Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 26
[ ]Lestrarefnið festist stundum illa í minni. Með því að lesa efnið yfir þrisvar, einu sinni hratt og lauslega, einu sinni ítarlega og að síðustu renna hratt yfir efnið aftur þá eru meiri líkur á að efnið festist í minni.
Hin filippseyska Fe Galicia
Isorena er að hefja fjórða vetur
sinn sem íslenskukennari þó
sjálf hafi hún aðeins búið hér á
landi í átta ár.
Fe Isorena, sem jafnan er kölluð
Níní, er ein þriggja íslenskukenn-
ara við námsver nemenda af
erlendum uppruna í Fellaskóla, en
þar eru margir nemendur af ólíku
þjóðerni. Hún hefur ekki einungis
filippeysku, ensku og íslensku á
valdi sínu heldur þekkir líka þá
reynslu sem nemendur námsvers-
ins ganga í gegnum – að fóta sig í
nýju landi og læra framandi mál.
„Ég er sjálf alltaf að læra í dag-
legri umgengni minni við Íslend-
inga,“ segir Níní brosandi þegar
haft er orð á því hversu góð tök
hún hafi á málinu.
Þegar hún byrjaði að kenna
haustið 2003 voru, að hennar sögn,
mun færri nemendur af erlendum
uppruna í skólanum en nú. „Þeim
fjölgaði svo mikið á síðasta ári,“
segir hún. „Ég var í fæðingarorlofi
síðasta vetur og þegar ég kom
aftur til starfa í haust mættu mér
mörg ný andlit.“
Þótt flestir nemendur Níníar
séu filippseyskir þá kennir hún
einnig serbneskum börnum, pólsk-
um, albönskum, taílenskum og
víetnömskum, svo einhver þjóð-
erni séu nefnd. Í fyrsta sinn í haust
er þeim skipt í yngri og eldri deild
og Níní kennir mest í eldri deild-
inni. „Börnin koma til okkar úr
öðrum tímum. Þau eldri sleppa
dönskutímum og íslenskutímum,
en við tökum þau ekki úr stærð-
fræði, ensku, íþróttum og list- og
verkgreinum, því þar mynda þau
félagatengsl við íslenska jafnaldra
sína,“ lýsir hún.
Sjálf er hún með háskólapróf
frá Manila og hafði líka reynslu af
kennslu áður en hún kom hingað.
Er hún hafði dvalið hér á landi í
tvö ár og unnið hin ýmsu störf, svo
sem við þrif, garðyrkju og á mat-
sölustað, ákvað hún að fara í end-
urmenntunardeild HÍ til að læra
tungumálið betur og í framhaldinu
fékk hún starf á leikskóla. Þótt
íslenskan sé snúin segir hún Fil-
ippseyinga standa betur að vígi
gagnvart henni en aðrir Asíubúar,
því þeir séu með svipað stafróf og
læri ensku frá upphafi skólagöng-
unnar í heimalandinu. „Þetta er
mun erfiðara fyrir börnin sem ég
er að kenna og eru t.d. frá Taílandi
eða Kína og eru með allt annað rit-
mál. Þau þurfa að byrja á A, B og C
þó þau séu kannski orðin 15 ára.
Það reynir á alla en við notum
myndmál mikið,“ segir hún.
Níní segir nemendur námsvers-
ins á mjög mismunandi stigum
enda sé námið einstaklingsmiðað.
„Sumir eru búnir að búa hér í eitt
ár og aðrir eru nýkomnir, en við
leggjum megináherslu á að nem-
endum líði vel hér í skólanum.
Vellíðan er grundvöllur þess að
árangur náist. Þó börnin láti lítið
fyrir sér fara í kennslustundum
hjá öðrum og sjálfstraustið sé í
lágmarki þá leita þau eftir stuðn-
ingi okkar í námsverinu. Oft er ég
túlkur milli þeirra og annarra
kennara, auk þess sem ég get auð-
veldað samskipti skólans við for-
eldrana. Það er ekki bara tungu-
málið sem er börnunum erfitt
heldur umhverfið sjálft. Við
megum aldrei gleyma því að þau
réðu því ekki sjálf að þau komu
hingað heldur fylgdu foreldrun-
um. Börnin fá oft glampa í augun
þegar talað er um upprunaland
þeirra. „Þar er svo gaman,“ segja
þau. Það hefur orðið mikil röskun
á þeirra högum og það er mikil-
vægt að leyfa þeim að tjá sig um
hvernig var í gamla heimalandinu
og hvernig er hér.“ Að lokum er
Níní spurð hvort hún sé ánægð
með starfið sitt. „Já, það erfitt en
gefandi,“ segir hún brosandi og
bætir við: „Það er gaman að hjálpa
börnunum að læra málið og aðlag-
ast landinu. „gun@frettabladid.is
Áhersla á
vellíðan í skóla
„Sumir eru búnir að búa hér á landi í eitt ár og aðrir eru nýkomnir,“ segir Fe Galicia
Isorena sem kennir börnum af erlendum uppruna íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Myndmálið er mikið notað við kennsluna.
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
Innritun hafi n núna í síma 581 3730.
Öfl ug átaksnámskeið fyrir stelpur á aldursbilinu 16-20 og 21-30!
• Líkamsrækt við skemmtilega tónlist
• Leiðbeiningar um mataræði
• Fundir, aðhald, vigtun og mælingar
Kvöldtímar
Um er að ræða 5 vikna námskeið, 3 x í viku.
Vertu velkomin í okkar hóp!
nÁms
keiÐ
hefj
ast
23. ok
tÓbe
r
Taktu þér tak!
náViltu
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Þau hafa
lengt sinn
sól ar hring!
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor.”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum
því stúdent.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
Hvað segja nem end ur okk ar um nám skeiðið:
Frá bært, mark visst, hnit mið að, ævi á byrgð, nyt sam legt, krefj andi,
skemmti legt, mjög gott, skipu lagn ing, ein beit ing, já kvæðni, mik il aðstoð,
góður kenn ari, spenn andi, ár ang urs ríkt, hvetj andi, góð þjón usta.
NÝTT!! 6. vikna hraðlestrar nám skeið 7. nóv.
NÝTT!! 3 vikna hraðnámskeið 10. nóv.
AKUREYRI – 3 vikna hraðnámskeið 2. nóv.
Skráning á hraðlestrarnámskeið er hafin
á www.h.is og í síma 586-9400
Hagnýt danska
ÞJÁLFUN Í DÖNSKU TALMÁLI
VERÐUR AÐALÁHERSLUATRIÐI
NÁMSKEIÐS SEM ENDUR-
MENNTUN HÁSKÓLANS HELD-
UR Í NÓVEMBER.
Færni í að tala dönsku og
ná dönskum framburði er
meginmarkmið námskeiðs
sem Endurmenntun heldur á
mánudögum á fimmtudögum
frá 6. til 30. nóvember. Kennari
er Casper Vilhelmssen. Hann
er með BA gráðu í dönsku og
starfar í Víðistaðaskóla og einnig
hefur hann verið í Norræna
húsinu og séð þar um dönsku-
kennslu barna sem búið hafa í
Danmörku.
Á námskeiðinu í Endurmenntun
mun hann beita ýmsum aðferð-
um við kennsluna svo sem
samtölum, upplestri, netnotkun
og fleiri virkum æfingum.
Námskeiðið ætti að henta þeim
vel sem þurfa að nota dönsku
sem talmál í samskiptum vegna
vinnu og einnig þeim sem
búið hafa í Danmörku og vilja
viðhalda kunnáttu sinni.
Það er betra að kunna dönsku
þegar fólk bregður sér til Danmerk-
ur. MYND/KRISTJÁN SIGURJÓNSSON