Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 54
 20. október 2006 FÖSTUDAGUR30 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.467 -0,08% Fjöldi viðskipta: 563 Velta: 13.748 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 68,00 +1,49% ... Alfesca 4,84 +2,76% ... Atlantic Petroleum 610,00 +2,52% ... Atorka 6,48 +0,00% ... Avion 34,00 +3,66% ... Bakkavör 58,60 +0,00% ... Dagsbrún 5,00 -0,20% ... FL Group 23,50 -0,84% ... Glitnir 22,70 +0,89% ... Kaupþing 867,00 -0,69% ... Landsbankinn 27,10 -1,46% ... Marel 81,00 +0,62% ... Mosaic Fashions 17,30 +4,22% ... Straumur-Burðarás 17,20 +0,00% ... Össur 126,00 +0,80% MESTA HÆKKUN Mosaic +4,22% Avion +3,66% Alfesca +2,76% MESTA LÆKKUN Landsbankinn -1,46% Exista -1,33% Flaga -0,87% Saxbygg hefur eignast kjölfestu- hlut í eignarhaldsfélagi utan um Steni sem framleiðir húsaklæðn- ingar fyrir byggingariðnaðinn í Evrópu, Bandaríkjunum og Kan- ada. Félagið er með sterka stöðu á Íslandi og á hinum Norðurlöndun- um, einkum á heimamarkaði í Noregi þar sem fjörutíu prósent sölunnar verða til. Björn Ingi Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Saxbyggs, telur að félagið komi inn á mjög heppileg- um tíma nú þegar sér fyrir end- ann á endurskipulagningu Steni sem staðið hefur yfir í um tvö ár. „Steni býður upp á talsverða stækkunarmöguleika en fram- leiðslugetan er ekki nýtt nema að sextíu prósentum. Það er hægt að fara í töluverða markaðssókn með félagið og afurðir þess án þess að taka inn miklar fjárfest- ingar.“ Ásamt Saxbygg koma belgísk- ir, finnskir og norskir fjárfestar að kaupunum sem eru skuldsett og fjármögnuð af Glitni. Saxbygg er tveggja ára gamalt fjárfestingafélag sem er fyrst og fremst í fjárfestingum í fasteign- um og byggingartengdum hlutum erlendis. Félagið er í jafnri eigu Saxhóls, Nóatúnsfjölskyldunnar og Byggingarfélags Gylfa og Gunnars. - eþa Saxbygg kaupir í Steni í Noregi Fjárfestingin býður upp á mikla markaðssókn. Formleg undirritun sam- komulags um kaup OMX á Kauphöll Íslands fór fram í gær. Umsvif OMX aukast og jókst hagnað- ur félagsins um þrettán prósent milli ársfjórð- unga. Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing ehf., eigandi Kauphallar Íslands, og OMX skrifuðu í gær undir samning um að Kauphöllin gangi til liðs við OMX Nordic Exchange. Skrifað var undir viljayfirlýsingu þess efnis fyrir um mánuði síðan. Nú hefur verið gengið frá öllum aðalatriðum samningsins og munu viðskiptin endanlega ganga í gegn í lok nóvember. Stefnt er að því að hinn 1. janúar 2007 verði svo skráð félög í Kauphöll Íslands hluti af Norræna listanum. Hluthafar í EV munu fá 2.067.560 hluti í OMX í skiptum fyrir hlut sinn. Er það 1,7 prósent af heildarfjölda útistandandi bréfa í OMX. Það jafngildir um 2.500 milljónum íslenskra króna. Þar að auki mun OMX greiða í peningum fyrir handbært fé og verðbréf í eigu EV. Helga Björk Eiríksdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Kauphallar Íslands, segir að ekki hafi endanlega verið tekin ákvörð- un um hve há sú upphæð verður en hún verði á bilinu 500 og 600 millj- ónir króna. OMX hefur unnið að því að sam- þætta rekstur kauphallanna á Norðurlöndunum að undanförnu og jukust umsvif félagsins, sem meðal annars rekur kauphallirnar í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Eistlandi, Litháen og Lettlandi, töluvert á þriðja ársfjórðungi. Auk samningsins um kaupin á Kaup- höll Íslands keypti félagið nýverið tíu prósenta hlut í kauphöllinni í Ósló. Eftir kaup OMX á Kauphöll Íslands verður sú kauphöll sú eina á Norðurlöndunum sem er ekki í meirihlutaeigu OMX. Hagnaður OMX félagsins jókst um þrettán prósent milli fjórðunga og nam á þriðja ársfjórðungi 18,46 milljón- um króna. Það jafngildir um 1,58 milljörðum íslenskra króna. holmfridur@frettabladid.is Kauphöll Íslands og OMX einu skrefi nær samruna FRÁ KAUPHÖLL OMX Í KAUPMANNAHÖFN Skráð félög í Kauphöll Íslands munu hefja þátttöku á norrænum lista OMX hinn 1. janúar 2007. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Sam- keppniseftirlitsins frá því í sumar um að ógilda samruna lyfsölu- og lyfjaskömmtunarfyrirtækjanna DAC og Lyfjavers. Samruninn var sagður myndu raska samkeppni og skaða hagsmuni almennings. DAC er systurfélag lyfsölu- keðjunnar Lyfja og heilsu. „Sam- runinn hefði leitt til þess að tvær lyfsölukeðjur, Lyf og heilsa ann- ars vegar og Lyfja hins vegar, hefðu rúmlega áttatíu prósent allrar lyfjasmásölu í landinu,“ segir Samkeppniseftirlitið og taldi keðjurnar tvær deila sameigin- legri markaðsráðandi stöðu á smá- sölumarkaði lyfja. Mat Samkeppniseftirlitsins var að sameiginleg markaðsráðandi staða keðjanna gerði þeim kleift að samhæfa hegðun sína á mark- aði án þess að þurfa að taka tillit til keppinauta eða neytenda. „Lyfjaver hefur verið öflugur keppinautur stóru lyfjakeðjanna og lagt áherslu á að bjóða lyf á lágu verði. Brotthvarf Lyfjavers af markaðnum hefði haft í för með sér umtalsverða röskun á sam- keppni,“ segir Samkeppniseftirlit- ið og telur úrskurð áfrýjunar- nefndar hafa talsvert fordæmisgildi og geti auðveldað vinnu gegn skaðlegri fákeppni á ýmsum mörkuðum hér. Lyf og heilsa segist harma nið- urstöðu áfrýjunarnefndar. „Okkar mat er að með niðurstöðunni hafi íslenskir neytendur misst af tæki- færi til hagræðingar þeim til hags- bóta,“ segir Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu og kveður fyrirtækið halda áfram að leita leiða til hagræðingar og bættrar þjónustu. - óká FORSVARSMENN FYRIRTÆKJANNA Aðalsteinn Steinþórsson er stjórnarfor- maður Lyfjavers og Guðni B. Guðnason er framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu. Ógilding samruna staðfest Áfrýjunarnefnd sammála Samkeppniseftirlitinu. Lyfjaver og DAC, systurfélag Lyfja og heilsu, mega ekki sameinast vegna hættu á að fákeppnisástandi. Hagnaður bandaríska hlutabréfa- markaðarins Nasdaq jókst um tæp 70 prósent á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 30,2 milljón- um bandaríkjadala, um 2 milljörð- um króna, á fjórðungnum en nam 16,4 milljónum dala, eða 1,1 millj- arði íslenskra króna, í fyrra. Rekstrarárið einkenndist af kaupum á öðrum mörkuðum jafnt í Bandaríkjunum sem í Bretlandi og aukinni markaðshlutdeild á hlutabréfamarkaði. Nasdaq yfirtók rekstur raf- ræna markaðarins INET á árinu og upplýsingaveitunnar PrimeZ- one Media Network á árinu auk þess að kaupa ráðandi hlut í Kaup- höll Lundúna (LSE) í Bretlandi. - jab Hagnaður Nasdaq eykst á milli ára Japanski hátæknifram- leiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstr- arári um rúman helm- ing og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, til að bregðast við áhrifum af miklum innköllunum á rafhlöð- um undir merkjum fyr- irtækisins. Að sögn breska ríkisútvarpsins býst Sony nú við að hagnaður fyr- irtækisins fyrir skatta á rekstrar- árinu, sem lýkur 31. mars á næsta ári, verði um 70 milljarðar jena, jafnvirði rúmra 40 milljarða íslenskra króna. Þetta er 53 pró- senta minni hagnaður en fyrri afkomuspá hljóðaði upp á. Helsta ástæðan fyrir sam- drættinum er innköllum á um 8 milljón rafhlöð- um sem fyrirtækið framleiddi fyrir fyrir- tæki á borð við Dell, Apple, Toshiba og Len- ovo. Þá hefur fyrirtæk- ið sömuleiðis innkallað um 90.000 rafhlöður í eigin fartölvum. Galli í rafhlöðunum veldur því að þær ofhitna og hefur í nokkrum tilvikum kviknað í fartölvum. Hin ástæðan er um 20 prósenta verðlækkun á nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins, PlayStation 3, í Japan og tafir á markaðssetningu tölvunnar á stórum mörkuðum. Að sögn forsvarsmanna fyrir- tækisins er búist við betri afkomu á næsta rekstrarári, sem lýkur 31. mars árið 2008. - jab SONY VAIO Sony hefur lækkað afkomuspá sína. Innkallanir valda samdrætti hjá Sony Bandaríski gosdrykkjaframleið- andinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagn- aðs á tímabilinu og 14 prósenta aukningar milli ára. Helsta ástæðan er meiri sala á nýjum mörkuðum Coca-Cola í Brasilíu og í Rússlandi og ekki síst í Þýskalandi en þar á HM í knatt- spyrnu stóran hlut að máli. Á sama tíma dróst salan saman um 1 pró- sent í Bandaríkjunum. Hagnaðurinn nam 62 sentum á hlut, sem er nokkuð yfir vænting- um greiningaraðila, en þeir bjuggust við 59 senta hagnaði á hlut. - jab Coca-Cola hitti í mark á HMBarningur vegna brjóstmáls Danskar konur eiga sumar hverjar erfitt með að hneppa efstu tölum blússa og jakka sem að öðru leyti smellpassa, samkvæmt umfjöllun Nyheds- avisen í gær. Framleiðendur fatnaðar hafa brugð- ist við kvörtunum og bætt nokkrum sentímetrum við brjóstmálið í hönnun á nýjum fatnaði. Greint er frá því að dönsku fataframleið- endurnir Jackpot og InWear hafi síðustu ár fengið athugasemdir frá um 200 verslunum í Danmörku um þennan vand- ræðagang. Þannig er medium stærðin frá Jackpot núna um tveimur sentimetrum víðari yfir brjóstið en áður. Breytingin er hins vegar rakin til þess að konur láta í auknum mæli bæta í brjóstin á sér sílíkonfyllingu og jafnvel til breyttra lifnaðar- hátta sem valdið hafi breytingum á vaxtarlagi. Sparnaðarstríð í boði Landsbankans Verðstríð sem kemur til með að þyngja buddu breskra neytenda er á næstu grösum. Þessu heldur vefsíðan „The Thrifty Scot“ fram en hún gefur sig út fyrir að veita almúganum einföld og góð ráð til að spara peninga. Verðstríðið mun í þetta sinn ekki koma til vegna harðrar samkeppni stórverslana, eins og vant er, heldur er það fjármálalegs eðlis. Baráttan fari nú fram á markaðnum fyrir aðgengilega sparnaðarreikn- inga og hafi verið hrundið af stað með nýjum sparnaðar- reikningi Landsbankans í Bret- landi, Icesave, sem veitir 5,2 prósenta ávöxtun á spariféð. Það mun vera töluvert yfir því sem aðrir bankar bjóða á sambærilegum reikningum. Vefsíðan varar lesendur sína þó við því að hlaupa upp til handa og fóta og skipta um banka. Telji þeir sig ekki geta haldið í það minnsta 250 pund- um inni á reikningnum sé betra að skipta ekki, því við það falli vextirnir niður í 0,5 prósent. Peningaskápurinn ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.