Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 22
[ ]
Á köldum vetrarmorgnum
getur langur tími farið í það að
skafa bílinn og ná hita í hann
áður en haldið er af stað út í
umferðina. Við þessar aðstæð-
ur getur fjarstartbúnaður kom-
ið sér vel en hann má meðal
annars fá í Nesradíói.
Guðmundur Ragnarsson í Nesrad-
íói segir að nú þegar haustið er
komið sé sala á fjarstartbúnaði
farin að aukast. „Fjarstartbúnaður
er vertíðarvara og núna setjum við
nokkra í á dag. Salan byrjar í sept-
ember þegar kólnar aðeins og nær
svo hámarki í svona febrúar,
mars,“ segir hann.
Fjarstartbúnaður, kominn í bíl-
inn, kostar þrjátíu og fimm þúsund
í Nesradíói. „Búnaðurinn gengur
aðeins í sjálfskipta bíla. Hann er
forritaður þannig að bíllinn geng-
ur í tuttugu og fjórar mínútur en
ef enginn kemur út þá slekkur
hann á sér eftir þann tíma og fer í
fyrra ástand. Fjarstýringin dregur
sirka þrjú til fimm hundruð metra
og þú þarft eiginlega að sjá bílinn
til þess að hún virki örugglega.
Um leið og þú setur bílinn í
gang kviknar á stöðuljósunum og
þau loga á meðan hann er í gangi.
Bíllinn þarf náttúrulega að vera
stilltur á „park“ og þú getur ekki
sett hann í gang öðruvísi. Við setj-
um þetta ekki í beinskipta bíla því
að það er ekkert mál að klúðra því
og við viljum ekki að bíllinn keyri
yfir einhvern eða á eitthvað.“
Guðmundur segir að fólk þurfi
aðeins að vera meðvitað þegar það
er komið með fjarstartbúnað í bíl-
inn og megi ekki láta bílana ganga
endalaust. „Fólk þarf líka að
athuga hvar bílarnir standa þegar
það startar þeim svo að pústið
blási ekki beint inn í kjallaraíbúð-
ina við hliðina eða eitthvað svo-
leiðis,“ segir hann.
emilia@frettabladid.is
Gott start inn í veturinn
Langan tíma getur tekið að hreinsa kalda bíla á snjóþungum vetrarmorgnum.
ÞREMUR NÝJUM METANBÍLUM AF GERÐINNI VOLKS-
WAGEN CADDY HEFUR VERIÐ BÆTT VIÐ BÍLAFLOTA
SORPU.
Metanbílar Sorpu eru nú sextán talsins en til stendur
að fjölga þeim enn frekar því fjórir metanbílar af
gerðinni Volkswagen Touran verða teknir til notkunar
á næstu vikum.
Með hliðsjón af þessu eru nú um 50 tvíorkubílar á
höfuðborgarsvæðinu, það er að segja bílar sem geta
bæði gengið fyrir metani og bensíni, auk fjögurra
bíla, sem ganga eingöngu fyrir metani. Frá þessu er
greint á heimasíðu Sorpu, www.sorpa.is.
-rve
Metanbílum Sorpu fjölgað
Þrír metanbílar af gerðinni Volkswag-
en Caddy hafa þegar verið teknir í
notkun hjá Sorpu.
Olía margir eiga það til að gleyma því að athuga olíuna á bílum sín-
um. Sérstaklega þeir sem nýta sér sjálfsafgreiðsluna á bensínstöðvum.
Láttu athuga olíuna næst þegar þú rennir við á bensínstöð.
Jeppadekk
Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
31" heilsársdekk
verð frá kr. 12.900
www.alorka.is
Sendum frítt um land allt!
Við míkróskerum og neglum!
Úrval af stærðum upp í 33"
Opið á laugardögum 9-13
M
IX
A
•
fít
•
6
0
4
9
7
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
� � � � � � � � �� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
�����������������������
��������������������������������������������������
���������������������������������������
������������������������������� �������������
�������������������������������
��
�
��
�
��
�
��
�
�
��
��
�
�
�
��
�
��