Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 10
10 20. október 2006 FÖSTUDAGUR HAUSTHÁTÍÐ Þessi þýska garðyrkju- kona skrýddi heyrúllur fyrir haust- hátíðina sem haldin er í Erfurt í Austur-Þýskalandi þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Dögg Pálsdóttir 4.í sætiðwww.dogg.is Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 LÁTUM VERKIN TALA KOSNINGASKRIFSTOFA Laugavegi 170, 2. hæð opnunartími virka daga kl. 16-22 og um helgar frá kl. 12-18 dogg@dogg.is sími 517-8388 Hlökkum til að sjá þig. . sæti4 Vi› bjó›um flér í laugardagskaffi í félagsheimili firóttar á morgun kl. 11-13 fia› ver›ur heitt á könnunni og veitingar me› í félagsheimili firóttar í Laugardal á morgun. Oddn‡ Sturludóttir varaborgarfulltrúi b‡›ur gesti velkomna fyrir hönd stu›ningsfólks og Tríó Tómasar R. Einarssonar galdrar fram ljúfa tóna. fiórunn Sveinbjörnsdóttir varaform. Eflingar og Pétur Jónsson fyrrv. borgarfulltrúi flytja stutt ávörp og Steinunn Valdís kynnir helstu áherslur sínar í tengslum vi› komandi kosningar. Stu›ningsfólk Steinunnar Valdísar Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum 11. nóvember TÉKKLAND, AP Jiri Paroubek, leiðtogi tékkneskra jafnaðarmanna, hefur lagt til að mynduð verði samsteypu- stjórn síns flokks og höfuðkeppi- nautarins, íhaldsflokksins ODS. Það sé eina færa leiðin út úr pattstöð- unni sem ríkt hefur í stjórnmálum landsins frá því kosið var til þings í sumar, en þeim lyktaði þannig að pólitísku fylkingarnar fengu nákvæmlega jafnmarga þingmenn, hundrað hvor. Mirek Topolanek, leiðtogi ODS, sem fór fyrir minnihlutastjórn sem féll í atkvæðagreiðslu um trausts- yfirlýsingu, tjáði sig ekki um tillöguna. Flokkur hans hafði áður hafnað hugmyndinni. - aa Pattstaðan í Tékklandi: Stóru flokkarnir myndi stjórn DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær refsidóm yfir Litháanum Roman Kosakovskis, sem reyndi að smygla amfetamíni í fljótandi formi svo og brennisteinssýru til landsins í febrúar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt hann í tveggja og hálfs árs fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn í fjög- ur ár. Samkvæmt matsgerð Rann- sóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði hefði verið unnt að framleiða 2383 grömm af hreinu amfetamín- súlfati úr því magni sem Litháinn reyndi að smygla inn. Þetta þýðir að hægt hefði verið að búa til 17,49 kíló af fíkniefninu amfetamíni með tíu prósent styrkleika. Hæsti- réttur leit við ákvörðun refsingar til þess mikla magns fíkniefna sem hægt hefði verið að vinna úr vökvanum og einnig að maðurinn hefði tekið að sér innflutning efna sem hefði augljóslega verið vand- lega skipulagður. Frá fjögurra ára fangelsisvist mannsins dregst gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 27. febrú- ar. Honum var gert að greiða áfrýjunarkostnað, tæplega 348 þúsund krónur. - jss ROMAN KOSAKOVSKIS Hæstiréttur þyngdi fangelsisdóminn yfir honum. Hæstiréttur þyngdi dóm yfir litháískum fíkniefnasmyglara: Fékk fjögurra ára fangelsi MATVÆLAVERÐ Ganga verður út frá því að fjörutíu prósenta lækkun verði á tollum í þeim vöruflokkum sem eru í samkeppni við innlendar kjötvörur, til dæmis nautakjöt, kjúklingar og svínakjöt, ef fyrir- huguð verðlækkun upp á allt að sextán prósent á að nást. Þetta er mat Samtaka atvinnulífsins. Innanlandsframleiðsla kjöts var rétt rúm 24 þúsund tonn og heildarsala tæp 23 þúsund tonn. Neysla lambakjöts var 7.300 tonn, svínakjöts 5.300 tonn, nautakjöts 3.600 tonn og hrossakjöts fimm hundruð tonn í fyrra. Heimildir til innflutnings á lægri tollum eru lítið nýttar. Tæp tvö hundruð tonn af kjöti voru flutt inn, eða innan við eitt prósent af heildarneyslunni. Mest var flutt inn af nauta- og hrein- dýrakjöti, eða um helmingur inn- flutningsins. Tæp þrjátíu tonn af kjúklingum voru flutt inn og tólf tonn af svínakjöti. Það er vel innan við eitt prósent af neyslunni. Hæsti tollurinn var á nautahakk, eða 266 prósent, en kjúklingar og kalkúnar voru með tvö hundruð prósent. Verðlækkunin „getur ekki orðið nema af völdum lækkunar inn- lendra kjötvara því markaðshlut- deild innfluttra kjötvara verður óhjákvæmilega afar lítil áfram þrátt fyrir tollalækkunina þar sem tollarnir verða eftir sem áður afar háir,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins. - ghs KJÖTBORÐIÐ Í NÓATÚNI Lítið magn af kjúklingabringum hefur verið flutt til landsins. Ef fyrirhuguð verðlækkun á að nást verður að lækka tolla á þeim vöruflokkum sem eru í samkeppni við innlendar kjötvörur, að mati Samtaka atvinnulífsins. Innflutningur kjöts lítill þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnar: Tollarnir haldast háir áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.