Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 53
MARKAÐURINN
Roberts S. Kaplan og David
P. Norton skrifuðu grein árið
1992 í tímaritið Harvard
Business Review þar sem þeir
kynntu til sögunnar greiningu
kallaða stefnumiðað árangurs-
mat eða Balanced Scorecard.
Aðferðafræðin við stefnumið-
að árangursmat snýst um gerð
stefnukorts og skorkorts.
Greiningin felst í því að búa
til stefnukort og nota fjórar vídd-
ir, mannauðsvídd, verklagsvídd,
fjármálavídd og þjónustuvídd.
Stefnukortið sýnir hvernig fyr-
irtækið/stofnun stefnir að því að
ná tilætluðum árangri. Þar eru
markmiðin sett fram myndrænt
og auðvelt er fyrir alla starfs-
menn að sjá helstu markmið á
einu blaði. Skorkort eru gerð
með stefnukort til hliðsjónar
en þar koma fram markmiðin
með mælikvörðum, viðmiðum og
aðgerðum.
Talið er að hugmyndir að BSC
hafi orðið til eftir þarfagreiningu
og ráðleggingar til fyrirtækja
á þessum tíma. Þá kom í ljós
aukin áhersla á óáþreifanlegar
auðlindir sem kallaði á þörf fyrir
nýtt greiningartæki sem mældi
annað en fjárhagslegan auð.
Þörfin fyrir að útskýra stefnu
fyrir nánast öllum starfsmönn-
um fyrirtækja og stofnana átti
ekki síst þátt í auknum vinsæld-
um greiningarinnar. Stjórnendur
gerðu sér betur grein fyrir
því að starfsmenn tækju betri
ákvarðanir ef þeir hefðu stefnu
fyrirtækis eða stofnunar til hlið-
sjónar og gætu þannig öðlast
víðari skilning á viðskiptum og
stefnu. Starfsmenn sjá þannig
hvar þeir eru staðsettir í korti
fyrirtækis og hvað þeir geta lagt
af mörkum í tengslum við stefnu
og markmið.
Aukin áhersla á óáþreifanlega
þætti og þekkingarverðmæti
hafa aukið vinsældir stefnu-
korta. Ekki er talið nóg að að
þróa samkeppnisforskot fyrir-
tækja og stofnana með áherslu á
fjármálalega stöðu og áþreifan-
legar eignir heldur er hæfileiki
fyrirtækja og stofnana
til þess að þróa og
byggja upp þekk-
ingarverðmæti
orðinn einn
meginþáttur í
tilraun þeirra til
að ná samkeppn-
isforskoti.
Sif Sigfúsdóttir
MA í mannauðs-
stjórnun
Stefnumiðað
árangursmat
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Jón Skaftason, Óli
Kristján Ármannsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Anna Elínborg Gunnarsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG:
ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
jonab@markadurinn.is l jsk@markaðurinn.is l olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR12
S K O Ð U N
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Ef áform ríkisstjórnarinnar um
lækkun á matarverði ganga eftir
verður komið skandinavískt verð
á matvæli á Íslandi eftir hálft ár.
Allar forsendur virðast fyrir því
að svo geti orðið eftir allar þær
úttektir sem gerðar hafa verið
um hvernig megi færa matvæla-
verð hér nær því sem gerist í
nágrannalöndum okkar. Nú síðast
í skýrslu Hallgríms Snorrasonar
hagstofustjóra sem stýrði nefnd
forsætisráðherra um lækkun mat-
arverðs.
Til að aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar skili sér í 16 prósenta
lækkun matarverðs, eins og að er
stefnt, er nauðsynlegt að gagnsæi
verði um hvernig útreikningar á
því eru fengnir. Um er að ræða
aðgerðir í þremur liðum; lækkun
virðisaukaskatts á matvæli í 7
prósent, afnám vörugjalda á allar
matvörur nema sykur og sætindi
og í þriðja lagi lækkun á innflutn-
ingstollum á kjöti. Ef notaðar eru
forsendur þær sem koma fram í
skýrslu hagstofustjóra má ætla
að afnám vörugjalda leiði til 2-3
prósenta lækkunar og breytingar
á virðisaukaskatti leiði til um 9
prósenta lækkunar. Þetta þýðir að
lækkun á tollum þarf að leiða til 4-
5 prósenta lækkunar á matvælum
til að 16 prósenta heildarlækkun-
in nái fram að ganga.
Ríkisstjórnin ætlar að lækka
innflutningstolla á kjöti um allt
að 40 prósent. Samkvæmt mati
hagdeildar ASÍ leiðir þessi aðgerð
til 2-3 prósenta lækkunar á mat-
arverði heimilanna, sem dugar
ekki til að 16 prósenta lækkunin
skili sér. Frekari aðgerða er þörf
í tollamálum til að ná markmið-
unum og full ástæða er til að
ætla að svo verði. Enda segir í
yfirlýsingu stjórnarinnar varð-
andi lækkun á tollum: „Samhliða
þessu [þ.e. 40 prósenta tollalækk-
un] verður áfram unnið að frek-
ari gagnkvæmum tollalækkun-
um og bættum markaðsaðgangi
gagnvart helstu viðskiptalöndum
Íslands...“. Óljóst er hvað í þessu
felst, en e.t.v. verða tollkvótar á
kjöt afnumdir eða rýmkaðir veru-
lega.
FER ÁGÓÐINN Í VASA KAUPMANNA?
Í umræðu um afleiðingar af lækk-
uðu matarverði hafa heyrst radd-
ir um að þær muni ekki skila sér
til neytenda því kaupmenn muni
stinga ágóðanum í eigin vasa í
stað þess að neytendur fái að
njóta þess í lægra verði. Þetta
á eftir að koma í ljós í fyllingu
tímans og getur reynslan bara
skorið úr um það, enda eru gerð-
ar ráðstafanir til að fylgjast vel
með þróun á verði til neytenda.
Hins vegar virðist þessi ótti um
græðgi kaupmanna ekki vera á
rökum reistur ef horft er til fyrri
aðgerða til lækkunar á matar-
verði.
Eins og kemur fram í meðfylgj-
andi mynd um samanburð á þróun
vísitölu neysluverðs og verðlags
á mat og drykkjarvöru kemur
glöggt í ljós að verðlag á matvöru
lækkaði töluvert árið 2002 þegar
tollar á grænmeti voru afnumd-
ir. Á meðan vísitala neysluverðs
hækkaði um næstum 4 prósent
á tímabilinu frá janúar 2002 til
janúar 2004, þá lækkaði vísitala
matar og drykkjarvöru um 4,4
prósent á sama tímabili. Ætla
má að tollalækkun á grænmeti
hafi valdið þessari lækkun mat-
arverðs. Sambærilega niðurstöðu
má einnig finna í ofangreindri
skýrslu hagstofustjóra. Þar segir
jafnframt að áhrif niðurfellingar
á tollum á grænmeti hafi leitt til
lækkunar á ávöxtum og í kjölfar-
ið hafi neysla grænmetis aukist.
Þetta dæmi ætti að gefa vísbend-
ingu um að allar líkur eru á að
þær aðgerðir sem ríkisstjórnin
hefur boðað til lækkunar á matar-
verði muni skila sér til neytenda
en lendi ekki í vasa kaupmanna.
INNKOMA OFUR-LÁGVÖRUVERSL-
ANA
Thomas Svaton, framkvæmda-
stjóri Samtaka sænskra dagvöru-
verslana, ræddi nýlega á fundi
SVÞ, Samtaka verslunar og þjón-
ustu, um afleiðingar innkomu
svokallaðra ofurlágvöruverslana
á sænska markaðinn og átti þar
við verslanir á borð við Lidl og
Aldi. Sagði hann ástæðu þess að
þær hefðu ekki komið til Íslands
ennþá vera háa tolla og gjöld á
matvæli. Ef þetta reynist rétt má
gera ráð fyrir að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar til að lækka mat-
arverð geti leitt til þess að ofur-
lágvöruverslanir hasli sér völl í
íslenskum markaði. Ef það gerist
má gera ráð fyrir enn frekari
lækkun á matarverði, ef miðað er
við reynslu Svía.
Lækkun á matvælaverði skili sér
Emil B.
Karlsson
forstöðumaður
Rannsóknarseturs
verslunarinnar
O R Ð Í B E L G
Jan. ’90 Jan. ’92 Jan. ’94 Jan. ’96 Jan. ’98 Jan. ’00 Jan. ’02 Jan. ’04 Jan. ’06
190
180
170
160
150
140
130
120
110
100
90
V Í S I T A L A V E R S L U N M A T U R D R Y K K U R
Vísitala
Vísitala neysluverðs
Matur og drykkur
Tvenn tímamót, þótt ólík séu, litu dagsins ljós í vikunni. Annað er
sala FL Group á öllum hlut sínum í Icelandair. Hitt er arðgreiðsla
Kaupþings, þar sem bankinn lætur frá sér hlut að verðmæti 20
milljarðar í Exista til hluthafa sinna og klippir á eignatengsl sín
í fyrirtækjum þeirra bræðra Ágústs og Lýðs Guðmundssona sem
verða enn sem fyrr kjölfestueigendur í bankanum.
Þessi tvennu tímamót eru, þótt ólík séu, bautasteinar ákveðinn-
ar sigurgöngu. FL Group hefur á skömmum tíma tekist að leysa
til sín gríðarleg verðmæti með sölu
fyrst á hlut sínum í EasyJet og síðan
í Icelandair. Samtals nemur þessi inn-
leysti hagnaður nálægt fjörutíu millj-
örðum króna. Fyrsti sprettur FL Group
undir forystu Hannesar Smárasonar
lofar góðu og vonandi verður framhald
á glæsilegum árangri. Það er eins og
alltaf í viðskiptum að þar sem einn sér
enda sér annar upphaf. Nýir eigendur
Icelandair hafa mikinn metnað fyrir
hönd félagsins og munu stuðla að fram-
tíðarvexti fyrirtækisins.
Sigurganga Kaupþings og bræðranna
í Bakkavör er lengri og hefur orðið
slíka samfellu að miklar líkur eru á
að enn sé einungis að baki lítill hluti
mikillar göngu. Í raun eru Kaupþing
og Bakkavör prýðileg dæmi um þann
sköpunarmátt sem losnar úr læðingi
þegar eðlileg viðskiptalögmál taka við
af pólitískri miðstýringu og þrúgandi
faðmlagi stjórnmála og viðskipta.
Telja verður ólíklegt að fyrirtæki
eins og Bakkavör hefði getað orðið jafn
glæsilegt stórveldi ef ekki hefði verið
fyrir hendi fjármálafyrirtæki með
metnaðarfulla stjórnendur sem hvorki
skeytti um ættir eða flokksskírteini.
Slíkt skeytingarleysi var jú oft ekki til
vinsælda fallið.
Ný kynslóð sem hefur haslað sér
völl í íslensku viðskiptalífi hefur lagt
á aðrar og nýjar brautir. Sú vegferð er
rétt að byrja og ástæða til að halda til
haga að áföll munu verða á þeirri leið.
Áföll eru einfaldlega hluti slíkrar veg-
ferðar og líkt og í lífinu sjálfu eru áföll ein og sér ekki mælikvarði
á virði ferðarinnar.
Hingað til hefur allt gengið í haginn. Það er ýmsu að þakka, en
er um leið vísbending um að útrás og vöxtur viðskiptalífsins byggi
á útreiknaðri áhættu og þekkingu. Hagsaukinn fyrir samfélagið
allt er gríðarlegur og ef okkur ber gæfa til að halda viðskiptaum-
hverfinu frjálsu og forðumst að éta eigin útsæði, hefur hér verið
sáð til mikils vaxtar. Sá hagnaður sem félög skila á yfirstandandi
ári er meiri en sem nemur eiginfé alls fjármálakerfisins fyrir
nokkrum árum. Stoðir efnahagslegrar afkomu Íslendinga hafa
aldrei verið sterkari, þótt enn og um ókomna tíð verðum við á
mælikvarða heimsins, bæði fá og smá.
Tímamótavika í viðskiptalífinu.
Tveir arðsamir
endapunktar
Hafliði Helgason
Sigurganga
Kaupþings og
bræðranna í
Bakkavör er lengri
og hefur orðið
slíka samfellu að
miklar líkur eru á
að enn sé einungis
að baki lítill hluti
mikillar göngu. Í
raun eru Kaupþing
og Bakkavör
prýðileg dæmi um
þann sköpunar-
mátt sem losnar
úr læðingi þegar
eðlileg viðskipta-
lögmál taka við af
pólitískri miðstýr-
ingu og þrúgandi
faðmlagi stjórn-
mála og viðskipta.