Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 32
„Ég vil búa inni í risastórri pítsu.“
Auðunn Blöndal um draumahús-
ið sitt í Fréttablaðinu
„Allir í fjölskyld-
unni vissu að
síminn væri
hleraður því það heyrðust
sífellt smellir þegar talað var í
hann.“
Bryndís Schram í Fréttablaðinu
„Ég á helling af lögum á dönsku
og það getur vel verið að við
bætumst í þetta lið sem er að
bögga Dani þessa dagana.“
Bubbi Morthens um
risasamninginn í Fréttablaðinu
ÖNNUR SERÍAN AF SIRKUS RVK MEÐ ÁSGEIRI KOLBEINS ER FARIN Í LOFTIÐ
Ætlum líka að skoða
skuggahliðar lífsins
„Fyrsta serían var sýnd samfleytt í átta mánuði.
Svo tókum við tveggja mánaða pásu og erum
byrjaðir aftur,“ segir Ásgeir Kolbeinsson um
þættina sína Sirkus Rvk sem eru farnir í loftið.
Hann segir einnig tíma hafa verið kominn á að
stokka aðeins upp og fékk í lið með sér fimm
fagrar stúlkur sem munu taka þátt í þættinum.
„Við vildum frekar stelpur en stráka vegna þess
að þær hafa kannski ekki verið eins mikið í
fjölmiðlum. Ég held að það sé nú bara vegna
þess að konur eru feimnari við að koma sér á
framfæri. En þetta er fínn hópur þó flestar séu
þær byrjendur í sjónvarpi,“ segir Ásgeir og bætir
við að stelpurnar séu ólíkar sem gefur þessu
ákveðna breidd.
Fjalla um bílslys
Sirkus Rvk er magasínþáttur en nú verður farið
aðeins meira út í viðtöl við áhugavert fólk. „Við
ætlum ekkert endilega að taka þetta fólk sem er í
Séð og heyrt og Hér & nú en er að gera góða
hluti án þess að vera að flagga því.“
Einnig verða skuggahliðar lífsins skoðaðar í nýju
seríunni. „Pælingin er til dæmis að fara með
lögreglunni og sjá svona þeirra umhverfi og við
hvað þeir lifa. Núna hefur hraðakstur verið mikið í
umræðunni og í næsta þætti verða viðtöl við
aðila sem hafa lent í stærstu slysum ársins, eða
misst einhvern nákominn.“
Verður Sirkus Rvk þá kannski meira eins og
Kompás?
„Nei ekki beint. Þetta verður svona blanda af
þessum alvöru gefnu þáttum og skemmtilegu
efni. En auðvitað í mun minna formi. Hvert
innslag er ekki lengra en fimm mínútur. Svo ef þú
fílar ekki einhvern þarftu ekki að bíða lengi eftir
næsta atriði.“
Ekkert of merkilegt
Þátturinn hans Ásgeirs er á dagskrá á miðviku-
dögum klukkan hálftíu og hann hvetur fólk til
þess að hafa samband með atburði og annað.
„Það er ekkert of ómerkilegt og ekkert of
merkilegt fyrir þáttinn, þannig að það er um að
gera að hafa samband.“
Að fyrrum fréttamaðurinn og
fasteignasjónvarpsmaðurinn
Hlynur Sigurðsson sé
kosningastjóri Illuga Gunnars-
sonar í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokkins / Að Helgi Eysteinsson,
fyrrum sjónvarpsstjarna
af Skjá einum, Skotsilfri, sé
kosningastjóri Bjarna Bene-
diktssonar. Sjónvarpsstjörn-
urnar greinilega vinsælar í
plögginu / Að það hafi kostað 7
milljónir að flytja inn Gorbatsjov og
Björgólfur Thor hafi ekki tekið krónu fyrir
flugfarið / Að Halla Vilhjálmsdóttir fari á
kostum í upptökum á nýja X-Factor
þættinum / Að áhugamannaliðið
Rauða Eistað ætli að spila við
Chelsea í London á næstunni /
Að Iborius, nýja verslun
Hrafnhildar Hólmgeirsdóttur
og Jóns Sæmundar, fari af stað
með miklum látum og hafði
erlendur blaðamaður á orði á
dögunum að verslunin væri ein
sú glæsilegasta í Evrópu á sínu
sviði / Að Paddington-
kápurnar séu að koma aftur í
tísku / Að Keikó hafi snúið sér við
í gröfinni í vikunni. Sumir tala um jarðhræringar
en aðrir skella skuldinni á íslensk stjórnvöld / Að
fyrsta tímarit Húsa og Híbýla, undir stjórn Tinna
Sveinssonar, fari vel af stað og
almenn ánægja sé með
frumburð stráksins / Að
Þorkell Máni á X-inu ætli að
slá til og taka við þjálfun
meistaraflokks kvenna í
Grafarvoginum / Að landsliðs-
maðurinn Vignir Svavarsson fái ekki starfsheitið
Ninja í símaskránna. Hann hefur einnig prófað
að vera hestahvíslari en án árangurs/
sirkusrvk@365.is
minnsirkus.is/sirkusrvk
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR, 32 ÁRA.
Tekur fyrir mál sem eru ekki í umræðunni. Kynnir
sér hluti sem hægt er að gera í Reykjavík.
KAREN LIND TÓMASDÓTTIR, 23 ÁRA.
Sér um uppákomur í skemmtanalífinu og
öðrum hlutum sem teljast til skemmtana.
MANÚELA ÓSK HARÐARDÓTTIR, 24 ÁRA.
Sér um uppákomur í skemmtanalífinu og öðrum
hlutum sem teljast til skemmtana.
HELENA EUFEMÍA SNORRADÓTTIR, 23 ÁRA.
Kvikmyndir, spennandi uppákomur, íþróttatengd málefni.
EVA DÖGG SIGURGEIRSDÓTTIR, 36 ÁRA.
Tekur fyrir tísku, tískutengda hluti og lífsstíl.
30%
3 Útsala20-40% afsláttur
20-30% afsláttur af rúmum
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
Ég var að heyra...
Þetta heyrðist
í vikunni ...
4