Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 54
MARKAÐURINN
Tilkynning um alvarlegt slys barst
fyrir stuttu þar sem lyftari með
plötubúnt olli slysi. Stjórnandi
lyftarans, vanur maður, hafði
verið að flytja krossviðsplötur.
Smá ójafna á gólfinu varð til
þess að slinkur kom á lyftarann
og plötubúntið rann af göfflunum
og á starfsmann sem slasaðist
mjög illa.
Mörg fyrirtæki nota lyftara
við sína starfsemi. Mjög tíð tjón
af völdum lyftara sýna að mikil
þörf er á að skilgreina hvaða
hættur eru fyrir hendi hjá hverju
fyrirtæki fyrir sig. Hér verða
nefnd nokkur dæmi um hætt-
ur sem tryggingafélagið hefur
greint:
■ Lyftara ekið utan í kyrrstæðar
bifreiðir. Orsökin oftast sú
að ökumaður lyftarans gætir
ekki að því hvað er fyrir aftan
lyftarann.
■ Vörur skemmast við með-
höndlun lyftara. Orsökin oft-
ast sú að ökumaður er ýmist
óvanur, eða er að flýta sér of
mikið, stundum vegna mik-
ils álags, stundum vegna þess
að hann sýnir kæruleysisleg
vinnubrögð.
■ Vörur falla af göfflum lyft-
ara og valda tjóni. Orsökin
bæði óslétt gólf og stundum
er vörum illa komið fyrir á
göfflunum.
■ Lyftara ekið yfir fætur ann-
arra starfsmanna. Orsökin sú
að lyftarar eru oft hljóðlaus-
ir og aðrir starfsmenn heyra
ekki í þeim eða að þeir eru
ekki að fylgjast með starfi. Þá
eru ökumenn lyftara oft mjög
uppteknir við að fylgjast með
að reka ekki vörur á göfflum
utan í og gæta ekki að því sem
er fyrir aftan. Gult blikkandi
ljós myndi draga úr þessari
hættu.
■ Lyftari veldur
tjóni þegar verið
er að hlaða vörum
í bíla. Sum fyr-
irtæki bjóða
upp á mjög góða
þjónustu við við-
skiptavini, m.a. að
hlaða bíla þeirra.
Lyftarar eru ekki
n á k v æ m u s t u
tækin til þess og ætti að fara
varlega í að veita þessa þjón-
ustu.
Öllum starfsmönnum á lyft-
urum ber að fara á sérstök nám-
skeið og viljum við beina því
til fyrirtækja sem nota lyftara
að fylgja því eftir. Oft verða
þau fyrir miklu tjóni
þegar vörur skemm-
ast vegna óvandaðra
vinnubragða starfs-
manna, m.a. sumra
lyftarastjórnenda.
Alvarlegast er þó
þegar fólk slasast
af þeirra völdum.
Við hvetjum því fyr-
irtæki til að setja
mjög ákveðnar reglur um lyft-
aranotkun og að sjá til þess að
aðbúnaður sé góður við hleðslu
rafgeyma, gólf séu slétt og að
lyftarar séu vel sýnilegir er þeir
eru í notkun.
Einar Guðmundsson
forstöðumaður Sjóvár forvarnahússins
13MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
S K O Ð U N
Það er alveg ljóst að partíið er
komið í fullan gang aftur. Búið
að hækka í græjunum og allir
komnir út á gólf að dansa.
Löggan kom í líki erlendra
bankagreinenda og skipaði
mönnum að lækka í græjun-
um. Ekki var vitað til þess að
neinn nágrannanna hefði kvart-
að, enda sjálfir allir í partíinu.
Helst var að einn svefnstyggur
í Hádegismóum hefði getað hafa
tekið undir kvartanirnar. Annars
eru allir í stuði.
Nú er sem sagt búið að hækka
aftur og ég græði sem aldrei
fyrr. Það er í raun ótrúlegt að
ekki fleiri skuli spila á það sem
auljóslega mun gerast. Tökum
tvö góð dæmi af gróða mínum
þessa vikuna. Ég sneri við öllum
vösum og stillti mér upp í þrem-
ur félögum. Kaupþingi, FL group
og Glitni. Ástæðan er augljós.
FL og Glitnir voru í þann veginn
að klára söluna á Icelandair. Það
vissu allir að það var bara daga-
spursmál. „Buy on rumor sell on
news“ virkaði sem aldrei fyrr.
Hitt er segin saga. Íslendingar
lækka aldrei verð á hlutabréfum
til samræmis við arðgreiðslur. Ég
hefi í mörg ár tekið stóra stöðu í
Glitni, hirt arðinn og selt. Þetta
hefur alltaf skilað skammtíma-
hagnaði. Auðvitað gerði maður
eins með Kaupþing nú og BINGÓ.
Kaupþing lækkaði ekki til sam-
ræmis við arðgreiðslurnar. Svo
fékk maður hækkun á þeim í
vikunni í bónus. Ekki slæmt það
og ég keypti mér nýtt sjónvarp.
Það var að koma ný kynslóð af
flatskjám.
Þegar maður er svona ríkur
ber manni viss skylda til að snúa
gangverki efnahagslífsins með
því að eyða peningum. Ég gef
líka í góð málefni og svo hef ég
verið duglegur að kaupa list að
undanförnu. Maður vill jú láta
gott af sér leiða í samfélaginu.
Annars lítur þetta allt ljóm-
andi vel út. Hagnaðurinn streym-
ir inn í fyrirtækin. Erlendu lánin
á móti hlutabréfunum rýrna og
mismunurinn er hreinn hagnaður.
Í ljósi reynslunnar fylgist maður
stíft með gjaldeyrismarkaðnum,
en hann er eins og ég hef margoft
sagt sá markaður sem fær blóðið
í manni til að renna. Þeir sem
fyrstir fatta hræringarnar þar
eru þeir sem alltaf koma fyrstir
í mark og þar er maður vanur
að vera.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Búið að hækka
í græjunum
569 7200 www.isprent.is
- o
rð
sku
lu
stan
d
a!
„...fyrir
metnaðarfulla
fagmenn“
„Í starfi mínu sem hönnunarstjóri hefur reynslan kennt mér að við
framleiðslu á vönduðu kynningarefni getur val á prentsmiðju ráðið
úrslitum um útkomuna.
Íslandsprent hefur reynst mér afar vel. Prentsmiðjan ræður yfir fullkomnum
tækjakosti, þar á bæ eru allir fagmenn fram í fingurgóma og búa yfir
mikilli þjónustulund. Ekki sakar að miðað við gæði er verð afar hagstætt.
Ég get því hiklaust mælt með Íslandsprenti fyrir metnaðarfulla fagmenn
á sviði grafískrar hönnunar og aðra þá sem vilja vera stoltir af prentgripum
sínum.”
Gréta V. Guðmundsdóttir, hönnunarstjóri og einn
af eigendum auglýsingastofunnar Fabrikan.
Gréta V. Guðmundsdóttir,
hönnunarstjóri.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Lyftarar – vanmetin hætta
����������������������������������
����������������������������������
�� ����� ���� ����� ���������� ���
��������� �� ��������� ����� ����
����������� �����������������
���� ������������� �������� �� ���
������ ��� ������ ��������������
�
�
����� ��������� ��� ����� ���� ������
������������� ��� ��������������� ��������������� �� ������ �����
����� �������������� ����
���������������