Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 39
FÖSTUDAGUR 27. október 2006 9
Þór Hrafnsson Tulinius leikur
um helgina fimm sýningar í
Borgarleikhúsinu. Þetta gerir
hann þrátt fyrir að vera með
sýkingu í nýrunum.
Það er stór helgi framundan hjá
Þór en á næstu tveimur dögum
tekur hann þátt í tveimur sýning-
um af Mein Kampf, tveimur sýn-
ingum af Ronju, og einni sýningu
af Manntafli. Þetta væri ekki frá-
sögu færandi hefði hann ekki
greinst með nýrnasýkingu fyrr í
vikunni. „Ég fór að finna til á
mánudag svo að ég fór upp á
bráðamóttöku og í ljós kom að ég
var með sýkingu í nýrunum,“ segir
Þór sem vill koma á framfæri
þakklæti fyrir frábærar móttökur
á sjúkrahúsinu. „Ég er orðinn
nokkuð góður núna og miðað við
muninn á mér í gær og í dag verð
ég orðinn fínn á laugardag.“
Þór hlakkar til að sýna Mann-
tafl þrátt fyrir sýningafjöldann
um helgina. „Rétturinn að gera
leikgerð upp úr Manntafli er eig-
inlega mín bestu kaup,“ segir Þór
en leikritið er byggt á frægri smá-
sögu Stefans Zweig. „Það er búið
að vera mjög ánægjulegt að æfa
og sýna verkið, en við erum að
byrja á okkar öðru leikári núna.“
Þór er ekki í vafa hver verstu
kaup hans hafa verið. „Það eru
allir happadrættismiðar, lottó,
skafmiðar og allt slíkt.“ Þór, líkt
og brennda barnið sem forðast
eldinn, er hættur að stunda allt
lotterí. „Ég hef aldrei unnið nokk-
urn skapaðan hlut svo ég er alveg
hættur þessu.“
tryggvi@frettabladid.is
Gerði bestu kaupin
í Manntafli
Þór í búningsherbergi sínu í Borgarleikhúsinu. Í höndunum hefur hann bestu kaup
sín, handritið að Manntafli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Toppskórinn er með útsölu-
markað á skóm við Vínlands-
leið 6.
Afslátturinn er að lágmarki 60
prósent. Vörurnar koma frá Stein-
ari Waage, Ecco-búðunum og
Kaupfélaginu. Meðal merkja eru
Peter Kaiser, Ecco, Ara, Lloyd og
Zinda.
Skórnir sem eru til sölu eru af
ýmsum toga. Þetta eru skór sem
eftir eru í fáum númerum, skór af
haustútsölum og skór sem ekki
hafa selst eins vel og vonast var
til. Eitthvað hefur verið keypt af
nýrri vöru sem fæst á góðu verði
vegna hagstæðra samninga.
„Þetta eru í raun alls konar
skór,“ segir Hermann Helgason,
rekstrarstjóri Toppskós. „Mikið er
til af dömustígvélum, strigaskóm,
spariskóm og eitthvað af barna-
skóm.“
Markaðurinn er opinn mánu-
daga til föstudaga frá 11.00 til
18.00 og laugardaga frá 10.00 til
16.00.
Skósprengja
Hermann lofar miklu úrvali og frábær-
um tilboðum.
������������������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06
�������������������������
���������������������
��������������������������
���������������������
������������������������
���������������������
������������������������
���������������������
�������������������������������
����������������������
���������������������������
���������������������
����������������
���������������������
������������������
���������������������
���������
���������������������
������������������������
���������������������
�����������������������
���������������������
�����������������������������
���������������������
Tæki og tól á góðu verði
TILBOÐSDAGAR STANDA NÚ YFIR Í RADÍÓBÆ.
Þessa daga eru hreint ótrúleg tilboð í Radíóbæ. Ísskápar, eldavélar,
örbylgjuofnar, þvottavélar, sjónvörp, dvd-spilarar, hljómtækjastæður og
margt fleira á stórlækkuðu verði, frá þekktum og vönduð-
um vörumerkjum á borð við Daewoo og Elfunk. Það er um
að gera að skoða úrvalið í versluninni
sem er til húsa að Ármúla 38.
Einnig er hægt að fara inn á
heimasíðu Radíóbæjar, www.
radio.is, til að sjá hvað er í boði.
Upplýsingar er líka veittar í síma
553 1133.
Veiðivörur, fatnaður, grill og skór
ÚTSÖLUMARKAÐUR MEÐ VÖRUR FRÁ FIMM VERSLUNUM ER Í
SÍÐUMÚLA 11.
„Það er eiginlega hægara að telja upp hvað ég er ekki
með,,“ segir Ásgrímur Ari Jósepsson sem er með
útsölumarkað í Síðumúla 11. Hann selur þar vörur
frá fimm verslunum. Ellingsen bæði sunnan og
norðan heiða, frá Útivist og veiði, Jóa byssusmiði
og Sjóbúðinni á Akureyri. Enda er hann með gas-
vörur, grill og allt sem viðkemur þeim, Sudoku-
tölvuspil fyrir krakka, felufatnað fyrir skotkarlana,
straumbreyti í bíla, fluguhjól, flugulínur, kuldagalla,
regngalla....já bara nefndu það. En hver skyldi afslátt-
urinn vera svona yfirleitt? Afslátturinn er frá 40 upp
í 90 prósent svo virkilega er hægt að gera góð kaup.
„Þetta er síðasta helgin svo nú ríður á að selja allt og
prútt er til fyrirmyndar,“ segir Ásgrímur Ari.
Felufatnaður er
eitt af því sem er
á útsölumarkaði í
Síðumúlanum.
Snúið á kuldabola
NÚ ÞARF ENGUM AÐ VERA KALT Í VETUR.
Nú er kuldaboli kominn á stjá og farinn að bíta í
kinnarnar. 66°N hefur veitt Íslendingum vörn gegn
þessum vágesti í fjölda ára og hefur nú opnað útsölu-
markað þar sem hægt er að fá kuldafatnað með
góðum afslætti. Fallegar og vandaðar kuldaúlpur fyrir
börn og fullorðna fást með meira en fimmtíu prósenta
afslætti, Fleira er á boðstólum fyrir börnin, meðal ann-
ars vandaðar húfur, hanskar, vettlingar og lambhús-
hettur á innan við þúsund krónur. Útsölumarkaðurinn
er í Faxafeni 12 í Reykjavík og við Glerárgötu 23 á
Akureyri. Þar er opið milli níu og sex virka daga og tíu
til fjögur á laugardögum.
Barnafötin frá
66°Norður eru vel
þekkt fyrir gæði.