Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 56
26 20. október 2006 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚAR RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 UMRÆÐAN Heilbrigðismál Það getur reynst erfitt að vera stór og taka til sín mikið af almannafé. Stærsta fyrirtæki landsins, Landspítal- inn, með yfir 5.000 starfsmenn, hefur fundið fyrir því. Um það bil 9 prósentum af útgjöldum ríkisins er veitt til reksturs spítalans. Miklar breytingar hafa átt sér stað í rekstri spítalans frá sameiningu sjúkra- húsanna. Margar hafa þær skilað góðum árangri. Aukin áhersla er á þjónustu við sjúklinga á dag- og göngudeildum og er það í samræmi við þróun erlendis. Biðlistar vegna aðgerða hafa almennt minnkað. Ströng hagræðingarkrafa er á spítalann og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana. Áhyggjur er um að gengið hafi verið of nærri gæðum þjónustunnar. Mikið álag er á starfsmenn og skortur á starfsfólki magnar vandann. Starfsfólk á hins vegar hrós skilið fyrir þá þjónustu sem það veitir við erfiðar aðstæður. Nú þarf hins vegar að staldra við. Fram hefur komið að rekstrarkostnaður LSH hefur á föstu verð- lagi staðið í stað frá sameiningu sjúkrahúsanna. Á sama tíma hefur starfsemi spítalans aukist m.a. vegna fjölgunar aldraðra. Skýringar stjórnenda um 1 milljarðs króna halla- rekstur í ár eru góðar og gildar og varða ýmsa þætti sem spítalinn ræður ekki við, t.d. óhagstæða gengisþróun, áhrif þenslu á vinnumarkaði og aukin launatengd gjöld. Það verður ekki lengra gengið í fjárhagslegu tilliti gagnvart spítalanum, nema stjórnvöld séu reiðubúin að taka á sig ábyrgð að endurskilgreina verkefni sjúkrahússins. Ég tel fulla ástæðu til að ganga af alvöru til þess verks. Færa þarf verkefni frá spítalanum til annarra stofnana eða aðila sem eru til þess betur bærir. Hér á ég t.d. við um öldrun- arþjónustu, heimahjúkrun, félagslega þjónustu svo og sjúkramóttöku vegna minniháttar sjúkdóma og slysa, sem á að veita á heilsugæslustöðvum. Þessu er nú sinnt af spítalanum m.a. vegna skorts á öðrum úrræðum eða ókunnugleika fólks um hvert það á að leita þjónustu. Þá þarf að auka samvinnu milli þeirra sem sinna sjúklingum til að skapa meiri sam- fellu í þjónustu við þá. Bæta þarf sjúkrahúsinu hallarekstur þessa árs, en nota tækifærið og gera þessar breytingar öllum til hagsbóta. Höfundur er alþingismaður. Sátt um lausnir á vanda LSH ÁSTA MÖLLER Það er fagnaðarefni, að mennta-málaráðherra skuli hafa ógilt synjun þjóðskjalavarðar við því, að Kjartan Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sósíalista- flokksins, fengi sama aðgang að skjölum í Þjóðskjalasafni um símahleranir og Guðni Th. Jóhannesson hafði notið. Aðgang- ur að slíkum skjölum á að vera fræðimönnum frjáls að teknu tilliti til einkamála og öryggis- atriða. Sagnfræðingafélagið ályktaði að eigin frumkvæði til stuðnings Kjartani. Félagið þagði hins vegar, þegar Þjóðarbókhlaðan meinaði mér aðgangs að bréfa- safni Halldórs Kiljans Laxness 2003, um leið og hún opnaði það (að ósk fjölskyldu Laxness) fyrir þeim Helgu Kress og Halldóri Guðmundssyni. Hafði bréfasafnið þó verið gefið Þjóðarbókhlöðunni kvaðalaust 1996 og legið öllum opið fram til 2003. Það er líka fagnaðarefni, að ríkissaksóknari skuli hafa mælt fyrir um rannsókn á ótrúlegum ásökunum Jóns Baldvins Hanni- balssonar, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi starfsmanns utanrík- isráðuneytisins, um það, að innlendir aðilar hefðu hlerað síma þeirra á tímabilinu 1993-1995. Óþolandi hefði verið, að þeir Jón Baldvin og Árni Páll hefðu ekki greint frá heimildum sínum, svo að sannreyna mætti mál þeirra. Þá hefðu þeir skilið ásakanir sínar eftir í lausu lofti, svo að enginn hefði getað varið sig fyrir þeim. Uns annað sannast, hljótum við þó að trúa því, sem þáverandi póst- og símamálastjóri og lögreglu- stjórinn í Reykjavík (en hann er fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins) segja báðir, að engar hleranir yfirvalda hafi átt sér stað án undangengins dómsúr- skurðar og eftir kalda stríðið aðeins í venjulegum brotamálum. Það var furðulegt að heyra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur beita mælskubrögðum, strax og hún frétti af rannsókninni. Hún sagði, að lögreglan ætti ekki að rannsaka lögregluna. En ríkissak- sóknari fékk einmitt sýslumanninn á Akranesi til að sjá um rannsókn- ina, ekki lögregluna í Reykjavík. Hvers vegna gefa heimildar- menn þeirra Jóns Baldvins og Árna Páls sig ekki fram? Ég fæ ekki séð, að þeir eigi neitt á hættu. Fróðlegt væri til dæmis að vita, hvaða tækjum kunningi Jóns Bald- vins, sem átti að hafa prófað síma hans, var búinn og hvernig hann komst að því, að sími ráðherrans væri hleraður, þegar haft er í huga, að tæknimenn frá Atlants- hafsbandalaginu skoðuðu reglu- lega síma Jóns Baldvins og nokkurra annarra ráðamanna. Það er líka með ólíkindum, að þeir Jón Baldvin og Árni Páll skuli ekki hafa skýrt frá grun sínum fyrr en að liðnum röskum áratug. Þeir brugðust eftirmönnum sínum og almenningi öllum. Í umræðum síðustu vikna um öryggismál hefur öllu verið blandað saman. Guðni Th. Jóhann- esson leiðrétti seint og illa það, sem eftir honum hafði verið haft í sjónvarpsfréttum, að öryggisdeild lögreglunnar íslensku í kalda stríðinu hefði verið „leyniþjónusta Sjálfstæðisflokksins“. Hann fullyrti án þess að hafa fyrir því haldbærar heimildir, að Ólafur Jóhannesson hefði ekki vitað um þessa öryggis- deild. Það vakti af einhverjum ástæðum miklu meiri athygli en þegar Steingrímur Hermannsson fullyrti síðan, að Ólafi hefði verið fullkunnugt um hana. Sjálfur kvaðst Steingrímur ekki hafa vitað neitt um málið. Það er rangt, eins og sjá má af ýmsum gögnum. Þeir Ólafur og Steingrímur vissu báðir vel um þessa deild. Nú hefur dr. Þór Whitehead prófessor birt hér í blaðinu frásögn Róberts Trausta Árnason- ar, fyrrverandi sendiherra, um það, þegar þeir Steingrímur og Jón Baldvin báðu hann 1989 að kanna á laun hugsanleg tengsl þáverandi samráðherra þeirra, Svavars Gestssonar, við austur- þýsku leyniþjónustuna, Stasi. Svavar lá væntanlega undir grun, af því að hann hafði hlotið þjálfun í flokksskóla í Austur-Þýskalandi samkvæmt sérstakri samþykkt miðstjórnar kommúnistaflokksins þar. Róbert Trausti fékk þær upplýsingar í Þýskalandi, að engin skjöl fyndust um tengsl Svavars við Stasi. En tilefnið til skrifa Þórs var, að Össur Skarphéðinsson hafði spurt opinberlega, hvort „skrímsladeild Sjálfstæðisflokks- ins“ hefði látið njósna um Svavar. Nú hefur Össur fengið eftirminni- legt svar. Kjarni málsins er þessi: Lengi starfaði allstór hópur hér í nánum tengslum við óvinveitt einræðis- ríki, þáði þaðan fjárhagsaðstoð og hlaut þjálfun í vopnaburði og byltingarfræðum. Þessi hópur vildi koma á kommúnisma og skirrðist ekki við að beita ofbeldi, til dæmis í götubardaganum 30. mars 1949. Lögreglan fylgdist með þessu fólki í samvinnu við sambærilegar stofnanir í Bandaríkjunum og öðrum bandalagsríkjum okkar, eins og Þór Whitehead hefur upplýst. Yfirvöld eiga að leggja öll skjöl á borðið um þetta mál og afla frekari gagna úr bandarískum og rússnesk- um stofnunum. Ekkert er að fela. Fagnaðarefni HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Í DAG | Hleranir Hugo Boss og Hitler „Það er líka eftirtektarvert að það var Hugo Boss sem gerði herbúninga Þriðja ríkisins,“ skrifar Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í graf- ískri hönnum við Listaháskóla Íslands, í nýútkomið Fítonblað. Umfjöllunar- efni hans er hönnun valdsins. Guð- mundur segir vald fyrst og fremst gert sýnilegt af hönnuðum og arkitekt- um. „Ímyndið ykkur valdsmenn án bygginga, án leikvanga og leikmynda, án farartækja, án verkfæra og vopna, án merkja, án búninga, án myntar og peningaseðla sem auðvitað eru upphaflega verk teiknara,“ segir hann. Kóngar, dómarar eða stríðsherrar á brókinni og sokkaleistunum bæru ekki með sér vald- ið sem þeir hefðu. Hinn íslenski her Starfsfólk Fiton leikur sér að því í blaðinu að hanna merki og búninga á „Hinn íslenska her“. „Okkar svið er hugmyndir og hönnum og við höfum því á reiðum höndum svör við spurn- ingunni: Hvernig á hinn íslenski her að líta út? Það mun þá ekki stranda á því þegar ákvörðun um stofnun íslensks hers verður tekin,“ segja Fíton- menn og -konur. Á næstu síðum má svo sjá merki, orður, búninga og annað sem tengist her; flugher, landher og sjóher. Sótt eru tákn forfeðra en einnig í smiðju stjórnmála- flokka. Karlar á kvennafundi Kvenframbjóðendur Samfylkingarinn- ar í Suðurkjördæmi eru nú í fundar- herferð um kjördæmið og boðuðu kjósendur til fundar við sig í Selinu á Selfossi í gærkvöldi. Á miðvikudags- kvöldið var hins vegar haldinn fundur í Reykjanesbæ og mættu aðeins þrír gestir að því er fram kemur á fréttavefnum Sudurland.is. Það má þó segja að góðmennt hafi verið því þessir þrír gestir voru kosningastjóri Lúðvíks Bergvinssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og faðir eins frambjóðandans sem stendur að fundarherferð- inni. bjorgvin@frettabladid.is U pplýsingar tveggja virtra sagnfræðinga um eftir- grennslan stjórnvalda um athafnir erlendra ríkja og einstaklinga vegna atburða í andrúmslofti kalda stríðs- ins hafa eðli máls samkvæmt vakið upp mikla umræðu. Að sama skapi hafa fullyrðingar fyrrverandi utanrík- isráðherra um hlerun á símtölum hans vakið athygli. Þessir atburðir hafa leitt til tveggja ólíkra rannsókna. Annars vegar er um að ræða athugun sérfræðinga á opinberum gögnum. Sú athugun var samhljóða ákveðin af Alþingi. Líta verður svo á að þar sé réttilega að málum staðið. Afar mikilvægt er að öll gögn þar að lútandi verði opinber. Vel má vera að sérfræðingarannsókn þessi leiði eitthvað það í ljós sem eðlilegt væri að rannsaka með öðrum hætti. Rétt hlýtur að vera að taka afstöðu til þess ef tilefni gefst til. Að svo stöddu sýnist það mál vera í eðlilegum farvegi. Sama má segja um lögreglurannsókn sem ríkissaksóknari mælti fyrir um vegna umræðu um hlerun á síma fyrrverandi utan- ríkisráðherra. Mikilvægt er að slík rannsókn fari fram að hætti opinberra mála. Þar með er tryggt að ýtrustu rannsóknarheimildir séu til staðar og vitnaskylda. Engin önnur leið er til að taka á máli af þessu tagi. Fram hafa verið settar hugmyndir um að veita með lögum fyr- irfram almenna sakaruppgjöf vegna þessara mála allra. Röksemd- in mun vera sú að slíkur háttur myndi auðvelda upplýsingaöflun. Ekki verður séð á þessu stigi að rök standi til að veita sakar- uppgjöf af þessu tagi. Ef þeir sem rannsóknir annast myndu á ein- hverju stigi máls setja fram óskir þar að lútandi yrði einfaldlega að meta þær. Opinberir starfsmenn eru almennt bundnir þagnarskyldu um allt það sem leynt á að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum eða eðli máls. En varla verður litið svo á að þessi kvöð nái til ólög- mætra athafna sem þeir komast að í starfi sínu. Þó að sérlög geti náð til slíkra tilvika verður trauðla séð að það eigi við um hina almennu þagnarskyldu. Einn þáttur þessara mála hefur reyndar þegar verið upplýstur að mestu. Það er eftirgrennslan utanríkisráðuneytisins á árunum 1989 til 1990 með athöfnum róttækra námsmanna í Austur-Þýska- landi á sínum tíma. Sagnfræðingur greindi frá heimildum þar um í framhaldi af kröfu formanns þingflokks Samfylkingarinnar í grein í þessu blaði. Sú upplýsing byggðist á skriflegri lýsingu opinbers starfs- manns. Enn sem komið er hafa stjórnvöld ekki talið ástæðu til að draga þann fyrrverandi opinbera starfsmann til ábyrgðar vegna brota á þagnarskyldu. Ástæðan er hugsanlega sú að stjórnvöld telji að ekki hafi verið nægjanleg lagastoð fyrir fyrirmælum um trúnað þegar sú eft- irgrennslan fór fram eða jafnvel að athöfnin öll hafi verið fyrir utan verksvið utanríkisráðuneytisins. Einu gildir hver ástæðan er. Fordæmi er þegar komið fyrir því að hin almenna þagnarskylda stendur ekki í vegi fyrir því að opinberir starfsmenn greini frá athöfnum af þessu tagi. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar hefur talið nauðsyn- legt að upplýst verði á hvaða lagaheimildum eftirgrennslan utan- ríkisráðuneytisins var byggð. Það er fullkomlega gild spurning í þessari umræðu allri. Og enn á eftir að skýra hvers vegna utanrík- isráðuneytið gerði ekki grein fyrir niðurstöðunum. Eftirgrennslan og símahleranir: Sakaruppgjöf? ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar4. SÆTI Ágústs Ólafs í Síðumúla 13, í dag föstudaginn 20. október milli klukkan 17.30 – 19.30. Margrét Frímannsdóttir og Jón Baldvin Hannibalsson fl ytja ávörp. Margrét Sigurðardóttir og Björn Thoroddsen leika nokkur lög. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir, stuðningsfólk Traustur efnahagur — aukin velferð Opnum kosningaskrifstofu www.agustolafur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.