Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 89
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
�����������������
FYRIR rúmri viku birtist leiðari í
Fréttablaðinu með fyrirsögninni
„Ótímabær spá um dauða dag-
blaða“. Þar var glaðst yfir vel-
gengni Fréttablaðsins og rifjaðir
upp þeir tímar þegar Morgunblað-
ið bar höfuð og herðar yfir önnur
blöð. Í leiðaranum stóð meðal ann-
ars: „Morgunblaðið, þessi hartnær
aldargamla stofnun, hafði um ára-
bil gnæft yfir öðrum dagblöðum;
sveif líkt og í 33 þúsund fetum
skýjum ofar án þess að þurfa að
hafa áhyggjur af samkeppni við
aðra prentmiðla sem börðust um í
ókyrrara lofti nær jörðu. Þó liðu
ekki nema um átján mánuðir þar
til mælingar sýndu að fleiri lásu
Fréttablaðið að jafnaði en gamla
risann.“
ÉG skautaði yfir leiðarann og las
mig svo áfram í gegnum blaðið.
Loks staldraði ég við fasteigna-
auglýsingu sem fullyrti að Vætta-
borgir væru frábær staðsetning.
Ég var að innbyrða rökstuðning-
inn fyrir því þegar ég rak augun í
síðuna við hliðina. Þar beið mín
aldeilis óvænt efni, ljóð eftir
Matthías Johannessen. Haustljóð
um vorið heitir það og naut þarna
fulltingis ljósmynda af litasynfón
haustsins.
ÞAÐ er ekki oft sem mér hrýtur
vísa af vörum en þarna gerðist
það. Ég ætlaði að fara að segja eitt-
hvað allt annað, biðja eiginmann-
inn um að rétta mér lýsið eða
banna syni mínum að standa upp í
stólnum, en í staðinn kom þetta:
Risinn lúni laut í gras
lengur fékk ei staðið.
Moggaskáldið Matthías
mælti í Fréttablaðið.
SÚ var tíðin að hér rann ekki upp
sú hátíð að Matthías skellti ekki
viðeigandi ljóði eftir sig í Morgun-
blaðið – sem hann ritstýrði sjálfur.
Jafnvel eftir að hann hætti sem rit-
stjóri hefur mátt finna þar eftir
hann stöku ljóð. Mér finnst ég all-
tént nýbúin að sjá þar eitthvað eftir
hann um Þingvelli.
ÞÁ fyrst áttaði ég mig á leiðaran-
um. Velgengni Fréttablaðsins er
svo mikil að þeir hafa tekið Matthías
herfangi. Sem almennur lesari
hefði mér samt þótt eiga betur við
að Fréttablaðið kæmi sér upp sínu
eigin skáldi sem gæti þá ort í blaðið
við árstíðaskipti og önnur hátíðleg
tilefni. Svo mætti færa af skáldinu
alls kyns fréttir smáar sem stórar.
Til að mynda gæti blaðið sagt frá
því þegar skáldinu yrði boðið á bók-
menntahátíðina í Edinborg, síðan
að það sé á leiðinni þangað og loks
að það sé komið út. Þegar Frétta-
blaðið tekur að leika þetta eftir
Morgunblaðinu vil ég fyrir alla
muni benda því á að muna að segja
okkur frá því þegar skáldið snýr
aftur heim. Annars fer maður að
óttast um það og sér það alltaf fyrir
sér ranglandi í reiðileysi um ókunna
borg þar sem enginn veit hver það
er og sjálft þekkir það fáa. Skáld
eru auðvitað best geymd heima hjá
sér.
Nýjasta
herfangið
Garðabær
Kópavogur
Reykjavík
Hafnarfjörður
G
ra
fa
vo
gu
r
G
ra
fa
vo
gu
r
Ljósmyndasýning Rebekku er skipulögð þannig að ef þú ekur ákveðnar leiðir sérðu alla sýninguna.
Ein leiðin er Hafnarfjörður í Kópavog eftir Hafnarfjarðarvegi. Önnur úr Grafarvogi, yfir Gullinbrú, eftir
Miklubraut og Kringlumýrarbraut í Kópavog. Sú þriðja úr Vesturbænum, eftir Hringbraut/Miklubraut
og Kringlumýrarbraut í Kópavog.
Einnig geturðu notið sýningarinnar gangandi í miðborg Reykjavíkur, leggur upp frá Lækjargötu og
endar á Ingólfstorgi. Njóttu vel.
Taktu eftir ljósmyndasýningu
Rebekku Guðleifsdóttur á
strætisvagnaskýlum víðsvegar
um höfuðborgarsvæðið.
Gefðu þér tíma. Svalaðu forvitninni
og njóttu.
Þá gerist
undrið
Læk
jarga
ta
Aða
lstræ
ti
Póst
húss
træt
i Austurstræti
Austurstræti
Kirkjustræti
Vonarstræti
Reykjavík miðbær
12
34
5
6
9
til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
33
67
0
10
/2
00
6
Skilagjaldið er
10 krónur
Knarrarvogi 4, Rvk.