Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 18
27. október 2006 FÖSTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
XX
X.
XX
X
2005
XX
X.
XX
X
4. ársfj.
SPURT & SVARAÐ
FRÍTT INTERNET Í MIÐBÆNUM
Getur verið
hagkvæmt
Stefán Jón Hafstein hefur sett fram
tillögu í menningar- og ferðamála-
ráði Reykjavíkur um að setja upp
þráðlaust, gjaldfrjálst internet í
miðbænum.
Heldur þú að fjarskiptafyrirtækin
taki vel í tillögu þína?
Þau eiga viðskiptahagsmuna að
gæta og þess vegna verður aðgang-
urinn kannski takmarkaður við að
menn geti sótt tölvupóst og heim-
sótt algengar fréttasíður, en þurfi að
greiða fyrir annað.
Hver er kostnaðurinn við þetta
fyrir fjarskiptafyrirtækin?
Ég ætlast ekki til að fyrirtækin
gefi þessa þjónustu. Sums staðar
hefur þetta verið fjármagnað með
auglýsingum og með sölu á viðbót-
arþjónustu. Það eru ýmsir mögu-
leikar til að gera þetta viðskiptalega
hagkvæmt fyrir þau.
Á ekki bara að setja upp gjald-
frjálst internet á öllu höfuðborg-
arsvæðinu?
Jú, það er framtíðin og hefur verið
gert í ýmsum borgum í Bandaríkj-
unum.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Borgarfulltrúi
Umdeild saga af áfengisdrykku hagamúsar í
samræmdu prófi hjá níu ára börnum hefur
verið í fréttum undanfarið. Hafa margir lýst
yfir óánægju með að rætt sé á þennan hátt
um drykkju við ung börn. Sum þeirra búi við
misnotkun á áfengi heima hjá sér og ekki
eigi að taka svona aðstæður inn í próf hjá
þeim.
Hve oft neyta Íslendingar áfengis að
jafnaði? Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands
frá árinu 2002 yfir áfengisneyslu Íslendinga
á aldrinum 15 ára til 80 ára neyta 44 pró-
sent karla bjórs einu sinni eða oftar í viku á
móti 19 prósentum kvenna. 20 prósent karla
og 16 prósent kvenna neyta léttvíns jafn oft
og tíu prósent karla og tvö prósent kvenna
neyta sterks víns jafn oft.
Um 32 prósent karla og 31 prósent kvenna
neyta bjórs einu sinni til þrisvar í mánuði.
35 prósent karla og 33 prósent kvenna
neyta léttvíns jafn oft og 36 prósent karla
og 18 prósent kvenna neyta sterks víns jafn
oft.
Um 23 prósent karla og 49 prósent
kvenna neyta aldrei bjórs. 45 prósent karla
og 50 prósent kvenna neyta aldrei léttvíns.
54 prósent karla og 80 prósent kvenna
neyta aldrei sterks víns.
Hverjar eru afleiðingar óhóflegrar áfeng-
isdrykkju? Langvarandi ofneysla áfengis
veldur neytendum vannæringu, lifrarbólgum,
briskirtilsbólgum, vöðvarýrnun og ýmiss
konar skemmdum á heila og taugum. Hún
dregur úr kyngetu karla og kvenna og getur
með reykingum aukið líkur á ýmsum gerðum
krabbameins. Ofneysla áfengis er kostnaðar-
söm fyrir þjóðfélagið meðal annars vegna
fósturskemmda, slysa, afbrota, sjálfsvíga,
morða og vinnutaps. Talið er að allt að helm-
ing banaslysa í umferðinni megi rekja til ölv-
unar og að sama prósentutala eigi við þegar
morð eru framin. Tæpan þriðjung sjálfsvíga
og drukknana má einnig rekja beint til ölv-
unar.
FBL-GREINING: ÁFENGI
Áfengisneysla og afleiðingar
Íslendingar eru leiðandi
í bleikjueldi á heimsvísu.
Ljóst er að framboð á eld-
isbleikju mun aukast mikið
á næstu árum og talið er
líklegt að hið aukna fram-
boð muni koma frá Íslandi
að mestu leyti.
Síðasta áratug jókst heimsfram-
leiðsla á bleikju stöðugt og nam
ársframleiðslan rúmum 2000 tonn-
um í lok áratugarins. Árið 2001 fór
heimsframleiðsla á bleikju yfir
3000 tonn en hefur síðan dregist
saman. Af einstökum löndum er
mest framleitt á Íslandi og árið
2003 framleiddu Íslendingar helm-
ing allrar eldisbleikju í heiminum.
Íslendingar eru eina þjóðin sem
flytur eldisbleikju á erlenda mark-
aði, helst til Bandaríkjanna og
nokkurra Evrópuríkja. Ráðstefna
um framtíðarsýn og stefnumótun í
íslensku bleikjueldi verður haldin í
dag á Hótel Loftleiðum.
Bleikjueldi nær hármarki 2003
Klak á bleikjuhrognum til fisk-
ræktar hófst við Mývatn svo
snemma sem árið 1910. Á þriðja
áratugnum voru starfandi mörg
klakhús, sem framleiddu kviðpoka-
seiði til sleppingar í ár og vötn. Á
árinu 1961 hófst framleiðsla á
bleikjuseiðum í Laxeldisstöð ríkis-
ins í Kollafirði og allt til ársins
1980 var stundað matfiskeldi á
bleikju í stöðinni. Framleiðslan var
þó í smáum stíl og var mest selt af
matfiski á árinu 1974 eða 1,3 tonn.
Á tímabilinu 1973 til 1975 var einn-
ig stundað matfiskeldi á bleikju
hjá fyrirtækinu Tungulaxi í Land-
broti og að Öxnalæk í Ölfusi.
Það var ekki fyrr en eldisstöðin
Smári hf. í Þorlákshöfn hóf
bleikjueldi í strandeldisstöð sinni,
að matfiskeldi jókst að einhverju
marki. Framleiðendum fjölgaði
ört og árið 1992 voru um 38 stöðv-
ar með bleikjueldi. Nú á seinni
árum hefur bleikjueldisstöðvum
fækkað en þær stækkað. Mikil
aukning varð á bleikjuframleiðslu
upp úr 1990 og náði hún hámarki,
um 1.700 tonnum, á árinu 2003. Á
árinu 2004 var eldi á bleikju stund-
að á að minnsta kosti fimmtán
stöðum. Flestar þessara stöðva eru
litlar og aðeins fjórar þeirra með
yfir hundrað tonna ársframleiðslu.
Fyrirtækið Silungur var lengi með
stærstu bleikjueldisstöð í heimi,
með um fimmtíu prósent af árs-
framleiðslunni hér á landi, en
Samherji hf. hefur tekið við
rekstri þess í gegnum dótturfélag
sitt Oddeyri ehf.
Yfirburðir Ölvesbleikjunnar
Árið 1989 hófst samanburður á
bleikjueldisstofnum til að finna
hentuga stofna til kynbóta á Íslandi.
Markmið tilraunarinnar var að
bera saman bleikjustofna í eldi,
allt frá klaki og þar til sláturstærð
var náð, með tilliti til vaxtargetu,
kynþroskaaldurs og ytra útlits.
Fengnir voru klakfiskar af fjórtán
stofnum við upphaf verkefnisins.
Tveir af stofnunum höfðu verið í
eldi í eina til þrjár kynslóðir; Hóla-
bleikja og Eldvatnsbleikja, en hinir
komu úr ám og vötnum. Í ljós kom
að bleikjustofninn úr Ölvesvatni á
Skaga sýndi yfirburði í hröðum
vexti og kynþroski kom ekki fram
fyrr en á þriðja ári eða síðar. Tölu-
verður munur kom fram milli
stofna í útlitseinkennum, sérstak-
lega í litstyrk og litblæ og kom í
ljós að Ölvesvatnsbleikjan er
almennt öðruvísi á litinn en aðrir
stofnar, mjög ljós og grænleit. Hún
var einnig þykkvaxnari en aðrir
stofnar og flakanýting hennar
reyndist betri.
Allt frá því að samanburður á
bleikjustofnum hófst hafa verið
unnin mörg rannsóknar- og þróun-
arverkefni er tengjast kynbótum á
bleikju. Skipulagðar kynbætur hóf-
ust hjá Hólaskóla árið 1992. Nú eru
kynbættir tveir aðskildir stofnar
með mismunandi roðlit. Þetta eru
ljós stofn, að mestu upprunninn úr
Ölvesvatni, og dökkur stofn úr
Grenlæk, Litluá og fleiri ám. Kyn-
bæturnar fara fram í kynbótastöð
á Hólum í Hjaltadal og Stofnfiskur
hf. hefur einnig stundað kynbætur
síðan 1991 með vali á eldisstofni
sem upprunalega er kominn úr
Grenlæk. Þar hefur tveimur stofn-
um verið bætt við eldið, sem ættað-
ir eru úr Litluá og Mývatni.
Tvö til fimm hundruð tonn í Noregi
Svíar, Norðmenn og Kanadamenn
eru stærstu framleiðendur eldis-
bleikju ásamt Íslendingum. Svíar
hófu að þróa sitt eldi í byrjun
níunda áratugarins en áður hafði
nokkuð verið framleitt til slepp-
inga. Framleiðslan jókst mikið
eftir 1997 og var hún tæp 800 tonn
árið 2001. Eldi var mest í 25 stöðv-
um árið 1998 en þær voru fimmt-
án árið 2004.
Á síðustu tíu árum hefur fram-
leiðsla í Noregi aukist úr sjö tonn-
um árið 1988 í tvö til fimm hundr-
uð síðustu tíu ár. Megnið af þeirri
bleikju er framleitt í tveimur
stöðvum í Norður-Noregi. Áhugi
hefur lengi verið mikill fyrir
bleikjueldi í Kanada. Árið 1992
voru sjö eldisstöðvar í New Bruns-
wick og tíu stöðvar voru með til-
raunaeldi í Québec. Í úttekt á
bleikjueldi árið 2000 var áætlað að
960 tonn af bleikju hefðu verið
framleidd það ár og mest í fylkj-
unum á austurströndinni; New
Brunswick, Nova Scotia og Prince
Edward Island.
Átak til framtíðar
Bleikja er afburða góður matfisk-
ur og fyrir hana fæst hærra verð
en fyrir lax og regnbogasilung. Því
er spáð að framleiðsla eldisbleikju
á Íslandi verði um 4.500 tonn árið
2009 og mikil tækifæri felast því í
að styrkja bleikjueldi hérlendis á
næstu árum, sérstaklega í ljósi
þess að aðstæður til eldisins eru
betri hér en í samkeppnislöndum
við Norður-Atlantshaf.
Íslendingar fremstir í bleikjueldi
ELDISBLEIKJA Klakfiskar í eldiskari hjá bleikjueldisstöðinni í Haukamýrargili á Húsavík. MYND/GUÐBERGUR RÚNARSSON
Bleikjan er álitleg eldistegund fyrir íslenskar aðstæður,
vex vel við lágt hitastig og mikinn þéttleika, hún er harð-
gerð tegund sem þolir meðhöndlun vel og virðist hafa
nokkuð góða mótstöðu gegn margs konar sjúkdómum.
Við samanburð á samkeppnishæfni bleikjueldis á
milli landa vega landfræðilegar aðstæður þyngst. Ekkert
samkeppnislanda Íslands, Svíþjóð, Noregur og Kanada,
hefur þá gnótt af lindarvatni, jarðhita og jarðsjó sem er
að finna hér á landi þar sem hægt er að skapa kjörað-
stæður fyrir bleikjuna með tilliti til hita og seltu. Aðstæð-
ur hér á landi gera kleift að byggja mjög stórar stöðvar
og ná þannig stærðarhagkvæmni í framleiðslunni. Í
samkeppnislöndunum er takmarkað aðgengi að grunn-
vatni og vandamál með of heitt yfirborðsvatn á sumrin
fyrir bleikjueldi í körum og kvíum. Vegna takmarkaðs
grunnvatns og dýrrar orku þurfa samkeppnisaðilar að
nota dýr hringrásarkerfi til að endurnýta vatn í strand- og
landeldisstöðvum.
Íslendingar hafa ekki síst sérstöðu í eldi sjávarbleikju
vegna greiðs aðgangs að ósöltu vatni í stórum landstöðv-
um. Slíkur aðgangur er óalgengur hjá samkeppnisþjóð-
um okkar og takmarkar vöxt annarra landa í bleikjueldi.
NÁTTÚRULEGT BLEIKJUELDISLANDEkkert blað?
550 5600
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja ef blaðið berst ekki.
- mest lesið
BLEIKJUELDI ÁRIÐ 2004 Helstu fyrirtæki með hrogna-
framleiðslu, seiðaeldi og matfiskeldi á bleikju árið
2004. Fyrirtækin Silungur og Íslandslax eru nú rekin
af Oddeyri, dótturfyrirtæki Samherja, undir merkjum
Íslandsbleikju.
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Heimild: Hagstofa Íslands
Svona erum við
> Fjöldi skráðra togara á Íslandi
20021999
91
76
65
Heimildir: Hagstofa
Íslands og SÁÁ