Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 70
 20. október 2006 FÖSTUDAGUR54 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 hvetja 6 hætta 8 arr 9 fugl 11 ónefndur 12 tvö 14 þíða 16 karlkyn 17 hár 18 for 20 bor 21 fimur. LÓÐRÉTT 1 löngun 3 í röð 4 fram- leiðsla 5 beita 7 aðgætinn 10 gogg 13 spil 15 heila 16 kóf 19 slá. LAUSN LÁRÉTT: 2 örva, 6 vá, 8 sig, 9 örn, 11 nn, 12 tvenn, 14 afísa, 16 kk, 17 ull, 18 aur, 20 al, 21 frár. LÓÐRÉTT: 1 hvöt, 3 rs, 4 vinnsla, 5 agn, 7 árvakur, 10 nef, 13 níu, 15 alla, 16 kaf, 19 rá. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins dveljast útsendarar frá hinum feikivinsæla morgun- þætti ABC-sjónvarpsstöðvar- innar, Good Morning America, hér á landi þessa dagana í því skyni að undirbúa beina útsend- ingu frá Jökulsárlóni sem fara mun fram í nóvember. Útsend- ingin frá Íslandi verður liður í vikulöngu ferðalagi þáttarins, en hann mun verða sendur út frá sex öðrum löndum í sömu viku. Á Íslandi ætla þáttastjórnendur að fjalla um gróðurhúsaáhrifin og hnattræna hitun. Tökuliðið sem statt er hér um þessar mundir sér um rannsókn- arvinnu fyrir þáttinn, en þeirra á meðal er Morgan Zalkin sem hefur yfirumsjón með fram- leiðslu sérstakra innslaga fyrir Good Morning America. Það verður hins vegar væntanlega Sam Champion, veðurfræðingur þáttarins, sem verður aðaland- litið í beinu útsendingunni í nóv- ember. Heimildir Fréttablaðsins herma að tökuliðið frá Good Morning America hafi varið miðvikudeginum í viðræður við íslenska vísindamenn. Um kvöldið skelltu þau sér hins vegar í draugagöngu um miðbæ- inn, en þær virðast njóta mikilla vinsælda. Áhugi Jónasar Frey- dal Þorsteinssonar, umsjónar- manns göngunnar, á umhverfis- málum virtist vekja athygli tökuliðsins, en í göngunum les hann meðal annars ákall frá álfum þess efnis að landið sé varðveitt. Tökuliðið ku þó hafa verið á höttunum eftir skemmti- legu efni til að krydda útsend- inguna með, og alls óvíst hvort efni úr draugagöngunni yrði notað. Good Morning America hefur áður verið með beina útsend- ingu frá Íslandi, en fyrir níu árum var þátturinn sendur út frá Austurvelli og Bláa lóninu. Um fimm milljónir manna horfa á þáttinn á degi hverjum og er því um umtalsverða landkynn- ingu að ræða. Hvort hún verður góð eða slæm er þó enn óljóst. -sun Good Morning America beint frá Jökulsárlóni KYNNAR GOOD MORNING AMERICA Þær Robin Roberts og Diane Sawyer eru nú aðalkynnar, en Charles Gibson og Tony Perkins hafa snúið sér að öðru. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Hinn geðþekki fréttamaður hjá NFS og Stöð 2, Kristinn Hrafns- son, lenti í heldur óskemmtilegri lífsreynslu um helgina. Maður réðst að honum þar sem hann var í mestu makindum að spóka sig á Laugaveginum að næturlagi og sló til hans með þeim afleiðing- um að Kristinn slasaðist í and- liti. „Engin gjörgæsla samt,“ sagði Kristinn sem vildi lítið tjá sig um málið. Kristinn kvaðst ekki vita af hverju maðurinn hefði ráðist svona að sér, þetta hefði ekki tengst vinnu hans sem frétta- maður og hann kunni engin deili á manninum, um tilhæfulausa árás hefði verið að ræða. Kristinn hefur kært árásina til lögreglunnar í Reykjavík en var ekki bjartsýnn á að maður- inn myndi nokkurn tímann finn- ast. „Eins og dæmin sanna,“ bætir hann við. Ofbeldið í mið- borginni hefur verið töluvert til umræðu í þjóðfélaginu og virðist enginn óhultur fyrir misindis- mönnum sem láta hnefana oftar en ekki tala með fyrrgreindum afleiðingum. Sjónvarpsáhorfend- ur mega þó eiga von á Kristni á skjáinn innan tíðar. -fgg Laminn á Laugaveginum KRISTINN HRAFNSSON Gerir sér ekki miklar vonir um að maðurinn sem réðst á hann á Laugavegi um síðustu helgi finnist. Hollywood-stjarnan Harrison Ford er mætt til landsins og gerði leik- arinn allt brjálað á Nasa á fyrsta kvöldi Iceland Airwaves-tónlistar- hátíðarinnar. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins kvisaðist fljót- lega út meðal gesta á staðnum að Ford væri á staðnum og voru kven- kyns aðdáendur leikarans ekki lengi að þefa hann uppi þar sem hann stóð í mestu makindum. „Hann var heitur og konurnar svifu í kringum hann,“ sagði einn sjónarvottur en Ford reyndi að láta þessa athygli kvenþjóðarinnar ekki angra sig. Ekki liggur fyrir af hverju Ford er á landinu en líkleg- ast þykir að hann hafi ákveðið að staldra hér við þegar fyllt var á flugvél hans á leið vestur um haf. Að sögn Eldars Ástþórssonar, framkvæmdastjóra Iceland Airwa- ves-hátíðarinnar, varð Ford sér úti um miða á Airwaves sjálfur og hefur væntanlega gert það á net- inu en hann þurfti þó ekki að standa í röð og bíða á Austurvelli með öðrum gestum. „Ég náði nú ekkert að tala mikið við hann, kynnti mig bara fyrir honum og hann sagðist vera ánægður með það sem hann hafði séð,“ segir Eldar. „Honum leist mjög vel á hátíðina og ætlaði að sækja fleiri tónleika,“ segir Eldar sem var að sjálfsögðu hæst- ánægður með nærveru Fords enda mikil auglýsing fyrir hátíðina. „Það skemmir ekki fyrir að fá ein- hverjar stórstjörnur hingað,“ sagði framkvæmdastjórinn. Ford spókaði sig um bæinn í gær og borðaði meðal annars á Austur-Indíafélaginu sem hann heldur mikið upp á en samkvæmt framkvæmdastjóra staðarins, Manoj Kumar, er þetta í fjórða skiptið sem Ford rekur inn nefið. „Hann var mjög kurteis og auð- mjúkur,“ segir Kumar. „Aðrir gest- ir staðarins þekktu hann strax og þjónarnir voru upp með sér yfir komu hans,“ bætir Kumar við og taldi nokkuð víst að Ford væri mikið fyrir kryddaðan mat en framkvæmdastjórinn hefur séð flestar myndir leikarans og horfði síðast á Firewall með honum og Paul Bettany í aðalhlutverkum. Ford hitaði síðan upp fyrir tón- leikana á skemmtistaðnum Dillon og hlustaði þar á góða tónlist og dreypti á fínu viskíi en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins létu gestir staðarins hann alveg í friði og virtust lítið kippa sér upp við að sjálfur Han Solo væri á staðnum. freyrgigja@frettabladid.is HARRISON FORD: ENN OG AFTUR STADDUR Á ÍSLANDI Borðaði indverskan mat og drakk viskí á Dillon HARRISON FORD Var hæstánægður með ferð sína á Nasa þar sem Iceland Airwaves var haldin en gaf lítið fyrir athygli kvenþjóðarinnar á Nasa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES ELDAR ÁSTÞÓRSSON Sáttur við komu Harrison Ford en leikarinn keypti sér bara miða eins og allir aðrir en fékk þó að fara fram fyrir röðina. ...fær Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, og samstarfs- fólk hans fyrir að taka upp á arma sína villt dýr sem lent hafa í hremmingum. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er kominn á fullt í prófkjörsbaráttu Samfylkingar í Kraganum og ætlar að opna aðalskrifstofu sína í Hafnarfirði nú á laugardag – en þangað horfa frambjóðendur nú enda helsta vígi Samfylkingarinnar. Auk þess opnar Jakob svo útibú í Hamraborg í Kópavogi sem heitir Átján rauðar rósir. Bræðurnir Morthens, Tolli og Bubbi, eru einarðir stuðningsmenn Stuðmannsins – Tolli ljær Jakobi vinnustofu sína undir kosningafund og Bubbi treður upp á fundum. Jakob seilist djúpt í rætur jafnað- arstefnunnar eftir stuðningi og hefur nælt í tvær kratarósir til að stýra baráttunni. Rit- og vefstjóri kosningabar- áttunnar er Kolfinna Bald- vinsdóttir [Jóns Baldvins] og kosningastjóri er Margrét Hildur Guðmundsdóttir [Árna Stefáns- sonar]. Hljómsveitin Ég vakti mikla athygli á síðasta ári og var meðal annars tilnefnd til Íslensku tónlistarverð- launanna. Hljómsveitinni var hins vegar ekki boðið að spila á Airwa- ves-hátíðinni og því hafa félagarnir ákveðið að efna til tónleika á Barnum í kvöld klukkan ellefu en sá óvenjulegi háttur verður hafður á að hljómsveitin ætlar að borga gestum í bein- hörðum íslenskum peningum fyrir að koma. Ekki var hægt að fá uppgefið hver sú fjárhæð yrði en söngvari sveitarinnar, Róbert Hjálm- týsson, lofaði að þetta yrðu engir Matador- peningar. -jbg/fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Leiðrétting Mistök voru gerð í frétt um ráðn- ingu Brynju Gunnarsdóttur til Landsbankans í blaðinu í gær. Í myndatexta við fréttina var gefið í skyn að hún yrði Björgólfi Guð- mundssyni sérstaklega innan handar en það er ekki rétt og er beðist velvirðingar á þeim mistök- um. VERÐLAUNABLAÐAMAÐ- UR Kristinn hefur lengi starfað í blaða- og fréttamennsku. Hann fékk blaðamanna- verðlaunin í fyrra. 1. Chelsea vann, 1-0. 2. Coast guard. 3. Sólveig Pálsdóttir. [ VEISTU SVARIÐ ] svör við spurningum á bls. 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.