Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 71
18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
MERKISATBURÐIR
1906 Sjö hús brenna á Akureyri
og um áttatíu manns
missa heimili sín.
1913 Ljósahátíð er haldin á
Seyðisfirði þegar rafveitan
er vígð og rafljós kveikt i
fyrsta sinn.
1918 Þýskur kafbátur sökkvir
togaranum Nirði
suðvestur af St. Kilda. Tólf
manna áhöfn kemst í
báta og er bjargað.
1954 Einar Jónsson
myndhöggvari andast
áttræður að aldri.
1968 John Lennon og Yoko
Ono eru handtekin fyrir
að hafa eiturlyf undir
höndum.
1989 Leiðtogi Austur-
Þýskalands, Erich
Honecker, er neyddur til
að segja af sér.
KLAUS KINSKI (1926-1991) FÆDDIST
Á ÞESSUM DEGI
Hámark leiklistarinnar er
að gera út af við sjálfan sig.
Leikarinn þýski er kunnastur fyrir
stormasamt samstarf við leikstjórann
Werner Herzog.
Á þessum degi árið 1976
var Carlo Gambino, „stjóri
stjóranna í mafíunni“,
lagður til hinstu hvílu.
Gambino sem var álitinn
áhrifamesti leiðtogi innan
bandarísku mafíunnar,
lést á heimili sínu nokkr-
um dögum fyrr úr hjarta-
áfalli. Gambino fæddist á
Sikiley árið 1902 og flutti
til Bandaríkjanna árið
1921. Hann varð höfuð
mafíufjölskyldu sinnar
árið 1957.
Útför hans fór fram frá
kirkju í rólegu hverfi í
Brooklyn. Mikill mann-
fjöldi safnaðist utan við
kirkjuna og þeirra á meðal
voru óeinkennisklæddir
lögreglumenn. Ekki var
búist við vandræðum þar
sem mafíufjölskyldur eru
þekktar fyrir að virða friðinn
á slíkum dögum. Hins vegar
vildi leyniþjónustan FBI
grennslast fyrir um hver yrði
höfuð ættarinnar að Gamb-
ino látnum. Fór svo að Paul
Castellano, frændi Gambin-
os, tók við stjórninni.
Margir telja að persóna Don
Vitos Corleone sem Marlon
Brando túlkaði í myndinni
Guðföðurnum hafi verið
byggð á Gambino. Carlo
Gambino var jarðsettur við
hlið konu sinnar sem lést
fimm árum áður.
ÞETTA GERÐIST: 18. OKTÓBER 1976
Stjóra stjóranna fylgt til grafar
Samtök íþróttafréttamanna eru
fimmtíu ára í ár og fagna afmælinu í
Eldborg við Bláa lónið laugardaginn
28. október.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
formanns Samtaka íþróttafrétta-
manna, verður mikið um dýrðir á
afmælinu, enda sannarlega tilefni til
og hefur undirbúningur staðið yfir
frá því í sumar.
Á meðal gesta í afmælisveislunni
verða íþróttafréttamenn frá Dan-
mörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð
og þá mun Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, mæta á staðinn.
Veislustjóri verður Hermann Gunn-
arsson.
Þorsteinn segir það ekki fyrir
hvern sem er að vera íþróttafrétta-
maður. „Þeir endast aðeins í þessu
starfi sem hafa brennandi áhuga á
íþróttum og þeirri spennu og oft á
tíðum óvæntu atburðarrás sem fylgir
starfinu. Vinnutíminn er ekki sérlega
fjölskylduvænn, eða aðallega á kvöld-
in og um helgar og því er þetta ekki
fyrir hvern sem er,“ segir Þorsteinn.
„Mér finnst reyndar merkilegt
hversu litlar breytingar hafa verið á
mannskap á sumum miðlum undan-
farin ár sem sýnir að íþróttafrétta-
menn eru ánægðir í sínu starfi,
enda fjölbreytt og skemmti-
legt og mikil forréttindi
að starfa við sitt áhuga-
mál,“ segir hann.
Að sögn Þorsteins voru
Samtök íþróttafréttamanna
aðallega stofnuð á
sínum tíma til þess
að standa að kjöri
Íþróttamanns
ársins sem þau
hafa gert með
sóma allar
götur síðan.
Samtökin vinna
einnig að
ýmsum hags-
munamálum
fyrir félagsmenn
og stuðla að aukinni
samvinnu félags-
manna, eins og segir
í lögum samtakanna.
Aðstaða íþrótta-
fréttamanna á leik-
vöngum og íþrótta-
húsum hefur breyst
til batnaðar undan-
farin ár en að sögn
Þorsteins er reynd-
ar víðar potturinn
brotinn í þeim efnum og þar
ætla samtökin að beita sér
meira á næstunni.
Öllum fyrrverandi
íþróttafréttamönnum er
boðið í afmælisveisluna og
vill Þorsteinn hvetja þá til þess að
mæta með maka sína, en margir þjóð-
þekkir aðilar hófu fjölmiðlaferil sinn
sem íþróttafréttamenn. Áhugasamir
skulu senda póst á netfangið thor-
steinn.gunnarsson@365.is. Miðaverð
fyrir fyrrverandi félaga er 2.400
krónur.
freyr@frettabladid.is
ÞORSTEINN GUNNARSSON: SAMTÖK ÍÞRÓTTAMANNA 50 ÁRA
Brennandi áhugi á íþróttum
vegur upp á móti vinnutímanum
ÞORSTEINN GUNNARSSON Formaður Samtaka íþróttafréttamanna segir það ekki fyrir
hvern sem er að vera íþróttafréttamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vinsemd og hlýhug við and-
lát og útför
Hauks D. Þórðarsonar
fyrrum yfirlæknis Reykjalundar.
Sérstakar þakkir færum við stjórn Reykjalundar,
stjórn S.Í.B.S. og Heimahlynningu LSH.
María Guðmundsdóttir
Pétur Hauksson Anne Grethe Hansen
Þórður Hauksson Kristjana Fenger
Magnús Hauksson Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Gerður Sif Hauksdóttir Karl Benediktsson
Dóra Guðrún Wild Árni Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
����
�� �����
���������
�����
����������
�����������������������������������������
����������������������� �������������
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, langalangamma,
Cecilía Kristjánsdóttir
Dvalarheimilinu Fellaskjól, Grundarfirði,
sem lést sunnudaginn 15. október í St. Francisku-
spítalanum Stykkishólmi verður jarðsungin laugar-
daginn 21. október kl. 14 í Grundarfjarðarkirkju.
Kristín Jeremíasdóttir Sigurður Kristjánsson
Svandís Jeremíasdóttir Ágúst Sigurðsson
Áslaugur Jeremíasson Unnur Magnúsdóttir
Kjartan Jeremíasson
Laufey Jeremíasdóttir Stefán Björgvinsson
Þórdís Jeremíasdóttir Gunnlaugur Þorláksson
Hulda Jeremíasdóttir Ásgeir Valdimarsson
Ásta Jeremíasdóttir Þorlákur Þorleifsson
Sæunn Jeremíasdóttir Magnús Höskuldsson
Dagný Jeremíasdóttir Sigurður Þorkelsson
barnabörn og langömmubörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
60 ára afmæli
Ágúst G. Kristinsson
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði
tækjastjóri og hafnarverkamaður
er sextugur í dag.
Eiður Smári Íþróttamaður ársins
síðustu tvö ár.