Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 66
42 20. október 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI KR hefur boðað til blaða- mannafundar klukkan 14 í dag. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins mun KR kynna til leiks tvo nýja leikmenn og svo verður kynntur styrktarsamningur við íþróttavöruframleiðandann Nike. Leikmennirnir sem um ræðir eru samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins Eyjamaðurinn Atli Jóhannsson og Grindvíkingurinn Óskar Örn Hauksson. Þetta er mikill liðsauki fyrir KR enda voru þessir tveir leikmenn þeir eftir- sóttustu á leikmannamarkaðnum hér á landi. Óskar Örn er samningslaus og kemur til KR án greiðslu en KR greiðir ÍBV fyrir Atla enda er Atli nýbúinn að framlengja samning sinn við Eyjaliðið. Heimildir Fréttablaðsins herma enn fremur að báðir leikmenn hafi getað feng- ið betri samning hjá öðrum liðum en að ein aðalástæðan fyrir því að þeir hafi ákveðið að ganga í raðir KR sé Teitur Þórðarson þjálfari. Mikil ánægja er með störf Teits vestur í bæ og hann vel liðinn af leikmönnum liðsins. Þetta eru fyrstu tveir leik- mennirnir sem KR fær frá því að tímabilinu lauk en ekki er loku fyrir það skotið að leikmannahóp- urinn styrkist enn frekar á næst- unni. Bakvörðurinn Ray Anthony Jónsson íhugar þessa dagana til- boð frá KR og hann sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann myndi annað hvort spila með KR eða Grindavík næsta sumar. Pétur Hafliði Marteinsson hefur einnig verið orðaður við Vesturbæjarlið- ið en hann hefur ekki enn ákveðið hvort hann komi heim eða fram- lengi samning sinn við Hammarby eins og honum stendur til boða. Einnig er óvíst hvað verður um Ágúst Gylfason en hann fékk samningstilboð frá KR á dögunum sem hann svaraði með gagntilboði sem hefur enn ekki verið svarað. - hbg / - esá KR kaupir Atla frá ÍBV Eftirsóttasti knattspyrnumaður landsins, Atli Jóhannsson, hefur verið seldur frá ÍBV til KR. Atli verður kynntur til leiks á blaðamannafundi í dag ásamt Óskari Erni Haukssyni. KR hefur þar með landað stærstu bitunum á markaðnum. ÚR GRINDAVÍK Í KR Óskar Örn Hauksson skrifar undir samning við KR í dag. Á LEIÐ Í VESTURBÆINN Atli Jóhannsson sýndi sannan félagsanda með því að fram- lengja við ÍBV á dögunum og sjá þar með til þess að félagið fengi eitthvað fyrir sinn snúð. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR KÖRFUBOLTI Kvennalið Keflavíkur í körfubolta hefur fengið til sín nýjan útlending, en það er bandaríska stúlkan Kesha Watson. Hún lék síðast með Oberhausen í Þýskalandi þar sem hún skoraði 15 stig að meðaltali í leik. Kesha er 24 ára gömul og lék á árum áður með í WBCA-kvenna- deildinni í Bandaríkjunum og var m.a. leikmaður ársins tímabilið 2003-2004, en hún þykir sterkur varnarmaður. - dsd Kvennalið Keflavíkur: Nýr útlending- ur til liðsins HANDBOLTI Það gekk mikið á þegar ÍBV tók á móti Gróttu í SS- bikarnum í Vestmannaeyjum á miðvikudag. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda en heimamenn fögnuðu að lokum sigri, 29-25, eftir góðan enda- sprett. Það sem stendur upp úr leiknum eru ekki úrslit leiksins heldur ótrúleg framkoma Eyjamannsins Grétars Eyþórs- sonar sem skallaði markvörð Gróttumanna, Einar Ingimarsson, beint í andlitið. Atvikið átti sér stað undir lok leiksins þegar Einar varði vítakast frá Grétari. Einar hljóp þá upp að Eyjamanninum, gerði grín að honum sem Grétar þoldi illa því hann svaraði með að skalla Einar af miklu afli í andlitið en Einar uppskar blóðnasir fyrir vikið. Anton Gylfi Pálsson dómari var fljótur á vettvang og gaf Grétari „krossinn“ svokallaða og Grétar á því yfir höfði sér langt leikbann en það gerist mjög sjaldan að leikmanni sé sýndur „krossinn“. - hbg Grófur Eyjamaður: Skallaði and- stæðing > Matthías í Álasundi Matthías Guðmundsson knattpsyrnumaður er þessa dagana staddur í Álasundi í Noregi þar sem hann æfir með knattspyrnuliðinu þar í borg. Hann kom til Noregs frá Århus þar sem hann æfði með AGF. Að sögn Matthíasar gekk ekki eins vel þar og gerir nú í Noregi og býst hann ekki við tilboði þaðan á næstunni. En hann bar Álasundi mjög góða sögu og var spenntur fyrir félaginu. Með því leikur fyrir Haraldur Freyr Guðmundsson. Baldvin Þorsteinsson, handboltamaður í Val, er nú loksins á batavegi eftir næstum árslöng veikindi. Hann hefur getað spilað með Val í síðustu tveimur leikjum liðsins og verður að öllum líkindum í leikmannahópi Vals sem mætir HK í DHL-deild karla á morgun. Það sem meira er, Baldvin hefur ekki misst úr æfingu í eina og hálfa viku en það er lengsta æfingalota Baldvins með félaginu síðan veikindin hófust í desember síðastliðnum. „Mér líður miklu betur, ég er með minni svima og fleira í þeim dúr,“ sagði Baldvin. „Ég er ekki alveg laus við þetta ennþá en orkan er góð og ég get æft á fullu. Ég get ekki fagnað sigri enn en þetta gengur vel eins og er.“ Baldvin veiktist í desember og var greindur með einkirningasótt í janúar. Af þeim sökum varð hann að draga sig úr íslenska landsliðinu skömmu fyrir EM í Sviss. Síðan þá hefur hann ekki losnað við veirusýk- inguna og hefur meðal annars farið til Þýskalands í ítarlegar rannsóknir. Hér heima hafa bæði sýkingafræð- ingur og ónæmisfræðingur gefið honum lyf sem hafa verkað vel undanfarnar vikur. „Ég fékk lyf frá ónæmisfræðingi sem hefur að gera með þarma- flóru í maganum og vinnur á sýkingum. Eftir að ég byrjaði á þeim lyfjum hef ég fundið mikinn mun og miklar framfarir. Ég hef meira að segja getað æft á morgnana líka, verið orkumeiri og almennt betri.“ Sótt þessi getur verið það alvarleg að Baldvin hefði þurft að neyðast til að leggja skóna á hilluna en nú horfir til betri vegar. „Ég hef fundið mig vel í þessum leikjum og hlakka mikið til leiksins um helgina.“ BALDVIN ÞORSTEINSSON: VERÐUR VÆNTANLEGA Í LEIKMANNAHÓPI VALS UM HELGINA Ekki misst úr æfingu í eina og hálfa viku FÓTBOLTI Hafþór Ægir Vilhjálms- son, leikmaður ÍA í knattspyrnu, kom í gær heim frá Svíþjóð þar sem hann var til reynslu hjá 1. deildarliðinu Norrköping. For- ráðamenn sænska liðsins vilja fá Hafþór í sínar raðir og eru við- ræður þess efnis hafnar við ÍA. Hafþór er samningsbundinn ÍA til 2008 en vegna viðaukasamn- ings sem hann skrifaði undir í síð- asta mánuði verður hann laus allra mála hjá ÍA í lok mánaðarins. Vil- hjálmur Birgisson, faðir Hafþórs, segir að það hafi þó engin áhrif á viðræður þeirra við ÍA og Norrköp- ing. „Við leggjum mikla áherslu á að ef af þessu verður fái knatt- spyrnufélag ÍA eins mikið og hægt verður fyrir Hafþór,“ sagði Vil- hjálmur. Viðaukasamningurinn sagði að ef Guðjón Þórðarson yrði ráðinn þjálfari ÍA myndi Hafþór losna undan samningi sínum við félagið. Það varð raunin og staðfesti samn- inga- og félagaskiptanefnd KSÍ gildi viðaukasamningsins í úrskurði sínum í gærkvöldi. En hvort sem Hafþór væri samnings- bundinn ÍA eða ekki þyrfti Norrköping ávallt að greiða upp- eldisbætur fyrir hann og þyrftu því félögin hvort eð er að setjast að samningaborðinu. Guðlaugur Tómasson er umboðsmaður Hafþórs og býst við að félögin geri allt sem í sínu valdi stendur til að ná samkomulagi. „Hafþór er spenntur fyrir Norrköping og sá áhugi er gagn- kvæmur. ÍA vill heldur ekki að Hafþór spili með öðrum íslensk- um liðum og sæi hag sínum best borgið í því að hann færi utan,“ sagði Guðlaugur. Aðilar funduðu í gærkvöldi og má gera ráð fyrir því að þetta ferli taki nokkra daga. Gísli Gíslason, formaður rekstrarstjórnar meist- araflokks ÍA, sagði að félagið myndi auðvitað fyrst og fremst kjósa að Hafþór yrði áfram hjá ÍA. „Okkur þykir vænt um Hafþór og tel ég að hagsmunir félagsins og hans fari saman. Þeirra er ég fyrst og fremst að gæta. Við höfum enn ekki fengið tilboð frá Norrköping en viðræður eru hafnar. Og það er ljóst að ef viljinn er góður er alltaf von um árangur,“ sagði Gísli. - esá Hafþór Ægir Vilhjálmsson kominn heim frá Svíþjóð: Vilji fyrir því að ÍA fái sem mest af peningum fyrir Hafþór Ægi HAFÞÓR ÆGIR Væntanlega á leið til Svíþjóðar. Knattspyrnuþjálfari Tindastóll á Sauðárkróki óskar eftir þjálfara fyrir m.fl . karla. Einnig er möguleiki á þjálfun fl eiri fl okka. Spilandi þjálfari kemur til greina. Tindastóll leikur í 3. deild á komandi tímabili en metnaður félagsins er mun meiri. Á Sauðárkróki er glæsileg aðstaða, frábær keppnisvöllur og stór æfi ngasvæði. Í liðinu eru áhugasamir ungir leikmenn og er þetta því gott tækifæri fyrir metnaðarfullan þjálfara til að gera góða hluti. Áhugasamir hafi samband við Vöndu Sigurgeirsdóttur í síma 895 5555 eða vanda@khi.is FÓTBOLTI Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær voru viðræður Ragnars Sigurðssonar og IFK Gautaborgar langt komnar og var gengið frá þriggja ára samningi í gær. Ragnar er tvítugur varnar- og miðjumaður sem hefur verið fastamaður í liði Fylkis undanfar- in tvö ár. Fylkismenn þurfa því að fylla skarð Ragnars og herma heimildir Fréttablaðsins að þeir hafi mikinn áhuga á David Hannah, skoska varnarmanninn- um sem lék í Grindavík í sumar. Hann sagði í gær að hann ætti í viðræðum við 2-3 lið í Lands- bankadeildinni. - esá Ragnar samdi við IFK: Hannah í stað Ragnars? HANDBOLTI Patrekur Jóhannsson og Konráð Olavsson, leikmenn Stjörnunnar í handknattleik, staðfestu við Fréttablaðið í gær að þeir hafa ekki hug á að taka við þjálfun liðsins til frambúðar. Þeir hafa stýrt æfingum frá því að Magnús Teitsson og Sigurður Bjarnason hættu störfum á sunnudaginn var. „Það var leitað til mín með þetta mál en þjálfun í fullu starfi kemur ekki til greina hjá mér nú,“ sagði Patrekur. - esá Patrekur og Konráð: Taka ekki við Stjörnunni FÓTBOLTI Breiðablik hefur samið að nýju við serbnesku leikmenn- ina Nenad Zivanovic og Srdjan Gasic. Þeir félagar fóru af landi brott eftir síðasta leik Breiðabliks í sumar en nú hafa þeir báðir samið við félagið að nýju. Zivanovic og Gasic munu koma til liðs við Breiðabliksliðið í æfingaferð liðsins í lok mars á næsta ári. - dsd Breiðablik: Serbarnir verða áfram Iceland Express-deild karla: ÍR-UMFN 81-86 Stig ÍR: Ólafur Sigurðsson 21, Ómar Sævarsson 17, Fannar Helgason 13, Sveinbjörn Claessen 10, Eiríkur Önundarson 8, Steinar Arason 7. Stig Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 24, Jeb Ivey 23, Brenton Birmingham 21, Guðmundur Jónsson 6, Egill Jónasson 5, Jóhann Ólafsson 5. KEFLAVÍK-SKALLAGRÍMUR 87-84 Stig Keflavíkur: Jermain Williams 25, Magnús Gunnarsson 22, Gunnar Einarsson 18, Sigurður Þorsteinsson 8, Arnar Jónsson 5, Sverrir Sverris. 4. Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 27, Darryl Flake 22, Pétur Sigurðsson 13, Dimitar Karadowski 11, Axel Kárason 4, Hafþór Gunnarsson 4, Pálmi Sævarsson 2, Sveinn Blöndal 1. FJÖLNIR-GRINDAVÍK 75-83 HAUKAR-TINDASTÓLL 89-88 Vegna bilunar í prentsmiðju reyndist ekki unnt að vera með umfjöllun um leiki kvölds- ins í körfuboltanum. Evrópukeppni kvenna: ARSENAL-BREIÐABLIK 4-1 Laufey Björnsdóttir skoraði fyrir Blika. ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.