Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 66
27. október 2006 FÖSTUDAGUR20
DRAUMAHELGI:
Bush játar sig sekan
að til eru um átján þúsund tegundir
snigla í heiminum?
að sniglar í eyðimörkum sofa í allt
að fjögur ár í einu?
að snigill getur haft allt að 25 þús-
und tennur?
að Christopher Hudson frá Englandi
þjálfar orma til kapphlaups?
að í Suður-Wales eignaðist hundur
af Dachs-kyni og tík af tegundinni
Stóri-Dani þrettán hvolpa.
að starar snúa aftur í sama hreiðrið
ár eftir ár?
að hrafnar eignast maka til lífstíðar?
að tveir storkar byggðu sér hreiður
og unguðu út mörgæsareggi?
að þegar fílabarnið Jualani var
yfirgefið af móður sinni tók kindin
Skaap við uppeldinu en bæði
bjuggu þau í safarígarði í Suður-
Afríku.
að kötturinn Vision frá Flórída lifði
af sex vikna dvöl í skáp eftir að
eigandinn setti skápinn í geysmlu?
að svartur labrador sem særðist
djúpu sári og reif vöðva kom sér
sjálfur á sjúkrahús í Hamilton í
Kanada og krafsaði við útidyrnar til
að komast inn?
að hundurinn Prince í Kaliforníu
varð fyrir bíl og var álitinn dauður?
Þegar hann hafði verið í köldu
gæludýralíkhúsinu í átján tíma
vaknaði hann upp og ekkert amaði
að honum annað en kal.
að Tyro, níu mánaða labrador-
hvolpur lifði af að gleypa nokkurra
sentímetra langan hníf?
að blindi hundurinn Paco lifði af fall
af elleftu hæð?
að raddir fiska dýpka eftir því sem
þeir eldast? Nema silungurinn en
hann er með sópranrödd alla ævi.
að villihundategund í Asíu, dholes-
hundarnir, blístra til að eiga sam-
skipti í stað þess að gelta?
að Grikkir til forna héldu að með
því að borða kál myndu þeir vera
fljótari að sofna?
að sköllóttir menn í Trier í Þýska-
landi borguðu bændum fyrir að láta
kýr sleikja á sér hárlausan skallann?
að mistilteinn var eitt sinn notaður
við flogaveiki, sem móteitur og til
að létta á þrýstingi?
að ein fyrsta aðferðin til endur-
lífgunar drukknaðs manns var að
kasta honum þvert yfir hestbak eða
tunnu?
að í seinni heimstyrjöldinni notuðu
læknar á Fiji-eyjum kókosmjólk í
stað blóðs og þræði úr kókoshnet-
um til að sauma saman sár?
að egypskir Faraóar höfðu lækni
fyrir hvern líkamspart? Þess vegna
sáu tveir læknar um augun, annar
um það vinstra og hinn um hið
hægra.
að tómatsósa var upphaflega notað
sem lyf?
að tannlæknar í Englandi á mið-
öldum gengu með uppmjóa hatta
og voru með hálsfestar gerðar úr
tönnum?
að fyrsta lyfsalan var opnuð árið
754?
að eitt sinn ríktu lög í Foster á
Rhode Island um að ef tannlæknir
dró vitlausa tönn úr manni varð að
draga eina tönn úr tannlækninum
í staðinn?
að í Kína seljast gallsteinar kúa á
formúu? Steinarnir eru síðan notað-
ir í náttúrulyf.
að uppskriftir að bjór í lækninga-
skyni hafa fundist á leirtöflum
Súmera og eru 4000 ára gamlar.
að Babylóníubúar til forna settu
sjúka oft út á götu til að fólk gæti
getið sér til um hvað væri að?
VISSIR ÞÚ...
ILMI FYNDIST ENDALOK STÓRIÐJU Á
ÍSLANDI ALGJÖR DRAUMUR.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Helgin mín hæfist með bílferð í sund, en á leiðinni
væri greint frá því í útvarpinu að George W. Bush
viðurkenndi fullur eftirsjár að hafa gert mistök með
innrásinni í Írak,“ segir Ilmur Stefánsdóttir myndlistar-
kona um upphaf sinnar draumahelgi.
„Í framhaldi af því léti Bush af frekari árásum
á Írak og Líbanon, þar sem hann hefði áttað sig á
vandanum í þessum heimshluta,“ heldur Ilmur áfram.
„Halldór Ásgrímsson gæfi síðan út yfirlýsingu þar sem
íslenska þjóðin væri beðin afsökunar vegna afskipta
forráðamanna landsins af stríðinu í Írak.“
Að sundi loknu gerði fjölskyldan sér ferð í miðbæ
Reykjavíkur þar sem hún hitti fyrir systur Ilmar, félaga
í Íslandsvinum, sem færði þær fréttir að stóriðju á
Íslandi yrði hætt. „Þess í stað hefði verið ákveðið að
leggja áherslu á önnur verðmæti í landinu, til dæmis
nýsköpun,“ segir Ilmur. „Ennfremur hefði verið ákveð-
ið að vekja þjóðina til vitundar um umhverfismál og
vera öðrum löndum góð fyrirmynd í þeim efnum.“
Daginn eftir færi Ilmur með fjölskyldunni sinni
í sumarbústaðarferð. „Ég kveikti á útvarpinu eftir
komuna, þar sem fram kæmi í fréttum að héðan í frá
myndu vestræn ríki taka ábyrgð á og grípa til aðgerða
gegn hungursneyð í fátækum löndum,“ segir hún.
„Á sunnudegi skellti ég mér síðan á góða tónleika
eða leiksýningu til að halda upp á allar góðu fréttirn-
ar,“ bætir Ilmur við hress í bragði. -rve