Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 80
MIÐVIKUDAGUR 18. október 2006 31
Rúmt ár er síðan Sandvík
var hertekin af kvikmynda-
gerðarfólki frá Hollywood
og Clint Eastwood fyrir
kvikmyndina Flags of Our
Fathers. Óðum styttist í
að Íslendingar fái að sjá
afraksturinn af þessum
rúmlega mánaðartökum á
Reykjanesi.
Veftímaritið About.com ræddi
stuttlega við Clint Eastwood um
dvölina hér á landi og hvernig þær
hefðu gengið fyrir sig. Flags of
Our Fathers fjallar um innrás
Bandaríkjahers á Iwo Jima en í
kjölfarið á henni tók Joe Rosenth-
al eina frægustu ljósmynd síðari
heimsstyrjaldarinar þar sem sést
hvar sex hermenn reisa banda-
ríska fánann á eyjunni til merkis
um sigur.
Leikstjórinn aldni sagðist hafa
notið þess að vera hér á landi og
hrósaði landsmönnum fyrir sam-
starfsvilja sinn. „Þegar fyrst var
stungið upp á Íslandi gat ég
ómögulega skilið hvernig það gæti
gengið,“ segir Eastwood við about.
com. „En þegar ég skoðaði málið
enn frekar varð mér ljóst að Sand-
vík á sumrin er alls ekki svo ólík
Iwo Jima að vetrarlagi,“ útskýrir
leikstjórinn. Flags of Our Fathers
þykir koma sterklega til greina
þegar Óskarsakademían sest
niður og ákveður hvaða myndir
hljóta tilnefningu til virtustu verð-
launa bandarískrar kvikmynda-
gerðar.
Eastwood viðurkennir hins
vegar að margt sé ólíkt með Sand-
vík og Iwo Jima en hinar svörtu
strendur hafi gert útslagið. „Við
leituðum út um allan heima að
svona svörtum ströndum – fórum
til Hawaii og athuguðum hvort
svona strendur væru ekki að finna
í grennd við lúxushótelið 4 Sea-
sons,“ segir Eastwood og hlær.
„Að endingu varð ákvörðunin sú
að fara til Íslands,“ segir hann.
Leikstjórinn útskýrir jafn-
framt hvers vegna ekki var farið
til Iwo Jima. „Strendurnar þar eru
helgur staður og Japanar stunda
engan ferðamannaiðnað þar,“
sagði Eastwood. „Enginn fær að
fara þangað án leyfis frá ríkis-
stjórninni enda er talið að þar liggi
um tólf þúsund hermenn,“ bætir
Eastwood við og segir að sökum
þessa hafi þeir ekki getað endur-
skapað þær bardagasenur með til-
heyrandi sprengingum sem þá
langaði. „Íslendingar voru sam-
starfsfúsir og þess vegna fórum
við þangað,“ segir Eastwood.
freyrgigja@frettabladid.is
Clint ánægður með Ísland
FÁNINN REISTUR Hér má sjá hvar hinir
sex reisa fánann, reyndar ekki í Japan
heldur á Reykjanesi.
EASTWOOD Í SANDVÍK Leikstjórinn Clint Eastwood þótti taka sig vel út á tökustað og
var haft á orði hversu vel á sig kominn líkamlega Eastwood var.
HORFT YFIR STRENDURNAR Vafalítið
eru íbúar á Reykjanesi spenntir að sjá
afraksturinn og hér má sjá hvernig
strendurnar líta út með aðstoð tækn-
innar.
ÁRÁS Íslenskir „statistar“ ráðast til atlögu
gegn Japönum.
Íbúar Kaupmannahafnar eru ekk-
ert síður hrifnir af fyrirbærinu
menningarnótt en Reykvíkingar.
Því var mikill fjöldi fólks saman-
kominn í miðbæ borgarinnar á
föstudagskvöld enda efnt til alls
kyns listatburða út um allan bæ. Á
vinnustofu listakonunnar Sossu
Björnsdóttur var gestum boðið
upp á að virða fyrir sér íslenska
list og hönnun. En ásamt Sossu
sýndu þær Ásta Guðmundsdóttir
fatahönnuður og Halla Bogadóttir
gullsmiður hönnun sína. Verslun-
armennirnir í 12 Tónum og Indriði
voru einnig í hátíðarskapi og buðu
Dönum upp á hangikjöt og flat-
kökur í tilefni dagsins sem mælt-
ist vel fyrir.
Íslenskt á danskri
menningarnótt
TÍSKA Í KÖBEN Módelin gnæfðu yfir
gestina.
MARGMENNI Það var þétt staðið í húsa-
garðinum þegar tískusýning á fötum frá
Asta Creative Clothes fór fram.
KÍKTU VIÐ MENNINGARNÓTT Þær
Margrét Sumarliðadóttir og Ingunn
Gylfadóttir kíktu á Sossu og félaga.
FLOTTUR Gunnar Þórðarson mundaði
gítarinn af alkunnri snilld.
HRESSAR Aðalbjörg Sigurðardóttir, Edda Guðmundsdóttir og Stefanía Sigurðardóttir
voru hressar á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/KS
Leikkonurnar ungu Keira
Knightley og Lindsey Lohan munu
leika lesbískar ástkonur í nýrri
mynd sem byggist á ævi breska
ljóðskáldsins Dylan Thomas.
Lohan upplýsti þetta í spjallþætti
á MTV sjónvarpstöðinni og segir
að Knightley muni leika hlutverk
eldri manneskjunnar í myndinni
og er þetta eins konar raunveru-
leg sýn á hennar karakter sem ber
nafnið Vera. Það er móðir
Knightley, Sharman Macdonald,
sem skrifar handritið að myndinni
en ekki er enn ljóst hverjir munu
verða í öðrum hlutverkum.
Leikkonurnar eiga það sameig-
inlegt að vera afar vinsælar um
þessar mundir en Lohan hefur
verið gagnrýnd mikið fyrir að
partílifnað upp á síðkastið og að
mæta of seint á tökustaði. Það er
því spurning hvort Keira hafi ekki
góð áhrif á partíljónið Lohan enda
hefur hún ekki verið annað en til
fyrirmyndar í fjölmiðlum.
Leika ástkonur í
nýrri bíómynd
KEIRA KNIGHTLEY Leikur lesbíu í nýrri
mynd sinni en móðir hennar skrifaði
handritið.
LINDSEY LOHAN Leikur í nýrri mynd
ásamt Keiru Knightley en þar munu þær
leika ástkonur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Dögg Pálsdóttir
4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Kvennakvöld
miðvikudaginn
18. október
Stuðningsmenn
Daggar Pálsdóttur
bjóða til kvennakvölds
í kvöld, miðvikudaginn
18. október kl. 18 – 20,
á kosningaskrifstofunni
að Laugavegi 170, 2. hæð.
Léttar veitingar verða
bornar fram undir ljúfum
tónum.
Hlökkum til að sjá þig.