Fréttablaðið - 20.10.2006, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 20. október 2006 5
Eftirréttir ættu kannski að heita
eftirvæntingarréttir enda er þeir
kærkomnir eftir góða máltíð.
Hér leyfði Nino sköpunargleð-
inni aðeins að njóta sín enda
er skemmtilegt að enda góða
máltíð með glans. Uppistaðan
er ferskir ávextir að eigin vali,
ananas, rúsínur, perur, mangó
eða hvað sem er. Ávextirnir
eru látnir liggja í ávaxtalíkjör.
Skerið niður eplaskífur. Setjið
sítrónusafa í pensil og málið létt
yfir eplasneiðarnar svo að þær
verði ekki brúnar þegar á líður.
Síðan er ávöxtunum raðað á milli
skífanna og borið fram með ís að
eigin vali.
Fyrir þá sem vilja fara alla leið og
hleypa ekta ítalskri stemmningu að
matarborðinu ættu að handgera sitt
eigið pasta. Vissulega er það ekki hrist
fram úr erminni en það er vert að
reyna. Mest um vert er að nota rétta
hveitið í pastagerðina en Nino mælir
með Semolino hveiti. Með hálfu
kílói af hveiti og þremur eggjum fæst
pasta-skammtur fyrir um sjö til átta
manns. Hrærið hveitinu og eggjunum
saman og bætið salti við. Stundum er
þörf á að bæta vatni við en það sést
fljótt þegar byrjað er að hræra. Þá
er komið að erfiðisvinnunni en það
er að fletja degið út. Þegar þið teljið
deigið vera orðið nógu flatt, skuluð
þið fletja um helmingi meir. Þá ætti
deigið að vera tilbúið fyrir skurð.
Hægt er að fá sérstaka skurðarhnífa
til að meðhöndla pasta en gamla
góða kleinujárnið eða pítsahnífur-
inn dugar einnig vel. Lykilatriðið við
skurðinn er nota nógu mikið af hveiti
svo að deigið límist ekki við allt og
alla. Þegar ferskt pasta er svo soðið
fellur það til botns í pottinum þegar
það er sett í hann. Þegar pastað flýtur
aftur upp þá er það tilbúið en það
tekur rétt um þrjár mínútur.
Lauksúpa
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Ógrátandi get ég sagt frá þessari súpu því að ég kann trix við að skera
laukinn sem virkar vel. Takið hýðið af lauknum og látið laukana svo liggja
í köldu vatni í tíu mínútur áður en þeir eru skornir niður í þunnar sneiðar.
Þó þessi lauksúpa sé ekki fljótleg, þá er hún mjög auðveld í matreiðslu og
unaðslega ljúffeng. Hún minnir á níunda áratuginn, haustið og bestu daga
ársins.
1 kg laukur (afhýddur og skorinn í þunnar
sneiðar)
5 msk ólífuolía
1 tsk ferskt blóðberg
3 dl rauðvín
2 msk balsam edik
1 líter kjúklingasoð (gjarnan úr kjúkl-
ingakrafti)
nýmalaður svartur pipar
2 hvítlauksgeirar
5-6 msk rifinn parmesan-ostur (eða annar
bragðmikill ostur)
1 snittubrauð
1. Hitið 3 msk. af olíu í potti og steikið laukinn ásamt salti og blóðbergi við
miðlungshita, hægt og rólega í um 45 mínútur. Hrærið í öðru hverju.
2. Á meðan laukurinn steikist, skerið snittubrauðið í um 3 sm þykkar
sneiðar. Penslið sneiðarnar með ólífuolíu og ristið í ofni þar til þær verða
gullnar og stökkar. Takið sneiðarnar út úr ofninum og nuddið þær því næst
með hvítlauknum.
3. Þegar laukurinn hefur steikst í 45 mínútur setjið þá balsamedikið út í
pottinn, hrærið í og steikið áfram í 15 mínútur. Setjið þá rauðvínið út í og
svo kjúklingasoðið. Smakkið súpuna til, piprið hana vel og vandlega og
haldið henni heitri.
4. Raðið helmingnum af snittubrauðsneiðunum í botninn á eldföstu móti.
Veiðið lauk upp úr súpunni og setjið yfir sneiðarnar og stráið helmingnum
af ostinum yfir. Setjið því næst önnur lög af brauði, lauk og osti ofan á og
ausið nokkrum skeiðum af súpu yfir. Setjið brauðið í 170 gráðu heitan ofn
og bakið í um 20 mínútur.
Þegar brauðið er tilbúið ausið þá súpunni í súpuskálar, skiptið brauðinu á
milli skálanna og berið fram.
Mozzarella caprese. Ferskir tóm-
atar á mozzarella osti. Nino lofaði
íslenska Mozzarella ostinn í hástert.
Ef halda á sannkallaða ítalska veislu er eins gott að vera með nógu mikið á borðum, og að sjálfsögðu, nógu mikinn hvítlauk.
- leggur heiminn
að vörum þér
H
2
hö
nn
un
Ástríðubaun Kaffitárs er merki um hina eilífu leit okkar að góðu úrvalskaffi
- og í huga okkar er ástríðubaunin takmark okkar. Veröld Kaffitárs er
þó eingöngu samansett úr ástríðubaunum - það er það sem gerir hana
svo ljúfa í bolla.