Fréttablaðið - 27.10.2006, Síða 6
6 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
KJÖRKASSINN
STJÓRNMÁL Álfheiður Ingadóttir
gefur kost á sér í 1. til 2. sæti í
prófkjöri Vinstri grænna sem
haldið verður
sameiginlega í
Reykjavíkur-
kjördæmunum
og Suðvestur-
kjördæmi 2.
desember
næstkomandi.
Álfheiður
skipaði 2. sæti á
lista Vinstri
grænna í
Reykjavík suður
í kosningunum 2003 og hefur
tvívegis tekið sæti á þingi á
yfirstandandi kjörtímabili.
Álfheiður hefur sinnt ýmsum trún-
aðarstörfum á vegum Vinstri
grænna á undanförnum árum. - sdg
Álfheiður Ingadóttir:
Sækist eftir for-
ystusæti hjá VG
ÁLFHEIÐUR INGA-
DÓTTIR
FÉLAGSMÁL Forsvarsmenn Alþjóða-
húss bíða nú eftir fundi fjárlaga-
nefndar þar sem þeir munu sækj-
ast eftir fjárstyrk til að standa
straum af rekstri hússins.
Reykjavíkurborg ákvað nýlega
að skera niður styrki til Alþjóða-
húss um tíu milljónir árlega og
nema þeir nú tuttugu milljónum.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahúss, segir húsið
hafa sóst eftir styrkjum frá félags-
málaráðuneytinu en ekki fengið
jákvæð svör. „Alþjóðahús er
hvorki á fjárlögum ráðuneytisins á
þessu ári né því næsta. Enn frem-
ur erum við að reyna að koma á
samningum um styrki við fleiri
sveitarfélög, til dæmis Mosfells-
bæ, Álftanes og Garðabæ, en
styrkupphæðir sveitarfélaga
reiknast sem hlutfall af íbúatölu.“
Einar segir að fjölgun innflytj-
enda þýði meiri þjónustuþörf
þessa hóps og að álagið í Alþjóða-
húsi sé orðið gríðarlega mikið.
„Við sjáum fram á að þurfa að
bæta við starfsfólki en eins og
staðan er höfum við ekki tök á því.
Ef ekki bætast við frekari fjár-
styrkir til Alþjóðahúss sjáum við
fram á að þurfa að forgangsraða
verkefnum og jafnvel að vísa fólki
annað með tiltekin erindi.“ Einar
segir að til að halda starfseminni
óbreyttri hefði þurft óbreytt fjár-
hlutfall frá Reykjavíkurborg
ásamt fleiri fjárstyrkjum. - hs
Alþjóðahús leitar eftir styrkjum svo unnt verði að halda starfseminni óbreyttri:
Engir styrkir frá ráðuneytinu
EINAR SKÚLASON Sér fram á að þurfa
að forgangsraða verkefnum Alþjóðahúss
og vísa fólki annað með tiltekin erindi
komi ekki til frekari fjárframlög.
Var í lagi að spyrja um hóf-
drykkju í prófi 9 ára barna?
Já 25,0%
Nei 75,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Geta borgarbúar gengið öruggir
um götur?
Segðu skoðun þína á visir.is
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir býður sig fram í 6. sæti i prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, 11. nóvember nk.
Bryndís Ísfold 6. sæti
bryndisisfold.com
Ríkið á að rokka
BertelCapybaraElín
FM BelfastHairdoctorHermigervillJeff who?Motion BoysRetro StefsonTrabant Á bakhlið þum tónlistarség mun berjaskomast þangaðSamfylkingarinn
Bryndís Ísfold
Ríkið á að rokka
Opnir tónleikar í tilefni að því að Bryndís Ísfold gefur út kynningargeisla-
disk með broti af því besta sem íslenskt tónlistarfólk hefur fram að færa.
Laugardaginn 28. okt. kl. 21:00
í hliðarsal Café Kulture, Alþjóðahúsinu
fram koma:
Retro Stefson
Capybara
Elín
Samhliða útgáfunni kynnir Bryndís áherslumál
sín varðandi íslenskan tónlistariðnað og hug-
myndir um stofnun Tónlistarmiðstöðvar Íslands, sem skal efla íslenska
tónlist til þroska, þróunar og sem útflutningsgrein.
DÓMSMÁL Fjórir menn; þrír Íslend-
ingar og Hollendingur, geta átt
yfir höfði sér þunga dóma vegna
tilraunar til að smygla til landsins
rúmlega fimmtán kílóum af
amfetamíni og rúmum tíu kílóum
af kannabisefnum sem falin höfðu
verið í bensíntanki BMW-bifreið-
ar. Að auki var nokkurt magn af
fíkniefnum sem fannst í fórum
þeirra gert upptækt, svo og svört
rafstuðbyssa, hnúajárn og tveir
rýtingar. Refsirammi vegna brota
af þessu tagi getur verið allt að
tólf ára fangelsi.
Mennirnir sem um ræðir heita
Ársæll Snorrason, Hörður Eyjólf-
ur Hilmarsson, Ólafur Ágúst
Hraundal og Johan Hendrik
Engelsman. Fimmti maðurinn,
Íslendingur um tvítugt, kemur
einnig við sögu í þessu máli en bifreiðin sem notuð var til smygls-
ins var skráð á hans nafn. Gegn
honum er málið eingöngu höfðað
til upptöku á bílnum, en ákæru-
valdið krefst refsingar yfir ofan-
greindum fjórmenningum.
Hörður Eyjólfur keypti bif-
reiðina í Belgíu, fyrir milligöngu
Johans Hendriks, og flutti hana
frá Rotterdam til Reykjavíkur
með Reykjafossi. Þangað kom bif-
reiðin 3. apríl. Daginn eftir fundu
tollverðir samtals um 25,5 kíló af
amfetamíni og kannabisefnum í
bensíntanki hennar. Fíkniefnalög-
reglan tók efnin í sína vörslu en
setti í stað þeirra gerviefni í tank-
inn. Einnig hófst hlerun símtala
hinna grunuðu.
Hörður Eyjólfur fékk bílinn
tollafgreiddan og afhentan tíu
dögum eftir að hann kom til lands-
ins. Hann geymdi bílinn á bif-
reiðastæði við heimili sitt að
Austurbrún 2. Þangað sóttu þeir
Johan Hendrik, Ársæll og Ólafur
Ágúst bílinn og fóru með hann í
iðnaðarhúsnæði að Krókhálsi 10.
Þeir voru í önnum við að losa
efnin úr honum þegar þeir voru
handteknir af lögreglu. Í herbergi
sem Ólafur Ágúst hafði til umráða
á Hótel Fróni við Laugaveg fann
lögreglan svo nokkurt magn af
kannabis, amfetamíni og kókaín-
efnum.
Auk ofangreindra brota er
Ólafur Ágúst ákærður fyrir til-
raun til að smygla fartölvu, að
verðmæti 168 þúsund krónur, sem
hann hafði keypt í Singapúr, til
landsins. jss@frettabladid.is
KRÓKHÁLS 10 Þangað fóru fíkniefnasmyglararnir með BMW-bifreiðina til að losa
fíkniefnin úr henni. Þeir voru handteknir á staðnum.
Fíkniefnasmyglara
bíða þungir dómar
Þrír Íslendingar og Hollendingur geta átt yfir höfði sér þunga dóma eftir að
þeir reyndu að smygla um 25,5 kílóum af kannabisefnum og amfetamíni til
landsins. Mál gegn þeim var þingfest í Héraðsdómi í gær.
SMYGLSAGAN
3. apríl Smyglbíllinn kemur til
landsins.
4. apríl Tollverðir finna fíkni-
efnin.
11. apríl Hörður Eyjólfur sækir
bílinn.
13. apríl Johan Hendrik kemur
til landsins.
13. apríl Farið með bílinn að
Krókhálsi 10.
13. apríl Lögreglan handtekur
fjórmenningana.
4. október Ríkissaksóknari ákærir
mennina.
26. október Málið gegn þeim þing-
fest í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
BAUGSMÁL Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, segir ákæruvaldið í Baugsmálinu
styðja mál sitt með gögnum sem óheimilt sé að
nota til stuðnings þeim sakarefnum sem þau séu
notuð til. „Jón H.B. hefur sagt sjálfur opinberlega
að það sé óheimilt að nota gögnin vegna annarra
sakarefna en er tilgreint í réttarbeiðninni til
lögregluyfirvalda í Lúxemborg. Í réttarbeiðninni
eru fjárdráttur, fjársvik, peningaþvætti og
innherjasvik nefnd sem sakarefni. Þess vegna tel
ég það alveg ljóst, að það sé óheimilt að nota
gögnin til stuðnings öðrum ákæruefnum.“
Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær eru
gögn í Baugsmálinu, sem óskað var eftir á grund-
velli gruns um að Tryggvi Jónsson og Jón Ásgeir
Jóhannesson hafi gerst sekir um fjárdrátt,
peningaþvætti, fjársvik og innherjasvik, notuð til
að styðja við ákæruliði númer 11, 12 og 17 í
Baugsmálinu. Þeir ákæruliðir tengjast allir
meiriháttar bókhaldsbrotum, en ekki þeim
sakarefnum sem nefnd eru í réttarbeiðninni.
Sigurður Tómas Magnússon var ekki tilbúinn til
þess að fjalla um þessi málefni þegar blaðamaður
leitaði eftir því. „Þetta er eitt af mörgum ágrein-
ingsmálum sem fjallað verður um fyrir dómi.“ - mh
Deilt er um hvort ákæruvaldið misnoti gögn við sönnunarfærslu í Baugsmálinu:
Gögn styðja við bókhaldsbrot
SIGURÐUR TÓMAS
MAGNÚSSON Sækir
málið fyrir hönd
ákæruvaldsins.
DÓMSMÁL Aðalmeðferð hófst í
gær í Héraðsdómi Austurlands í
máli gegn mótmælendum við
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Þrír Íslendingar eru meðal
sakborninga en einungis tveir
þeirra mættu fyrir dóminn.
Fastlega er búist við að
handtökuskipun verði gefin út á
hendur þeim þriðja. Enginn
erlendu sakborninganna mætti
enda var búið að taka af þeim
skýrslur áður en þeir yfirgáfu
landið. Upphaflega voru fimmtán
mótmælendur ákærðir en ekki
tókst að birta þremur þeirra
ákæru og var því fallið frá ákæru
í þeim tilfellum. - þsj
Mótmælendur fyrir dómi:
Einungis tveir
af tólf mættu
Gylfi Þorkelsson bæjarfulltrúi í
Árborg segir yfirgang „að því er
virðist þekktra aðila sem stunda
snertilendingar á Selfossflugvelli“
svo alvarlegan að grípa verði til ráða
sem dugi. „Flugníðingum á ekki
að líðast framferði sitt fremur en
ökuníðingum á vegum úti,“ segir í
bókun Gylfa í bæjarráði.
ÁRBORG
Flugníðingar á Selfossi
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti
Brasilíu, er með mikið fylgisforskot
á áskorandann Geraldo Alckmin,
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
skoðanakönnunar fyrir úrslita-
umferð forsetakosninga í landinu á
sunnudag. Lula mælist með 63 pró-
senta fylgi en Alckmin 37 prósent.
BRASILÍA
Lula með mikið forskot