Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 58
19. október 2006 FIMMTUDAGUR34
nám, fróðleikur og vísindi
KJARNI MÁLSINS
> Fjöldi nemenda skráðir í fjarnám
Fjölbrautaskóli Suðurlands var stofnaður 13. september árið 1981 og varð því
25 ára í seinasta mánuði. Skólinn á rætur sínar að rekja til Iðnskólans á Selfossi,
framhaldsdeildanna við Gagnfræðaskólann á
Hvolsvelli, Selfossi, Skógum og í Hveragerði, auk
öldungadeildarinnar í Hveragerði.
Árið 1983 gerðust sýslurnar á Suðurlandi
aðilar að skólanum. Eigendur skólans eru ríkis-
sjóður og sveitarfélög á Suðurlandi.
Skólinn þjónar öllu Suðurlandi og sér um
kennslu á Litla-Hrauni og við réttargeðdeildina á Sogni. Auk þess að sjá um
víðtækt verknám og bóknám er boðið upp á meistaranám.
■ Skólinn:
Þjónar öllu Suðurlandi
1997
2005
2.
12
8
5.
15
1
61
0
2001
Heimild: Hagstofa Íslands
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir málstofu um komandi
þingkosningar í Bandaríkjunum í dag. Dr. Corgan, dósent í alþjóðasamskiptum
og gistikennari við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands, fjallar um þau málefni
sem verða í brennidepli í kosningunum og hvað það gæti þýtt ef demókratar
næðu stjórninni á annarri eða báðum deildum þingsins. Einnig fer hann
yfir framkvæmd kosninganna og kosningabaráttuna. Davíð Logi Sigurðsson,
blaðamaður og stundakennari við stjórnmálafræðiskor, stýrir síðan umræðum.
Málstofan fer fram í stofu 311 í Árnagarði og hefst klukkan 12:15.
■ Málstofa Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands:
Komandi þingkosningar í Bandaríkjunum
Samkeppnin Upp úr skúffunum 2006 snýst um að draga fram í
dagsljósið áhugaverðar hugmyndir og rannsóknaniðurstöður
starfsfólks og nemenda til að koma þeim á framfæri og stuðla
að hagnýtingu þeirra. Samkeppnin er nú haldin í áttunda sinn.
Frestur til að skila inn tillögum í samkeppnina hefur verið
framlengdur til 30. október næstkomandi. Umsóknareyðublöð
eru á heimasíðu samkeppninnar http://www.uppurskuffunum.
hi.is/id/1011090. Hægt er að skila skriflegum tillögum til Rann-
sóknaþjónustu Háskólans, Tæknigarði eða með tölvupósti til
vidarh@hi.is.
■ Rannsóknaþjónusta Háskólans:
Samkeppnin Upp úr skúffunum 2006
Árlegt málþing Rannsókn-
arstofnunar Kennarahá-
skóla Íslands um rannsókn-
ir, nýbreytni og þróun í
skólastarfi hefst á morgun.
Þetta er í tíunda skipti sem
málþingið er haldið og segir
forsvarsmenn þess að dag-
skráin í ár sé veisla fyrir
alla þá sem hafa áhuga á
skólaþróun.
Það eru margir þættir sem góðir
kennarar líta til í starfi sínu. Það
sannast vel á öllu því forvitnilega
sem er boðið upp á á málþingi
Rannsóknarstofnunar Kennarahá-
skóla Íslands sem hefst á morgun
og stendur fram á laugardag. Þetta
segir Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir,
formaður undirbúningsnefndar
málþingsins.
Þetta er í tíunda sinn sem Rann-
sóknarstofnunin heldur málþing
um það sem er á döfinni í
skólastarfi. Yfirskrift þess
að þessu sinni er Hvernig
skóli – skilvirkur þjónn eða
skapandi afl?
Níu erindi verða flutt á
morgun og ríflega eitt hundrað í
25 málstofum á laugardaginn, og
því greinilegt að mikil gróska er á
þessu sviði enda miklar og örar
breytingar sem átt hafa sér stað í
þjóðfélagi okkar að undanförnu.
Málstofurnar hafa skírskotun
til allra skólastiga og segir Eiríks-
ína markhópinn vera alla þá sem
koma að uppeldi og fræðslu barna
svo sem foreldra, kennara, stefnu-
mótendur og stjórnendur á sviði
mennta og uppeldis, auk þeirra
sem starfa að málefnum fatlaðra
og í frístundastarfi.
Aðalfyrirlesari morgundagsins
er dr. Louise Stoll, prófessor við
Lundúnarháskólann. Hún ætlar að
fjalla um stöðu skólans í örum
þjóðfélagsbreytingum og benda á
leiðir um hvernig skólakerfið geti
fylgt þeim. Hún segir skóla á
öllum aldursstigum þurfa að vera
sýnilegra afl og meðvitaðri um
þátt sinn og aukna hlutdeild í sam-
félaginu.
Á laugardag verður aðalfyrir-
lesarinn Ingvar Sigurgeirsson,
prófessor við KHÍ. Fyrirlestur
hans nefnist Virðing eða vantrú –
viðhorf til nemenda með hegðun-
arraskanir. Umfjöllunina byggir
hann á nýlegri rannsókn sem gerð
var í grunnskólum í Reykjavík á
liðnu skólaári.
Eitt af því helsta sem hann
segir athuganirnar hafa leitt í ljós
er að mikill munur er á umfangi
agavandamála eftir skólum, sem
og á viðhorfum starfsfólks til
þessara mála. Jafnframt segir
Ingvar áhugavert að sjá hversu
ólíkar leiðir skólar fari þegar tekið
er á agavandamálum.
„Þetta er sannkölluð veisla
fyrir skólafólk og alla áhugasama
um skólaþróun en sá áhugi hlýtur
að ná til flestra þeirra sem koma
að uppeldismálum,“ segir Eiríks-
ína og bendir á að hægt sé að skrá
sig á staðnum við upphaf mál-
þingsins klukkan tvö í Stakkahlíð
eða rafrænt í gegnum vef Kenn-
araháskólans. karen@frettabladid.is
Veisla fyrir áhugafólk
um skólaþróun
Í fyrsta skipti eru konur nú í meirihluta framhaldsskólakennara að því er kemur
fram í nýjasta vefriti menntamálaráðuneytisins.
Konur hafa lengi verið í afgerandi meirihluta
starfsfólks leik- og grunnskóla. Skólaárið 2000 til
2001 voru karlar 54,3 prósent kennara í fram-
haldsskólum og voru þeir 8,5 prósentustigum fleiri
en konurnar. Skólaárið 2005 til 2006 voru konur
orðnar 51,5 prósent kennara í framhaldsskólum en
karlar 48,5 prósent sem er mismunur upp á 2,9
prósentustig.
Árið 2005 voru konur því komnar í meirihluta kennara á öllum þremur
skólastigunum, allra mest á leikskólastiginu en skólaárið 2005 til 2006 voru
þær 96,9 prósent alls starfsfólks leikskóla.
■ Konur komnar í meirihluta kennara á öllum skólastigum:
Meirihluti framhaldsskólakennara konur
Forritið Teygjuhlé minnir fólk á að taka sér reglulega frí
frá tölvuvinnu og teygja úr sér. Forritið byggir á vinnu-
vistfræði og er einkum ætlað börnum og unglingum.
Æfingarnar henta þó öllum aldurshópum.
Forritið er ætlað til notkunar í skólum eða í tengslum
við aðra vinnu og til einkanota. Í skólum er mögulegt að
nýta forritið í tengslum við tölvutíma og aðrar kennslu-
stundir til að draga úr áhrifum kyrrsetu. Heima fyrir er
hægt að setja forritið upp og nýta á þeim tölvum sem börn og ungt fólk nota til
heimanáms og leikja.
Hægt er að nálgast forritið á vef Lýðheilsustöðvar.
■ Forritið Teygjuhlé dregur úr áhrifum kyrrsetu:
Taka frí frá tölvunni og teygja úr sér
Frá því að ákveðið var að fæðingardagur Jónasar Hallgrímsson-
ar, 16. nóvember, yrði dagur íslenskrar tungu ár hvert hefur
menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í
þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það.
Er það gert í samstarfi við skóla, stofnanir, fyrirtæki,
félagasamtök og einstaklinga og eru allir hvattir til þess að
landsmenn hugi að því að nota 16. nóvember eða dagana
þar í kring til að hafa íslenskuna í öndvegi. Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum hefur verið falið að
annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi
íslenskrar tungu 2006.
■ Átak í þágu íslensks máls:
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember
Samræmd próf eru lögð fram í 4. og 7.
bekkjum um land allt í dag og á morgun.
Skiptar skoðanir eru innan kennarastéttar-
innar um ágæti samræmdra prófa. Júlíus
Ólafsson, kennari í 7. bekk í Melaskóla, er
á því að leggja eigi samræmd próf niður.
„Ég tel þessi próf ekkert merkilegri en þau
próf sem við erum að leggja fyrir börnin
venjulega. Þessi próf eru svo sem ágæt í því
sem þau eru að mæla en þau mæla ekkert
meira. Það er mín skoðun að þetta sé ekk-
ert betri mælikvarði.“
Júlíus segist ekki vera hrifinn af hvernig
prófin eru túlkuð og unnið með niðurstöð-
urnar. „Það er tekið of mikið mark á þessu
finnst mér. Þetta er metið sem einhver stóri
sannleikur á meðan kannski önnur próf og
vinna í skólanum eru talin hafa minna vægi.
Þetta finnst mér vera rangt. Og ég tel ekki
fara saman að auka vægi samræmdra prófa
og einstaklingsmiðaðs náms sem verið er
að auka núna.“
Júlíus ítrekar að skiptar skoðanir séu um
málið til dæmis á sínum vinnustað. „En ég
vil láta leggja þetta niður.“
Júlíus segir skólastarfið fara að snúast
um þetta að einhverjum hluta. „Það er
óhjákvæmilegt að alltaf þegar próf eru þá
verða börnin upptekin af því. Og mér finnst
að það eigi að auka sjálfstæði skóla og gefa
þeim vald til að stjórna sínu námsmati. Ég
sé enga ástæðu til að hafa svona miðstýrt
kerfi sem ákvarðar hvað allir eigi að gera.
Öll innrömmuð fyrirbæri sem eru lögð fyrir
draga úr sköpun skólastarfsins að mínu
mati.“
KENNARINN: JÚLÍUS ÓLAFSSON GRUNNSKÓLAKENNARI
Leggja ætti samræmd próf niður
Föstudagur
Aðalfyrirlestur
14:40 - 15:40 Creating Preferred
Futures: Schools with Agency
Dr. Louise Stoll, Unviersity of
London
Breyttur framhaldsskóli
Baldur Gíslason, skólameistari Iðn-
skólans í Reykjavík
Yngvi Pétursson, skólameistari
Menntaskólans í Reykjavík
Við erum samherjar: Samstarf
skóla, fjölskyldna og samfélags
Ingibjörg Auðunsdóttir, kennsluráð-
gjafi við Háskólann á Akureyri
„Minn er ljón sem líka getur verið
læknir“. Áhrif valstundar á félags-
leg samskipti og leik barna
Guðrún Bjarnadóttir, aðjúnkt við KHÍ
Tengsl lærdómsmenningar og
árangurs skóla
Anna Kristín Sigurðardóttir, Mennta-
sviði Reykjavíkurborgar
Er gerlegt að breyta grunnskól-
anum?
Margrét Pála Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Laugardagur
Aðalfyrirlestur
09:15 - 10:00 Virðing eða vantrú
- viðhorf til nemenda með hegð-
unarraskanir
Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við
KHÍ
Lestrarnám og kennsla
Þróunarverkefnið „Lifandi lestur“
„Ég get lesið,“ handbók um fyrstu
stig lestarkennslu
Áhrif sandleiks og sögugerðar á
sjálfsmynd og lestrargetu nemenda
með frávik í lestri
Lestrarnám og lestrarkennsla
Þroskaþjálfun í skólakerfinu - fötl-
unarfræði
Ég hef frá svo mörgu að segja: Þátt-
tökurannsókn og lífssögur fólks með
þroskahömlun
Þankar um hlutverk þroskaþjálfa í
grunnskólum
Þroskaþjálfar og staða þeirra og
hlutverk í grunnskólum
Samvinna fagstétta í Lækjarskóla
Kennarinn í starfi
Passar húsið á grunninn? Um nýjar
kröfur til kennara í skólastofunni
Samvirkt nám þar sem allir fá að
njóta sín
Að stilla saman þróun kennaranáms
og skólaþróun
Brot úr dagskrá