum búin
að ákveða að láta ekki vanmatið á
HK-liðinu hafa áhrif á okkur eftir
að það vann ÍBV í síðustu umferð.
Heldur mættum við ákveðin til
leiks, spiluðum okkar bolta og það
skilaði okkur þessum úrslitum.
Maður getur ekki annað en verið
sáttur að skora næstum því 40
mörk.“
Valsstúlkur byrja leiktíðina
fremur illa en í fyrstu umferðinni
gerði liðið jafntefli við Fram og í
gær töpuðu þær í Vestmannaeyj-
um, 30-26. Haukar og Grótta halda
sigurgöngunni áfram og tróna á
toppi deildarinnar með fullt hús
stiga eftir tvær umferðir.
- sb/- esá
MARK Sólveig Lára Kjærnested skorar eitt fimm marka sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HK féll til jarðar í Ásgarði
HK vann ÍBV fremur óvænt í fyrstu umferð Íslandsmeistara en sá aldrei til sólar
gegn frísku liði Stjörnunnar sem virðist til alls líklegt í vetur enda var liðinu
spáð sigri í DHL-deild kvenna. Niðurstaðan átján marka sigur Stjörnunnar.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í byrjunarliði Barcelona í gær
í fyrsta skipti á þessari leiktíð
þegar Barcelona sótti Athletico
Bilbao heim. Barcelona vann 3-1
og Eiður kom mikið við sögu.
Bilbao náði forystunni á elleftu
mínútu leiksins þegar Yeste
skoraði fallegt mark. Eiður Smári
kom svo við sögu á nítjándu
mínútu þegar brotið var á honum
og sá brotlegi var rekinn út af
fyrir vikið.
Í uppbótartíma í fyrri hálfleik
náði Barcelona svo að jafna metin
og það var Eiður Smári sem lagði
upp það mark með góðri sendingu
fyrir markið sem Puyol afgreiddi
í markið.
Eiður Smári kom Barcelona
yfir á 61. mínútu þegar hann fékk
góða sendingu inn fyrir vörn
Bilbao og afgreiddi boltann
glæsilega í netið.
Eiði Smára var skipt út af á 71.
mínútu og inn á fyrir hann kom
Saviola, sem skoraði þriðja og
síðasta mark Barcelona. - dsd
Athletic Bilbao-Barcelona:
Eiður var allt í
öllu hjá Barca