Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 42
Það er allt brjálað að gera hjá Ólafíu Hrönn Jónsdóttur leikkonu. Hún fer með hlutverk hinnar óborganlegu Elínborgar í Mýrinni sem frumsýnd er í kvöld auk þess sem hún er að leggja lokahönd á Stórfengleg, leikriti sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu næstu helgi. En hvernig hefurðu það? Ég hef það bara fínt þakka þér fyrir. Ég er að fara á frumsýningu Mýrarinnar á eftir. Ég fer með manninum mínum, dóttur og tveimur vinkonum sem voru statistar í myndinni. Kvíðin? Ég hlakka bara til. Ég hef mjög litið séð af myndinni. Við vorum aðeins kölluð inn eftir að tökum lauk til að lesa inn og þá sá eg eitthvað. En annars hef ég bara séð treilerana sem sýndir hafa verið í sjónvarpinu. Þess vegna held ég að ég verði ekki mjög dómbær á þetta. Ég á örugglega bara eftir að sjá sjálfan mig á tjaldinu og enga aðra. Elínborg er uppáhaldskarakter margra sem lesa Arnald. Erfitt að leika hana? Já, Elínborg er skemmtilegur karakter. Hún kemur samt minna fyrir í myndinni en í bókunum. Við sjáum ekki bak- grunn hennar og annað þvíumlíkt. Ég vona bara að enginn verði fyrir vonbrigðum með þetta því ég veit að hún er í uppáhaldi hjá mörgum. ALLT AÐ GERAST HJÁ ÓLAFÍU HRÖNN Tvær frumsýningar á tveimur vikum SIRKUS20.10.06 14 1 2 3 1 FM957 2 3 Minnsirkus.is blogg vikunnar Horfðu á þetta ...Farðu þangað ... SVALI MÆLIR MEÐ um helgina DÓRI DNA MÆLIR MEÐ Ekkert nema rugl „Ég hef lent alveg viðurstyggilega oft í því að vera hrifinn af stelpu sem hefur engan áhuga á mér og segir eins og þær gera svo andskoti oft „verum bara vinir og sjáum hvert það leiðir“. Veistu, ég hef bara engan áhuga á því að vera vinur stelpu sem ég er hrifinn af. Flestir gaurar sem ég þekki hafa lent í þessu og vita hvað þetta er fáránlega óþolandi. Mér finnst merkilegt að stelpur sem þekkja mig segi þetta við mig. Ég er einn af þessum gaurum sem er þannig að skapið mitt er stærra en allt, ef þið mynduð setja skapið mitt við hliðina á Júpíter væri skapið mitt það miklu stærra að júpiter mundi líta út eins og plútó.“ textax.minnsirkus.is Urrr!! Er orðinn brjálaður útaf þessu liði „Djöfull fer það í taugarnar á mér þegar það er helgi. Fyrst byrjar þunglynda minnsirkus. is liðið að tala um sinn aumingjaskap með þvílíkri vorkunnsemi. Og talar um að eirðaleysið sé að drepa mann og hvað því leiðist að vera heima aleitt og talar um hvað það hefur ekkert að gera. Svo eru fjörkálfarnir að tala um að fara út á djammið svo þegar helgin er búin fer það að tala um þynnku og hvað það er dofið í hausnum. En þunglynda fólkið segir ekkert af því það er búið að hengja sig. En án lélegs gríns þá gerist þetta hverja einustu helgi. Svo á virkum dögum verður það í besta skapi og loksins fer það að tala af viti ... en ónei ekki þegar það er komið helgi þá er eins og maður sé að upplifa algjört deja vú hér.“ fribbi1976.minnsirkus.is 1,2 og Jesus Bent „Skemmtilegt nýtt íslenskt hip-hop lag sem fjallar á gagnrýninn og hversdagslegan hátt um trúarbrögð. Náið í það á www.myspace.com/ rottweilerhundur.“ Mouths to feed Ludacris „I‘m bout to get to that paper.“ Ludacris er ótrúlegur. Lag af nýjum diski hans, Release Therapy. Ótrúlegur hljóðheimur, flottar rímur og góð stemming.“ Paul Wall & Chamillionaire N love with my money „Big Swangaz and Vou- ges,Them 20 inches sittin low.“ Þessir menn eru of heitir. Pottþétt lag með skemmti- legu viðlagi. Að mínu mati mun skemmtilegra en „Ridin“ sem hefur verið að gera allt vitlaust. Ekki spurning.“ Ú t er komin DVD-diskur með afmælistón-leikum Bubba Morthens, 06.06.06 sem fram fóru í sumar. Ásamt Bubba komu fram allar þær hljómsveitir sem hann hefur stofnað og gefið hafa út efni. Þetta eru EGÓ, GCD, MX-21, UTANGARÐSMENN, DAS KAPITAL og STRÍÐ OG FRIÐUR. Það er skemmtilegt frá því að segja að hljómsveitirnar eru allar í sinni upprunalegu mynd eða þeirri mynd sem lengst starfaði saman. Tónleikarnir eru hin mesta skemmtun og fer Bubbi hreinlega á kostum. Sirkus mælir með því að fólk tékki á þessu. Frábær skemmtun. Í gær var kvikmyndin Mýrin frumsýnd í öllum betri kvikmyndahúsum landsins. Um er að ræða meistaraverk Arnarldar Indriðasonar í leikstjórn Baltasar Kormáks. Myndin stendur algjörlega undir væntingum og er gríðarlega vel leikin. Enda eintómir snillingar í aðalhlut- verkum. Ingvar Sigurðsson, Björn Hlynur, Ólafía Hrönn og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Sirkus mælir með því að fólk smelli sér á Mýrina um helgina. HÖRÐUR MAGNÚSSON Í FÆTINGI VIÐ FEÐGA Ekki vera að ýta við mér Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon var sendur í viðtal við Guðjón Þórðarson úti á Loftleiðum. Guðjón ætlaði að tilkynna hvaða lið hann hygðist þjálfa, en var að sjálfsögðu með í hrekknum. Fljótlega mætir lítill strákur og fer að trufla viðtalið. Það endar svo með brjáluðum föður sem ætlar í Hörð sem veit ekki hvaðan á hann stendur veðrið. „Við erum hérna sömu stærðar“„Ekki vera að ýta við mér“ „Það er svo gaman að hrekkja Hödda“ „Hættu að trufla okkur“ „Áfram KR“ „Ég heiti Hörður Magnússon, og ég var illa tekinn“ Justin Timberlake My Love „...nýjasta smáskífan frá kauða. Algjör snilld.“ System of a Down Lonely day „Meiriháttar lag frá þeim drengjum og ef mér skjátlast ekki þá er það gítarleikari sveitarinnar Darron Malakian sem syngur.“ James Morrison You Give me something „Án efa eitt af flottari lögum þessa árs.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.