Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 74
19. október 2006 FIMMTUDAGUR50
Það eru komin 12 ár síðan
Hafdís Huld Þrastardóttir
byrjaði að hoppa um á sviði
í magabol með hljómsveit-
inni GusGus. Ýmislegt hefur
breyst en stærstu tíðindin
eru að fyrsta sólóplata Haf-
dísar er komin út. Platan er
persónuleg og Hafdís segist
heyra sig fullorðnast í gegn-
um plötuna.
„Ég er alveg rosalega ánægð með
viðtökurnar. Eftir að hafa unnið að
plötunni í nokkur ár er gaman að
heyra að það er fleirum en mér sem
finnst hún hljóma vel,“ segir tónlist-
arkonan Hafdís Huld Þrastardóttir
sem gaf út sína fyrstu sólóplötu á
dögunum. Platan heitir Dirty Paper
Cup og er gefin út af litlu plötufyrir-
tæki í Bretlandi, Red Grape Records.
Þegar hafa tvær smáskífur verið
gefnar út af plötunni og sú seinni,
Ski Jumper, er mikið spiluð í útvarpi
í Bretlandi um þessar mundir. Dirty
Paper Cup hefur sömuleiðis fengið
feiknagóðar viðtökur og gagnrýn-
endur hafa verið á einu máli um
ágæti hennar. Til að mynda fékk
platan fjóra af fimm í einkunn hjá
The Guardian.
Stíft tónleikahald
Mikil vinna hefur farið í gerð plöt-
unnar og margir þekktir tónlistar-
menn lögðu Hafdísi lið. Þar ber helst
að nefna Chris Corner úr hljómsveit-
inni Sneaker Pimps og Jim Abbiss,
sem sá um gerð plötu Arctic
Monkeys fyrir skemmstu.
Um þessar mundir er Hafdís á
tónleikaferðalagi um Bretland.
Ferðalagið er svo stíft að hún varð
að afboða fyrirhugaða tónleika sína
á Airwaves. „Þetta eru tuttugu tón-
leikar sem við tökum í október.
Flestir staðirnir sem við spilum á
taka um 200 gesti sem hentar okkur
vel. Við erum með hljóðfæri eins og
banjó og ukulele og svo stundum
leikfangahljóðfæri. Það er því ágætt
að vera á þessum smærri stöðum,“
segir Hafdís.
Fimm ára vinna við plötuna
Hafdís Huld var fimmtán ára þegar
hún gekk til liðs við Gus Gus. Vegna
ungs aldurs hennar þurftu foreldrar
hennar að skrifa undir plötusamning
með sveitinni fyrir hennar hönd.
Hafdís kom fram með Gus Gus um
nokkurra ára skeið þar til hún var
óvænt rekin úr hljómsveitinni árið
1999. Eftir að hafa hugsað sinn gang
ákvað hún að flytjast til London árið
eftir og fara að vinna að eigin tónlist.
Það tók þó tíma að finna sinn eigin
tón og fyrst um sinn var Hafdís Huld
mest í hlutverki gestasöngkonu hjá
danshljómsveitum.
Árið 2003 kom Hafdís svo fram á
Airwaves með hljómsveit sér til full-
tingis og þá hafði hún fundið rétta
farveginn í tónlistinni. Árið eftir hóf
hún svo nám í upptöku- og tónsmíð-
um við LCCM-skólann í Lundúnum.
Námið tók tvö ár og seinkaði fyrir-
hugaðri plötuútgáfu Hafdísar en hún
sér alls ekki eftir því, segir að platan
sé mun betri fyrir vikið.
„Ég er búin að læra að vera sjálf-
stæðari í tónlistinni. Nú get ég gert
allt sjálf, frá upphafi til enda, og það
gefur manni frelsi til að gera það
sem maður vill sjálfur gera. Ég get
sjálf til dæmis alveg heyrt mig full-
orðnast í gegnum plötuna, fyrir mér
er hún hálfgerð þroskasaga. Þess
vegna er þessi jákvæða gagnrýni
mér afskaplega mikils virði.“
Orðin hálf-bresk
Nú eru liðin sex ár frá því Hafdís
Huld fluttist til London og hún er
farin að aðlagast bresku samfélagi
vel. „Ég hef náttúrulega eytt öllum
mínum fullorðinsárum hér. Ég er
farin að drekka rosa mikið te og er
eiginlega hætt að kippa mér upp við
að vera boðið te á fimm mínútna
fresti. Það fer meira að segja ekki
mikið í taugarnar á mér lengur að
allt sé teppalagt hérna, en ég hef þó
ekki enn vanist því að að fara á
pöbbinn og borða franskar og bak-
aðar baunir í öll mál. Líf mitt er
voða mikið hér en samt finnst mér
alltaf jafn yndislegt að koma heim
til Íslands. Að borða brauð með osti
í eldhúsinu hjá mömmu og pabba og
fleira slíkt.“
Hafdís leigir íbúð í London með
íslenskri vinkonu sinni sem er að
læra grasalækningar og segir þær
tvær „yndislega skrýtna blöndu“.
Áður hafði hún búið með íslenskum
leiklistarnemum, þeim Anítu Briem
og Álfrúnu Örnólfsdóttur en sú síð-
arnefnda lék einmitt með Hafdísi í
myndbandinu við fyrsta smáskífu-
lag plötunnar. Þegar seinna mynd-
bandið fór í sýningar uppgötvaði
Hafdís að tónlist hennar gæti vakið
athygli og notið vinsælda.
„Ég var að versla á Oxford-stræti
með Söru vinkonu minni. Þegar við
vorum inni í Topshop var svo mynd-
bandið sýnt úti um allt á stórum
skjám. Þarna var ég bara eitthvað
að fíflast í Krísuvíkinni og það var
sýnt alls staðar. Mér fannst það hálf
ótrúlegt,“ segir Hafdís og hlær.
Framundan er stíf spilamennska
hjá Hafdísi og hljómsveitinni henn-
ar. Platan verður gefin út í Frakk-
landi í byrjun nóvember og á Spáni
og í Danmörku í byrjun næsta árs.
Hún vonast þó til þess að geta komið
til Íslands til að halda tónleika.
„Okkur langar að fara stuttan túr.
Það verður annað hvort í lok ársins
eða í byrjun næsta árs. Þá geta vinir
og vandamenn séð mig − og vonandi
koma nokkrir í viðbót.“ hdm@frettabladid.is
Stelpan úr GusGus orðin fullorðin
HAFDÍS HULD ÞRASTARDÓTTIR Sendi nýlega frá sér fyrstu sólóplötu sína og stefnir á
að halda tónleika á Íslandi öðru hvoru megin við áramótin.
Söngkonan Madonna hefur nú
svarað fyrir gagnrýni fjölmiðla á
ættleiðingu sinni en hún ættleiddi
á dögunum ársgamlan dreng frá
Malaví sem kom til Bretlands í
vikunni. Fjölmiðlar hafa hjakkað
mikið á því að tilgangur ættleið-
ingarinnar sé aðeins að fá athygli
og herma eftir Angelinu Jolie
sem hefur ættleitt tvö börn. Einn-
ig er Madonna sökuð um að hafa
brotið lög í ættleiðingarferli sínu.
Madonna segir að gagnrýnin fari
fyrir brjóstið á henni og hún hafi
aðeins viljað bjarga þessum unga
dreng frá fátækt og eymd og
stækka fjölskyldu sína og að
engin lög hafi verið brotin við
það.
Einnig segist hún vilja ætt-
leiða unga telpu sem var á sama
munaðarleysingjahæli og dreng-
urinn. „Þegar stúlkan horfði á
mig með sorgmæddum augum
fékk ég sting í hjartað og ég verð
að fara og sækja hana líka,“ segir
bjargvætturinn Madonna.
Ætlar líka að ættleiða stelpu
MADONNA Vill nú ættleiða stúlkubarn líka og segir að gagnrýni breskra fjölmiðla fari
fyrir brjóstið á henni.
Hafdís Huld
Á MAGABOLNUM Hafdís á tón-
leikum með GusGus í Flugskýli 4
1999.
ANDLIT GUSGUS Hafdís í mynda-
töku með sveitinni snemma árs
1999.
REKIN Hafdís
skömmu eftir
að hún var rekin
úr GusGus árið
1999.
Á LEIÐ ÚT Hafdís
árið 2000, árið
sem hún fluttist
til London.
LUNDÚNABÚI
Hafdís árið
2001 þegar hún
söng með dans-
hljómsveitinni
FC Kahuna.
ORÐIN FULL-
ORÐIN Hafdís
árið 2006 þegar
hún hefur sent
frá sér fyrstu
sólóplötu sína.
Í skjölum sem breska götublaðið
The Mirror komst yfir er greint frá
því að Heather Mills haldi því fram
að McCartney hafi verið drykk-
felldur og ofbeldishneigður síðustu
ár hjónabandsins. Samkvæmt frétt
The Mirror á bítillinn fyrrverandi
að hafa lamið Mills á meðan hún var
ólétt, tekið hana hálstaki, hent í
hana vínglasi og ýtt henni ofan í
tómt baðkar.
Mills segir ennfremur að
McCartney hafi neytt áfengis ótæpi-
lega og ólögleg vímuefni sem hafi
orðið til þess að hann missti stjórn á
skapi sínu með fyrrgreindum afleið-
ingum. Vinir tónlistarmannsins
segja McCartney vera í öngum
sínum yfir þessum ásökunum.
„Hann neitar þessu með öllu og
trúir því hreinlega ekki að hann
skuli sakaður um eitthvað af þessu.
Hann er öskureiður því hann vildi
Mills aðeins vel,“ sagði vinur
McCartney.
Í málsskjölunum er greint frá
árás sem á að hafa átt sér stað í Los
Angeles árið 2002. Þá á Paul að hafa
tekið um hálsinn á Mills og skellt
henni upp á kaffiborð. Ári eftir
þetta, þegar Mills gekk með dóttur
þeirra Bea, á McCartney að hafa
brjálast og ýtt henni ofan í baðkar. Í
apríl síðastliðnum á McCartney
síðan að hafa hellt yfir Mills rauð-
víni, brotið glasið og skorið fyrir-
sætuna með glerbroti sem varð til
þess að úr varð mjög stórt sár á oln-
boganum. McCartney á síðan að
hafa þrýst Mills í hjólastól, farið
með hana út fyrir og öskrað að hún
skyldi biðjast afsökunar á fram-
ferði sínu gagnvart sér. Málið verð-
ur tekið fyrir á næsta ári en reiknað
er með að skilnaðurinn geti orðið sá
dýrasti í sögu Bretlands enda
McCartney einn ríkasti maður
landsins. - fgg
McCartney sagður ofbeldishneigður
ERFIÐUR SKILNAÐUR Paul McCartney er sagður hafa lamið Heather Mills á síðustu
árum hjónabandsins en hann neitar öllum sökum.