Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 72
19. október 2006 FIMMTUDAGUR48
maturogvin@frettabladid.is
Egill Fannar Kristjánsson
hefur unnið við að elda
en hefur nú tekið sér hlé
frá því. Hann titlar sig
ferðalang og er á milli
heimshornaflakks eins og
stendur.
Egill segist vera duglegri að elda
heima núna en þegar hann hafði
atvinnu af matreiðslu. „Ég eldaði
ekki reglulega þá,“ sagði hann.
Egill deilir einfaldri og fljótlegri
uppskrift að pastarétti með lesend-
um Fréttablaðsins, en honum þykir
gott að eiga slíkar uppskriftir við
hendina þegar lítill tími er til
stefnu. „Það er fínt að geta hent í
svona pastarétti á síðustu stundu,
þessi tekur varla meira en fimmt-
án, tuttugu mínútur,“ sagði hann,
en kjúklingur er líka ofarlega á
vinsældalistanum. Egill segist ekki
hafa fallið fyrir hollustuæði því
sem tröllriðið hefur landinu á und-
anförnum árum. „Ég elda bara það
sem mig langar í og hugsa ekki of
mikið um kaloríur,“ sagði hann.
Egill er ásamt fimm vinum
sínum meðlimur í matarklúbbi sem
hefur eðli málsins samkvæmt hlot-
ið nafnið Matarklúbburinn. „Við
skiptumst á að elda fyrir hópinn og
byrjuðum á frekar óskemmtileg-
um réttum. Við höfum til dæmis
borið fram slátur með rauðvíni.
Núna erum við samt eiginlega
hættir í vitleysunni og farnir að
elda virkilega góðan mat,“ sagði
Egill.
Pepperónípasta fyrir fjóra
500 g pasta, til dæmis tagliatelle
hálfur blaðlaukur
slatti af sveppum
hálft bréf af pepperóní
hálft bréf af skinku
1 piparostur
hálfur lítri matreiðslurjómi
Sjóðið pastað í potti. Steikið græn-
metið á pönnu, hellið rjómanum
yfir og látið suðuna koma upp.
Bætið þá pepperóníinu og
skinkunni út í og látið malla. Bætið
piparostinum við í lokin og látið
hann bráðna. Ég ber þetta fram
með pastanu og finnst gott að hafa
hvítlauksbrauð og jafnvel ferskt
salat með.
sunna@frettabladid.is
ÞRÚGUR GLEÐINNAR
Einar Logi Vignisson
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Ætli það sé ekki bara lambakjöt.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Það er hreindýrið sem ég hef alltaf á
jólunum.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur?
Já, japanskar baunir sem eru bornar
fram hálfúldnar. Þær eru límkenndar og
slímugar og alveg hryllilega vondur rétt-
ur. Ég fékk þær einu sinni sem meðlæti
í óskaplega fínu matarboði í Ameríku.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Réttur sem ég kalla „hreinsað úr
ísskápnum“. Þá nota ég fullt af græn-
meti og rjómaost, sýð pasta og bý til
eitthvað gúmmulaði með. Fjölskyld-
unni finnst það óskaplega gott.
Hvað borðar þú til að láta þér líða
betur?
Allavega ekki sælgæti. Það væri frekar
foie gras, það gleður alltaf.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Það er ekkert eitt sem ég á alltaf til.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tæk-
irðu með þér?
Kallinn minn. Og kartöflur, ég gæti látið
þær spíra og ræktað fleiri.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur
borðað?
Skröltormur sem ég fékk úti í Banda-
ríkjunum. Hann var ósköp fínn, minnti
pínulítið á frosk. Mér finnst froskar
voða góðir.
MATGÆÐINGURINN EDDA SVERRISDÓTTIR VERSLUNARMAÐUR
Borðaði skröltorm í Bandaríkjunum
> Prófaðu...
... að nýta litskrúð haustsins til að lífga upp
á matarborðið. Haustlauf í fallegum gler-
vasa eru ein besta borðskreyting sem völ er
á. Þeim má líka stinga inn í servíettuhringi
eða dreifa yfir borðdúkinn.
Mexíkóskur matur er í uppáhaldi
hjá mörgum Íslendingum. Í versl-
uninni Plaza Mexico, sem er til húsa
að Laugavegi 70, kennir ýmissa
grasa. Auk skartgripa og gjafavöru
má þar finna ýmsa hápunkta úr
mexíkóskri matargerð.
Eigandi búðarinnar, Vanessa G.
Basañez Escobar, segir Íslendinga
yfir höfuð vera opna og til í að prófa
hvað sem er. „Fólk virðist samt
halda að mexíkóskur matur sé mjög
sterkur, en hann þarf ekki að vera
það. Það er hægt að hreinsa chili og
sleppa fræjunum,“ sagði hún, en í
búðinni má einmitt finna nokkrar
gerðir af þurrkuðum chili-pipar. Þar
má einnig nálgast tilbúnar maístort-
illur, eða maísmjöl ef fólk vill búa
þær til sjálft. Vanessa mælir sér-
staklega með mexíkóskum sósum
og achiote-marineringu. „Við erum
með nokkrar gerðir af sósum, þar á
meðal mole, sem inniheldur meðal
annars súkkulaði og chili og er frá-
bær með kjúklingi. Achiote-þykkn-
inu má blanda við appelsínusafa til
að búa til maríneringu sem er mjög
góð með svínakjöti,“ sagði Vanessa.
Matreiðslunámskeið á vegum
Vanessu og Plaza Mexico fara af
stað á morgun, en þau verða haldin
í Hússtjórnunarskóla Reykjavíkur.
„Við ætlum meðal annars að búa til
tortillur, sýna fólki hvernig hægt er
að nota chili og kenna því hvaða
pipar er sterkastur,“ sagði hún.
Áhugasamir geta haft samband við
Plaza Mexico til að skrá sig. Fólk í
leit að skyndilausn þarf þó ekki að
örvænta, því í búðinni má nálgast
ýmsar uppskriftir sem gætu glatt
bragðlauka unnenda mexíkóskrar
matargerðar. - sun
Mexíkó á Laugaveginum
VANESSA Í PLAZA MEXICO Ætlar að bjóða gestum og gangandi að smakka lífrænt
kaffi, kakó eða te á laugardögum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
LOGANDI STERKUR CHILI-PIPAR
Ef piparinn er fræhreinsaður ofbýður
hann ekki viðkvæmum bragðlaukum,
segir Vanessa.
Hugsar lítið um hollustu
EGILL FANNAR KRISTJÁNSSON Eldaði sjaldan heima þegar hann hafði atvinnu af því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þrúgan sem ýmist gengur undir nafninu syrah eða shiraz er ein
gjöfulasta rauðvínsþrúga heims. Hún er mest áberandi þeirra
fjögurra þrúgna sem kynntar eru á uppskerudögum í vínbúðum sem
nú standa yfir. Tæpur helmingur allra vínanna á uppskerudögunum
eru úr þessari þrúgu og það sem meira er, vínin sem boðið er upp á á
lækkuðu verði eru mörg hver afbragðs góð. Innan við fjórðungur
syrah/shiraz vínanna er ódýrustu og einföldustu vínin, eins og svo
sorglega algengt er á þemadögum. Meginhluti vínanna eru býsna
athyglisverð með talsverðri slagsíðu úr nýja heiminum. Þannig eru
vín frá Ástralíu meirihlutinn af því sem í boði er og næst á eftir
fylgja vín frá Suður-Afríku. Vín frá Frakklandi eru hins vegar
sorglega fá og endurspeglar það þá staðreynd að frönsk vín eru
einfaldlega ekki í tísku. Vagga syrah-þrúgunnar er hins vegar í
Frakklandi og enginn verður fullnuma í henni nema kynna sér frönsk
vín. Þrúgan er sögð ættuð frá Íran en í Rónardalnum plöntuðu
Rómverjar henni og öldum saman hafa þar verið framleidd stór og
mikil vín, þykk, tannínsk og afar endingargóð. Frægust syrah-vína
eru Hermitage og Côte Rotie. Löngum hefur henni verið blandað
saman við aðrar þrúgur og þekktust eflaust sambúðin við grenache-
þrúguna í vínunum frá Chateauneuf-du-Pape. Þessa blöndu hafa
Ástralir lagað að sínu höfði og smellt gjarnan hinni lítt þekktu þrúgu
mourvedre við. Úr verða vín sem bera gjarnan skammstöfunina
GSM eftir upphafsstöfum þrúgnanna þriggja. Utan Frakklands er
þrúgan jafnan kölluð shiraz en þó er algerlega um sömu þrúguna að
ræða. Til gamans og einföldunar má segja að shiraz frá nýja
heiminum sé sætara en syrah frá gamla heiminum. Stíllinn
er gjörólíkur, frönsku vínin eru krefjandi en nýjaheims
vínin eru mýkri og ávaxtaríkari. Stundum kallaðar berja-
sprengjur og þetta eru þau vín sem hafa slegið í gegn hjá
neytendum sökum ljúfleika hin síðari ár. Sæt og bragðmikil
vín sem gefa mikið fyrir peninginn ef komið er yfir
ákveðið mark því segjast verður eins og er að heldur ber
að forðast ódýrustu vínin úr þessari annars góðu þrúgu.
Í Frakklandi eru ódýrustu vínin oft beisk og í ágætri
handbók um vín var þeim líkt við malbik eða gamla
járnbrautarteina! Ódýrustu áströlsku vínin eru ekki
hótinu betri, alltof lík berjasaft. Sem sagt, forðist þessi
ódýrustu vín og kíkið eftir vínum í milliverðflokki. Af
þeim er nóg á uppskerudögum.
Shiraz sætari en syrah
Á botninn hvolft:
Syrah er ilmrík þrúga, vínin eru yfirleitt bragðmikil, krydduð
og býsna há í alkóhóli. Þau eru góður valkostur með íslenskri
villibráð að hausti.