Fréttablaðið - 27.10.2006, Page 31
RÉTTMETI ER VÖRUMERKI
NÝRRA ÖRBYLGJURÉTTA FRÁ
ÖMMUBAKSTRI.
Hollustan er höfð að leið-
arljósi í samsetningu nýrra
örbylgjurétta sem Ömmu-
bakstur hefur sett á markað.
Þeir eiga að innihalda flest
þau efni sem líkaminn
þarfnast í einni máltíð en í
þeim er enginn viðbættur
sykur, salt eða fita, og
sneitt er hjá litarefnum
og rotvarnarefnum.
Nafnið réttmeti er því
réttnefni.
Um sex mismunandi
matarpakka er að
ræða, tígrisrækjur, kalk-
ún, kjúkling, kjötbollur og
tvo grænmetisrétti. Reyndar
er grænmeti með öllum
réttunum. Þeir gufueldast í
sérhönnuðu boxi sem verður
til þess að þeir halda eins
miklu af næringarefnunum í
sér og mögulegt er.
Boxið er einnig þannig að
umfram orka hitar ekki allt
innra rými örbylgjuofnsins.
30%
3 Útsala20-40% afsláttur
20-30% afsláttur af rúmum
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.54 13.12 17.28
Akureyri 8.47 12.56 17.04
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn 27.
október, 300. dagur ársins
2006.
Ný kynslóð örbylgjurétta
Sex mismunandi réttir
eru í boði sem allir eru
rétt samsett máltíð fyrir
einn einstakling.
HVÍTUR OG SÆTUR
KÓKOS
Þrátt fyrir klunnalegt
útlit er kókoshnetan í
raun fræ úr aldini
kókospálmans
MATUR 2
Paella er spænskur þjóðarréttur, kenndur við pönn-
una sem hann er eldaður á.
„Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá mér en hann lærði
ég af Spánverjum þegar ég var þar veturinn 1997-98 við
nám í lögfræði í Madríd,“ segir Sigríður Andersen en
áður hafði hún eytt nokkrum sumrum í Malaga þar sem
hún lærði spænsku. Paellan sem við fáum uppskrift að
er samsett úr uppáhaldspaellum Sigríðar, en uppruna-
lega er þessi réttur kenndur við borgina Valencia. „Paell-
ur geta verið misjafnar eftir því frá hvaða stöðum þær
koma og hvaða hráefni er notað í þær, en sú sem ég geri
er nokkuð svipuð paellunni frá Valencia. Það er að segja
að í henni eru bæði sjávarréttir og kjúklingur. Svo er í
raun hægt að hafa hvað sem er í þessu. T.d. bara kjúkling
eða sjávarrétti og annað sem er til í ísskápnum.“
Sigríður segist almennt vera mikið fyrir að elda heima
hjá sér þó að undanfarið hafi ekki gefist mikið svigrúm
til þess. „ég á ekki mikinn tíma aflögu í eldamennsku
núna þar sem ég er í framboði í prófkjöri hjá sjálfstæð-
ismönnum,“ segir hún og bætir því við að þess vegna
hafi verið ágætt að elda fyrir ljósmyndara Fréttablaðs-
ins. „Heimilismenn voru glaðir með þetta og fólkið á
kosningaskrifstofunni ánægt að fá eitthvað gott að
borða.“
Á Spáni er þessi matarmikli réttur yfirleitt borinn
fram sem hversdagslegur sunnudagsmatur sem er þá
eldaður að morgni og framreiddur eftir hádegi. Svo má
geyma hann og borða næstu tvo daga, eins og flesta aðra
hrísgrjónarétti. Og talandi um sunnudaga: Sigríður seg-
ist líklega ekki eiga eftir að elda aftur fyrr en á sunnu-
dag. „Prófkjörinu lýkur á morgun og þá á maður eflaust
eftir að elda einhvern fínan rétt á sunnudaginn, svona
þegar umstanginu linnir.“ mhg@frettabladid.is
Saðsöm og
góð paella
Girnilegur réttur með kjúklingi og sjávarréttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bístró er nýtt tímarit um mat
og vín sem er að koma út.
Ritstjóri Bístró er Friðrika Hjördís
Geirsdóttir og aðstoðarritstjóri er
Nanna Rögnvaldardóttir.
Parketútsala stendur yfir í Byko
til 31. október. Á útsölunni má fá
fallegt parkett á allt niður í 2.190
krónur fermetrann.
Pítupakkar frá Goða eru á þrjá-
tíu prósenta afslætti í Krónunni
og kosta því aðeins 664 krónur.
Nettó er með fimmtíu prósenta
afslátt af Basmati og Jasmine
hrísgrjónum frá Náttúru. 3,5
kílóa poki af Basmati-hrísgrjón-
um kostar því aðeins 190 krónur.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ HEILSA ]
BETRA AÐ FÁ
HLAUPABÓLU SEM BARN
Katrín Davíðsdóttir
barnalæknir segir
hlaupabólu mjög smitandi
HEILSA 10