Fréttablaðið - 27.10.2006, Síða 70
27. október 2006 FÖSTUDAGUR34
Á þessum degi árið 1932
fæddist skáldkonan Sylvia
Plath í Boston í Bandaríkj-
unum. Hún var dóttir þýskra
innflytjenda og faðir hennar
var prófessor í líffræði,
sérhæfður í býflugum. Hann
lést úr sykursýki árið 1940
þegar Sylvía var einungis
átta ára en á svipuðum tíma
gaf hún út sitt fyrsta ljóð.
Sylvia þótti afburðanemandi
en þjáðist alla tíð af geð-
hvarfasýki og reyndi í fyrsta
sinn að svipta sig lífi 21 árs
að aldri.
Plath hlaut Fulbright-skóla-
styrk og stundaði nám í
Cambridge þar sem hún hélt áfram að skrifa og
gefa út ljóð. Þar hitti hún einnig enska skáldið
Ted Hughes sem hún giftist
árið 1956. Þau fluttu til Eng-
lands en tveimur árum eftir
fæðingu fyrsta barns þeirra
skildi Plath við Hughes
vegna ástarsambands hans
við aðra skáldkonu, Assiu
Wevill.
Plath bjó í London með
börnum sínum tveimur,
Friedu og Nicholas, og leigði
íbúð í húsi þar sem skáldið
Yeats eitt sinn bjó og áleit
Plath það góðs viti. Veturinn
1962 var harður og í febrúar
1963 framdi Plath sjálfsmorð
með því að anda að sér
gasi. Áður en hún lést hafði
hún lagt á borð fyrir börnin sín. Sylvia Plath var
jarðsett í Heptonstall í Vestur-Yorkshire.
ÞETTA GERÐIST: 27. OKTÓBER 1932
Harmrænt skáld í heiminn borið
MERKISATBURÐIR
1674 Hallgrímur Pétursson
prestur og skáld andast
60 ára að aldri.
1904 Fyrsta jarðlestakerfið í
Bandaríkjunum er vígt í
New York.
1923 Borgaraflokkurinn hinn
fyrri hlýtur hreinan
meirihluta atkvæða í
alþingiskosningum.
1938 Efnið nylon er kynnt á
markaði í fyrsta sinn.
1954 Stórstjarnan Marilyn
Monroe og eiginmaður
hennar Joe DiMaggio
hafnaboltakappi skilja.
1978 Egypski forsetinn Anwar
Sadat og forsætisráðherra
Ísraels, Menachim Begin,
hljóta friðarverðlaun
Nóbels.
Flosi Ólafsson
leikari er 77 ára.
Guðfinna S.
Bjarnadóttir
rektor í leyfi er
49 ára.
Sigrún Árnadótt-
ir, framkvæmda-
stjóri Rauða
kross Íslands er
46 ára.
Katrín Ingva-
dóttir dansari er
33 ára.
SIMON LEBON ER 48 ÁRA Í DAG
Ég kenni í brjóst um 10. áratug-
inn. Hann varð aldrei neitt meira
en timburmenn þess níunda.
Simon LeBon og félagar hans í Duran Duran
voru holdgervingar 9. áratugar 20. aldar.
Hjónin María Davíðsdóttir og Hörður
Harðarson opnuðu sveitakrána Kríuna í
gömlu fjósi í nágrenni Selfoss í apríl og
ætla að lífga upp á tilveruna í sveitinni
um helgina með því að slá upp október-
veislu.
Októberfest á rætur sínar að
rekja til Þýskalands þar sem
bjórinn er hafinn til skýj-
anna og ölið kneyfað úr ris-
akrúsum. Mjöðurinn verð-
ur að sjálfsögðu til staðar á
Kríunni en annars er um
séríslenskt októberfest með
sveitaívafi að ræða og því
verður einnig boðið upp á sjóð-
andi kjötsúpu og grill-
pylsur.
María og Hörður
yfirgáfu skarkala
þéttbýlisins ekki
alls fyrir löngu,
keyptu landskika
í landi Glóru,
þremur kíló-
metrum austan
við Selfoss, og
þegar búferla-
flutningarnir voru
að baki ákváðu þau
að opna krá.
„Þetta byrjaði á því
að við vorum að leita okkur að litlu
stykki fyrir hestana okkar þegar þetta
dúkkaði upp. Ég rauk til og festi okkur
landið um leið og ég sá það auglýst,“
segir Hörður. „Við settum svo húsið
okkar á sölu eftir á en það má segja að
þessi ákvörðun hafi verið tekin á nokkr-
um mínútum.“
Hörður segir að skyndiákvörð-
unin um að bregða búi sé það besta
sem þau hjónin hafi gert. „Þetta er
frábær staðsetning og örstutt frá
bænum og þetta er mesta snilldin
af því sem við höfum gert. Hér
erum við með ketti, tvo hunda,
hænur og svo auðvitað hestana.
Þegar ég kom hingað og skoð-
aði þetta gríðarlega stóra
hesthús sá ég tvöþús-
und og átta mögu-
leika. Þetta var upp-
haflega fjós sem var
breytt í hesthús.
Helmingur þess er
flatgryfjur og við
höfum breytt hluta
þeirra í krá og í vetur
ætlum við að bæta við gistiaðstöðu. Við
gerum þetta bara í rólegheitum og það
er engin áhætta í þessu. Þetta hleður
bara utan á sig hægt og rólega og við
vinnum bæði meðfram þessu,“ segir
Hörður en María er hjúkrunarfræð-
ingur hjá Heilbrigðisstofnun Suður-
lands og Hörður er sjúkraflutninga-
maður við sömu stofnun.
„Við skiptumst á að standa vaktina
á kránni sem hefur fengið góðar við-
tökur. Það tekur samt tíma að kynna
krána og láta vita að maður sé hérna en
þeir sem koma einu sinni koma aftur
og taka fleiri með sér. Þegar hesta-
mannavertíðin er í gangi kemur fólk
ríðandi og finnst ekkert leiðinlegt að
koma í rjúkandi kjötsúpu.“
Októbergleðin hófst í gær og heldur
áfram í dag og á morgun. Í kvöld verð-
ur meðal annars slegið upp sveitaballi
með hljómsveitinni Hitakútunum sem
mun halda uppi stuði fram eftir nóttu.
Á laugardag mætir Garðar Cortes á
staðinn með 18 manna kór og þegar
líða fer á kvöldið tekur Idol-stjarnan
Davíð Smári, sonur þeirra hjóna, lagið
ásamt Þráni Árna. Skemmtun kvölds-
ins nær hámarki þegar söngvarinn Páll
Rósinkranz og hljómborðsleikarinn
Þórir Úlfarsson loka dagskránni.
thorarinn@frettabladid.is
HJÓN ÚR GARÐABÆNUM: BRUGÐU BÚI OG OPNUÐU SVEITAKRÁ
Októberfest í gömlu fjósi
MARÍA DAVÍÐSDÓTTIR OG HÖRÐUR HARÐARSON Breyttu flatgryfjum í gömlu fjósi í sveitakrána Kríuna þar sem þau verða með Októberfest um
helgina. Krían er þremur kílómetrum austan við Selfoss og til þess að komast þangað er ekið niður Gaulverjabæjarafleggjarann og beygt af
honum inn á Kríumýrarafleggjarann.
DAVÍÐ SMÁRI HARÐAR-
SON, IDOLSTJARNA
AFMÆLI
Okkar innilegustu þakkir fyrir vináttu,
hlýhug og samúð við andlát og útför
elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Borghildar Ásgeirsdóttur
áður til heimilis að Blikahólum 2,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
8. október. Sérstakar þakkir eru færðar öllu starfsfólki
á hjúkrunardeild F-2 fyrir hlýja og góða umönnun.
Reynir Ásgeirsson Björg Rósa Thomassen
Baldur Gunnarsson
Gunnhildur Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýju og vinsemd við andlát og útför
Petólínu Sigmundsdóttur
frá Hælavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Tryggvi Guðmundsson Þórunn Guðmundsdóttir
Björgvin Guðmundsson Elín Rögnvaldsdóttir
Erna Guðmundsdóttir
Guðbjörg Björnsdóttir
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
mannsins míns, föður og tengdaföður,
Jakobs Sigurðssonar
Hraunteigi 28, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum fyrir einstaka umönnun og alúð.
Katrín Sívertsen
Hildur Deakin Bill Deakin
Björg Jakobsdóttir
Jón Örn Jakobsson Erna Eiríksdóttir
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður
okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa
Jósafats Sigurðssonar
frá Siglufirði, Eyjabakka 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun.
Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir Jónsteinn Jónsson
Sigurður Gunnar Jósafatsson Ingigerður Baldursdóttir
Elenóra Margrét Jósafatsdóttir Sigurður H. Ingimarsson
Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir Þorkell V. Þorsteinsson
Örn Einarsson Steinþóra Sumarliðadóttir
Stella Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is