Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 60
20. október 2006 FÖSTUDAGUR40
DAGSKRÁ SEQUENCES
16.00 Kynning á íslenskum
myndlistarmönnum úr DVD-
safni Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar, Hafnar-
stræti 16.
17.00 Sigrún Hrólfsdóttir opnar
sýningu í 101 gallery, Hverfisgötu
18a.
18.00 Ingibjörg Magnadóttir &
Kristín Eiríksdóttir fremja gjörn-
ing í SAFNI við Laugaveg.
Myndlistarmaðurinn Iloheem
fremur gjörning í gallerí BANAN-
ANANAS við Barónsstíg.
19.00 Halldór Ásgeirsson fremur
gjörning í Galleríi Dverg við
Grundarstíg.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Vinsældir glæpasagna Arnalds
Indriðasonar um rannsóknarlög-
reglumanninn Erlend Sveinsson
hafa verið með slíkum eindæm-
um að það hlaut að koma að því,
fyrr eða síðar, að einhver þeirra
yrði kvikmynduð.
Íslendingar hafa lesið bækur
Arnalds af slíkri áfergju að
Erlendur hefur nánast öðlast
sjálfstætt líf í vitund þjóðarsál-
arinnar og það er því hvorki
heiglum hent að koma honum né
sögum Arnalds á filmu. Vænting-
arnar eru miklar og það má bóka
það að mikill meirihluti áhorf-
enda gangi í salinn með sínar
eigin fastmótuðu hugmyndir um
söguna og aðalpersónuna.
Ingvar bregst ekki
Erlendur er hryggjarstykkið í
bókum Arnalds og sömu sögu er
að segja um Mýrina eftir Baltas-
ar sem vitaskuld stendur og fell-
ur með Erlendi. Þeir eru því báðir
undir mikilli pressu, Ingvar E.
Sigurðsson, sem leikur Erlend,
og Baltasar sem réðst í það
vandasama verkefni að flytja
mátulega flókinn reyfara yfir á
hvíta tjaldið og gera um leið tug-
þúsundum ákafra lesenda til
geðs.
Það er skemmst frá því að
segja að báðir standast þeir próf-
ið með miklum sóma og ég er
ekki frá því að Erlendur bíó-
myndarinnar sé skemmtilegri
persóna en Erlendur bókanna
enda verður það að segjast eins
og er að á pappírnum er Erlendur
frekar flatur og óspennandi.
Ingvari tekst að gæða hann lífi og
er einfaldlega svo sterkur leikari
að hann gerir Erlend að sínum og
maður kaupir hann nánast sam-
stundis með húð og hári. Öllum
grunnþáttum persónunnar er þó
haldið vandlega til haga og þó
Erlendur í meðförum Ingvars sé
sjálfsagt í flestum tilfellum ólík-
ur þeim Erlendi sem hefur tekið
á sig mynd í hugum lesenda er
það ótvíræður kostur í þessu til-
felli.
Aðrir leikrarar standa sig með
stakri prýði. Björn Hlynur Har-
aldsson fær það hlutverk að koma
með smá kómík inn í drungalega
tilveru Erlendar í hlutverki
aðstoðarmannsins Sigurðar Óla
og tekst vel upp og Ólafía Hrönn
er fín sem þriðja hjólið, Elínborg,
þó hún fái ekki úr miklu að moða
og komi mun minna við sögu en
persóna hennar gerir í bókinni.
Þá brýst Ágústa Eva Erlendsdótt-
ir undan ægivaldi fígúrunnar Sil-
víu Nætur og kemur sterk inn í
hlutverki Evu Lindar, dóttur
Erlendar.
Harður heimur Erlendar
Öll tæknivinna, útlit og áferð
Mýrarinnar er til fyrirmyndar og
í raun framúrskarandi á íslensk-
an mælikvarða. Veröld Erlendar
er drungaleg og stemningin sem
svífur yfir vötnum er þrúgandi
og þar munar ekki síst um tón-
listina, skemmtilega útfærðar
sviðsmyndir, kvikmyndatöku og
grófa áferð filmunnar. Þar fyrir
utan eru þau skuggalegu skúma-
skot Reykjavíkur og Grindavíkur
sem Baltasar velur sem tökustaði
sannfærandi bakgrunnur morða,
eiturlyfjaneyslu og nauðgana auk
þess sem hryssingsleg íslensk
veðrátta magnar upp drungann
og vonleysi þeirra persóna sem
fastar eru í hringiðu gamalla og
nýrra sakamála.
Allt frá því Baltasar tryggði
sér kvikmyndaréttinn á Mýrinni
hefur þess verið beðið með eftir-
væntingu að sagan skili sér í bíó.
Niðurstaðan svíkur ekki og Mýrin
er prýðilegur reyfari og Baltasar
sýnir hér og sannar að hann var
rétti maðurinn til þess að takast á
við þetta vandasama verkefni og
myndin er öllum sem að henni
koma til mikils sóma.
Vandasamt verkefni leyst með
ágætum
Baltasar hafði vissulega úr góðu
efni að moða þar sem Mýrin, eftir
Arnald, er sallafínn krimmi.
Skáldsagan og kvikmyndin eru
þó ekki gallalausar frekar en
önnur mannanna verk og það
læðist á köflum að manni sá grun-
ur að með meiri yfirlegu yfir
handritinu hefði Baltasar getað
gert Mýrina enn þéttari og betri.
Þetta er þó í sjálfu sér aukaatriði
og það ber að hafa í huga að þótt
Mýri Arnalds virðist um margt
gráupplögð til kvikmyndunar þá
er margt ólíkt í byggingu hefð-
bundins reyfara og kvikmyndar
og skáldsagnahöfundar hafa
óneitanlega meira svigrúm til
þess að leggja grunninn að morð-
gátunni en handritshöfundar
kvikmynda. Það liggur því í hlut-
arins eðli að Baltasar hefur þurft
að halda, sleppa, stytta, einfalda
og þjappa sögunni saman. Þetta
kostar það að smávægilegar
gloppur myndast í framvindunni
en eftir stendur engu að síður
sterk og áhrifarík glæpamynd
sem er inngróin í íslenskan veru-
leika en úrvinnslan er með slík-
um ágætum að hún er vel gjald-
geng á erlendum mörkuðum.
Þórarinn Þórarinsson
Ingvar gerir Erlend að sínum
MÝRIN
LEIKSTJÓRI: BALTASAR KORMÁKUR
AÐALHLUTVERK: INGVAR E. SIGURÐSSON,
BJÖRN HLYNUR HARALDSSON, ÁGÚSTA
EVA ERLENDSDÓTTIR, ÓLAFÍA HRÖNN
JÓNSDÓTTIR.
Niðurstaða: Mýrin er ákaflega vel unnin
og nánast hnökralaus aðlögun skáldsögu
Arnalds Indriðasonar að kvikmyndaforminu.
Útlit myndarinnar er óaðfinnanlegt og leikarar
standa sig með miklum sóma með Ingvar E.
Sigurðsson firnasterkan í fararbroddi. Þessi
mynd svíkur hvorki aðdáendur Arnalds né þá
sem kunna að meta góðar glæpamyndir.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
OKTÓBER
17 18 19 20 21 22 23
Föstudagur
■ ■ OPNANIR
18.00 Einkasýning Sigtryggs
Bjarna Baldvinssonar
verður opnuð í Listasafni
Reykjanesbæjar. Sýningin ber heit-
ið Sog. Viðfangsefni listamannsins er
straumvatn og sýnir hann þarna ný
málverk unnin með olíu á striga og
rýmisverk. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 3.
desember.
■ ■ SÝNINGAR
11.00 Í Gerðarsafni standa
yfir þrjár sýningar í tilefni af
Kanadískum menningardögum í
Kópavogi. Þar er sýning á listaverk-
um Carls Beam sem var Ojibway
indjáni en hann vann sem málari
og grafíklistamaður en í verkum
hans mætast vestræn menning og
hefðir indjána. Auk þess má þar
sjá ljósmyndir Myron Zabol af
portrettmynum Írókesa indjána og
þrívíð verk Inúíta í Kanada sem
skorin eru úr beini, rostungstönnum
og öðrum steinum. Safnið er opið
frá 11-17 en sýningin stendur til 10.
desember.
16.00 Gjörningur verður framinn
í Gallerí Tukt, Pósthússtræti 3-5.
Gjörningurinn er hluti af listasýning-
unni Uggur Stoggar sem er fyrsta
samsýning Ástríðar Tómasdóttur
og Þorgerðar Þórhallsdóttur.
Sýningin stendur yfir til 28. okt.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Einleikurinn Gísli Súrsson
sýndur í Leikhúsinu Völundi í
Hveragerði. Leikari er Elfar Logi
Hannesson
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
��������������
���������������� �����������������������
������������������������������������������
��������������������������������������������
��������������������������������������
Fös. 20. okt. kl.20- Nokkur sæti laus
Lau. 21. okt. kl.20- Laus sæti
Fös. 27. okt. kl.20
Lau. 28. okt. kl.20
“Sýningin er galdur” M.E. Rás 2
Fjölbreyttur sérréttaseðill og tilboðsmatseðill á leikhúskvöldum
í kvöld
Valtýsson
Geirmundur
Laugardaginn 21. október kl. 20:00
Sunnudaginn 22. október kl. 20:00
Laugardaginn 28. október kl. 20:00
Sunnudaginn 29. október kl. 20:00
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Sunnudaginn 22. október
Málþing um Gunnlaðar sögu
kl.16–18.30, opið öllum
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
������������������������������� ������������������������������������������������� ��������������
��������������������������������� �����������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
���������������������
��������������������������
�����������������������������������������
��������������� ���������� ���������������������� ���������� �������������
����������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������