Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 2
2 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Húsavík
lagði hald á 1.400 karton af L&M
sígarettum og tugi lítra af rúss-
neskum vodka sem smyglað var til
landsins með rússneska fiskflutn-
ingaskipinu Artois. Þremur mönn-
um var fljótlega sleppt úr haldi en
þrem Rússum var haldið eftir og
hafa þeir verið yfirheyrðir, með
hjálp túlks, síðustu tvo daga.
Lögreglunni barst nafnlaus
ábending um að hugsanlega væri
verið að smygla tóbaki og áfengi í
miklu magni til landsins með skip-
inu. Sagði heimildarmaður lögregl-
unnar að varningi hefði áður verið
smyglað með skipinu til landsins en
það hefur oft komið hingað til lands,
samkvæmt upplýsingum frá Sigl-
ingamálastofnun, og var meðal ann-
ars kyrrsett 20. apríl á þessu ári, í
Hafnarfjarðarhöfn, vegna lélegs
búnaðar.
Lögreglan náði því á myndband,
á milli níu og tólf í fyrrakvöld,
þegar tveimur bifreiðum var ekið
upp að skipinu og varningur fluttur
úr því yfir í bifreiðarnar.
Í kjölfarið voru þeir sem tóku á
móti varningnum handteknir og
skipverjar sem áttu aðild að málinu
einnig.
Lögreglan fylgdist auk þess með
einum karlmanni hlaupa með þrjá
til sex kassa af sígarettum frá höfn-
inni upp í þorpið á Raufarhöfn. Lög-
reglan á Húsavík vann að því í gær
að leita að kössunum.
Grunur leikur á því, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Húsavík, að nokkru magni af varn-
ingi hafi verið smyglað hingað til
lands með rússneskum skipum sem
hingað koma með reglulegu milli-
bili. Yfirheyrslur lögreglu í tengsl-
um við málið snúa meðal annars að
því að upplýsa hvort svo geti verið.
Rússnesk fiskflutningaskip
koma flest hingað til lands með fisk
til vinnslu úr Barentshafinu.
Lögreglan á Húsavík hefur farið
með málið frá upphafsstigum og er
rannsókn á því langt komin.
magnush@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
Verð
2.470
.00.-
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur Reykvíkingur, Sigurður
Rafn Ágústsson, hefur verið dæmdur í fangelsi í
þrjú ár og sex mánuði fyrir hrottalega líkamsárás og
nauðgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða
fórnarlambinu tvær milljónir króna í miskabætur,
auk ríflega hálfrar milljónar í sakarkostnað.
Árásin átti sér stað aðfaranótt 10. ágúst, þegar
Sigurður Rafn réðst að stúlku sem var á leið til
vinnu sinnar eftir malarstíg milli Arnarbakka og
Suðurfells í Reykjavík. Maðurinn, sem var vopnaður
hnífi, henti stúlkunni í jörðina og misþyrmdi henni á
hrottafenginn hátt með ýmsum kynferðislegum
athöfnum. Vegna mótspyrnu stúlkunnar tókst
honum þó ekki að koma vilja sínum fram að fullu.
Hann rændi farsíma hennar og peningum áður en
hann hafði sig á brott.
Stúlkan gat lýst árásarmanninum og var hann
handtekinn eftir að lögreglan hafði fengið mynd-
skeið úr öryggismyndavél Selectstöðvarinnar Suður-
felli og séð þar mann sem svipaði til lýsingar
stúlkunnar á árásarmanninum. Hann játaði sök og
kvaðst hafa verið undir sterkum amfetamínáhrifum.
Fagrannsóknir sem gerðar voru á stúlkunni
sýndu að hún ber öll helstu einkenni áfallastreitu-
röskunar, sem óvíst er hvenær verði ráðin bót á. - jss
EFTIRLITSMYNDAVÉL Í SELECT Eftirlitsmyndavél í Select-stöð í
Fellahverfi auðveldaði lögreglunni að finna árásarmanninn.
Tæplega þrítugur maður dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Rúmlega þrjú og hálft ár fyrir
hrottafengna nauðgun og rán
Smyglarar staðnir að
verki á Raufarhöfn
Lögreglan á Húsavík náði því á myndband þegar mikið magn af tóbaki og áfengi
var flutt á land á Raufarhöfn. Þrír menn eru í haldi lögreglu. Grunur leikur á að
miklu magni af varningi hafi verið smyglað hingað til lands með skipinu.
SMYGLVARNINGURINN Varningurinn
sem gerður var upptækur sést hér á
myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR
ARTOIS VIÐ HÖFNINA Á RAUFARHÖFN Í GÆR Lögreglan hefur enn þrjá menn í haldi
vegna málsins en grunur leikur á því að skipið hafi áður verið notað til þess að
smygla varningi til landsins.
SÍÐUSTU ÞRJÁR ÍSLANDS-
FERÐIR ARTOIS
20. apríl 2006
Skipið kemur hingað til lands úr Bar-
entshafi með fisk til vinnslu. Skipið er
kyrrsett vegna lélegs búnaðar.
30. nóvember 2005
Skipið kemur til Húsavíkur með fisk til
vinnslu úr Barentshafi.
23. október 2005
Skipið kemur til Húsavíkur með afla
til vinnslu.
BANASLYS Kona á sjötugsaldri lét
lífið skömmu fyrir hádegi í gær
þegar bíll hennar fór fram af
klettum við Heilsugæslustöðina á
Vopnafirði og lenti í sjónum.
Um tuttugu menn frá lögreglu,
slökkviliði og björgunarsveitinni
Vopna voru kvaddir á vettvang.
Um hálfa stund tók að ná bílnum
úr sjónum og var konan flutt á
Heilsugæslustöðina. Þar var hún
úrskurðuð látin. Að sögn Óskars
Bjartmarz yfirlögregluþjóns voru
tildrög slyssins ekki ljós í gær en
unnið er að rannsókn málsins.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hinnar látnu að svo stöddu. - ifv
Bíll fór fram af klettum:
Kona lét lífið í
umferðarslysi
Er reykt svona mikið á Raufar-
höfn, Guðný?
„Nei, ég hef ekki orðið vör við neinn
reyk síðan síldarverksmiðjan lokaði.“
Skipverjar af rússnesku skipi smygluðu
fjórtán þúsund pökkum af sígarettum í
land í Raufarhöfn. Guðný Hrund Karlsdótt-
ir er fyrrverandi sveitarstjóri Raufarhafnar.
AFGANISTAN, AP Tugir óbreyttra
borgara létu lífið í átökum NATO-
herliðs við meinta skæruliða tali-
bana í Suður-Afganistan í vikunni,
að því er fulltrúar héraðsyfirvalda
og þorpsbúar á staðnum fullyrða.
Samkvæmt bráðabirgðarannsókn
NATO-herliðsins létu þó ekki fleiri
en tólf óvopnaðir lífið.
Allt að sjötíu skæruliðar tali-
bana féllu í bardögum í Panjwayi,
vígi talibana í Kandahar-héraði, að
sögn Luke Knittig, talsmanns ISAF,
NATO-liðsins í Afganistan. Mikill
munur er á áætluðu mannfalli eftir
því við hvern er talað. Fulltrúar
afganskra héraðsyfirvalda telja
allt að sextíu skæruliða hafa fallið
en allt að 85 óbreyttir borgarar hafi
einnig legið í valnum.
Knittig sagði þrjár árásir hafa
verið gerðar á þriðjudag á vígi
skæruliða vestur af Kandahar. „Því
miður gerist það of oft að óbreyttir
borgarar lendi í skotlínunni með
sorglegum afleiðingum,“ sagði
hann. Samkvæmt bráðabirgðarann-
sókn ISAF létu tólf óbreyttir borg-
arar lífið, en Knittig sagði erfitt að
segja til um hvort þeir hefðu orðið
fyrir skothríð skæruliða eða NATO-
liða. - aa
Átök NATO-herliðs og skæruliða talibana í Afganistan:
Ásakanir um fjöldamanndráp
HARMA HLUTINN SINN Þorpsbúar í
Panjwayi, vestur af Kandahar, líta á hræ
búpenings sem drapst í loftárásum
NATO-liðsins á þriðjudagskvöld.
FÆREYJAR Danskur háskólanemi
hefur hafið söfnun undirskrifta á
alþjóðlegum vettvangi, þar sem
færeyska lögþingið er hvatt til
þess að banna hótanir og háð
gegn samkynhneigðum. Þetta
kemur fram á fréttavef Politiken.
Þótt bannað sé með lögum í
Danmörku að áreita fólk á
grundvelli kynhneigðar þess er
slíkt hið sama löglegt í Fær-
eyjum.
Málið verður tekið fyrir á
þingi í næsta mánuði en í fyrra
var tillögu um lagabreytingu
hafnað af færeyskum þingmönn-
um sem, með Biblíuna í hendi,
lýstu því yfir að „karlmenn sem
lægju með karlmönnum“ kæmust
ekki til himna. - smk
Skorað á færeyska þingið:
Bannað verði að
áreita homma
HINSEGIN DAGAR Engar hátíðir samkyn-
hneigðra hafa verið haldnar í Færeyjum.
SLYSAVARNIR Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Síminn og Neyðar-
línan sendu í gær frá sér
sameiginlega yfirlýsingu. Þar var
fréttum hafnað þess efnis að
boðkerfi símafyrirtækjanna
hefðu lagst á hliðina þegar
björgunarsveitir voru kallaðar til
vegna neyðarlendingar flugvélar
Continental-flugfélagsins á
Keflavíkurflugvelli á miðviku-
dag.
Í tilkynningunni segir að engin
skýring hafi fundist fyrir þeim
töfum sem urðu við útkall
björgunarliðs. Farið verði yfir
einstök tilfelli næstu daga og
kerfin álagsprófuð. - þsj
Boðkerfið fór ekki á hliðina:
Engin skýring
komin í ljós
HÚSNÆÐISMÁL Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra segir að ekki
verði gerðar breytingar á
hlutverki Íbúðalánasjóðs aðrar en
til að laga stöðu
sjóðsins að
ríkisstyrkjaregl-
um EES-samnings-
ins og hugsanlegar
breytingar á
fjármögnun
þannig að Íbúða-
lánasjóður geti
lánað án ríkis-
ábyrgðar.
Magnús lýsti
þessu yfir í ávarpi á ársfundi ASÍ
í gær. Hann sagðist hafa ákveðið
að binda enda á þær vangaveltur
sem hefðu verið undanfarið um
framtíð sjóðsins. „Íbúðalánasjóð-
ur hefur gegnt og mun áfram
gegna þýðingarmiklu hlutverki
við framkvæmd húsnæðisstefnu
ríkisstjórnarinnar,“ sagði hann.
- ghs
Bindur enda á vangaveltur:
Segir hlutverk
Íbúðalánasjóðs
enn mikilvægt
MAGNÚS STEF-
ÁNSSON.
Mannréttindaverðlaun
Alexander Milinkevítsj, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Hvíta-Rúss-
landi, fær Sakharov-verðlaunin í
ár, æðstu mannréttindaverðlaun
Evrópusambandsins, fyrir lýðræðis-
baráttu sína.
EVRÓPUSAMBANDIÐ