Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 48
SIRKUS27.10.06
8 viðtalið
Saga Auðuns Blöndal er nokkuð
merkileg. Hann fæddist á Sauðárkróki,
flutti í Iðufellið í Breiðholti og síðan til
Bandaríkjanna þar sem faðir hans lærði
flugvirkjun. Síðan fór fjölskyldan til
Svíþjóðar og svo aftur á Sauðárkrók.
Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem
strákurinn sló í gegn. Það sem
einkennir Auðun er óbilandi trú hans á
sjálfum sér. Og það er þessi trú sem
hefur komið honum þangað sem hann
er í dag. Ein vinsælasta stjarnan í
íslensku sjónvarpi. En lífið hefur ekki
alltaf verið dans á rósum. Skilnaður
foreldra Auðuns hafði mikil áhrif á
drenginn en kom á sama tíma af stað
atburðarás sem skilaði honum heim í
stofu til landsmanna.
Þ egar ég var um tvítugt gekk ég í gegnum eitt erfiðasta tímabil lífs míns, allavega hingað til.
Foreldrar mínir skildu þegar ég var
átján ára og fluttu í hvort í sínu lagi til
Reykjavíkur. Ég ákvað hins vegar að
verða eftir á Króknum. Knattspyrnu-
deild Tindastóls reddaði mér íbúð svo
að ég gæti haldið áfram að æfa með
þeim,“ segir Auðunn sem á þessum
tíma var staðráðinn í að klára
Fjölbrautaskólann áður en hann fylgdi í
fótspor foreldra sinn til Reykjavíkur.
„Ég var nýbúinn að kaupa mér
sportbíl á hundrað prósent lánum. Það
reyndist erfitt að vera í skóla, búa einn,
borga af lánunum og foreldrarnir voru
víðs fjarri.“
Auðunn missti svolítið stjórn á öllu
saman og Maja systir hans kom á
endanum norður og sótti strákinn. „Ég
skuldaði í bakaríinu, íbúðinni og bara út
um allt. Þetta gerðist allt á frekar
skömmum tíma eftir að foreldrar mínir
fóru. Ég var eiginlega kominn með allt
niðrum mig.“
Sem betur fer greip systir Auðuns
inn í og kom honum í bæinn. En fyrir
Auðun var það skrítið til þess að byrja
með. „Ég átti til dæmis enga vini.“
Auðunn flaug því alltaf norður um helgar
enda var hann að vinna hjá flugfélaginu.
„Mér var reddað þar í gegnum einhverja
klíku. Er líklega lélegasti starfsmaður
sem hefur unnið þar enda kann ég varla
að rista brauð. Þetta var erfiður tími, ég
bjó hjá mömmu og borgaði skuldirnar
mínar í þrjú ár áður en ég flutti inn með
félögunum.“
Af hverju varstu svona mikill skussi?
„Ég er bara algjör tossi. En ég er mjög
duglegur í því sem mér finnst gaman að
gera. Ég er bara alinn upp við það. Þrátt
fyrir að það hafi ekki verið til miklir
peningar á heimilinu var ég algjörlega
ofdekraður. Mamma gerði gjörsamlega
allt fyrir mig.“
Auðunn hætti hjá flugfélaginu og fór
að telja skrúfur hjá Wurth. „Ég var samt
bara nýbyrjaður hjá Wurth þegar ég
sótti um á Popptíví. Ég taldi mig hafa
möguleika á að standa mig vel í
sjónvarpi og tók þátt í fyndnasta manni
Íslands til að koma mér á framfæri. Í tvö
ár var ég alltaf á leiðinni að hætta og
lærði aldrei neitt, kunni ekki einu sinni að
afgreiða í búðinni,“ segir Auðunn sem
hafði háleit markmið í sjónvarpinu.
„Ég var alltaf að segja vinum mínum
og fjölskyldu að ég væri á leiðinni að
gera eitthvað annað. Það er náttúrulega
mikið þannig að það er litið svolítið niður
á þá sem hætta í framhaldsskóla. Og
ég fann alveg fyrir því.“
Á meðan hann var hjá Wurth gat
Auðunn aldrei svarað því hvað það væri
sem hann ætlaði að gera. Sagði til
dæmis fólki að það væri búið ráða hann
á Popptíví löngu áður en það var
frágengið. „Já, ég er sko að vinna á
lagernum hjá Wurth en annars er ég að
AUÐUNN BLÖNDAL HEFUR SLEGIÐ Í GEGN MEÐ ÞÁTTINN SINN TEKINN OG ER EIN STÆRSTA
SJÓNVARPSSTJARNA LANDSINS
Hef óbilandi trú á sjálfum mér
Lj
ós
m
yn
da
ri:
H
Ö
R
Ð
U
R
S
VE
IN
S
S
O
N
S
tíl
is
ti:
S
Ö
LV
I S
N
Æ
R
M
A
G
N
Ú
S
S
O
N
F
öt
: R
ET
R
O
T
ex
ti:
A
N
D
R
I O
G
B
R
E
K
I
„Ég vann til dæmis frítt fyrstu
fjóra mánuðina og gerði faldar
myndavélar í hálft ár áður
en ég fór í stúdíó“
fara að vinna með strákunum í 70
mínútum,“ sagði Auddi við fólk í eitt og
hálft ár og viðurkennir að þessi klisja hafi
verið farin að hljóma hálf kjánalega.
Af hverju langaði þig svona mikið í
sjónvarpið?
„Ég horfði mikið á 70 mínútur og fannst
margt skemmtilegt í þættinum. En hafði
líka margar hugmyndir um hvernig mætti
gera þáttinn betri og hafði trú á sjálfum
mér. Simmi, sem þá var yfirmaður þarna,
var að mörgu leyti sammála og hafði
mikla trú á mér. Það er mikið Simma að
þakka að ég er þar sem ég er í dag.
Hann nennti til dæmis alltaf að hlusta á
röflið í mér þegar ég hitti hann fullur á
Sportkaffi og svona,“ segir Auðunn sem
fór hægt af stað í sjónvarpinu.
„Simmi var oft að hringja í mig og fá
mig í alls konar verkefni. Ég vann til
dæmis frítt fyrstu fjóra mánuðina og
gerði faldar myndavélar í hálft ár áður en
ég fór í stúdíó,“ segir Auðunn sem kom
inn þegar Jói hætti og var þá með
Simma og Sveppa sem hafði ekki mikla
reynslu í sjónvarpi. „Fyrsti þátturinn gekk
til dæmis alveg hræðilega og var í
rauninni hálf vandræðalegur.“
Auðunn var mjög stressaður til að
byrja með. Hann segir að gott dæmi um
það sé hversu slæma íslensku hann
talaði í fyrstu þáttunum. „Þó ég hafi verið
tuttugu og eins árs var ég bara
smábarn. Geðveikt frekur og tapsár en
við höfðum trú á því sem við vorum að
gera og einhvern veginn létum við þetta
ganga upp.“
Eftir þetta gekk framinn í sjónvarpinu
hratt fyrir sig. Auðunn fór fyrst að taka
eftir vinsældum þáttarins á djamminu.
„Ég fór alltaf á Gauk á Stöng í von um
að einhver myndi þekkja mig og fannst
geðveikt gaman ef einhver gerði það.
Síðan tók ég stutt tímabil þar sem mér
fannst ég vera voðalegur spaði og lét
líta út fyrir að fólk væri að trufla mig.
Sem betur fer fattaði ég fljótlega að það
er þessu fólki að þakka að maður er í
sjónvarpi, enda var ég sjálfur alltaf að
röfla í Simma á Sportkaffi á sínum tíma.“
Hvernig urðuð þið svona vinsælir?
„Ógeðisdrykkurinn er eitthvað sem
hjálpaði til við að koma okkur á kortið.
Hann var fyrst blandaður þegar Simmi
var í fríi og Ingibjörg Sólrún var á leið í
viðtal. Ég spurði Sveppa hvort við
ættum ekki að blanda einn fyrir hana og
við vorum alveg á báðum áttum. En eftir
að hún drakk þetta komu stjórnmála-
mennirnir í röðum til þess að drekka
ógeðisdrykk.“
Í 70 mínútum sáu strákarnir um allt
sjálfir og oft var mikil keyrsla í kringum
þáttinn. Auðunn segir að þeir hafi
kannski farið þetta meira á hugsjóninni
en álagið hafi oft verið mikið. „Þá
hugsaði ég bara hvort ég vildi aftur fara í
Wurth og Sveppi í grænmetið.“
Þegar álagið er mikið kemur fyrir að
mönnum lendi saman. „Ég og Sveppi
höfum rifist kannski svona tvisvar en mér
og Simma hefur stundum lent saman,
enda er hann snillingur í að ná mér upp.
Við erum samt eins og einn stór
vinahópur, það hefur til dæmis aldrei
verið nein öfundsýki í okkar hópi.“
Síðan fóru þeir Sveppi, Pétur og
Auddi yfir á Stöð 2 og byrjuðu með
Strákana. „Já það var svolítið fyndið og
minnti á myndina Wayne´s World þegar
búið var að kaupa þáttinn. Við töpuðum
sjarmanum og urðum létt yfirpródús-
eraðir að mínu mati, töpuðum mörgu
sem við gerðum vel á Popptíví. Ég hefði
viljað fara meira milliveginn.“
Auðunn vill þó ekki meina að það
hafi verið mistök að yfirgefa Popptíví.
„Þátturinn var búinn að vera þar í fjögur
ár og hefði líklega fjarað út. Við vorum til
dæmis með betra áhorf á Stöð 2 þótt
við værum í læstri dagskrá.“
Á skjánum er Auðunn fyndinn og
skemmtilegur strákur með mikið
sjálfstraust. En hvernig er hann í
raun og veru?
„Ég er mjög lokaður og þá sérstaklega
fyrir þeim sem ég þekki ekki. Ég þarf
samt alveg að passa mig því sumir túlka
það sem einhvern hroka sem er alls ekki
til staðar. Mér finnst mjög gaman að tala
við fólk en er ekkert að opna mig fyrir
hverjum sem er.“
Þú átt kærustu. Hvernig gengur það?
„Það gengur bara mjög vel en ég vil
helst ekki ræða það. Ég tók ákvörðun
fyrir löngu síðan að blanda þessu ekki
saman. Við höfum fengið tilboð um að
koma saman í viðtöl og ræða samband-
ið en alltaf neitað. Ég veit ekki hversu oft
maður hefur séð myndir af einhverju pari
á forsíðu Séð og heyrt og síðan ári
seinna séð sömu myndina rifna í sundur
með fyrirsögninni „Ástin sprakk“ eða
eitthvað í þá áttina. Þetta er eiginlega
það eina sem ég vil halda fyrir mig í
viðtölum og öðru slíku,“ segir Auðunn
sem er með háleita framtíðardrauma líkt
og þegar hann röflaði fullur í Simma á
Sportkaffi á árum áður.
„Mig langar rosalega að fara út og
gera þar þátt sem ég er með í
maganum. Ég er samt búinn að segja
þetta í tvö ár en það er erfitt að yfirgefa
þetta öryggi sem maður hefur hér í
augnablikinu. Með góð laun í góðri vinnu
og allt það. En það kemur að því einn
daginn að ég muni reyna.“
Auðunn hefur líka mikinn áhuga á að
vinna á bak við tjöldin í sjónvarpi enda
kominn með mikla reynslu í þeim efnum.
„Svo er ég líka að reyna að skrifa
bíómynd. Það gengur svona upp og
ofan en Óskar Jónasson leikstjóri er að
hjálpa mér með það. Ég hef verið að
skrifa nokkur samtöl og svo er margt
annað sem mig langar að gera. Stærsti
draumurinn er samt að fara út. Maður vill
samt um leið ekki hafa of hátt um það
vegna þess að þá fer fólk að skjóta
mann niður og halda að maður vilji verða
næsti Brad Pitt.“
Ætlar þú að leikstýra þessari
bíómynd sem þú ert að skrifa?
„Nei. Þetta er bara svona Good Will
Hunting dæmi. Fyrst maður fær ekkert
bíómyndahlutverk þá verður maður bara
að skrifa hlutverkið sjálfur. Sveppi og
Pétur í einhverri Astrópíu og þá fer
maður bara að skrifa,“ segir Auðunn og
hlær.
Stærsti þátturinn í íslensku sjónvarpi
í dag er þátturinn hans Auðuns, Tekinn.
Hann kom sjálfur með hugmyndina að
þættinum og vildi í upphafi hafa tvo
hrekki í hverjum þætti. „Síðan kom bara í
ljós að þetta er svo dýrt, einn hrekkur
kostar til dæmis rúma milljón. Við
ákváðum að gera þetta samt og þetta
hefur gengið frábærlega og allir bara
mjög sáttir.“
Verður gerð önnur sería?
„Það er það sem mig langar en ég held
það verði mjög erfitt. Ég held til dæmis
að allir sem eru eitthvað þekktir muni
hugsa sig um ef þeir lenda í einhverjum
skrítnum aðstæðum.“
Í næsta þætti hjá Audda verður sjálfur Bubbi Morthens Tekinn. Hægt er að horfa á þáttinn
á www.minnsirkus.is til klukkan 13:00 í dag. En annars er hann sýndur á mánudagskvöld-
ið klukkan níu. Auðunn er líka farinn að blogga á slóðinni auddiblondal.minnsirkus.is.
„Síðan tók ég stutt tímabil þar sem mér
fannst ég vera voðalegur spaði og lét líta
út fyrir að fólk væri að trufla mig“