Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 16
18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Halloween – Hrekkjavaka – er 31.
næstkomandi og verður haldin hátíð-
leg um allan heim, mest í Bandaríkj-
unum. Á þessum degi gengur allt út á
hrylling, búninga og skraut og krakkar
ganga í hús og sníkja nammi. Hér-
lendis hefur Hrekkjavakan ekki náð
almennilegri fótfestu ennþá, en það
er allt að koma segja Gylfi Þórisson og
Katrín Lillý Magnúsdóttir í Partýbúð-
inni á Grensásvegi.
„Hrekkjavökukonseptið er dálítið á
reiki hérna á Íslandi,“ segir Gylfi. „Það
var t.d. allt klikkað að gera núna fyrir
föstudaginn þrettánda, en svo er fólk
bara að halda hrekkjavökupartí úti um
allan bæ í október.“
Í boði er fjölbreytt úrval fyrir
hrekkjavökupartíið. „Köngulóarvefirnir
eru rosalega vinsælir og plastbeina-
grindurnar. Við erum með 15 metra
langa plastdúka sem breyta stofunni
þinni í kirkjugarð og þurrísinn er mjög
vinsæll til að búa til nornareyk. Fólk skellir þessu í bollu-
glasið eða lætur þetta líða um stofuna.“
Partíbúðir sem þessar eru mjög vinsælar í Bandaríkj-
unum og úti um allt þar. Gylfi segir að
Katrín hafi átt hugmyndina að stofna
svona búð hérlendis og að á síðustu
þremur árum hafi Íslendingar sífellt
orðið partíglaðari, þökk sé búðinni.
„Það var enginn að sinna þessu svo
við tókum það að okkur. Þetta eru
langmest amerískar vörur sem við
bjóðum upp á en við erum bara með
brot af því sem fæst þar. Sem dæmi
getum við nú boðið upp á 22 þemu
fyrir barnaafmæli, en fyrirtækið sem
við skiptum við úti er með 180 þemu.
Þegar hrekkjavökudæminu lýkur verða
áramótin næsti stóri viðburðurinn á
dagskrá hjá okkur. Þegar nær dregur
leggjum við búðina undir vörur sem
tengjast áramótunum.“
Gylfi og Katrín eru í útrás og
hafa stofnað heildverslununa Sel.
Þau stefna að því að byrja að dreifa
partívörum í stórverslanir bráðlega. Í
samvinnu við Latabæjarveldið byrja
þau líka bráðlega að bjóða upp á Latabæjarpartývörur
– diska, glös, blöðrur o.s.frv. – en þótt ótrúlegt sé hafa
slíkar vörur ekki fengist til þessa. - glh
GYLFI ÞÓRISSON OG KATRÍN LILLÝ
MAGNÚSDÓTTIR Í PARTÝBÚÐINNI Það
var enginn að sinna þessu svo við
tókum það að okkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
Er nauðsynlegt að skjóta
þá? spurði Bubbi fyrir
tuttugu árum. Í sautján
ár, eða síðan 1989, hefur
svarið verið nei. Í gær-
morgun var líf og fjör um
borð í Hval 9. Gamlir vinir
úr hvalveiðiflotanum voru
komnir í gamla gírinn, olían
streymdi í 3.000 lítra tank-
inn, menn voru að dytta að
og smyrja. Svartur reykur
steig upp úr reykháfnum á
ný. Ætlunin var að sigla til
hvalstöðvarinnar í Hvalfirði
og bíða eftir grænu ljósi frá
ríkisstjórninni.
„Ég var nú bara nýkominn frá
Spáni þegar ég var kallaður inn,“
segir Sigurður G. Njálsson, skip-
stjóri og skytta á Hval 9. „Jú,
óneitanlega er maður spenntur og
vonar að við fáum grænt ljóst á
þetta frá ríkisstjórnarfundinum í
hádeginu. Við ætlum að minnsta
kosti að sigla upp í Hvalfjörð og
sækja byssuna og æfa okkur að
skjóta. Maður er óneitanlega orð-
inn ansi ryðgaður eftir sautján
ára fjarveru. En ef við fáum
grænt ljós förum við beint að
veiða.“
Sigurður segist hafa verið á
trillum í pásunni löngu. Hann
segir nýjan sprengiodd sem Norð-
menn hafa notað verða tekinn upp
hér. „Hann er miklu kraftmeiri
en gamla týpan, 1, 2 og 3 og hval-
urinn er steindauður. Og svo
skemmir þetta ekki kjötið eins
mikið.“
Hvalur 9 er nýkominn úr slipp
en í gær átti að keyra vélarnar á
fullu á hafi úti, í fyrsta skipti í
sautján ár. Tuttugu manns hafa
verið við vinnu uppi í Hvalfirði að
koma stöðinni í samt form og
menn eru greinilega að undirbúa
sig fyrir blússandi hvalveiðar á
ný. „Hvalur 8 fer í slipp líka ef við
fáum leyfi en Hvalur 6 og 7 eru
alveg úr myndinni eftir að þeim
var sökkt um árið. Það væri rétt-
ast að henda þeim bara,“ segir
Sigurður. Við erum við stýrishús-
ið. Hátt mastrið með tunnunni
sem menn sitja í og skima út á sjó
eftir bráðinni blasir við. Það þýðir
lítið fyrir lofthrædda að vinna við
þetta, segir blaðamaður og ímynd-
ar sér það þrekvirki að þurfa að
klifra þarna upp í hvínandi roki,
en skipstjórinn Sigurður yppir
bara öxlum yfir svona vitleysu.
„Þetta er lífið,“ segir hann og
brosir, ekki ósvipað og spenntur
strákur sem er að fara að taka
utan af stórum jólapakka.
gunnar@frettabladid.is
Útvatnaður brandari
„Í rauninni er þetta allt sami
grautur í sömu skál eða,
ef menn vilja, sama þvag
í sömu skál. Sami gamli,
útvatnaði brandarinn.“
VILHJÁLMUR EYÞÓRSSON FJALLAR
UM NÚTÍMALIST.
Morgunblaðið 17. október.
Bubbinn endalausi
„Ég hef ekki orðið var við
heilabilanir eða neitt því um
líkt, þannig að ég er á því
að ég verði í góðu standi
allavega næstu, segjum
fjörutíu árin.“
BUBBI MORTHENS Í TILEFNI AF
PLÖTUSAMNINGI SEM HANN
GERÐI VIÐ SENU UM TÍU PLÖTUR
Í VIÐBÓT.
Fréttablaðið 17. október.
„Ég er bara ánægð með það,“
segir Ásthildur Cesil Þórðardóttir,
garðyrkjustjóri á Ísafirði, um þau
tíðindi að hvalveiðar séu að hefjast
á ný. „Við eigum að nýta allar
okkar auðlindir. Stofninn er það
sterkur að hann á alveg að þola
einhverjar veiðar. Í raun áttum
við aldrei að hætta heldur taka
skynsamlega á veiðunum, því þessi
dýr éta óheyrilega mikið og það er
slæmt ef þau fjölga sér um of. Sjálf
borðaði ég oft hvalkjöt áður fyrr
og fitan er algjört lostæti. Ég fékk
mér grillaða hrefnu nýlega og hún
var alveg frábær. Í gamla daga var
þetta hvunndagsmatur, kjötið bara
lagt í mjólk og síðan steikt á pönnu,
en nú er farið að hantera þetta og
krydda þannig að þetta er lostæti:
Fínar steikur sem eru fyllilega
sambærilegar við íslenskt nautakjöt.
Eiginlega mun betra kjöt.“
SJÓNARHÓLL
HVALVEIÐAR HEFJAST Á NÝ
Betra en
nautakjöt
ÁSTHILDUR CESIL ÞÓRÐARDÓTTIR
GARÐYRKJUSTJÓRI
RYÐGAÐAR HJARIR SMURÐAR Að mörgu
þarf að dytta eftir sautján ára landlegu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
Beðið eftir græna ljósinu
SIGURÐUR G. NJÁLSSON SKIPSSTJÓRI UM BORÐ Í HVAL 9 Nýkominn frá Spáni en
óneitanlega spenntur fyrir því sem koma skal. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
REYKHÁFURINN SPÚIR Á NÝ Sigla átti
Hval 9 upp í Hvalfjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
STARFSSTÚLKA OLÍUDREIFINGAR Sagði
stemninguna ótrúlega um borð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GLH
„Það er flest gott að frétta,“ segir
Ása Björk Ólafsdóttir, fríkirkjuprestur
í Reykjavík. „Það er mikið að gera í
kirkjustarfinu og margt nýtt í gangi.
Ég var m.a. ráðin til safnaðarupp-
byggingar og nú erum við að fara
af stað með æskulýðsstarf og 12
spora hóp. Hvort tveggja hefst í
byrjun nóvember. Ég held að
fyrsta árið í starfi sé erfiðast.
Ég var reyndar búin að vera
kirkjuvörður í Fríkirkjunni
í rúm þrjú ár, en þetta
er annars konar ábyrgð.
Það er minna rými fyrir
mistök núna. Ég horfi
bjartsýn til vetrarstarfsins
og persónulífsins. Börnin mín vaxa
og dafna og það eru alltaf að koma í
ljós nýir og nýir hæfileikar. Þau taka
þátt í mörgu og vilja helst sigra allan
heiminn. Börnin mín eru óskaplega
glöð og fyrir það má þakka á hverjum
degi. Það er alls ekki sjálfsagt að börn
séu glöð og það er mikil gjöf. Guð
er góður! Ég er að gera upp íbúðina
hjá mér og það er mjög skemmtilegt,
gaman að taka ákvarðanir í þessari
íbúð sem er mjög góð í grunninn.
Ég bý nálægt miðbænum sem er
yndislegt. Ég gekk í gegnum borgina
aðfaranótt sunnudags. Það abbaðist
enginn upp á mig enda er ég svo
vígaleg.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÁSA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR FRÍKIRKJUPRESTUR
Börnin glöð og mamman vígaleg
■ Útfararstjóri í Kaliforníu vildi
jarða þá skoðun að bandarískar
útfararstofur væru fullar af húm-
orslausum
dauðyfl-
um. Þess
vegna gaf
hann út
dagatal
sem sýnir léttklædda útfar-
arstjóra sitja fyrir brosandi í
kirkjugörðum. Hann auglýsti eftir
fyrirsætum í stéttarfélagsblaðinu
og fékk 276 umsóknir. Sumir
áttu reyndar erfitt með að brosa
þegar til kastanna kom og tveir
útfararstjórar frusu hreinlega fyrir
framan myndavélina.
DAGATAL:
NAKTIR
ÚTFARARSTJÓRAR
Köngólarvefirnir rosalega vinsælir
Nýjung í ræstingum
Unilav ræstitæki með 40 cm moppugrind
R
V
62
14
6.996 kr.
Þurr- og blautmoppað
með sama áhaldinu
Auðveld áfylling,
einfalt í notkun
Sérlega handhægt
Á tilboði