Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 4
4 20. október 2006 FÖSTUDAGUR
GENGIÐ 19.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,1458
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,97 68,29
127,00 127,62
85,36 85,84
11,449 11,515
10,065 10,125
9,224 9,278
0,5723 0,5757
99,91 100,51
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
ISUZU TROOPER 3.0 33”
Nýskr. 01.99 - Beinskiptur - Ekinn 165 þús. - Allt að 100% lán.
Verð
1.120
.000.
-
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra gerði
hvalveiðar, hugsanlegt bann við
botnvörpuveiðum í úthöfunum og
ákvörðun um hámarksafla að
umtalsefni í ræðu sinni á aðalfundi
Landsambands íslenskra útvegs-
manna sem hófst á Hótel Nordica í
gær.
Einar hóf mál sitt með því að
fjalla um ákvörðun um atvinnu-
hvalveiðar en gerði svo hugsan-
legt bann við veiðum með botn-
vörpu í úthöfunum að umræðuefni.
Slíkt bann var fyrir skemmstu til
umfjöllunar í fyrri lotu viðræðna
um fiskveiðiályktun allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna. Einar
varaði við öllum hugmyndum sem
geta leitt til yfirþjóðlegrar stjórn-
ar fiskveiða í heiminum. Taka
verði þessa umræðu alvarlega og
berjast af öllum mætti gegn því að
slíku banni verði komið á.
Einar ræddi ákvörðun sína síð-
astliðið sumar að breyta aflareglu
þorskstofnsins en halda veiðihlut-
falli óbreyttu. Ráðherra segir að
eftir þessa breytingu þurfi að velja
uppbyggingarleið til framtíðar. Til
að vísa veginn hafi Hagfræðistofn-
un Háskóla Íslands verið fengin til
að gera úttekt á þjóðhagslegum
áhrifum af breyttri aflareglu og
skoða áhrif af mismunandi veiði-
hlutfalli á þorski. „Það er von mín
að þessi vinna skili okkur fram á
veginn til hagsbóta fyrir íslenskan
sjávarútveg.“ - shá
Aðalfundur Landsambands íslenskra útvegsmanna:
Verjast þarf botnvörpubanni
FRÁ AÐALFUNDI Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra hélt ávarp í upp-
hafi aðalfundarins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MJÓLKURVÖRUR Vöruúrval í versl-
unum minnkar á næstunni á
starfssvæði Mjólkursamlagsins í
Búðardal vegna skipulagsbreyt-
inga sem hafa átt sér stað. Mjólk-
ursamlagið í Búðardal mun ein-
beita sér að vinnslu mjólkurafurða
og verða verslanir á svæðinu frá
norðanverðu Snæfellsnesi að
Barðastrandarsýslu og Vestur-
Húnavatnssýslu að panta vörur
frá MS í Reykjavík.
„Við þurfum að panta allt í heil-
um og hálfum pakkningum frá MS
og það er hið versta mál fyrir
svona lítið bæj-
arfélag. Þetta
kemur sér sér-
staklega illa
þegar um er að
ræða vörur
sem lítil hreyf-
ing er á,“ segir
Gestrún Sveins-
dóttir, verslun-
arstjóri í Jaðar-
kaupum á
Tálknafirði.
Gestrún nefnir sem dæmi gráð-
ost. „Það er engin roksala í honum
en alltaf einhverjir sem vilja. Ég
verð að taka pakkningu með tólf
ostum sem þýðir birgðir fyrir mig
í fjóra til fimm mánuði en ostur-
inn hefur kannski bara þriggja
mánaða sölutíma. Ég verð því
annað hvort að henda afganginum
í ruslið eða sleppa því að panta
hann,“ segir hún.
Gestrún telur ljóst að nýja fyr-
irkomulagið þýði miklu minna
vöruúrval fyrir fólk á svæðinu.
„Maður hefur reynt að hafa sem
flestar tegundir á boðstólum en ég
reikna með að að nú verði maður
að reyna að panta eftir því sem
selst og finna einhvern milliveg,
panta ekki það sem lendir í tunn-
unni,“ segir hún.
Guðbrandur Sigurðsson, for-
stjóri MS, segir að breytingin hafi
átt langan aðdraganda. Ákveðið
hafi verið að þjóna sölu- og mark-
aðsmálum sem mest frá Reykja-
vík. Þannig geti starfsmenn í
mjólkurbúunum einbeitt sér betur
að framleiðslunni.
„Við gerðum sambærilega
breytingu á Blönduósi í sumar og
gerum ráð fyrir að breyta þessu á
Selfossi snemma á næsta ári. Þá
munum við þjóna öllum miðlægt
og teljum okkur þannig tryggja
jafngóða þjónustu á öllu landinu,“
segir hann.
Guðbrandur segir að því miður
hafi MS þurft að setja reglur um
magn í pöntun. Eftir mikla skoðun
hafi verið ákveðið að afgreiða
bara heilar og hálfar pakkningar.
Búðardalur hafi jafnvel selt eina
jógúrtdós í einu en því miður sé
það ekki hægt.
„Ég skil þessi sjónarmið og
virði þau fullkomlega en það eru
takmörk fyrir því hvað við getum
gert,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
GUÐBRANDUR
SIGURÐSSON
Úrvalið af mjólkur-
vörum stórminnkar
Úrvalið í matvöruverslunum minnkar verulega á starfssvæði Mjólkursamlags-
ins í Búðardal á næstunni þar sem ekki er lengur hægt að panta mjólkurvörur
frá Búðardal heldur verður að panta heilar og hálfar pakkningar frá Reykjavík.
MJÓLKURVÖRUR FRÁ BÚÐARDAL Hætta er á því að úrvalið af mjólkurvörum minnki í
verslunum á starfssvæði Mjólkursamlagsins í Búðardal á næstunni.
PAKISTAN, AP Breskur ríkisborgari,
sem taka átti af lífi í Pakistan
meðan á opinberri heimsókn
Karls Bretaprins og Camillu
Parker Bowles eiginkonu hans
stæði, verður ekki líflátinn fyrr
en í lok ársins.
Aftökunni var frestað eftir að
stjórnvöld í Bretlandi hófu
afskipti af málinu, og var haft
eftir Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, að það væri „mjög
alvarlegt“ ef Mirza Tahir Hussain
yrði tekinn af lífi meðan á
heimsókninni stæði.
Hussain, 36 ára, var fundinn
sekur um að myrða leigubílstjóra
árið 1988 og hefur setið í fangelsi
í Pakistan síðan. - smk
Dauðadæmdur Breti:
Aftöku seinkað
um 60 daga
CAMILLA OG KARL BRETAPRINS Breskur
ríkisborgari verður ekki tekinn af lífi í
Pakistan meðan á heimsókn hjónanna
stendur þar í landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LAHTI, AP Evrópa á miklar
hamfarir á
hættu af
völdum
gróðurhúsa-
áhrifanna nema
þjóðir álfunnar
grípi til
róttækra
ráðstafana til
að draga úr
loftmengun af
brennslu
hefðbundins eldsneytis eins og
olíu og kola. Þessa brýningu
sendu forsætisráðherrar Bret-
lands og Hollands, Tony Blair og
Jan Peter Balkenende, kollegum
sínum í leiðtogaráði Evrópusam-
bandsins, en það kemur saman í
Lahti í Finnlandi í dag. Orku- og
umhverfismál verða ofarlega á
dagskrá fundarins, en á hann
mætir líka Vladimír Pútín
Rússlandsforseti. - aa
Leiðtogar ESB hittast í Lahti:
Vilja átak gegn
loftmengun
TONY BLAIR
BRETLAND Breskur netnotandi
hefur verið fundinn sekur í máli
sem kallað hefur verið fyrsta
netbræðismálið þar ytra. Eftir
að hafa hnakkrifist við annan
mann á spjallsíðu leitaði
sakborningurinn, Paul Gibbons,
uppi heimilisfang viðmælanda
síns, keyrði yfir hundrað
kílómetra heim til hans og barði
hann með axarskafti. Þetta
kemur fram á vefsíðu frétta-
stofu BBC.
Gibbons játaði sekt sína fyrir
dómi og á yfir höfði sér fangelsis-
vist. Rifrildið örlagaríka átti sér
stað á spjallsvæði sem tileinkað
er umræðum um Íslam. - sþs
Netbræði í Bretlandi:
Barði mann
eftir netrifrildi
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður
hefur sagt sig úr bæjarstjórn Vest-
mannaeyja. Lúðvík hefur ákveðið að
bjóða sig fram í 4. sæti Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi og hættir
til að geta einbeitt sér að komandi
kosningabaráttu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Lúðvík hættir í bæjarstjórn
HVALVEIÐAR Hvalveiðiskipið
Hvalur 9 hefur leitað að langreyði
á miðunum vestur af landinu en
enga fundið. Skipið var að leit
hundrað mílur út af Breiðafirði
þegar síðast spurðist.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafði Sigurður
Njálsson og áhöfn hans aðeins
orðið var við smáhveli á miðunum
en mórallinn um borð er samt
góður. „Þeir skemmta sér alveg
konunglega um borð enda
fagnaðarfundir hjá mörgum
þeirra.“
Ástæðan fyrir því að engin
langreyður hefur fundist stafar af
stuttum leitartíma, Hvalur 9 er
einskipa og langreyðurin er mikið
til farin í heitari sjó á þessum tíma.
- shá
Hvalveiðar:
Ekki fundið
langreyði ennþá
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�������������
�������������
��������������
��������������
�������������
�����������
�����������
�����������
�����������
�����������
���������������
���������������
������������
���������������
���������������
����������
����
��������������������
������������������� ��
��������� ������ �����
���������� ��� ������
�������������������
������������������������
���� ���������� ���
���������������������
�����
������
��� � ������������� ������ ��
�����������������������
���� �����������������
��������� �������������
������� ��������������
������������� ����������
������������ � ��
�����������
�� ���� ����� ��
��������������� ���
�������� ��������������� �
���� �������������������������������������
���������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
��
�
��
��
� ��
�
��
�
�