Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 30
MARKAÐURINN
G E N G I S Þ R Ó U N
18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Stofnfé SPH verður um það bil
fimmfaldað á næstunni í tengsl-
um við fyrirhugaða sameiningu
sparisjóðsins við SPV.
SPH er metinn 39 prósent í
samrunanum en þar sem stofnfé
SPH er lægra en hjá SPV þarf að
auka það til að mæta skiptihlut-
föllum.
Stofnfé SPH er átján milljón-
ir króna en ætlunin er að selja
ný stofnfjárbréf að upphæð 67
milljónir. Núverandi stofnfjár-
eigendur eiga forkaupsrétt að
nýju bréfunum á genginu einum.
Tillagan verður kynnt fyrir
stofnfjáreigendum á næstunni.
- eþa
Stofnfé SPH fimmfaldað
Vika Frá áramótum
Actavis -1% 38%
Alfesca -1% 22%
Atlantic Petroleum 16% 54%
Atorka Group -1% 2%
Avion Group 1% -31%
Bakkavör 1% 16%
Dagsbrún -1% -16%
FL Group 2% 21%
Glitnir 4% 26%
KB banki -1% 18%
Landsbankinn 4% 9%
Marel 1% 25%
Mosaic Fashions -1% -10%
Straumur 2% 9%
Össur 0% 9%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Hafliði Helgason
skrifar
Hluthafafundur Kaupþings samþykkti einróma að
greiða arð til hluthafa. Arðgreiðslan er í formi
hlutafjár í Exista og nemur markaðsvirði arð-
greiðslunnar hátt í 20 milljarða króna eða ríflega
890 þúsund hlutir í félaginu. Bankinn heldur eftir
fjármagnstekjuskatti af greiðslunni og nemur hún
um tveimur milljörðum króna.
Með arðgreiðslunum hafa verið rofin gagnkvæm
eignatengsl þessara félaga, en Exista er stærsti
hluthafi í Kaupþingi. Sigurður Einarsson, stjórn-
arformaður Kaupþings, sagði bankann aldrei hafa
litið á krosseignarhald sem tól í valdatafli við-
skiptalífsins. „Hitt er annað að það hefur verið mik-
ilvægur þáttur í hugmyndafræði okkar að vinna
náið með viðskiptavinum okkar, en halda slíkum
tengslum á hreinum viðskiptagrunnni.“
Hann sagði eignarhlutinn í Exista skýrt dæmi
um árangur slíkrar stefnu. „Þrátt fyrir það hefur
krosseignarhald tilhneigingu til að valda hugar-
angri á markaði, eins og við höfum séð og því
ákváðum við að draga úr því og auka seljanleika
eigna bankans.“
Sigurður segir að með arðgreiðslunni dragi veru-
lega úr eigin hlutafjáreign bankans og skráning
Exista dragi fram raunvirði eignarinnar. „Exista
vandamálið eins og sumir hafa kosið að kalla það,
hefur reynst okkur slík byrði að það skilar bankan-
um 23,8 milljörðum í hagnað á þessu ári. Ég er viss
um að margir bankar myndu glaðir vilja glíma við
slíkt vandamál.“
Sigurður gerði að umræðuefni í ræðu sinni
samleið Bakkavarar og Kaupþings, en stofnendur
Bakkavarar, þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir,
eru stærstu eigendur Exista. Sigurður sagði þessi
fyrirtæki hafa vaxið hlið við hlið í að verða stór arð-
söm alþjóðleg fyrirtæki á skömmum tíma. Þegar
leiðir lágu saman var Kaupþing minnsta fjármála-
fyrirtæki landsins. „Bakkavör var lítið annað en
hugmynd og skuldavandamál fyrir tíu árum. Nú
er Bakkavör fyrirtæki sem er leiðandi alþjóðlegt
matvælafyrirtæki sem rekur 46 verksmiðjur og
með sextán þúsund starfsmenn í sjö löndum með
um 180 milljarða veltu.“
Arðgreiðslan sem er sú stærsta hérlendis var
samþykkt samhljóða.
EINRÓMA SAMÞYKKT Hluthafar Kaupþings samþykktu sam-
hljóða arðgreiðslu að verðmæti um 20 milljarðar króna.
Stærsta arðgreiðsla
Íslandssögunnar
Kaupþing banki greiddi hluthöfum sínum 20 milljarða í arð.
Fjármagnstekjuskattur af greiðslunni nemur 2 milljörðum.
Exista gekk frá sölu á öllum hlut
sínum í Verði Íslandstryggingu
hf., eða 56,65 prósenta hlut, á
mánudagskvöld. Söluverð er
trúnaðarmál.
Sigurður Valtýsson, forstjóri
Exista, segir að afstaða sam-
keppnisyfirvalda hafi takmark-
að möguleika félagsins til hag-
ræðingar í rekstri og því hafi
verið ákveðið að ganga að tilboði
í hlutina. Salan hefur óveruleg
áhrif á efnahag Exista, sem mun
halda áfram að efla VÍS, að sögn
Sigurðar.
Kaupandi hlutanna er Klink
ehf., sem er annar stærsti hlut-
hafinn í Verði Íslandstryggingu
og mun það ráða um 63 prósent-
um hluta í félaginu eftir kaupin.
- jab
Exista selur tryggingafélag
EXISTA Exista hefur selt hlut sinn í Verði
Íslandstryggingu vegna takmarkandi
afstöðu samkeppnisyfirvalda.
Reiknað er með að velta Eimskips
ríflega tvöfaldist og verði 110
milljarðar króna á næsta ári eftir
kaup á kanadíska frystigeymslu-
fyrirtækinu Atlas Cold Storage.
Kaupin koma í kjölfar annarra
nýlegra kaupa félagsins. Félagið
rekur um 150 skip og um þúsund
kæligeymslur
„Þetta setur Eimskip í for-
ystuhlutverk í þessum iðnaði
á heimsvísu,“ segir Magnús
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Eimskips og bætir við að félagið
sé með kaupunum orðið stærsti
einstaki rekandi frysti- og kæli-
geymsla á heimsvísu. „Þetta
breytir mjög mikið og eykur
mjög mikið arðsemismöguleika
félagsins í fjölþættri flutninga-
starfsemi. Þetta verður til þess
að við getum boðið upp á heims-
keðju sem nær allt frá Asíu til
Evrópu og Ameríku og eykur
mjög okkar möguleika á að þjón-
usta betur viðskiptavini okkar.
Í erlendum miðlum hefur þetta
verið kallað „seamless operat-
ion“ eða hnökralaus þjónusta,“
segir hann og hlær.
Kaupin hafa vakið mikla
athygli í Kanada og fjallað um
þau í fréttum allt þar til Avion
setti í gang yfirtökuferlið í ágúst.
„Þegar svona yfirtaka fer í gang
er tefld ákveðin refskák, sem end-
aði með því að við náðum okkar
markmiði, að kaupa þetta félag
á ágætu verði,“ segir Magnús og
bætir við að nýjum eigendum hafi
verið tekið mjög vel í Kanada og
aðkomu þeirra fagnað.
Samkomulagið um yfirtökutil-
boðið náðist í byrjun vikunnar, en
Avion Group hækkaði fyrra tilboð
sitt í Atlas Cold Storage úr sjö
kanadískum dölum á hlut í 7,50
dali á hlut. Heildarvirði félags-
ins er um 583 milljónir kanad-
ískra dala eða tæpir 35 milljarðar
íslenskra króna. Stjórn Atlas Cold
Storage mælir einróma með því
að hluthafar taki tilboðinu.
-óká
FORSVARSMENN EIMSKIPS Baldur
Guðnason forstjóri og Magnús Þorsteinsson
stjórnarformaður Eimskips.Markaðurinn/GVA
Velta Eimskips
meira en tvöfaldast
Avion kaupir Atlas Cold Storage. Eimskip verður
stærsti rekandi frysti- og kæligeymsla í heimi.
Centaurus og Paulson, stærstu
hluthafarnir í hollensku fyrir-
tækjasamstæðunni Stork N.V., eru
sagðir reiðubúnir að ræða „mála-
miðlun“ við stjórn samstæðunnar
eftir hluthafafund í síðustu viku.
Þar féllust hluthafar með yfir-
gnæfandi meirihluta á að skipta
upp samstæðunni, en stjórn henn-
ar hefur sett sig upp á mót því.
Het Financieele Dagblad,
helsta viðskiptarit Hollendinga,
hefur eftir heimildarmanni sem
stendur sjóðunum nærri að þeir
hafi á fundinum komið skoðun
sinni rækilega á framfæri, en vilji
nú ræða málin. Um 86 prósent
greiddu atkvæði með skiptingu
félagsins líkt og sjóðirnir lögðu
til. Saman fara þeir með tæp 33
prósent alls hlutafjár.
Ekki liggja þó fyrir nánari upp-
lýsingar um hvers eðlis málamiðl-
unin gæti verið eða hvort hún
kunni að hafa áhrif á möguleika
Marels til að kaup matvælavinnslu-
vélastarfsemi Stork. Við þau kaup
myndi Marel verða stærsta fyrir-
tæki í sínu sviði í heiminum. Þá er
ekki vitað hvenær viðræður kunni
að fara í gang.
- óká
Málamiðlun í bígerð
Centaurus og Paulson og stjórn Stork N.V. ræðast við.