Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 44
stelpubögg með Siggu Dögg Þ etta ert ekki þú, ég er bara ekki tilbúinn til að skuldbinda mig.“ Uppsagnarsetningin sígilda. Hjartað lofttæmist og nýtt líffæri, vonin, tekur við starfseminni. Við höldum í vonina um að „sálufélag- inn“ sjái villu síns vegar og ógildi sambandsslitin. Við ímyndum okkur óraunhæfar aðstæður þar sem hann kemur eins og sannri hetju sæmir og bjargar okkur úr sjálfheldu og sjái að án hvors annars getum við ekki verið. V ið erum alin upp við að trúa loforði silfurtjaldsins um hamingjusamt líf með „hinum eina rétta“ til æviloka. Mín reynsla er sú að það er sjaldnast þannig að sá sem sagði mér upp komi mér til bjargar og fari um leið með ástarjátningu. Nær er að hann komi heim til mín og nái í sitt hafurtask; við döðrum, grátum og stundum sorgarsamfarir. And- rúmsloftið er tilfinningaþrungið og fátt eðlilegra en að hnýta enda á sambandið með samförum sem í senn eru þakkir fyrir góðar stundir og undirskrift að óformlegri yfirlýsingu „laus og liðugur“. Í fullkomnum heimi þá væri þetta auðvelt. Bada bing, bada búmm, þið eruð hætt saman en „góðir vinir“. Raunin er oft önnur. Vonin kikkar inn og hefst handa við að telja okkur trú um að þessar samfarir hafi ekki verið þær seinustu, langt í frá, þær eru upphafið að endanum. Vítahring- urinn „fyrrverandi með fríðindum“ tekur við þar sem ómögulegt er að vita hvað sé ást og hvað sé gredda tækifærissinnans. Heimur kvikmyndanna hefur náð að smeygja sér í undirmeðvitundina og starfar nú með voninni í að telja okkur trú um að sambandinu sé í raun og veru ekki lokið ... É g hef heyrt ræðuna, stundað sorgarsamfarirnar og haldið í vonina. Vinkonur mínar hvöttu mig til að finna nýjan gæja, fyrrverandi hafi ekki átt mig skilið. Orð þeirra blésu smá lífi í krumpað hjartað. „Vinkonurnar“ í bandarískum sjónvarpsþáttunum ráðlögðu mér hins vegar að halda í vonina, því kannski næst þá ... Það er að sjálfsögðu ekkert næst. Ég held niðri í mér andanum og bíð eftir sms-i sem mun ekki koma. Þetta er ómögulegt milliástand fyrir unga mey í ástarsorg. C arrie hefði því aldrei átt að enda með Big, ekki frekar en Rachel með Ross. Þessi endir heldur ástarsyrgjandanum í greipum vonarinnar; á örlaga- stundu mun hetjan mæta á svæðið og hvísla þrjú lítil orð. M itt ráð er að skera á naflastrenginn og gefa hjartanu svigrúm og tíma til að blása í sig lífi, ást og kjark. Damien Rice veitir kannski besta ráðið við sorgarferli ástarinnar: Cant get my mind off of you, ´till I find somebody new ... Hamingjusöm til æviloka ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.