Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 24
20. október 2006 FÖSTUDAGUR
Veitingastaðurinn Galileó í
Hafnarstræti fékk nýverið til
sín nýjan liðsmann, ítalska
kokkinn Antonino Neri. Eftir
komu hans hefur eldhúsið
tekið stakkaskiptum og nú er
hvítlaukurinn allsráðandi.
Antonino Neri, eða Nino einsog
hann er kallaður, fæddist á Sikil-
ey en ólst að mestu leyti upp á
Sardiníu og Norður-Ítalíu. Hann
hefur starfað sem kokkur í um 30
ár og nú fá Íslendingar að njóta
kunnáttu hans. Nino leggur mikið
upp úr því að halda í ítalskar
hefðir í eldhúsinu á Galileó.
„Ég er mjög stoltur af ítalskri
matargerð og ég vil ekki yfirgefa
ítalskar hefðir,“ segir Nino og
leggur áherslu á orð sín með
ítölsku handapati. „Ég til dæmis
bæti ekki við rjóma í spaghetti
carbonara, það er ekki ítalskt.
Við ítalska matargerð á Íslandi
eru notuð mörg krydd eða hrá-
efni sem ekki er hefð fyrir á
Ítalíu. Íslendingar elska sósurnar
sínar,“ bætir hann við og glottir.
„En því miður þá dregur sósan úr
rétta bragðinu. Ég vil framreiða
ekta ítalskan mat sem fellur
Íslendingum í geð.“
Nino vann um skeið fyrir íslensk-
an mann og var það sú vinna sem
dró hann fyrst til landsins. Hins
vegar segir Nino að þeim hafi nú
ekki komið vel saman svo hann
hætti og hóf störf á Galileó. „Ég
er svo ánægður hér á Galileó,“
segir Nino og brosir breiðu
ítölsku brosi.
„Ég er ákaflega þakklátur þess-
um manni fyrir að hafa brugðist
mér, þar sem ég fæ nú að elda hér
á Galileó, þúsund þakkir.“
Þakklæti Ninos fyrir veru
hans hér brýst svo sannarlega í
gegn í matseld hans eins og
myndirnar bera með sér. En
engin mynd getur fullnægt þörf-
um bragðlaukanna, þeir verða að
sannreyna bragðið sjálfir.
johannas@frettabladid.is
Ítölsk matargerðarlist
Ef halda á sannkallaða ítalska veislu er eins gott að hafa með nógu mikið á borðum og að sjálfsögðu nógu mikinn hvítlauk.
Á Ítalíu eru snæddir fjórir réttir í hverri máltíð; Forréttur, þá antipasti, svo aðal-
réttur og að síðustu eftirréttur. Til að halda ekta ítalska veislu er því nauðsynlegt
að elda einn antipasti. Lorighitas Cavallino: Í réttinum, sem er frá Sardiníu, eru
risarækjur, chili, súkkini skorið í renninga, ólívuolía, hvítlaukur og ferskir tómatar
til að auka litagleðina.Til að ná fram ekta ítalskri áferð á pastað er það eldað al
dente. Þá er pastað ekki soðið í gegn, en leitað eftir smá fyrirstöðu við enda-
jaxlana þegar þið smakkið pastað til. Sé hún fyrir hendi er pastað al dente.
AnitpastiFiletto di Manzo in Crosta
- grillaðar nautalundir, sveppir
hvítlaukur, laukur, steinselja. Raðið
innihaldinu í djúpan disk. Setjið
fyrst sveppi, svo nautalundirnar
og svo aftur sveppi ásamt hinu
innihaldinu. Lokið disknum með
pítsadeigi og setjið pítsasósu ofan
á til að varna því að deigið brennið.
Eldið við 200° hita í um það bil
20 mínútur. Þegar degið er orðið
brúnt og lyftist upp þá er rétturinn
tilbúinn. Diskurinn er borinn fram
með deiginu heilu.
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is