Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 46
■■■■ { líf og heilsa} ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Tvær stórar keðjur einkenna smá-
sölumarkað lyfja hér á landi. Ann-
ars vegar er það keðja Lyfju og hins
vegar keðja L&H sem rekur verslanir
undir tveimur vörumerkjum, Lyfja
og heilsu og svo Apótekarans.
Lyfja er dótturfélag Árkaupa
ehf., en meðal hluthafa í því félagi
eru Kaupfélag Suðurnesja, Vátrygg-
ingafélag Íslands og Kaupfélag
Skagfirðinga. L&H er aftur í eigu
eignarhaldsfélagsins Milestone og
fleiri aðila.
Saga Lyfju hófst árið 1996 þegar
ákvæði nýrra lyfjalaga sem tryggðu
frelsi í stofnun og rekstri lyfja-
búða tóku gildi. Lagabreytingin
hafði mikil áhrif á lyfjamarkaðinn,
en áður höfðu yfirvöld úthlutað
lyfsöluleyfum. Fyrir breytinguna
höfðu apótekin skipt með sér mark-
aðssvæðum. Í því umhverfi var
samkeppni nánast engin og lyfja-
verð það sama í öllum apótekum.
Lyf og heilsa kom svo inn á
markaðinn á haustdögum árið 1999
sem keðja lyfjaverslana. Í upphafi
voru verslanirnar ellefu talsins á
höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi
og Suðurlandi. Síðan bættust fleiri
við.
Báðar keðjur hafa allar götur
síðan bryddað upp á ýmissi
nýbreytni og þjónustu við viðskipta-
vini sína. Má þar nefna margvíslega
útgáfustarfsemi, upplýsingagjöf á
netinu og samstarf við aðra fagað-
ila í heilbrigðisgeiranum.
Hjalti Sölvason hefur tekið við framkvæmdastjórastarfi Lyfja og heilsu í stað Hrundar
Rudolfsdóttir sem snúið hefur sér alfarið að framkvæmdastjórn móðurfélagsins, L&H.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Verslun Lyfju við Lágmúla í Reykjavík er ein af fjölmörgum verslunum keðjunnar. Lyfja er
fyrsta lyfsölukeðjan hér á landi, stofnuð eftir breytingu á lyfsölulögum árið 1996.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
Tvær keðjur eru með yfirburða stöðu á
lyfsölumarkaði hér á landi
Lyfja og Lyf og heilsa eru með slíka yfirburðastöðu á smásölumarkaði lyfja hér á landi að Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í sumar að saman færu
keðjurnar með markaðsráðandi stöðu. Báðar keðjur eiga sér allnokkra sögu, Lyfja rekur sína aftur til ársins 1996 og Lyf og heilsa aftur til ársins
1999.
Markaðshlutdeild lyfjaverslana
á höfuðborgarsvæðinu
Lyfjabúðir Markaðshlutdeild
Lyfja 35-40%
Lyf og heilsa 40-45%
Árbæjarapótek 0-5%
Laugarnesapótek 0-5%
Lyfjaval 5-10%
Lyfjaver 0-5%
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Einnig innangengt apótek sem er opið virka daga kl. 10-18 og laugard. kl. 10–16.
Ertu á hraðferð?
Bílaapótek - lyfin beint í bílinn
Hröð afgreiðsla opið kl. 10–23 alla daga vikunnar.
Við erum í
Hæðasmára,
við hliðina á
Smáralind
Lyfjaval
B Í L A A P Ó T E K
L y f j a v a l A P Ó T E K • M j ó d d • Á l f t a m ý r i