Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 75
FIMMTUDAGUR 19. október 2006 51
Tónlistarvikunni Verslówaves
lýkur í Verslunarskólanum í dag
með tónleikum Kalla sem áður var
í Tenderfoot og Mugison.
Alla vikuna hafa listamenn sem
koma fram á Airwaves-hátíðinni
spilað í Verslunarskólanum í frí-
mínútum við góðar undirtektir.
Þegar hafa Æla, Original Melody,
Forgotten Lores og Pétur Ben
komið fram.
Þetta er í annað sinn sem
Versló-waves er haldin en í fyrra
tróðu þar m.a. upp Lokbrá, Jan
Mayen, Úlpa og Lára. „Við ætluð-
um að hafa tónleika í fyrra og
ákváðum bara að hafa þetta grand
og hafa heila viku,“ segir Björgvin
Ívar Baldursson sem stendur fyrir
tónlistarvikunni. „Við höfum feng-
ið mjög góð viðbrögð og þetta var
hápunkturinn í félagslífinu í
fyrra,“ segir hann.
Verslówaves vinsæl
MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison
spilar í Versló í dag. MYND/DANÍEL
NEMENDUR Versló-waves hefur fengið
góðar undirtekir hjá nemendum skól-
ans. MYND/LILJA GUÐNÝ MAGNÚSDÓTTIR
Eftir mikinn orðróm þess efnis að
fyrrverandi kryddpían Mel B og
Eddie Murphy muni ganga í það
heilaga á næstunni, heldur the Sun
því nú fram að söngfuglinn beri
barn þeirra undir belti. Náinn
vinur parsins segir Mel vera
komna fjóra mánuði á leið og parið
vera yfir sig hamingjusamt með
væntanlegan erfingja. Samkvæmt
heimildum blaðsins gat Mel ekki
haldið aftur af sér og sagði hverj-
um sem er af þunguninni í nýaf-
staðinni verslunarferð í verslun-
inni Le Bra Lingerie í Los Angeles.
Hún ýjaði jafnvel að því að von
gæti verið á tvíburum, en þeir eru
víst algengir í fjölskyldu Eddies.
Grínistinn Eddie á sex börn fyrir,
en Mel á dótturina Phoenix Chi
með fyrrverandi eiginmanni
sínum Jimmy Gulzar.
Mel B ólétt?
MEL B ÓLÉTT? Leysti frá skjóðunni í
verslunarferð í nærfatabúð.
Kanadíski söngfuglinn Celine
Dion er farin að huga að því að
eignast sitt annað barn. Dion er nú
að ljúka tónleikaröð sinni á Caesar
Palace hótelinu í Las Vegas en hún
hefur verið gríðarlega vinsæl
vestanhafs. Hún á eitt ár eftir á
samningi síðan þar og svo hyggst
hún láta reyna á að eignast annað
barn. Dion er gift upptökustjóran-
um Réne Angélil og eiga þau
saman eina dóttur. Dion segist þó
munu sjá eftir tónleikum sínum.
„Það verður erfitt að kveðja fólkið
og aðdáendurna en það er aldrei
að vita hvenær ég kem aftur.“
Vill annað barn
CELINE DION Ætlar að klára tónleikaröð
sína í Las Vegas en mun svo láta reyna á
það að eignast annað barn.
Bono stendur þessa dagana í stappi
við fyrrverandi stílista U2, sem
vill ekki afhenda meðlimum U2
klæðnað sem þeir segja hann hafa
hnuplað þegar hann vann fyrir þá.
Stílistinn Lola Cashman heldur því
hins vegar fram að henni hafi verið
gefinn klæðnaðurinn, en meðal
flíkanna er Stetson-hatturinn sem
prýddi höfuð Bonos á umslagi plöt-
unnar Rattle and Hum. Eftir að
Lola reyndi að selja einhverjar
flíkur á uppboði hjá Christie‘s árið
2002 gengu lögfræðingar U2 í
málið til að stöðva hana. U2 vann
málið gegn henni í fyrra, en ekki
vildi betur til en svo að Lola áfrýj-
aði dómnum og hefur Bono því
neyðst til að mæta fyrir rétt í
Dublin í þessari löngu forræðis-
deilu um Stetson-hattinn góða.
Berst fyrir
hatti sínum
BONO SAKNAR HATTSINS SÍNS Friður
ekki í sjónmáli enn, því hart er barist um
yfirráð yfir klæðnaði U2.
Fótboltafrúin Victoria Beckham
er að íhuga það að afþakka boð
bandarískrar sjón-
varpsstöðvar um
að stjórna sínum
eigin raunveru-
leikaþætti sem
tengdur verður
tísku. Victoria er á
báðum áttum
hvort hún eigi að
halda til Banda-
ríkjanna eða vera í Madrid hjá
fjölskyldu sinni. Breska dagblað-
ið Daily Express greinir frá þessu
og segir ákvörðunina valda Vict-
oriu miklu hugarangri, fjölskyld-
an eða framinn?
Á báðum
áttum
VICTORIA
BECKHAM
Fí
to
n/
S
ÍA
�������������������������������������������������
���������������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������������
������������� ���������������� ��������������������������������������������
���������������������������� ���