Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 77
18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR28
Ráðstefna í gær á vegum
menntamálaráðuneytis og
hagsmunaaðila í bókaút-
gáfu og bóksölu skerpti enn
á staðreyndum varðandi
lestur barna og unglinga
hér á landi. Ólíkt því sem
spámenn hafa kyrjað á
vefsíðum er lestur bóka enn
tímafrekur í lífi barna á
Íslandi. Enn eru ekki skýr
merki um að bóklestur sé
undan að láta.
Tvær kynningar voru meginefni
ráðstefnunnar: Ragnar F. Ólafsson
og Almar M. Halldórsson lögðu þar
fram athugun á lesskilningi og
íslenskukunnáttu fimmtán ára
barna sem byggði á rannsókninni
sem kennd er við PISA og sam-
ræmdum prófum í 10. bekk
(árgangi 1993) og 4. og 7. bekk frá
1996. PISA-rannsóknin var saman-
burðarrannsókn sem náði til 31
lands.
Samræmd próf leiða í ljós að
lesskilningur er mjög stöðugur.
Lestur sem áhugamál pólast: fjórð-
ungur krakkanna segir lestur sitt
helsta áhugamál og fjórðungur
lítur á lestur sem tímasóun. Tíundi
hver krakki les í meira en klukku-
stund daglega. Stúlkur hafa mikla
yfirburði yfir drengi í lesskilningi,
bæði samkvæmt samræmdum
prófum og Pisa-rannsókninni og er
sá munur með því mesta sem þekk-
ist.
Hér á landi greinast áhrif fjár-
hags heimila minni hvað varðar
áhrif á lesskilning sem er til marks
um að menntun er ekki stéttskipt
hér á landi enn sem komið er. Aftur
hefur virðingarstaða foreldra hér
á landi neikvæð áhrif á lesskilning.
Börn einstæðra foreldra búa við
lítil en jákvæð áhrif á heimilum
sínum. Þá er Ísland eina landið þar
sem fjöldi systkina á heimili hefur
ekki neikvæð áhrif á lesskilning.
Í samantekt sinni vekja máls-
hefjendur athygli á að íslensk börn
eru um meðallag í lesskilningi,
bæði snemma í grunnskóla og
seint. Tíður kvöldlestur kenni
börnum að meta lestur.
Menntamálaráðherra setti ráð-
stefnuna í gær en ekki er vitað
hvort hún hlýddi á erindin: henni
mun þó vera kunnugt um yfirburði
stúlkna í lesskilningi og velllíðan
við lok grunnskóla. Sá vitnisburður
hlýtur að hafa einhver áhrif í
stefnumótun varðandi grunnskóla-
stig. Strákarnir eru undir.
Andrea Gerður Dofradóttir og
Kristín Erla Harðardóttir gerðu
grein fyrir rannsókn sinni nýrri af
nálinni um lestur og viðhorf til
lesturs. Sú rannsókn var unnin í
rýnihópum barna. Meðal athyglis-
verðra niðurstaða þeirra er að börn
líta lestur þröngum skilningi: í
þeirra hópi er myndasögulestur
ekki talinn með og texti í sms er
ekki lestur. Lestur er í þeirra huga
bundinn við texta af blaði. Krakkar
vilja spennusögur, en mörg þeirra
lesa dagblöð að staðaldri. Öll höfðu
þau búið við að lesið var fyrir þau
meðan þau voru ólæs. Þau taka
ekki mark á bókaauglýsingum.
Lesefni sitt sækja þau á söfn, til
vina og í eigin bókaeign. Þau segj-
ast hafa nógan tíma til lesturs. -pbb
Ríkidæmi dregur úr lestri
LESIÐ FYRIR KRAKKA Í ÍSAKSSKÓLA Á ÁRLEGRI RITSMIÐJA BARNA Herdís Egilsdóttir
kennari fylgist með Fífu Eik 11 ára lesa eigin sögu fyrir bekkinn sinn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
OKTÓBER
15 16 17 18 19 20 21
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Barkasöngvararnir Tracy
Brown og Kendra Tagoona halda
tónleika í Salnum og skemmta
gestum á Kanadískum menning-
ardögum í Kópavogi ásamt félögum
í fjöllistahópnum Red Sky. Hópur sá
skapar nútíma dans-, leik- og tónlist-
aruppákomur fyrir börn og fullorðna
byggðar á siðum og háttum frum-
byggja.
21.00 Trúbadúrakvöld á Café
Rósenberg. Fram koma Torben
Stock frá Þýskalandi, Owls of the
Swamp frá Ástralíu, Svavar Knútur
Kristinsson og Brynjar Páll
Rögnvaldsson.
21.00 Hljómsveitin Royal Fortune
leikur á Dillon ásamt trúbadornum
Helga Val.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Hljóðlistamaðurinn DJ Kalle
Laar leikur á Nordica Hotel í tilefni
af Sequences myndlistarhátíðinni
sem nú stendur yfir í Reykjavík.
Kalle Laar vinnur jöfnum höndum
með tónlist og önnur hljóð. Ókeypis
aðgangur
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Ragnheiður Ólafsdóttir,
jarðfræðingur og umhverfisstjóri
Landsvirkjunar heldur erindi á
Félagsvísindatorgi Háskólans á
Akureyri og ræðir um sjálfbæra
þróun á Austurlandi. Erindi sitt flyt-
ur hún í stofu L101 á Sólborg við
Norðurslóð.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Yfirlitssýningin Málverkið
eftir 1980 stendur yfir í Listasafni
Íslands við Fríkirkjuveg.
Sýningarstjórar eru dr. Halldór
Björn Runólfsson og Laufey
Helgadóttir.
10.00 Arna Gná Gunnarsdóttir
sýnir í versluninni Aurum í
Bankastræti. Sýningin er opin á
þjónustutíma verslunarinnar, virka
daga milli 10-18 og 11-16 á laugar-
dögum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Kammerkór Lang-
holtskirkju flytur
tónsmíð Jóns
Ásgeirssonar við ljóð
Steins Steinarrs,
„Tíminn og vatnið“ á
Hádegistónleikum
Háskóla Íslands í
Norræna húsinu í
dag.
Fyrsta hluta
verksins samdi Jón
árið 1968, sem hann
reyndar endurskoð-
aði árið 1972. Fimm
árum síðar lauk hann
tveimur seinni hlutum
verksins og endurskoð-
aði þann fyrsta enn á
ný
Verkið, sem Jón til-
einkar eiginkonu sinni
Elísabetu Þorgeirsdótt-
ur, var frumflutt af
Hamrahlíðarkórnum
rúmum tíu árum síðar
en það er fyrir bland-
aðan kór án undirleiks.
Stjórnandi kórsins
er Jón Stefánsson en
tónleikarnir hefjast kl.
12.30.
Tíminn og vatnið
STEINN STEINARR
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
��������������������������������������������������������������� ��������������
���������������������������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����� ��������������������
��������������������������
�����������������������������������������
��������������� ���������� ���������������������� ���������� �������������
����������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI