Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 84
MIÐVIKUDAGUR 18. október 2006 35
FÓTBOLTI Breskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að Eggert
Magnússon hefði hækkað tilboð
sitt í West Ham um rúmlega 3,8
milljarða íslenskra króna.
Eftir því sem fram kemur á
heimasíðu BBC þá á upprunalegt
tilboð Eggerts í félagið að hafa
verið 65 milljónir punda, eða 8,3
milljarðar íslenskra króna, en því
tilboði ku hafa verið hafnað.
Nýtt tilboð Eggerts hljóðar
upp á 75 milljónir punda, sam-
kvæmt heimildum BBC, og tilboð
Eggerts hljóðar einnig upp á yfir-
töku á skuldum félagsins sem eru
20 milljónir punda.
Í frétt BBC kemur einnig fram
að Eggert muni hitta stjórn West
Ham að máli síðar í vikunni.
Eggert þykir hafa undirstrik-
að rækilega alvarleika tilboðsins
með því að ráða Mike Lee sem
talsmann sinn en Lee sá um
almannatengslin fyrir London er
borgin sótti um að halda Ólymp-
íuleikana árið 2012 og hafði sigur
í því kjöri. - hbg
Eggert Magnússon gefur ekkert eftir í baráttunni um völdin hjá West Ham:
Talinn hafa hækkað tilboð sitt í West
Ham um tæpa fjóra milljarða króna
EGGERT MAGNÚSSON Hittir stjórn West
Ham að máli síðar í vikunni.
FÓTBOLTI Liverpool mun ekki tefla
fram sínu sterkasta liði gegn
Bordeaux í Frakklandi í kvöld og
munar þar mest um sjálfan
fyrirliðann Steven Gerrard sem
getur ekki leikið vegna meiðsla.
Gerrard tognaði í leiknum gegn
Blackburn um helgina og er ekki
búinn að jafna sig. Vonir standa
þó til að hann geti leikið gegn
Man. Utd næstkomandi sunnu-
dag.
Mohamed Sissoko og Dirk
Kuyt eru báðir í hópnum þrátt
fyrir smá meiðsli en Daniel
Agger og Robbie Fowler eru
báðir frá vegna meiðsla. - hbg
Liverpool mætir Bordeaux:
Gerrard ekki
með Liverpool
STEVEN GERRARD Meiddur og spilar
ekki í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ömurlegt gengi enska
landsliðsins undir stjórn Steves
McClaren hefur orðið til þess að
æ fleiri kalla eftir því að David
Beckham verði valinn á ný í
landsliðið. Þegar Steve McClaren
tók við liðinu sagðist hann vilja
fara nýjar leiðir en sú hugmynd
hefur fallið um sjálfa sig.
Beckham er búinn að létta honum
lífið örlítið með því að bjóða fram
krafta sína enn eina ferðina.
„Það er mjög erfitt að horfa á
enska landsliðið spila og geta ekki
verið á vellinum að hjálpa til,“
sagði Beckham við Revista de la
Liga. „Það verður erfitt þangað til
ég kemst vonandi aftur í liðið.“
- hbg
David Beckham:
Vill komast aft-
ur í landsliðið
DAVID BECKHAM Er tilbúinn að berjast
fyrir sæti sínu í landsliðinu
FÓTBOLTI Hinn tékkneski mark-
vörður Chelsea, Petr Cech, er
kominn til meðvitundar eftir að
hann höfuðkúpubrotnaði um
helgina. Nánustu ættingjar og
vinir eru búnir að heimsækja
hann á sjúkrahúsið sem og Jose
Mourinho, stjóri Chelsea, og John
Terry, fyrirliði Chelsea.
Faðir Cechs er ekki mjög kátur
og hann vill að manninum sem
slasaði son sinn, Stephen Hunt,
leikmaður Reading, verði refsað
grimmilega. „Þetta var ekkert
slys,“ sagði Cech eldri reiður.
„Hunt sparkaði viljandi í hann og
Petr mun ekkert spila á þessari
leiktíð.“ - hbg
Petr Cech illa meiddur:
Kannski frá í
heilt ár
PETR CECH Spilar væntanlega ekkert á
þessari leiktíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
SS-bikarkeppni karla
32 LIÐA ÚRSLIT
ÍR 2-VÍKINGUR/FJÖLNIR 34-32
HK-STJARNAN 25-26
Mörk HK: Valdimar Þórsson 12/4 (18/4), Brynj-
ar Valsteinsson 2 (2), Tomas Eitutis 2 (7), Ragnar
Hjaltested 2 (5), Ólafur Bjarki Ragnarsson 2 (6),
Brendan Þorvaldsson 1 (1), Sigurgeir Árni Ægisson
1 (1), Sergey Petraytis 1 (1), Árni Þórarinsson 1 (2),
Augustas Strazdas 1 (7).
Varin skot: Egidijus Petkevicius 11/1, Hlynur
Jóhannsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Guðmundur Guðmundsson
6/2 (10/2), Patrekur Jóhannesson 6/1 (11/1),
Björn Óli Guðmundsson 5 (7), Elías Már Halldórs-
son 4 (9/1), David Kekelia 3 (4), Volodymir Kysil 1
(1), Björn Friðriksson 1 (3).
Varin skot: Roland Eradze 16.
FYLKIR 2-ÍR 20-46
KV-FH 15-37
DHL-deild kvenna
STJARNAN-AKUREYRI 34-16
VALUR-GRÓTTA 29-24
ÍBV-FH 31-28
Mörk ÍBV: Valentina Radu 9, Pavla Plaminkova 6,
Pavla Nevarilova 6, Andrea Löw 4, Renata Horvath
4, Hekla Hannesdóttir 1, Sæunn Magnúsdóttir 1.
Mörk FH: Harpa Dögg Vífilsdóttir 7, Kamilla
Opsahl 5, Marianne Marx 5, Ásta Björk Agnars-
dóttir 4, Guðrún Drífa Hólmgeirsdsóttir 3, Linn
Mångset 3, Hafdís Inga Hinriksdóttir 1, Ásdís Sig-
urðardóttir
STAÐAN
GRÓTTA 6 4 0 2 162-152 8
VALUR 5 3 1 1 135-122 7
STJARNAN 4 3 0 1 128-87 6
ÍBV 5 3 0 2 137-123 6
FRAM 5 2 2 1 121-115 6
HAUKAR 3 2 0 1 88-66 4
FH 5 1 1 3 114-127 3
HK 4 1 0 3 95-128 2
AKUREYRI 5 0 0 5 94-154 0
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
DYNAMO KIEV-LYON 0-3
0-1 Juninho (31.), 0-2 Källström (38.), 0-3
Malouda (50.).
STEAUA BÚKAREST-REAL MADRID 1-4
0-1 Sergio Ramos (9.), 0-2 Raul (34.), 0-3 Robinho
(56.), 1-3 Badea (64.), 1-4 Van Nistelrooy (76.).
STAÐAN
LYON 3 3 0 0 8-0 9
REAL MADRID 3 2 0 1 9-4 6
STEAUA B. 3 1 0 2 5-8 3
DYNAMO KIEV 3 0 0 3 2-12 0
F-RIÐILL
CELTIC-BENFICA 3-0
1-0 Miller (56.), 2-0 Miller (66.), 3-0 Pearson
(90.).
MANCHESTER UNITED-FC KAUPM. 3-0
1-0 Scholes (39.), 0-2 O‘Shea (46.), 0-3 Richard-
son (83.).
STAÐAN
MAN. UTD. 3 3 0 0 7-2 9
CELTIC 3 2 0 1 6-3 6
BENFICA 3 0 1 2 0-4 1
FC KAUPM. 3 0 1 2 0-4 1
G-RIÐILL
PORTO-HAMBURGER SV 4-1
1-0 Lisandro Lopez (14.), 2-0 Gonzalez, víti (45.),
3-0 Postiga (69.), 4-0 Lisandro Lopez (81.), 4-1
Trochowski (89.).
CSKA MOSKVA-ARSENAL 1-0
1-0 Carvalho (24.).
STAÐAN
CSKA MOSKVA 3 2 1 0 2-0 7
ARSENAL 3 2 0 1 4-2 6
PORTO 3 1 1 1 4-3 4
HAMBURG 3 0 0 3 2-7 0
H-RIÐILL
ANDERLECHT-AC MILAN 0-1
0-1 Kaka (58.).
LILLE-AEK AÞENA 3-1
1-0 Robal (64.), 1-1 Ivic (68.), 2-1 Gygax (83.), 3-1
Makoun (90.).
STAÐAN
AC MILAN 3 2 1 0 4-0 7
LILLE 3 1 2 0 4-2 5
ANDERLECHT 3 0 2 1 2-3 2
AEK AÞENA 3 0 1 2 2-7 1
Sænska úrvalsdeildin
IFK GAUTABORG-DJURGÅRDEN 3-2
Sölvi Ottesen var á varamannabekk Djurgården en
Kári Árnason lék ekki vegna meiðsla.
STAÐA EFSTU LIÐA
ELFSBORG 22 11 10 1 38-17 43
AIK 22 11 8 3 37-21 41
IFK GAUTAB. 22 9 8 5 38-27 35
HELSINGB. 22 9 8 5 37-27 35
MALMÖ 22 9 7 6 38-31 34
HAMMARBY 22 10 6 6 36-30 33
DJURGÅRDEN 22 9 6 7 26-22 33
KALMAR 22 9 5 8 30-24 32
GEFLE 22 8 5 9 24-32 29
GAIS 22 5 9 8 22-29 24
HANDBOLTI Stjarnan vann góðan
útisigur á HK í 32 liða úrslitum í
SS-bikar karla í handknattleik í
gær, 26-25. HK hafði yfirhöndina í
fyrri hálfleik en það var allt annað
að sjá til Stjörnunnar í síðari hálf-
leik. Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi og leikmenn HK fóru
illa að ráði sínu í lok leiksins en þá
fengu þeir gullið tækifæri til að
jafna leikinn.
Leikmenn HK mættu miklu
grimmari til leiks í gær og náðu
fljótlega forystu í leiknum. Stjarn-
an missti HK þó aldrei langt frá
sér og staðan í hálfleik var 13-10
fyrir heimamenn í HK í fyrri hálf-
leik sem einkenndist af mörgum
sóknarmistökum, sérstaklega
af hálfu Stjörnumanna. Valdimar
Þórsson fór á kostum í fyrri hálf-
leiknum og skoraði átta af fyrstu
ellefu mörkum HK í leiknum.
Það var engu líkara en að allt
annað Stjörnulið hafi mætt til
leiks í síðari hálfleik. Vörnin fór
að vinna betur saman hjá Stjörn-
unni og sóknarleikurinn var miklu
betri í þeim fyrri. Lokamínútur
leiksins voru æsispennandi,
Stjarnan hafði yfir 25-26 og HK
var með boltann þegar ein og hálf
mínútu lifðu af leiknum. HK missti
hins vegar boltann klaufalega frá
sér og Stjarnan stóð með pálmann
í höndunum. HK náði þó að vinna
boltann aftur og í stað þess að fara
í hraðaupphlaup reyndi Tomas
Eitutis, leikmaður HK, skot af
löngu færi sem Roland Eradze,
markvörður Stjörnunnar, átti ekki
í vandræðum með. 25-26 sigur
Stjörnunar því staðreynd.
Valdimar Þórsson skoraði 12
mörk fyrir HK í gær en það dugði
þó ekki til. „Við spiluðum hrika-
lega illa í síðari hálfleik. Við
vorum kannski svolítið hrokafull-
ir eftir góða byrjun í deildinni og
kannski höfðum við gott af því að
gera í buxurnar hér í dag,“ sagði
Valdimar eftir leikinn.
- dsd
Stjarnan hafði betur gegn HK í hörkuleik í SS-bikar karla í handknattleik í gær:
Dýr mistök HK í lok leiksins
UNNU SEM ÞJÁLFARAR Patrekur Jóhannesson og Konráð Olavsson stýrðu Stjörnu-
mönnum til sigurs í gær en þeir hafa tímabundið tekið við sem þjálfarar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Það var að venju fjör í
leikjum gærkvöldsins í meistara-
deild Evrópu er þriðja umferð
riðlakeppninnar hófst. Línur eru
teknar að skýrast. Manchester
United er svo gott sem komið
áfram úr sínum riðli og þá er
staða Lyon einnig sterk en bæði
lið hafa unnið alla sína þrjá leiki.
Sigurganga Arsenal var stöðv-
uð í Moskvu í gær þar sem heima-
menn í CSKA unnu 1-0 sigur á
Lundúnaliðinu. Miðvallarleikmað-
urinn brasilíski í CSKA Moskvu,
Daniel Carvalho, skoraði eina
mark leiksins á 24. mínútu.
Leikmenn Arsenal komu bolt-
anum reyndar tvívegis í netið en
alltaf var markið dæmt af. Í síð-
asta skiptið var hendi dæmd á
Thierry Henry en dómari leiksins
vildi meina að Henry hefði lagt
boltann fyrir sig með höndinni.
Henry var áminntur í kjölfarið.
Bæði Kolo Toure og Vagner Love
skoruðu mörk fyrir sín lið sem
voru dæmd af.
Arsenal hafði unnið síðustu sex
leiki sína í öllum keppnum fyrir
gærdaginn, þar á meðal gegn
Hamburger SV og Porto í meist-
aradeildinni.
Þeir ensku virðast einnig eiga
erfitt uppdráttar í Moskvu en í
þremur leikjum síðan 1982 hefur
Arsenal tapað tvívegis og gert eitt
jafntefli í borginni. Sigur CSKA
þýddi að liðið er komið á topp G-
riðils.
Manchester United vann frem-
ur auðveldan sigur á dönsku
meisturunum í FC Kaupmanna-
höfn sem geta þakkað markverði
sínum, Jesper Christiansen, að
hafa ekki beðið enn stærri ósig-
urs. Christiansen fékk reyndar á
sig klaufalegt mark undir lok
leiksins en hafði fram að því varið
glæsilega oftar en einu sinni. Dan-
irnir börðust hetjulega þrátt fyrir
mótlætið en þrátt fyrir að Ryan
Giggs, Gary Neville eða Rio Ferd-
inand voru ekki með United voru
þeir nokkrum númerum of litlir.
Lyon er á hörkusiglingu í meist-
aradeildinni og með fullt hús stiga
og markatöluna 8-0 eftir fyrstu
þrjá leikina. Í gær vann liðið
Dynamo Kiev á útivelli, 3-0. Celtic
vann svo góðan heimasigur á Ben-
fica, 3-0, og er á góðri leið með að
fylgja Manchester United í 16-
liða úrslitin.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
SVEKKTUR Thierry Henry trúir ekki ákvörðun dómarans að dæma mark sitt ólöglegt.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Arsenal tapaði í Moskvu
Þriðja umferð meistaradeildar Evrópu hófst í gær með átta leikjum. Keppt var í
fjórum riðlum og eftir leiki gærkvöldsins eiga þrjú toppliðanna eftir að fá mark
á sig. Arsenal missti hins vegar sitt toppsæti og fékk á sig sín fyrstu mörk.