Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 20
27. október 2006 FÖSTUDAGUR20
Margir bíða spenntir eftir
niðurstöðum úr prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, sem hefst í
dag. Blaðamaður lagði tíu
spurningar fyrir frambjóð-
endur í fjögur efstu sætin í
prófkjörinu, til þess að gefa
lesendum kost á afgerandi
svörum við pólitískum
spurningum.
Afdráttarlaus svör stjórnmála-
manna við skýrum spurningum eru
sjaldgæf í stjórnmálum. Líklega er
það ótti þeirra við viðbrögð kjós-
enda sem veldur því að þeir eru
varir um sig þegar kemur að því að
segja já eða nei við spurningum
sem kalla á svör af því tagi.
Svör frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins við spurningum sem
blaðamaður lagði fyrir gefa vís-
bendingar um pólitískar hugsjónir
þeirra, þótt vitanlega veki þau upp
aðrar spurningar sem ekki er síður
mikilvægt að svara.
Þrír frambjóðendur í efstu fjög-
ur sætin; Birgir Ármannsson, Ill-
ugi Gunnarsson og Geir H. Haarde,
sáu sér ekki fært að svara spurn-
ingunum. Geir gat það ekki sökum
anna, Illugi Gunnarsson sagði að
sér hentaði ekki „að taka þátt í
svona já og nei prófi“ því hann
taldi spurningarnar kalla á meiri
alvöru umræðu en svo. Birgir
svaraði ekki spurningunum, af
sömu ástæðum og Illugi.
Athyglisverð svör vekja spurningar
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, segir svör frambjóðend-
anna athyglisverð og draga fram
sýn, sem eðlilegt sé að veki umræð-
ur. „Þó að þetta séu stutt svör, og
ekki ítarleg, þá er margt í þessum
svörum sem vekur athygli. Fram-
bjóðendur virðast vera nokkuð
ósamstíga er kemur að frekari nýt-
ingu orkuauðlinda fyrir álver, sem
í ljósi umræðu síðustu ára er mál
sem almenningur í landinu hugsar
mikið um. Þá er einnig greinilegt
að ekki er einhugur um það hvort
hið opinbera styður nægilega við
háskóla í landinu. Það er því aug-
ljós ágreiningur um þetta tvennt.“
Þarf að taka á fíkniefnavanda
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins eru sammála um að nauðsyn-
legt sé að taka á fíkniefnavandan-
um af meiri mætti en gert hefur
verið á undanförnum árum. Bald-
ur segir hægt að túlka það sem
áfellisdóm yfir verkum stjórn-
valda í þessum málaflokki. „Flest-
ir framjóðendur eru sammála um
að stjórnvöld geri ekki nóg til þess
að sporna við fíkniefnavandanum.
Það er, að mínu mati, ákveðinn
áfellisdómur yfir verkum stjórn-
valda í þessum málaflokki því
frambjóðendurnir eru í ríkis-
stjórnarflokki sem farið hefur með
stjórn í landinu um langt skeið.“
Samgöngur og Írak
Augljóst er á svörum frambjóð-
enda að skiptar skoðanir eru um
það hvort rétt hafi verið að ráðast í
gerð Héðinsfjarðarganga, þrátt
fyrir að göngin hafi verið á stefnu
ríkisstjórnarinnar um langt skeið.
„Það vekur athygli mína, að skipt-
ar skoðanir séu um Héðinsfjarðar-
göng og ekki síst að nær allir fram-
bjóðendur vilji Reykjavíkurflugvöll
úr Vatnsmýrinni, sem ég held að
gangi þvert á stefnu samgönguráð-
herra,“ segir Baldur.
Þá sagðist Baldur ekki geta
framhjá því horft, að athyglisvert
væri að frambjóðendur væru á
einu máli um að stuðningur
íslenskra stjórnvalda við innrás-
ina í Írak væri ekki mistök, sér-
staklega í ljósi afleiðinganna sem
innrásin hefði haft. „Það vekur
athygli að frambjóðendur virðast
á einu máli um að stuðningur
íslenskra stjórnvalda við innrás-
ina í Írak hafi verið réttmætur.
Það er athyglisvert í ljósi þess
hvernig ástandið í Írak er nú.“
Eining um réttmæti innrásarinnar í Írak
FRÉTTASKÝRING
MAGNÚS HALLDÓRSSON
magnush@frettabladid.is
Spurningarnar tíu sem lagðar voru fyrir
1. Var stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak mistök?
2. Á að færa Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni?
3. Heldurðu að einhverjir símar í utanríkisráðuneytinu hafi verið hleraðir
eftir 1991?
4. Var rétt að ráðast í byggingu tónlistarhúss í Reykjavík?
5. Var rétt að ráðast í gerð Héðinsfjarðarganga?
6. Eiga íslenskir lögreglumenn að bera vopn á götum úti, í daglegum
störfum?
7. Gera íslensk stjórnvöld nóg til þess að sporna við fíkniefnavandanum?
8. Á að vinna að frekara samstarfi ríkis og einkaaðila í heilbrigðiskerfinu?
9. Styður hið opinbera nægilega við háskóla í landinu?
10. Ertu hlynnt/hlynntur frekari nýtingu orkuauðlinda fyrir álver?
1. Nei, á þeim
tíma var það
rétt ákvörðun.
2. Já.
3. Nei. Finnst það ósennilegt,
en ef svo hefur verið þarf að
upplýsa hver það var og í hvers
umboði.
4. Já.
5. Ég hef alltaf haft efasemd-
ur um þess framkvæmd,
kostnaðarins vegna. En göngin
breyta augljóslega miklu fyrir
samfélagið.
6. Nei.
7. Nei. Það er alltaf hægt að gera
betur þó stjórnvöld hafi staðið
sig með sóma.
8. Já.
9. Nei. Menntunarmál þurfa að
vera í öndvegi. Gera þarf enn
betur.
10. Já, að því tilskildu að gætt verði
að náttúrusjónarmiðum og
sjálfbærri nýtingu.
3. sæti
ÁSTA
MÖLLER
1. Nei. Miða
þarf við þann
tíma og það ástand sem ríkti,
þegar ákvörðunin var tekin, þó
ástandið nú sé hrein hörmung.
Viðskiptabann Sameinuðu
Þjóðanna olli dauða hundruða
barna á dag og annaðhvort var
að hætta við það eða að grípa
til harðra aðgerða.
2. Já.
3. Nei.
4. Nei.
5. Já. Þegar bankarnir voru seldir
var um það rætt að hluti kaup-
verðsins rynni til þessara fram-
kvæmda. Vegaframkvæmdir
eru fyrir alla þjóðina en ekki
einstaka landshluta.
6. Nei.
7. Nei.
8. Já.
9. Nei.
10. Já. Ég er hlynntur skynsamlegri
nýtingu auðlinda þar sem tekið
er tillit til umhverfisverndar.
Skoða þarf fleiri nýtingarmögu-
leika á orkunni en til áliðnar.
2.-3. sæti
PÉTUR
BLÖNDAL
1. Nei, ekki
frekar en
aðgerðirnar í Afganistan og
Kosovo.
2. Já, ef það finnst staður á höfuð-
borgarsvæðinu sem þjónar
sama hlutverki.
3. Veit ekki. Sérkennilegt ef ráð-
herra í ríkisstjórn Íslands lætur
sér í léttu rúmi liggja ef einhver
er að hlera hann.
4. Já.
5. Nei.
6. Nei.
7. Nei, það er eilífðarverkefni að
berjast gegn þeim vágesti.
8. Já. Það er mikilvægt að þjón-
ustan verði ekki öll á hendi
sömu aðila þrátt fyrir að hið
opinbera greiði reikninginn.
9. Já. Ég tel mikilvægt að einka-
aðilar komi í auknum mæli að
starfsemi skóla í landinu.
10. Ég er fylgjandi nýtingu
orkuauðlinda í góðri sátt við
umhverfið. Það er svo annað
mál hvert við seljum orkuna.
2. sæti
GUÐLAUGUR
ÞÓR
ÞÓRÐARSON
1. Nei, ekki
á þeim
forsendum sem lágu fyrir.
2. Já.
3. Nei.
4. Nei. Ég er ekki á móti tón-
listarhúsi, en set fyrirvara við
aðkomu hins opinbera að
byggingunni.
5. Nei. Ég hefði frekar viljað sjá
fjármununum varið til vega-
mála hér í Reykjavík.
6. Nei.
7. Nei, en það þurfa allir sem að
þessum málum koma að gera
betur.
8. Já.
9. Já. En það er hægt að gera
betur.
10. Já, enda er ég hlynntur nýtingu
orkuauðlinda.
4. sæti
SIGURÐUR
KÁRI KRIST-
JÁNSSON
1. Nei, ekki í
ljósi fyrirliggj-
andi upplýsinga á þeim tíma
sem ákvörðun var tekin.
2. Já.
3. Nei, ég á bágt með að trúa því.
En það er mikilvægt að upplýsa
málið, í ljósi fullyrðinga um
annað.
4. Já, en ég hefði gjarna viljað að
rými hefði verið þar fyrir fjöl-
breyttari menningastarfsemi. Til
dæmis óperu.
5. Nei.
6. Nei.
7. Nei. Þó mikið hafi verið gert þá
tel ég að meira þurfi að gera.
8. Já, enda reynist slíkt samstarf
hagkvæmara en ríkisrekstur
fyrir skattgreiðendur og not-
endur þjónustunnar.
9. Nei, sérstaklega þarf að efla
rannsóknir við háskólana.
10. Nei, ekki að svo komnu máli.
Ég vil að orkulindir sé nýttar
með gát og náttúruverndar-
sjónarmið í hávegum höfð.
4. sæti
DÖGG
PÁLSDÓTTIR
1. Nei. Með
aðild sinni
að þeim ákvörðunum, sem
teknar voru skipuðu íslensk
stjórnvöld ser í sveit með þeim
ríkjun innan NATO, sem hafa
verið nánustu samvinnuríki
Íslands. Önnur afstaða hefði
þýtt stefnubreytingu og ekki er
unnt að dæma hana frá stöðu
mála um þessar mundir.
2. Vil sjá athuganir, sem unnið er
að, áður en ég tek afstöðu.
3. Hef ekki hugmynd um það, og
fagna því að málið sé í rann-
sókn.
4. Já.
5. Já.
6. Nei.
7. Nei. Á þessu sviði eins og
mörgum öðrum þarf að gera
betur. Ég hef lagt sérstaka
áherslu á, að lögregla hafi þær
heimildir, sem hún þarf til að
hafa í fullu tré við fíkniefnasala.
8. Já.
9. Háskólar hafa verið stórefldir
og það ber að halda áfram á
sömu braut. Hvenær fjármagn
er nægilegt er álitamál hverju
sinni.
10. Nýta þarf orkulindir þjóðarinnar
með virðingu fyrir umhverfi og
náttúru.
2. sæti
BJÖRN
BJARNASON
1. Nei. Það er
ekki hægt að
áfellast þau ríki sem töldu sig
vera að gera rétt með því að
styðja árásina, enda vissum við
ekki þá það sem við vitum nú.
2. Svarið er já ef viðunandi
valkostur fæst. Bíð eftir að sjá
faglegar niðurstöður nefndar
sem vinnur að úttekt um fram-
tíð flugvallarins.
3. Hef ekki forsendur til að meta
það.
4. Já.
5. Hefði ekki sett þau í forgang
en þau stuðla að öryggi og
byggðaþróun sem er jákvætt.
6. Nei.
7. Nei, á meðan vandinn er til
staðar er líklega aldrei nóg gert.
8. Já, aukið samstarf einkaaðila
og ríkis er mikilvægt á þessu
sviði líkt og annars staðar.
9. Nei. Stjórnvöld hafa gert vel en
það þarf að gera enn betur.
10. Skapa þarf sátt um jafnvægi
milli verndar og nýtingar.
3. sæti
GUÐFINNA
BJARNA-
DÓTTIR
1. Nei, ekki eins
og mála-
tilbúnaður var fram settur á
sínum tíma en eftir á að hyggja
voru þetta hryggileg mistök
sem komast hefði mátt hjá.
2. Nei. Flugvallarmálið er í eðlileg-
um farvegi hjá samgönguráðu-
neyti og Reykjavíkurborg.
3. Ég er hvorki miðill né sjáandi
og hef engar forsendur til að
svara þessari spurningu.
4. Já.
5. Nei. Hins vegar hefði átt að
tengja Siglufjörð við Fljótin
inn í Skagafjörð og síðar undir
Lágheiði til Ólafsfjarðar.
6. Nei.
7. Nei. Stemma þarf stigu við
fíkniefnainnflutningi, auka
forvarnir og efla starfsemi SÁÁ.
8. Já.
9. Nei. Efla þarf samvinnu
atvinnulífs og háskóla.
10. Íslendingar geta ekki ekki leng-
ur treyst á hagnýtingu frum-
vinnslu náttúrauðlinda til að
halda samkeppnishæfni sinni
meðal þjóðanna og hagsæld í
framtíðinni.
3.-5. sæti
STEINN
KÁRASON
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS