Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 44

Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 44
■■■■ { líf og heilsa} ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6 „Já við erum þekkt fyrir að vera ódýrust,“ segir Aðalsteinn Stein- þórsson, stjórnarformaður Lyfjavers í Reykjavík, stoltur. „Við höfum verið með lægsta verðið í síðustu þrem- ur verðkönnunum ASÍ. Við erum náttúrlega ekki stór, bara með eitt apótek hérna við Suðurlandsbraut, en samt stór á þessum vélskömmt- unarmarkaði,“ segir hann og vísar þar til sjálfvirkra lyfjaskömmtunar- tækja. „Fyrirtækið byrjaði enda í kringum það, þjónustu við dvalar- og hjúkrunarheimili þannig að við erum að bjóða upp á mjög vand- aða, góða og ódýra þjónustu í okkar apóteki fyrir þá sem þarfnast slíkrar þjónustu.“ Aðalsteinn segir að Lyfjaveri hafi tekist að marka sér sérstöðu í þessari þjónustu tengdri sjálfvirkri lyfjaskömmtun og svo með heim- sendingarþjónustu lyfja. Um leið er svo rekið hefðbundið apótek við Suðurlandsbrautina þar sem hægt er að kaupa lyf, lausasölu- lyf, fæðubótarefni og vítamín. „Við erum hins vegar ekki með þessar heilsuvörulínur, snyrtivörur eða þess háttar,“ bætir hann við. „Sér- hæfing okkar liggur í þjónustu við fólk sem notar töluvert magn lyfja og við höfum byggt fyrirtækið þannig upp að við getum veitt þá þjónustu á mjög hagstæðu verði.“ Til marks um það bendir Aðalsteinn á að fyrirtækið sendi fólki lyf heim án þess að taka sérstakt gjald fyrir. „Þetta ætluðum við reyndar að gera um land allt en var bannað að gera það. Við megum ekki senda lyf í pósti út á land þar sem apótek eru fyrir,“ segir hann og telur skjóta nokkuð skökku við að stærri lyfja- keðjur sem komið hafi sér fyrir úti á landi njóti þannig verndar í lyfja- lögum gegn samkeppni frá Lyfja- veri. „Í lyfjalögum eru nefnilega ákvæði sem vernda rekstur apóteka á landsbyggðinni.“ Engu að síður telur Aðalsteinn að Lyfjaveri hafi tekist nokkuð vel upp í samkeppni við stærri lyfja- keðjurnar enda sé Lyfjaver orðið þekkt vörumerki, bæði fyrir sér- þjónustu sína og lágt verð. Þá segir Aðalsteinn að um lyf gildi sérstakar álagningarreglur, en eftir því sem lyf séu dýrari lækki álagningin. „Svig- rúmið sem er fyrir hendi er eitthvað í dag og við bjóðum lægra verð með lækkun á smásöluálagningunni. Stjórnvöld fylgja hins vegar þeirri stefnu að draga úr smásöluálagn- ingu sem þýðir að svigrúm minni aðilanna minnkar og þegar upp er staðið hefur þetta að öllum líkindum hamlandi áhrif á samkeppni. Það er að segja þvingunaraðgerðir í þá átt að lækka smásöluálagningu.“ Aðal- steinn segir að á þetta hafi hann og fleiri smærri rekstraraðilar bent í umræðunni, enda taki staðsetning verslana að vega þyngra í sam- keppninni þegar svigrúmið til að keppa í verði minnkar. „Og þar hafa keðjurnar komið sér í góða stöðu,“ segir hann og bendir á að þær hafi á bak við sig fjársterk félög, Miles- tone að baki Lyfjum og heilsu og svo Exista að baki Lyfju. Aðalsteinn segir helsta ásteiting- arsteininn í rekstri smærri fyrirtækja á lyfjamarkaði vera stefnu stjórn- valda. „Umhverfið hér á Íslandi er meira hamlandi en almennt gerist á evrópska efnahagssvæðinu. Heil- brigðisráðuneytið og stjórnvöld segj- ast vilja auka frelsi og samkeppni, en þegar kemur að framkvæmdinni er allt í þá átt að frelsið víki og lengra verði gengið í öryggiskröfum, til dæmis í þessari vélskömmtun lyfja, en hjá þeim þjóðum sem við miðum okkur við. Okkar tilfinning er sú að við höfum verið að brydda upp á nýjungum, en stjórnvöld hafi flækst fyrir allan tímann.“ Hefur skapað sér sérstöðu bæði í þjónustu og verði Lyfjaver rekur eitt apótek í Reykjavík, en er um leið umfangsmikið í heimsendingu lyfja. Þá hefur Lyfjaver í þrígang reynst vera með lægsta lyfjaverðið í könnunum Alþýðusambands Íslands. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Aðalstein Steinþórsson, stjórnarformann Lyfjavers, sem segir stjórnvöld flækjast fyrir samkeppni í lyfsölu hér á landi með meiri kröfum en gerðar séu í öðrum löndum. Aðalsteinn Steinþórsson, stjórnarformaður Lyfjavers.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.