Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 28
 20. október 2006 FÖSTUDAGUR8 Kolbeinn Arnbjörnsson ákvað á síðasta ári að reyna fyrir sér í borg ljósanna, Reykjavík. Eins og allir sveitapiltar sem þangað fara þurfti hann að þola ýmislegt fyrstu mánuðina og gerði hann á því tímabili bæði góð og slæm kaup. Bestu kaup Kolbeins eru nátengd flutningi hans til Reykjavíkur frá Ólafsfirði, þar sem hann ólst upp. „Ég verð að segja að vind- sængin mín trónir á toppnum,“ segir Kolbeinn. „Þar trónir hún fyrir hálft ár af góðum svefni og að á þessum sex mánuðum hafi ég aldrei þurft að blása í hana.“ Kolbeinn er búinn að fá sér rúm núna en það hefur ekki stað- ið undir væntingum. „Rúmið er keypt í Rúmfatalagernum, sem segir ýmislegt um gæðin, og ég hef oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hugsað um að skipta aftur yfir á vindsængina,“ segir Kol- beinn og hlær. „Reyndar er ég viss um að vindsængin er keypt í Rúmfatalagernum líka en það var búið að margnota hana áður en ég fékk hana.“ Þegar kemur að verstu kaup- unum segir Kolbeinn þau frekar tímalegs eðlis en fjárhagslegs. „Ég hef ekki gert mörg slæm kaup en ef við tölum um tíma sem maður hefur borgað fyrir þá verð ég að segja að hafa borgað mig inn á The Postman í bíó. Myndin virtist vera átta tímar, þó hún hafi sjálfsagt ekki verið meira en þrír, en mér fannst þetta vera eins og heil eilífð,“ segir Kolbein og hlær. „Það versta er að ég gat ekki gengið út því ég var í knatt- spyrnuferðalagi og við gistum svo langt í burtu að ég varð að bíða eftir því að rútan kæmi. Við vorum þrír félagarnir sem ákváð- um að taka spes ákvörðun á meðan allir hinir fóru á einhverja gamanmynd sem flestir voru ægi- lega ánægðir með, en þá völdum við að vera öðruvísi og vorum illa sviknir af því.“ tryggvi@frettabladid.is Á vindsæng í sex mánuði Kolbeinn vinnur nú á leikskólanum Mánabrekku. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Þvottur á góðu verði TILBOÐ Á GÆÐAÞVOTTAVÉLUN- UM FRÁ MIELE. Hægt er að gera góð kaup í Eirvík þessa dagana á Miele- þvottavélum. Listaverðið er 160 þúsund en tilboðið á þvottavél- inni er 114 þúsund þannig að afslátturinn er allt að 30 prósent. Miele-þvottavélar eru með nýrri tromlu með vaxkökumynstri sem fer betur með þvottinn. Þær eru byggðar á stálgrind og eru með ytri þvottabelg úr ryðfríu stáli. Nánari upplýsingar fást í Eirvík, Suðurlandsbraut 20 eða á heimasíðu þeirra www.eirvík.is. Tilboðsdagar í Radíóbæ HEIMILISTÆKI MEÐ AFSLÆTTI. Þessa dagana er veittur góður afsláttur af margskonar heimilis- tækjum í Radíóbæ, Ármúla 38. Til dæmis má nefna Scott hljóm- tækjasamstæðu sem áður kostaði 29.990 en kostar nú 19.990 kr. Í samstæðunni er DVD spilari, USB fyrir flassminni, Karaoke tæki og fleira. Tvöfaldur Daewoo ísskápur kostaði áður 144.995 en kostar nú 119.995 kr. og Elfunk 15 tommu flatskjár kostaði áður 49.990 kr. en kostar nú 34.990, semsagt 15.000 króna afsláttur. Frek- ari upplýsingar er að fá í síma 553 1133. HJÁ HRAFNHILDI Á ENGJA- TEIGI FÁST NÚ FÍNAR DRAGTIR Á FIMMTÁN PRÓSENTA AFSLÆTTI. Dragtir eru þægilegar fyrir konur í atvinnulífinu og einstaklega vinsæll ferðafatnaður. Reyndar eiga þær við við öll möguleg tækifæri. Því er það örugglega ánægjuleg tíðindi fyrir margar að verslunin Hjá Hrafnhildi hefur slegið 15 prósent af fullu verði dragta, bæði buxnadragta og pilsdragta. Dragfínar dragtir 30% 3 Útsala20-40% afsláttur 20-30% afsláttur af rúmum Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14Nýtt kortatímabil Baðsloppar 20% afsláttur Handklæði 30% afsláttur Rúmteppasett 20-40% afsláttur Sængurfatnaður 20% afsláttur 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.