Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 16
27. október 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Velkominn
í heim
Harris Tweed
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Bryndís Ísfold Hlöðvers-
dóttir býður sig fram í 6.
sæti Samfylkingarinnar.
Bætt aðstaða dægur-
tónlistarfólks er henni
hugleikin enda hefur bróðir
hennar verið að gera góða
hluti í ýmsum böndum sem
Árni plús einn.
„Fólk spyr mig oft um Árna bróður.
Ég segi að það sé allt á fullu hjá
honum í tónlistinni og þá spyr það
oftar en ekki: Já, en er hann ekkert
að vinna? Þetta finnst mér alveg
galið viðmót, en því miður er það
mjög algengt, jafnt hjá almenningi
og núverandi stjórnvöldum. Þetta
er stórfurðulegt í ljósi þess hvað
íslensk tónlist hefur gert fyrir
ímynd landsins og ferðamennsk-
una. Í stuttu máli snúast mínar hug-
myndir um tvennt. Að aðstoða gras-
rótina og að að styrkja útflutning á
tónlist. Kvikmyndamiðstöð hefur
sannað sig og ég vil sjá sams konar
miðstöð fyrir poppara. Við þurfum
ekki annað en að skoða sænsku leið-
ina til að sjá að ríkisstyrkir borga
sig í menningarstarfsemi. Svíar
lögðu peninga í poppið og nú er
einna mesti vöxturinn þar.“
„Britney Spears fer til Svíþjóð-
ar þegar hana vantar gott popp-
lag,“ botnar Árni.
Bryndís
hefur gefið út
safndisk sem
hún gefur á kosningaskrifstofu
sinni á Laugavegi. Þar má líka fá
bleikt popp. Hún heldur tónleika
annað kvöld á Café Cultura þar
sem Capybara, Retro Stefson og
Elín Eyþórs koma fram. „Allir fá
borgað fyrir að spila,“ segir
Bryndís, sem greinilega stendur
við stóru orðin.
Systkinin hafa alltaf staðið
saman. „Þegar ég var tíu ára vildi
ég horfa á kosningavöku í sjón-
varpinu,“ segir Bryndís, sem fékk
stjórnmálaáhugann snemma. „Ég
var í tjaldútilegu með vinkonum
mínum í garðinum og dró þangað
ferðasjónvarp. Vinkonurnar voru
fljótar að láta sig hverfa en Árni,
þá 5 ára, horfði með mér allan tím-
ann.“
„Ég man ekki betur en ég hafi
orðið fárveikur eftir þetta,“ segir
Árni og hlær. gunnarh@frettabladid.is
Hannes í þremur
bindum
„Þá kom greinilega í ljós að
í frjálsu samfélagi er hægt
að skrifa ævisögu um hvern
sem er, jafnvel í óþökk
viðfangsefnisins og nánustu
aðstandenda þess, án þess
að fá skammir fyrir.“
ÓTTAR MARTIN NORÐFJÖRÐ SEM
TEKUR ÆVISÖGU HANNESAR
HÓLMSTEINS UM LAXNESS TIL FYRIR-
MYNDAR OG SKRIFAR ÆVISÖGU
HANNESAR Í ÞREMUR BINDUM.
Fréttablaðið 26. október
Freka kerlingin í
búðinni
„Var hún óbeint að segja
að hún þekkti leikreglur
siðmenntaðs samfélags
(að hún væri ekki fáviti) en
henni stæði bara á sama um
þær?“
BERGSVEINN BIRGISSON RITHÖF-
UNDUR BER SAMAN HÁTTALAG
FREKRAR KERLINGAR Í BÚÐ OG
ÍSLENSKRA RÁÐAMANNA.
Fréttablaðið 26. október.
■ Hrefnur synda um sjóinn og bíða
eftir að komast á grill landsmanna,
gegnsósa af gómsætum krydd-
blöndum. Ekki eru
allir á eitt sáttir um
það hversu margar
hrefnur svamla hér við
land. Þeir bjartsýnustu
hjá Hafrannsókna-
stofnuninni segja að
þetta séu ein 44 þúsund dýr, en
svartsýnu hvalskoðunarkarlarnir
segja að þetta séu ekki nema fjögur
þúsund, í mesta lagi um tíu þúsund
dýr. Það eru þó mun fleiri hrefnur
en þær sem dvelja ofansjávar því
samkvæmt þjóðskrá eru aðeins
602 sem heita Hrefna að fyrsta
eiginnafni og 120 sem heita Hrefna
að öðru eiginnafni.
HREFNUR:
FLEIRI Í SJÓNUM
Leigubílstjórar finna fyrir síauknu áreiti og
jafnvel ofbeldi í starfi og í bígerð er að setja
GPS-staðsetningartæki og jafnvel mynda-
vélar í leigubílana. Jón Gnarr rithöfundur
keyrði leigubíl í tvo vetur á síðasta áratug.
„Mér finnst mjög sniðugt að setja upp sem
mest af öryggisdóti,“ segir hann. „Það þarf
bara eitthvað svona til að halda aftur af
sumu fólki. Það ætti náttúrlega að vera
öryggisplast á milli farþega og bílstjóra eins
og er hjá öllum siðmenntuðum þjóðum.
Það er ekki bara gagnlegt heldur líka mjög
töff.“
Einu sinni var ráðist á Jón. „Ég var með
mann í bílnum á Bústaðavegi. Hann var
dópaður og ruglaður en við vorum bara að
spjalla í mestu makindum. Allt í einu spratt
hann upp og tók mig hálstaki aftan frá. Ég
snarhemlaði og losaði mig. Það var lítið
mál enda er ég með appelsínugula beltið
í júdó. En ég var marinn á hálsinum eftir
þetta.“
SJÓNARHÓLL
ÖRYGGISMÁL LEIGUBÍLSTJÓRA
Hálstak á Bústaðavegi
JÓN GNARR
Rithöfundur
Á seinni árum hefur póker átt miklum vinsældum að
fagna víða um heim og kemur margt til, ekki síst veg-
legt verðlaunaféð. Í fjögur ár hefur verið hægt að
fylgjast með snjöllustu pókerspilurum heims leika
listir sínar á Sýn á föstudagskvöldum. Gísli Ásgeirs-
son sér um að lýsa leiknum og þykir hann fara á kost-
um í lýsingum sínum.
„Ég er nú enginn forfallinn pókerspilari þótt ég
hafi gripið í þetta í menntaskóla. Það var reyndar
bara upp á eldspýtur eða sykurmola,“ segir Gísli. „Ég
er alls enginn sérfræðingur og las mér bara vel til
áður en ég byrjaði. Ég spila stundum á netinu en
aldrei upp á alvöru peninga. Allir menn eru fíklar í
sér og það þarf alltaf að ganga út frá því að maður
tapi. Sú hlið sem snýr að spilafíkn er alvarleg og
á ekki að hafa í flimtingum.“
Oft byrja um 500 manns á fjölmörgum borð-
um og eftir fjóra daga er hópurinn kominn
niður í þá sex sem spila í þættinum. Hver
spilari greiðir 10.000 dali í þátt-
tökugjald svo potturinn er
ansi stór. „Hundrað efstu fá
eitthvað og í síðasta leik sem
ég lýsti fékk sigurvegarinn
1,2 milljónir dali. Það eru
komnar grúppíur í þetta
sport og fyrir utan hallirnar
er oft gargandi lið sem vill fá
eiginhandaráritun. Það er þó
enginn Beckham í þessu
ennþá, en fullt af Eiðum. Doyle Brunson er kannski
frægasti pókerspilarinn. Hann er 72 ára og mikið
seleb, svo ég leyfi mér að sletta.“
Gísla kom mjög á óvart að jafn einfaldur leikur og
póker gæti orðið að fínu sjónvarpsefni. Hann finnur
fyrir góðu áhorfi og fær mikil viðbrögð. Gísli segir
að hver lýsing sé níutíu mínútur af stanslausum
kjaftagangi. „Maður er oft orðinn ansi þurr í munnin-
um þegar leiknum lýkur. Ég reyni að hafa þetta
skemmtilegt og klæmist aðeins inn á milli. Maður er
með ýmis orð yfir spil á hendi. Til dæmis gengur nía
og fimma undir nafninu Dolly Parton í höfuðið á kvik-
mynd söngkonunnar; tvær drottningar eru kenndar
við einhverjar dömur sem eru í umræðunni á
hverjum tíma og það sem kallað er „open
ended straight row“ kalla ég Framsóknar-
röð. Hún er jú opin í báða enda eins og flokk-
urinn.“
Gísli hefur ekki enn látið verða af því að
heimsækja heimaland pókerleikjanna,
Bandaríkin, en segist gjarnan vilja kíkja við
tækifæri. „En ég myndi ekkert fylgj-
ast með póker, held ég. Miklu frek-
ar reyna að komast í eitthvað
gott maraþonhlaup sem er
aðaláhugamálið mitt.“ - glh
Lýsir póker með tilþrifum á Sýn:
Oft ansi þurr í munninum
GÍSLI ÁSGEIRSSON SEGIR PÓKERINN
VINSÆLAN „Það er enginn Beckham í
þessu ennþá, en fullt af Eiðum.“
Poppar í prófkjöri
RÍKIÐ Á AÐ
ROKKA Líklega
eini prófkjörs-
safndiskurinn í ár.
„Það er allt það besta að frétta,“ segir
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir. „Ég er
alltaf að elda hérna í Sjávarkjallar-
anum og það er alltaf brjálað að
gera. Svo er ég nýorðin yfirkokk-
ur. Því fylgir meiri ábyrgð og það
er líka öðruvísi vinna: Maður
er meira að snúast eitthvað en
beinlínis að elda. Núna erum
við að undirbúa sérstakt jóla-
þema á exótíska matseðlinum
okkar sem margir þekkja. Þetta
eru hálfgerð míní-hlaðborð
sem eru sett á hvert borð fyrir
sig og eru ætluð öllum við borðið.
Á þessum jólamatseðli verðum
við með jólalegan mat eins og
til dæmis hreindýr,
héra og lynghænu.
Við í kokkalandsliðinu erum síðan
á leið til Lúxemborgar í nóvem-
ber. Tökum þar þátt í árlegri
heimsmeistarakeppni kokka.
Ólympíuleikar kokka voru
einmitt haldnir í Lúxemborg
árið 2002 og þá lentum við í 9.
sæti. Um helgina förum við í
kokkalandsliðinu í æfingabúðir
á Hótel Geysi.“
Yfirkokkurinn segir að
Sjávarkjallarinn hafi einstaka
sinnum boðið upp á hvalkjöt,
en það er ekki í boði eins og
er. „Hvalkjöt getur verið mjög
gott hráefni og þá sérstaklega
hrefnan,“ segir Hrefna að
lokum.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HREFNA RÓSA JÓHANNSDÓTTIR YFIRKOKKUR
Æfir fyrir heimsmeistarakeppnina
F80261006 hrefna
BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERS-
DÓTTIR OG ÁRNI BRÓÐIR
HENNAR Samrýmd og umhug-
að um poppara landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA