Fréttablaðið - 20.10.2006, Qupperneq 64
AIRWAVES Í KVÖLD
■ ■ GRAND ROKK
20.00 Tarnus Jr
20.45 The End
21.30 Bob
22.15 Call to Mind
23.00 Coral
23.45 Dýrðin
00.30 Hooker Swing
01.15 Gavin Portland
02.00 Morðingjarnir
■ ■ GAUKURINN
20.00 Vax
20.45 Lisa Lindley-Jones
21.30 120 Days
22.15 Mammút
23.00 Jeff Who?
00.00 Wolf Parade
01.00 Jan Mayen
01.45 Hölt hóra
■ ■ ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN
22.00 Högni Lisberg
22.45 Picknick
23.30 Lára
00.15 Kalli
01.00 Shadow Parade
01.45 Trost
■ ■ NASA
20.00 Our Lives
20.45 I Adapt
21.30 Future Future
22.15 Sign
23.00 Gojira
00.00 Mínus
01.00 Brain Police
01.45 Dr. Spock
■ ■ LISTASAFN REYKJAVÍKUR
20.00 Baggalútur
20.45 Benni Hemm Hemm
21.30 Islands
22.15 Apparat Organ Quartet
23.00 Jakobínarína
00.00 The Go! Team
■ ■ IÐNÓ
20.00 Hestbak
20.45 Steintryggur
21.30 Biogen
22.15 Stilluppsteypa
23.00 Dälek
00.00 Ghostigital
00.45 Otto von Schirach
Nánari upplýsingar á
Icelandairwaves.com.
Söngdívan Whitney Houston, sem
sótti um skilnað við eiginmann sinn
Bobby Brown fyrir mánuði, hefur
lagt fram skilnaðarskjöl sín hjá
dómstólum í Orange-sýslu.
Þar kemur fram að hún vilji fá
fullt forræði yfir dóttur þeirra
Bobbi Kristinu, sem er þrettán ára.
Óskar hún þess jafnframt að Brown
fái að heimsækja dóttur sína.
Houston og Brown giftu sig árið
1992 þegar söngkonan var á hátindi
frægðar sinnar, m.a. fyrir lög á
borð við I Will Always Love You.
Hefur ferill hennar legið niður á
við allar götur síðan. Brown sló á
sínum tíma í gegn með hljómsveit-
inni New Edition.
Á meðan á stormasömu hjóna-
bandi þeirra stóð var Brown hand-
tekinn fyrir vímuefnanotkun auk
þess sem Houston fór tvisvar í
meðferð. Houston er um þessar
mundir að vinna að nýrri sólóplötu.
Vill forræði
MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Whitney Hous-
ton og Bobby Brown meðan allt lék í
lyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Airwaves-tónlistarhátíðin
hófst á miðvikudagskvöld
og var vel mætt á þá þrjá
tónleikastaði sem í boði
voru. Stemning var góð en
augljóst var að þetta kvöld
var aðeins forsmekkur að
því sem koma skyldi.
Þegar komið var inn á Gaukinn um
níuleytið á miðvikudagskvöldið var
augljóst að mikill spenningur var í
loftinu. Mannfjöldinn á staðnum
var slíkur að ómögulegt var að kom-
ast nema rétt að barnum en gestir
létu það ekki mikið á sig fá og voru
ákveðnir í að njóta fyrsta kvölds-
ins.
The Telepathetics hófu leik
klukkan 21 og voru ágætlega
stemmdir. Sveitin lék lög af fyrstu
plötu sinni sem kom út fyrir nokkru,
rokk í stíl við vinsælar breskar
hljómsveitir á borð við Muse og
Radiohead. Þrátt fyrir að hljóm-
burður væri afleitur aftarlega í
salnum virtist gestum líka Tele-
pathetics bærilega, sér í lagi þau
lög sem leikin hafa verið í útvarpi.
Sjálfum fannst mér ekki mikið til
tónleikanna koma.
Á Grand rokki var komið að
Sprengjuhöllinni. Þar voru komnir
ungir drengir sem kunna að
skemmta áhorfendum. Tónlist
Sprengjuhallarinnar er afskaplega
fjölbreytt, popp, rokk og kántrí og
ýmislegt fleira, og lögin eru jafnt á
ensku og íslensku. Best er sveitin í
íslensku lögunum enda eru textarn-
ir hreint frábærir. Sprengjuhöllin
lék á alls oddi og hafði salinn með
sér frá upphafi. Flottir tónleikar.
Niðri á Gauk beið fólk eftir aðal-
númerinu, bandarísku rokksveit-
inni We are Scientists. Ekki þarf að
hafa mörg orð um tónleika þeirra
sem stóðu í hálftíma og voru afar
daufir. Þegar frægasta lagið hafði
verið leikið um miðbik tónleikanna
lýsti söngvarinn ástandinu prýði-
lega: Þetta fer allt niður á við héðan.
Og var nú ekki merkilegt fyrir.
Það var hins vegar ekki hægt að
kvarta yfir næstu hljómsveit á svið.
Dikta átti eina af bestu íslensku
plötunum á síðasta ári og þarna
sönnuðu Diktumenn að þeir eru líka
frábærir á tónleikum. Allir eru
drengirnir mjög færir hljóðfæra-
leikarar og Haukur söngvari nær á
einhvern ótrúlegan hátt að syngja
nákvæmlega eins vel á tónleikum
og á plötunni. Án efa hápunktur
þessa opnunarkvölds sem á heildina
litið var ekkert stórkostlegt. Enda
kannski ekki ætlunin því þrjú frá-
bær kvöld voru eftir.
Höskuldur Daði Magnússon
Lognið á undan storminum
SPRENGJUHÖLLIN Var hreint út sagt frábær á tónleikum sínum á Grand rokki.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MÝRIN kl. 6 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.50
CRANK kl. 10.15
ACT NORMAL kl. 10.20
MÝRIN kl. 3.40, 5.50 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.40, 5.50 og 10.10
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 3.40 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 10
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 3.45
MÝRIN kl. 6, 8, 10 og 12 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 6 og 8
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 10 og 12 B.I. 18 ÁRA
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
EMPIREV.J.V. Topp5.is
L.I.B. Topp5.is
ÆÐISLEGA SPENNANDI ÆVINTÝRAMYND
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI