Fréttablaðið - 20.10.2006, Page 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.35 13.12 17.48
Akureyri 8.26 12.57 17.26
Á sunnudögum geta borgarbúar brugðið sér á Hótel
Sögu og fengið „brunch“ eða dögurð, eins og þessi
máltíð var kölluð þar um árið.
Sigurður Rúnar Ásgeirsson er kokkurinn sem hefur yfir-
umsjón með dögurðinum á Skrúði, en undanfarin misseri
hefur það færst mjög í aukana að Íslendingar hittist í hádeg-
inu um helgar til að gæða sér á eggjum, beikoni og öllu sem
til heyrir. „Við endurvöktum dögurðinn síðasta vor, en það
var hótelstjórinn sem fékk þessa hugmynd,“ segir Sigurð-
ur.
Á Sögu hefst máltíðin með rjómalagaðri sjávarréttasúpu
en svo tekur við hlaðborð sem gestir geta notið að vild. „Við
bjóðum upp á sirka tíu kalda rétti, ýmiss konar álegg og svo
heitan mat á borð við egg, beikon, steikta tómata, sveppi og
fleira,“ segir Sigurður og bætir því við að sætindi séu í boði
eftir matinn fyrir þau sem það vilja.
Máltíðin kostar 2.000 krónur fyrir fullorðna en er ókeyp-
is fyrir börn yngri en sex ára. Tólf ára og yngri fá dögurð-
inn á hálfvirði. Sigurður segir að þeim sem komi í dögurð
fari sífellt fjölgandi „Maður er líka alltaf að sjá sömu and-
litin sem segir mér að fólk kann augljóslega að meta
þetta.“
Sigurður segist sjálfur halda mest upp á egg Benedikt,
sem er útfærsla á matreiðslu á eggjum sem Íslendingar
hafa lítið fengið að kynnast.
„Þegar maður fer í „brunch“ þá langar mann oftast í
eitthvað sveitt og gott og þannig eru egg Benedikt. Eggja-
hræran er líka alltaf góð, svo lengi sem hún er matreidd
rétt,“ segir Sigurður og tekur það fram að eggjahræra eigi
alltaf að vera svolítið blaut og laus við krydd svo að eggja-
bragðið fái að njóta sín.
Dögurður er framreiddur á Hótel Sögu, Radison SAS,
alla sunnudaga frá 11.30-14.00 en uppskriftir Sigurðar að
góðum dögurði er að finna á síðu 3. mhg@frettabladid.is
Dögurður
endurvakinn
Sigurður Rúnar Ásgeirsson, kokkur á Skrúði, með dögurð að hætti hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pönnsur í pökkum
ÖMMUBAKSTUR HEFUR SETT TILBÚNAR PÖNNUKÖKUR Á
MARKAÐINN.
Pönnukökur frá Ömmu-
bakstri eru kærkomin
viðbót við það brauðmeti
sem fyrir er. Þær eru seldar
tólf saman í pakka og þurfa
að geymast í kæli.
Gott er að ylja þær
upp fyrir notkun
annaðhvort á
pönnu eða í
örbylgjuofni,
það er að segja
ef ekki á að
bera þær fram
með rjóma eins
og alþekkt er sem
meðlæti með kaffi eða
ábætisréttur. Pönnukökur
hafa löngum verið vinsælar
hér á landi, ýmist upprúll-
aðar með sykri eða með
sultu og rjóma. Einnig
er hægt að bera þær
fram með ósætum
sósum og ýmiss
konar salati.
Auðvelt er að gera
sér dagamun
með pönnukökur
frá Ömmubakstri á
borðum.
Gotta mysingur er nýjung á
markaðnum en flest börn þekkja
Gotta ost og Gotta smurost.
Gotta mysingur er með kara-
mellubragði og góður á brauðið
hjá börnunum.
Zik Zak tískuhús var að fá nýja
sendingu af gallabuxum og verð-
ur með tuttugu prósenta afslátt
á þeim út vikuna.
Haustútsala stendur yfir í
Debenhams. Á útsölunni má fá
allt að fimmtíu prósenta afslátt
af völdum vörum.
Yggdrasill er með
fjölbreytt úrval af
lífrænt ræktuðum
Rapunzel vörum.
Meðal þess sem er
í boði eru þurrkaðir
ávextir, morgun-
korn og múslí,
matarolíur og ljóst
og dökkt pasta.
Kjúklingaveisla
verður í Spar um
helgina og er þrjátíu
prósenta afsláttur
af kjúklingum frá
Ísfugli.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn 20.
október, 293. dagur ársins
2006.
ÍTALSKT ELDHÚS FYRIR
ÍSLENSKA BRAGÐLAUKA
Ítalski kokkurinn Antonio Neri
umturnar eldhúsi Galileó
MATUR 4
Á VINDSÆNG
Í SEX MÁNUÐI
Bestu kaup Kol-
beins Arnbjörnssonar
TILBOÐ 8