Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 12
18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
Tölvunám
Stafrænar myndavélar
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Flest stéttar- og
fagfélög styrkja
félagsmenn sína
myndarlega til
náms hjá okkur.
Kynntu þér rétt
þinn hjá þínu
félagi.
Stutt og hagnýtt námskeið fyrir þá sem eru að
taka fyrstu skrefin með myndavélina. Farið yfir
öll helstu grundvallaratriði og meðferð
myndanna í tölvunni. Þátttakendur glöggva sig á
stærð og upplausn mynda, skipulag myndanna í
heimilistölvunni og grundvallarlagfæringar á
myndunum.
Þá verður farið yfir heimaprentun og framköllun
myndanna, að senda þær í tölvupósti eða vista á
geisladiska til varðveislu. Vinsælt, ókeypis
myndvinnsluforrit á Netinu tekið fyrir.
Lengd 14 std. (3 kvöld) Hefst 25. október í
Reykjavík og 7. nóvember á Akureyri.
Verð kr: 15.000.- Kennslubók innifalin.
Tölvuskólinn
þinn
SUÐUR-KÓREA, AP Fyrrverandi ráða-
maður í Norður-Kóreu telur engar
líkur á því að kjarnorkuvopnaá-
ætlun landsins verði stöðvuð fyrr
en leiðtoginn Kim Young Il missir
völdin. Hann sagðist þó telja litlar
líkur á því í bráðina.
Í gær bárust fréttir af því að
Norður-Kóreumenn væru hugsan-
lega að undirbúa aðra tilrauna-
sprengingu kjarnorkuvopns, en
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, segir að litið
verði á aðra sprengingu sem alvar-
lega ögrun. Hún hélt í gær til Jap-
ans og ætlar einnig að fara til Kína
og Suður-Kóreu til þess að ræða
um kjarnorkudeiluna við Norður-
Kóreu.
Norður-Kóreumenn ítrekuðu
hins vegar í gær að þeir líti á allan
þrýsting sem stríðsyfirlýsingu og
muni bregðast við með harkaleg-
um hætti.
Hwang Jang Yop, sem flúði frá
Norður-Kóreu árið 1997, sagðist í
viðtali við AP fréttastofuna efast
um að refsiaðgerðir Sameinuðu
þjóðanna veiki stöðu leiðtogans,
sem hefur alla þræði í hendi sér.
„Ég efast um að völd hans
veikist að ráði,“ sagði Hwang, og
bætti því við að Suður-Kórea haldi
áfram að veita Norður-Kóreu
margvíslega aðstoð, auk þess sem
Kína, Rússland og fleiri lönd séu
andvíg því að beita Norður-Kóreu
miklum þrýstingi.
Hann sagðist ekki heldur telja
það skila nokkrum árangri að
semja við Norður-Kóreu. Þess í
stað ættu Bandaríkin, Rússland,
Kína, Japan og Suður-Kórea að
standa saman að því að einangra
landið, sem hann kallar „alþjóð-
leg glæpasamtök og óvin lýðræð-
is“.
Hwang lagði áherslu á að ein-
ungis Kínverjar geti komið því til
leiðar að Kim Young Il missi völd-
in.
„Engir kínverskir embættis-
menn eru hrifnir af leiðtoga Norð-
ur-Kóreu, en þeir halda honum
við völd,“ segir Hwang.
Hwang, sem sjaldan gefur við-
töl, kom heiminum heldur betur á
óvart árið 1997 þegar hann bað,
ásamt aðstoðarmanni sínum, um
hæli í sendiráði Suður-Kóreu í
Beijing þegar þeir voru þar í
heimsókn. Hann var þá einn af
æðstu leiðtogum Norður-Kóreu,
aðalritari Verkamannaflokksins
sem réði þar lögum og lofum.
Hwang hafði verið nákominn
Kim Il Sung, stofnanda Norður-
Kóreu, og var nánast uppeldisfað-
ir sonar hans og núverandi leið-
toga landsins, Kim Young Il.
Hann er einnig almennt talinn
helsti hugmyndafræðingurinn á
bak við Juche-stefnuna, sem
stjórnvöld í Norður-Kóreu fylgja,
og gengur út á það að landið sé
sjálfu sér nægt um allar þarfir.
Hwang nýtur lögregluverndar
allan sólahringinn af ótta við að
Norður-Kóreumenn reyni að ráða
hann af dögum.gudsteinn@frettabladid.is
Búa sig undir
aðra sprengju
Fyrrverandi ráðamaður í Norður-Kóreu segir engar
líkur á því að samningaviðræður við Norður-Kóreu
skili árangri. Eina sem dugi sé að einangra landið.
HWANG JANG
YOP
Var einn af
æðstu leið-
togum Norður-
Kóreu þegar
hann flúði land
árið 1997.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
������ ���������������������������������������������������������������� ���������������������
��������
���������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
����������
������������
������� ����� ��������������������� ����������
��������������������������������������������
������������������������
�����������������������
�������������
�������������
��������� ������������������������� ������������������������ �����������
�������������������������� ���������������� �����������������
����������������������������������������������������� ����������
����������������������������������������������������������
���������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
������������������������������������� ����������������
Engir kínverskir emb-
ættismenn eru hrifnir
af leiðtoga Norður-Kóreu, en þeir
halda honum við völd.“
HWANG JANG JOP
FLÓTTAMAÐUR
DÓMSMÁL Maður á sjötugsaldri
hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir að hafa
haldið konu nauðugri í um hálfa
klukkustund á skrifstofu fyrir-
tækis. Maðurinn var dæmdur í
30 daga fangelsi, skilorðsbundið
í tvö ár, auk rúmlega 100 þúsund
króna greiðslu í miskabætur.
Konan hafði verið send á
vegum Orkuveitunnar í fyrir-
tækið sem er í Kópavogi til að
loka fyrir rafmagnið. Þegar hún
hafði gert það kom maðurinn að
henni og skipaði henni að opna
fyrir það aftur, sem hún og
gerði.
Eftir þetta læsti maðurinn úti-
dyrahurð fyrirtækisins, ýtti kon-
unni inn á skrifstofu sína og hélt
henni þar nauðugri. Henni tókst
að gera Orkuveitunni viðvart og
var lögreglan kvödd á vettvang.
Þá stóð maðurinn við skrifstofu-
dyrnar en konan fyrir innan
hann, inni í horni. Lögreglumenn-
irnir tjáðu manninum að hann
gæti ekki haldið konunni inni.
Hann hleypti henni þá fram hjá
þannig að hún komst út.
Konan fékk áfallahjálp á
Landspítalanum eftir atburðinn
og einnig nokkra tíma hjá sál-
fræðingi. Manninum er gert að
greiða sakarkostnað.
- jss
ORKUVEITAN Konan var starfsmaður
Orkuveitunnar.
Maður á sjötugsaldri dæmdur í fangelsi og til greiðslu miskabóta:
Hélt konu nauðugri í hálftíma
MÓTMÆLI Í SUÐUR-KÓREU Þarna eru gamlir hermenn úr Kóreustríðinu að mótmæla
brölti nágrannans í norðri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, var viðstaddur
opnun nýrra höfuðstöðva Baugs í
London í gær og flutti ávarp við
athöfnina.
Höfuðstöðvarn-
ar verða
miðstöð allrar
starfsemi
fyrirtækisins á
Bretlandseyj-
um. Meðal
helstu fjárfest-
inga Baugs
Group í
Bretlandi eru
félögin Iceland, verslanakeðjan
og heildverslunin Booker, Mosaic
Fashions Ltd., sem eiga og reka
Karen Millen, Oasis, Whistles og
Coast kventískuvöruverslanir,
matvælafyrirtækið Woodward,
Goldsmiths skartgripakeðjan og
Hamleys leikfangaverslanir svo
eitthvað sé nefnt. - hs
Forsetinn viðstaddur opnun:
Baugur opnar
höfuðstöðvar
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON