Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 29
Sama staða | Tryggingaálag á
fimm ára skuldabréf bankanna
(CDS) er nú sambærilegt við það
sem var áður en tók að halla á þá
í umræðu um íslenskt efnahagslíf
í byrjun árs.
Fjármagna yfirtöku | Kaupþing
mun fjármagna yfirtöku Johns
Hargreaves, stofnanda og stjórn-
arformanns Matalan, á verslana-
keðjunni. Hljóðar tilboðið til hlut-
hafa upp á 200 pens á hlut.
Í Kauphöllina | JP Morgan
Securities í Lundúnum er orð-
inn aðili að hlutabréfamörkuðum
Kauphallarinnar. Aðilar að henni
eru nú orðnir 27 talsins, þar af eru
sex erlendir fjaraðilar.
Ágætar tekjur | Samanlagðar
skattgreiðslur bankanna og starfs-
manna þeirra nema alls tæpum
tuttugu milljörðum króna á þessu
ári.
Avion semur | Avion hefur, fyrir
hönd dótturfélags síns, Eimskips
Atlas Canada Inc., náð samkomu-
lagi við kanadíska frystigeymslu-
fyrirtækið Atlas Cold Storage um
yfirtökutilboð í allt hlutafé félags-
ins.
Nær yfirtöku | Hluthafafundur
Stork N.V. í Hollandi samþykkti
í vikunni að skipta upp félaginu.
Við það aukast líkurnar á að Marel
hf. fái keyptan matvælavinnslu-
vélahluta samstæðunnar.
Raunvextir hækka | Raunvextir
ná hámarki á fyrri hluta ársins
2007 að mati Greiningardeildar
Kaupþings sem býst við að þeir
verði þá komnir í átta prósent.
Sækja peninga | Kaupþing banki
hefur gefið út svokölluð Samurai-
skuldabréf í Japan fyrir samtals
fimmtíu milljarða japanskra jena,
sem svarar 29 milljörðum króna.
Ikea
Stærsta verslun
landsins
14
Salan á Icelandair
Afgreidd á
tveimur vikum
8
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 18. október 2006 – 40. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Samtímalist
Krafsar í köku meistaranna
10-11
Glitnir hefur tilkynnt að bankinn
muni flytja þá hluti sem keyptir
hafa verið til að verja bankann
fyrir áhættu tengdri framvirkum
viðskiptum undir auðkennið GLB
Hedge.
Greiningardeild Glitnis segir
markmiðið með aðgreiningunni
þá að auka gagnsæi hlutabréfa-
eignar bankans. Þetta er svipað-
ur háttur og Landsbankinn hafði
á með stofnun LI-Hedge undir
lok ágúst.
Deildin segir að forvitnilegt
verði að fylgjast með hvort
Kaupþing og Straumur-Burðarás
fjárfestingabanki fylgi ekki for-
dæmi bankanna tveggja á næst-
unni. - jab
MERKI GLITNIS Glitnir hefur aukið gagn-
sæi í hlutabréfaeign bankans.
Glitnir eykur
gagnsæi
Hlutafélagið Arkea, áður
Prokaria, hefur gert þeim
hluthöfum sem eiga bréf í
Líftæknisjóðnum tilboð upp á
eina krónu fyrir hvern hlut nafn-
verðs. Jakob Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Líftæknisjóðsins
og annar af stærstu eigendum
Arkeu, segir að með yfirtökutil-
boðinu sé verið að gera upp
Líftæknisjóðinn og Prokaria.
Nú er unnið að sölu eigna
Líftæknisjóðsins sem voru um
síðustu áramót hlutabréf í Arkea,
Orf Líftækni, BioStratum Inc.,
CanAg Diagnostic og Cyntellect.
Eignarhlutir í Arkea og CanAg
hafa verið seldir og unnið er að
sölu bréfa í Orfi og BioStratum.
Samkvæmt ársreikningi
Líftæknisjóðsins fyrir árið 2006
voru eignir bókfærðar á 332
milljónir króna en eigið fé nam
160 milljónum króna.
Ágúst Sindri Karlsson lögmað-
ur er auk Jakobs meðal stærstu
eigenda. - eþa
Bjóða í bréf
Líftæknisjóðsins
Tryggingarálag á fimm ára
skuldabréf bankanna (CDS) held-
ur áfram að lækka líkt og þróun-
in hefur verið síðustu vikur.
Lækkunin fór heldur skarpar
af stað hjá Landsbanka Íslands og
Glitni í haust en hjá Kaupþingi.
Síðan um mánaðamót hefur álag-
ið á bréf Kaupþings hins vegar
lækkað hraðar en hjá hinum.
Álagið er mest á bréf
Kaupþings, 54 punktar á mánu-
dag, en minnst á bréf Glitnis,
36 punktar. Álagið á skuldabréf
Landsbankans er svo 48 punktar.
Ef horft er á breytinguna frá
því í lok síðasta mánaðar er hún
hins vegar mest hjá Kaupþingi
sem 27. september var með 71
punkts álag á skuldabréf sín.
Lækkunin nemur því 17 punkt-
um. Til samanburðar hefur
tryggingarálag á skuldabréf
Glitnis lækkað um 9 punkta á
sama tímabili og um 8 punkta á
skuldabréf Landsbankans.
Álagið á bréf bankanna er því
núna komið undir það sem var
áður en umræða erlendra grein-
ingaraðila um íslenskt hagkerfi
og aðstæður bankanna fór á flug
í upphafi síðasta árs.
Sérfræðingar telja þó ólíklegt
að bankarnir nái í bráð jafngóð-
um kjörum á skuldabréfamark-
aði í Evrópu og buðust í fyrra,
en gera engu að síður ráð fyrir
hægum bata áfram. Talið er að
lækkun nýliðinna daga megi að
hluta til rekja til vel heppnaðra
skuldabréfaútgáfu bankanna á
mörkuðum utan Evrópu. Mikil
eftirspurn hefur verið eftir bréf-
um í Bandaríkjunum og nú síðast
gaf Kaupþing út skuldabréf í
Japan fyrir jafnvirði 29 millj-
arða króna.
-óká
Tryggingarálag lækkar enn
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Mikilli uppbyggingu á stóru verslunarhúsnæði er
nýlokið, hún hafin eða fyrirhuguð á höfuðborg-
arsvæðinu og í stærstu sveitarfélögum landsins
og telja sérfræðingar að um 250 þúsund fermetr-
ar af verslunarhúsnæði rísi á næstu tveimur til
fimm árum. Til samanburðar nemur verslunarrými
í Smáralind rúmum þrjátíu þúsundum. Viðbótin
verður því átta Smáralindir eða 2.500 verslanir af
stærðargráðunni 100 fermetrar sem er meðalstærð
verslunar við Laugaveg.
Stærstu framkvæmdirnar eru
annars vegar við Vesturlandsveginn
og hins vegar í Urriðaholtinu í
Garðabæ. Við Vesturlandsveg er
um 45 þúsunda verslunarhúsnæði
að rísa. Risaverslunin, sem er í
jafnri eigu Smáragarðs, fasteigna-
félags BYKO-samstæðunnar, og
Smáratorgs (Rúmfatalagersins),
er ólík verslunarmiðstöðvunum
Kringlunni og Smáralind að því
leyti að gengið er beint inn í versl-
anir frá bílastæðum eins og víða
þekkist erlendis og kallast versl-
anir sem þessar kauptún (retail
parks).
Hin þýska keðja Bauhaus hyggt
reisa um tuttugu þúsund fermetra
verslun við Vesturlandsveg.
Nokkur kauptún opna líka í
Urriðaholti, þar á meðal IKEA, sem er yfir tuttugu
þúsund fermetrar og stór BYKO-verslun. Guðmundur
Jónsson, framkvæmdastjóri Smáragarðs sem er
umsvifamikið í Urriðaholtinu, segir að þar á bæ sé
unnið að uppbyggingu 40 þúsund fermetra versluna-
rýmis um land allt og áætlar að 50 þúsund fermetrar
rísi til viðbótar.
Agnes Geirsdóttir, hjá Smáratorgi, segir að
stærsta verkefni félagsins sé bygging 20 hæða
skrifstofu- og verslunarturns í Smáranum sem opni
í október á næsta ári. Verslunarými á neðstu hæðum
er um fimm þúsund fermetrar. Þar til viðbótar ætlar
Smáratorg að tvöfalda stærð Glerártorgs
á næsta ári, úr níu þúsund fermetrum
í sautján þúsund. Smáratorg áformar
einnig að byggja 18-20 þúsund fermetra
verslunarmiðstöðvar í Reykjanesbæ og
á Selfossi árið 2008.
Pálmi Kristinsson, hjá Smáralind,
segir að um tíu þúsund fermetrar af
verslunarrými bætist við Smáralind á
næstu árum. Framkvæmdir við fimmt-
án hæða turn hefjast snemma á næsta
ári. Eigendur Smáralindar hafa einnig á
prjónunum að byggja upp verslunarhús-
næði sunnan megin við Smáralind.
Að sögn Arnar Kjartanssonar hjá
Stoðum hefur félagið hafið framkvæmd-
ir á tveimur verslunum Hagkaupa í
Borgarnesi og Reykjanesbæ sem eru um
tvö þúsund fermetrar. Fleira er í skoðun,
til dæmis er unnið að deiliskipulagi fyrir
Kringlureitinn.
Átta Smáralindir rísa
Verslanamiðstöðvar og kauptún rísa hratt á næstu miss-
erum. Heildarverslunarrými áætlað 250.000 fermetrar sem
samsvarar 2.500 meðalverslunum við Laugaveg.
V Æ N T A N L E G A R
S T Ó R V E R S L A N I R
Staðsetning/fyrirtæki Fermetrar
Urriðaholt 70.000
Blikastaðir 45.000
Lindir IV - Kópavogi 25.000
Bauhaus 20.000
Reykjanesbær 19.000
Selfoss 18.000
Smáralind 10.000
Glaðheimar Kópavogi 10.000
Grandi 10.000
Akureyri 8.000
Akranes 6.000
Smáratorg 5.000
Borgarnes 1.000
Alls 247.000