Fréttablaðið - 01.10.2006, Page 74
34 1. október 2006 SUNNUDAGUR
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
HK-FYLKIR 31-24
Mörk HK (skot): Augustas Strasdas 8 (11), Valdi-
mar Þórsson 8/2 (13/2), Gunnar Steinn Jónsson
3/1 (5/1), Sigurgeir Árni Ægisson 2 (2), Brendan
Þorvaldsson 2 (2), Árni Björn Þórarinsson 2 (2),
Ólafur Ragnarsson 2 (4), Tomas Eitutis 2 (5),
Magnús Magnúss. 1 (1), Ragnar Hjaltested 1(3).
Varin skot: Egidijus Petkevicius 15/1.
Hraðaupphlaup: 9 (Augustas 2, Valdimar 2, Sig-
urgeir, Ólafur Bjarki, Tomas, Magnús, Árni Björn).
Fiskuð víti: 3 (Ragnar 2, Gunnar Steinn).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Fylkis (skot): Arnar Sæþórsson 6/3 (9/4),
Ingólfur R. Axelsson 5 (7), Guðlaugur Arnarsson
4 (5), Eymar Krüger 4 (11), Þórir Júlíusson 2 (10),
Ívar Grétarsson 1/1 (1/1), Pétur Heiðar Þorláksson
1 (2), Hreinn Þór Hauksson 1 (5).
Varin skot: Hlynur Morthens 11.
Hraðaupphlaup: 4 (Guðlaugur 3, Eymar).
Fiskuð víti: 5 (Arnar, Hreinn, Guðlaugur, Þórir,
Ívar).
VALUR-AKUREYRI 26-22
Mörk Vals (skot): Davíð Höskuldsson 8 (9), Mark-
ús Máni Michaelsson 6/2 (14/2), Fannar Friðgeirs-
son 5 (10), Ingvar Árnason 4 (5), Ægir Jónsson 1
(4), Sigurður Eggertss. 1 (4), Ernir Arnarss. 1 (6).
Varin skot: Ólafur Gíslason 17/1.
Hraðaupphlaup: 6 (Davíð 3, Ingvar 2, Ernir).
Fiskuð víti: 2 (Gunnar, Sigurður).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Akureyrar (skot): Goran Gusic 7/3 (13/4),
Hörður Fannar Sigþórsson 5 (7), Andri Snær Stef-
ánsson 2 (2), Aigars Lazdins 2 (3), Nikolaj Jankovic
2 (4), Þorvaldur Þorlvaldsson 1 (1), Ásbjörn Frið-
riksson 1 (4), Rúnar Sigtryggsson 1 (4), Magnús
Stefánsson 1 (8).
Varin skot: Bjarni Frostas. 5, Sveinbjörn Péturss. 4
Hraðaupphlaup: 3 (Andri Snær, Aigars, Goran).
Fiskuð víti: 4 (Hörður, Aigars, Goran, Þorvaldur).
Þýska úrvalsdeildin
MELSUNGEN-LÜBBECKE 36-33
Þórir Ólafsson skoraði þrjú mörk fyrir Lübbecke.
MAGDEBURG-GÖPPINGEN 36-29
Jaliesky Garcia lék ekki fyrir Göppingen.
WILHELMSHAVENER-NORDHORN 30-31
Gylfi Gylfason skoraði ekki fyrir Wilhelmshavener.
STAÐAN
GUMMERSBACH 7 6 0 1 240-213 12
MAGDEBURG 6 5 0 1 193-157 10
HAMBURG 6 5 0 1 183-150 10
GÖPPINGEN 6 5 0 1 195-163 10
NORDHORN 6 5 0 1 177-159 10
KIEL 6 4 1 1 220-169 9
FLENSBURG 6 4 1 1 195-174 9
LEMGO 6 4 1 1 193-172 9
GROSSWALLST. 6 4 1 1 193-172 9
KRONAU/ÖSTR. 6 3 0 3 166-177 6
MELSUNGEN 5 2 0 3 136-139 6
BALINGEN 5 1 0 4 131-157 2
WILHELMSH. 6 1 0 5 189-207 2
LÜBBECKE 6 1 0 5 167-188 2
HILDESHEIM 6 1 0 5 157-180 2
DÜSSELDORF 5 0 0 5 125-165 0
WETZLAR 6 0 0 6 143-190 0
MINDEN 6 0 0 6 133-187 0
Spænska úrvalsdeildin
ALTEA-ADEMAR LEON 22-24
Sigfús Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Ademar.
STAÐA EFSTU LIÐA
PORTLAND 5 5 0 0 162-120 10
CIUDAD REAL 5 5 0 0 162-131 10
BARCELONA 5 4 0 1 159-125 8
ADEMAR 5 4 0 1 132-120 8
VALLADOLID 5 3 0 2 151-136 6
EHF-bikarkeppnin
CONVERSANO-HAUKAR 32-31
Mörk Hauka: Andri Stefan 7, Samúel Ívar Árnason
6, Gísli Jón Þórisson 5, Kári Kristján Kristjánsson
4, Jón Karl Björnsson 3, Guðmundur Pedersen 3,
Árni Sigtryggsson 2, Freyr Brynjarsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 15.
Meistaradeild Evrópu
SC SZEGED-CIUDAD REAL 20-25
Ólafur Stefánsson lék ekki með Ciudad Real.
BREGENZ-MONTPELLIER 17-29
HANDBOLTI Það er stórleikur í hand-
bolta í dag þegar Íslandsmeistarar
Fram taka á móti Íslendingaliðinu
Gummersbach. Eins og væntan-
lega flestir vita sem eitthvað fylgj-
ast með handbolta þá er Alfreð
Gíslason, landsliðsþjálfari Íslands,
þjálfari Gummersbach-liðsins og
auk hans spila þrír íslenskir leik-
menn með liðinu, þeir Sverre
Andreas Jakobsson, Guðjón Valur
Sigurðsson og Róbert Gunnars-
son. Leikurinn er fyrsti leikur lið-
anna í Meistaradeild Evrópu á
þessu tímabili.
Fréttablaðið hitti Alfreð Gísla-
son á máli í gær og hann sagði að
með réttu ætti Gummersbach að
vinna þennan leik en gerði sér
jafnframt grein fyrir því að þetta
væri ekki auðvelt verkefni. „Fram-
arar eru með mjög efnilegt og öfl-
ugt lið og þeir spila mjög svipaðan
bolta og við. Þess vegna veit ég að
við þurfum að spila mjög vel til að
vinna þennan leik. Við eigum að
vinna þennan leik og þess vegna
er öll pressan á okkur,“ sagði
Alfreð.
Í þessum leik er sú furðulega
staða komin upp að landsliðsþjálf-
ari Íslands er mættur með félags-
liðið sitt til Íslands til að mæta liði
aðstoðarþjálfara síns í Meistara-
deild Evrópu. Fréttablaðið hefur
engan heimildir fyrir því en þessi
staða hlýtur að vera einsdæmi í
sögunni. „Það er eiginlega hálf-
fyndið að vera mættur hingað með
erlent lið að spila á móti Íslending-
um og með Guðmund aðstoðar-
mann minn á móti mér hinum
megin,“ sagði Alfreð um þessa
furðulegu stöðu.
Landsliðsþjálfarinn Alfreð er
ekki í vafa um mikilvægi þess að
íslensk félagslið taki þátt í Evr-
ópukeppninni. „Það er mjög mikil-
vægt. Sérstaklega fyrir svona lið
eins og Fram sem er með mjög
mikið af ungum og efnilegum
strákum. Með því að taka þátt í
svona keppni sjá þessir strákar
hvar þeir standa og hvað þeir
þurfa að bæta. Nú er þetta líka
þannig að það er trygging í þessu
sem sér til þess að íslensk lið geta
farið í þetta án þess að verða gjald-
þrota út af ferðakosnaði og öðru,“
sagði Alfreð.
Sverre Andreas Jakobsson,
fyrrum leikmaður Fram og núver-
andi leikmaður Gummersbach,
getur því miður ekki spilað með
Gummersbach gegn Fram í dag
vegna meiðsla. „Það er gríðarlega
svekkjandi að missa af þessum
leik. Ég er búinn að hlakka svaka-
lega til að mæta Frömurunum í
höllinni en ég fæ allavega að koma
með,“ sagði Sverre sem fannst
hálffurðulegt að vera mættur
aftur til Íslands til að mæta sínum
gömlu félögum.
Sverre lét vel af dvöl sinni hjá
Gummersbach. „Mér líður alveg
svakalega vel þarna. Þetta er frek-
ar rólegur og lítill bær, á þýskan
mælikvarða. Það er mikill áhugi
fyrir liðinu í bænum, þetta er gam-
alt stórveldi og það er verið að
reyna að byggja það upp aftur.
Hópurinn er góður og það er góð
stemning í liðinu. Það er líka alveg
ómetanlegt fyrir mig að hafa Guð-
jón og Róbert þarna og mjög
gaman að spila undir stjórn
Alfreðs aftur, en hann var þjálfar-
inn minn hjá KA á sínum tíma.
Alfreð er sennilega einn sá besti í
bransanum í dag og nýtur mikillar
virðingar í Þýskalandi,“ sagði
Sverre þegar Fréttablaðið ræddi
við hann í gær.
dagur@frettabladid.is
GUÐJÓN VALUR Snýr aftur í Laugar-
dalshöllina en í þetta sinn í búningi
Gummersbach. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞRÍR GÓÐIR Landsliðsþjálfararnir Guðmundur Guðmundsson og Alfreð Gíslason
ræða málin ásamt Sverre Jakobssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við eigum að vinna þennan leik
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, er kominn hingað til lands með félagsliðs sitt, Gum-
mersbach, til að mæta Guðmundi Guðmundsyni, aðstoðar landsliðþjálfara, og lærisveinum hans í Fram.
HANDBOLTI HK og Fylkir áttust við
í Digranesi í gær. Leikurinn var
jafn framan af en HK-menn sigldu
fram úr í seinni hálfleik og unnu
örugglega, 31-24.
Leikurinn fór rólega af stað og
virkuðu bæði lið ryðguð í upphafi
móts. Staðan var jöfn framan af
en gestirnir voru þó jafnan fyrri
til að skora. Fyrri hálfleikur var
frekar tíðindalítill og fátt um fína
drætti, en varnir beggja liða stóðu
fyrir sínu og því var staðan í leik-
hléi jöfn, 12-12. Í upphafi síðari
hálfleiks skoruðu heimamenn
fyrstu tvö mörkin og litu aldrei til
baka eftir það. Fylkismenn héldu í
við þá framan af síðari hálfleik en
þegar staðan var 16-15 HK í vil
fékk einn leikmaður úr hvoru liði
brottvísun fyrir samstuð við víta-
teig Fylkismanna. Heimamenn
virtust höndla fámennið betur og
tóku öll völd á vellinum en á
fimmtán mínútum skoruðu þeir
níu mörk í röð og staðan var
skyndilega orðin 25-15. Þá tók Sig-
urður Sveinsson, þjálfari Fylkis-
manna, leikhlé en það var einfald-
lega um seinan. Eftir leikhléð náðu
gestirnir aðeins að laga stöðuna en
heimamenn sigldu sigrinum
örugglega í höfn með góðum enda-
spretti og lauk leiknum með sjö
marka sigri þeirra.
Í slöku liði gestanna stóð mark-
vörðurinn Hlynur Morthens upp
úr en hann varði ellefu skot og
hélt liði sínu á floti á köflum í
leiknum. Sigur HK-liðsins ein-
kenndist af sterkri vörn sem lok-
aði á lið Fylkis í síðari hálfleiknum
en þar fóru fremstir í flokki Sigur-
geir Árni Ægisson með þrjú varin
skot og Augustas Strasdas sem
átti upphafið af mörgum hraða-
upplaupum heimamanna. Fyrir
aftan vörnina var Eyidijus
Petkevicius sterkur og varði
fimmtán skot.
Markahæstir voru þeir Strasdas
og Valdimar Þórsson sem skoruðu
átta mörk hvor, en Valdimar var
að vonum ánægður með sigurinn.
„Við vorum mjög slappir framan
af, eitthvað stress í okkur, en síðan
byrjuðum við seinni hálfleikinn af
krafti og komumst tíu mörkum
yfir. Við spiluðum miklu betri
vörn í seinni hálfleik og reyndum
að keyra yfir þá og það tókst. Það
er fínt að byrja vel á heimavelli,
gera þetta að smá gryfju hérna.“
Aðspurður um markmið liðsins í
vetur svaraði Valdimar einfald-
lega að það væri að gera betur en
spáin sagði til um. „Við erum með
mjög nýtt lið en með þennan
mannsskap væri fimmta sætið
skandall.“ - kar
EITT AF TVEIMUR Þórir Júlíusson skorar annað marka sinna fyrir Fylki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HK-ingar sigldu fram úr Fylkismönnum í síðari hálfleik og unnu sjö marka sigur:
HK vann öruggan sigur á Fylki í Digranesi
HANDBOLTI Það mátti sjá marga
prýðistakta þegar hið unga lið
Vals, sem knattspekingar hafa
spáð sigri á Íslandsmótinu í hand-
knattleik þetta árið, tók á móti
norðanmönnum í liði Akureyrar í
Laugardalshöll í gær. Eftir nokkuð
jafnan leik í fyrri hálfleik sigu
Valsmenn framúr í síðari hálfleik
og urðu lokatölur 26-22 fyrir
heimamenn.
Þrátt fyrir góð tilþrif var nokk-
ur haustbragur á handboltanum
sem boðið var upp á í Laugardals-
höllinni og líklegt að samspil og
leikkerfi eigi eftir að slípast nokk-
uð til á næstu vikum og mánuðum.
Svo virtist sem Valsmenn ætluðu
sér að afgreiða leikinn þegar í
upphafi og oft á tíðum virkaði
kappið meira en forsjáin í sam-
spili þeirra. Lið Akureyrar hóf
leik sinn hins vegar af yfirvegun.
Varnarleikurinn var góður og að
sama skapi var meiri ró yfir sókn-
arleik þeirra. Norðanmenn náðu
tveggja marka forystu þegar í
upphafi og héldu forystunni fram-
undir miðbik fyrri hálfleiks þegar
Valsmenn náðu jafnvægi á sinn
leik. Jafnt var á tölum fram til
loka hálfleiksins en Markús Máni
Michaelsson náði eins marks for-
ystu fyrir Val með síðasta marki
fyrir leikhlé - staðan 13-12 fyrir
Val.
Það virtist sem leikmenn Akur-
eyrar hefðu gleymt einbeitingunni
inni í búningsklefa í leikhléi og
Valsmenn gengu á lagið með
góðum leikkafla sem skilaði þeim
fjögurra marka forskoti þegar í
upphafi hálfleiksins. Um leið var
sem losnað hefði um einhverja
taugaspennu hjá leikmönnum Vals
og mátti sjá prýðistakta í samspili
þeirra. Norðanmenn virtust á móti
eiga í erfiðleikum með að finna
glufur á varnarvegg Valsmanna
og náðu lítt að saxa á forskoti
þeirra sem varð mest sex mörk.
Sigur Vals var aldrei í hættu eftir
þennan leikkafla og lokatölur urðu
sem fyrr segir 26-22.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals var að vonum sáttur við
stigin tvö. „Við vorum að spila
gegn gríðarsterkri og reynslumik-
illi vörn hér í dag og ég er því
ánægður með að hafa innbyrt stig-
in sem og leik minna manna.“
Sævar Árnason, þjálfari Akur-
eyrar var ekki jafn kátur með
úrslit leiksins. „Ég er hundfúll
með að hafa tapað þessum leik.
Við erum enn ekki komnir í nógu
góða æfingu en ég sá þó margt í
leik minna manna sem ég er sátt-
ur við. Mér þótti leikurinn jafn-
framt vera prýðisskemmtun og
góð auglýsing fyrir íslenskan
handbolta.“ - sk
SLOPPINN Í GEGN Valsmaðurinn Ægir Jónsson er hér sloppinn framhjá Aigars Laz-
dinz, leikmanns Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Valsmenn hófu leik á Íslandsmótinu með fjögurra marka sigri á nýju liði Akureyrar:
Valsmenn stóðust fyrsta próf vetrarins
HANDBOLTI Haukar töpuðu í gær
fyrir ítalska liðinu Conversano,
32-31, í Evrópukeppni félagsliða í
handbolta. Síðari leikurinn er hér
á landi um næstu helgi og verður
að teljast að möguleikar Hauka-
manna séu góðir um áframhald-
andi keppni í mótinu.
„Þetta var mjög jafn leikur og
við komumst m.a. í 30-29 undir
lokinn og síðan áttum við tök á
því að jafna metin undir lokinn.
Þetta voru fín úrslit fyrir okkur
og við erum nokkuð sáttir við
þetta. Aðstæður voru frekar
erfiðar, það er 30 stiga hiti hérna
á daginn og það var heitt og rakt í
íþróttahúsinu og það var erfitt
fyrir okkur að spila,“ sagði Páll
Ólafsson, þjálfari Hauka, eftir
leikinn í gær. - dsd
Evrópukeppnin í handbolta:
Haukar töpuðu
með einu marki