Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 56
H A U S
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
F Y R I R TÆ K I
Ingvar Kamprad, heilinn á bak
við Ikea, var einungis 17 ára
þegar hann stofnaði fyrirtækið
árið 1943. Kamprad hafði reynd-
ar gengið með hugmyndina um
fyrirtækjarekstur lengi, eða allt
frá barnæsku. Árangur Ikea
hefur leitt til þess að Kamprad
hefur verið á meðal ríkustu
manna í heimi um árabil.
Kamprad fæddist árið 1926
á bænum Elmtaryd í sænsku
Smálöndunum. Hann var ungur
að árum þegar hann uppgötv-
aði að hann gat keypt ódýrar
eldspýtur í stórum bunkum frá
Stokkhólmi og selt þær aftur í
smærri einingum á lágu verði í
næstu þorpum og bæjum með
hagnaði. Viðskiptin döfnuðu og
fyrr en varði var Kamprad litli
farinn að hjóla á milli bæja með
fisk, jólatrésskreytingar, fræ og
síðar kúlupenna og pensla sem
hann keypti fyrir hagnaðinn og
seldi með sama hætti í næstu
bæjum.
Kamprad gekk ágætlega í
skóla og þegar hann var 17 ára
ákvað faðir hans að verðlauna
drenginn fyrir námsárangurinn.
Gjöfina nýtti Kamprad til setja á
laggirnar fyrirtækið Ikea.
Fyrst í stað höndlaði Ikea
með penna, peningaveski,
myndaramma, diskamottur og
annað smálegt en fljótlega gat
Kamprad ekki lengur sinnt við-
skiptunum á hjólinu og brá hann
því á það ráð að búa til vörulista
sem viðskiptavinir gátu pantað
úr.
HÚSGÖGNIN KOMA Í MYNDINA
Árið 1947 náði Kamprad samn-
ingi við húsgagnaframleiðend-
ur í heimabæ sínum og gerði
það honum kleift að bjóða ódýr
húsgögn á vörulista sínum.
Húsgögnin slógu í gegn og fjór-
um árum síðar hætti Ikea að
selja annað en ódýr húsgögn.
Árið 1958 voru umsvifin orðin
umtalsverð. Fyrirtækið opnaði
sína fyrstu verslun á árinu í
bænum Älmhult. Hún var engin
smásmíði, einir 6.700 fermetrar
og stærsta húsgagnaverslun á
Norðurlöndunum á sínum tíma.
Til samanburðar var hún 2.500
fermetrum minni en verslun
Ikea í Holtagörðum.
Ikea hefur svo sannarlega
sprungið út frá fyrstu árunum
því í dag rekur fyrirtækið rúm-
lega 200 verslanir í 31 landi. Hjá
því starfa rúmlega 75.000 manns
og hefur verið greint frá því að
fyrirtækið hyggist fjölga starfs-
fólki um 10.000 á næstu árum
vegna mikils vaxtar.
Kamprad hélt um stjórnar-
taumana í Ikea allt fram til 2002.
Þá var hann 76 ára og taldi tíma-
bært að setjast í helgan stein og
færa yfirstjórn fyrirtækisins til
þriggja sona sinna.
HAGSÝNN OG MOLDRÍKUR
Kamprad hefur margsinnis
verið á meðal ríkustu manna í
heimi en í mars á þessu ári taldi
bandaríska viðskiptatímaritið
Forbes eignir hans nema um
28 milljörðum bandaríkjadala
eða tæplega 1.800 milljörðum
íslenskra króna.
Kamprad hefur löngum þótt
góð fyrirmynd fyrir Ikea sem
flaggar hagkvæmni. Hann flutt-
ist frá Svíþjóð til Epalinges í
Sviss árið 1976 og hefur búið þar
allar götur síðan.
Þá hefur verið haft eftir
honum að hann eigi fimmtán ára
Volvo, ferðist með neðanjarðar-
lest þegar bílnum sleppir, fljúgi
á almennu farrými og hvetji
starfsmenn Ikea til að endur-
nýta blöð og reikninga.
Rekstrarfélag Ikea, sem ávallt
hefur verið í höndum Kamprad-
fjölskyldunnar, hefur oft sætt
gagnrýni. Fjármálaumsýsla fyr-
irtækisins er í höndum sjóðs,
sem skráður er í Hollandi og
undir honum er meðal annars
fjárfestingarbanki, sem lýtur
stjórn fjölskyldunnar. Þrýst
hefur verið á Kamprad að hann
skrái Ikea á markað og selji það
fjárfestum. Hann hefur blásið á
slíkt og sagt, að öll ákvarðana-
taka myndi verða mun hægvirk-
ari innan veggja fyrirtækisins
ef fleiri væru um hituna en hann
og afkom-
endur
hans.
INGVAR KAMPRAD Stofnandi Ikea þykir
góð fyrirmynd fyrirtækisins. Þrátt fyrir mikið
ríkidæmi þykir hann spar á aurinn enda
ekur hann gjarnan um á gömlum Volvo.
MARKAÐURINN/AFP
Saga Ikea hófst með sölu á eldspýtum
INGVAR KAMPRAD á gangi fyrir
utan fyrstu verslunina sem opnaði í St
okkhólmi í Svíþjóð. MARKAÐURINN/AFP
Hótel Nordica
24. október
Meðal fyrirlesara:
Sigurður Einarsson
Stjórnarformaður KB banka
Hilmar Veigar Pétursson
Framkvæmdastjóri CCP
Átta norræn sprotafyrirtæki kynna
viðskiptaáætlanir sínar.
Skráðu þig á www.seedforum.is