Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 88
52 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
HANDBOLTI Júlíus Jónasson lands-
liðsþjálfari tilkynnti í gær 16
manna leikmannahóp sem fer á
æfingamót í Hollandi í byrjun
næsta mánaðar en mótið er liður í
undirbúningi landsliðsins fyrir
undankeppni HM sem fram fer í
Rúmeníu í lok nóvember. Á blaða-
mannafundi Handboltasambands-
ins í gær var einnig skrifað undir
þriggja ára samsstarfssamning
HSÍ og Lyfju en samningurinn á
að hafa mikið gildi fyrir kvenna-
landsliðin. Verðmæti samningsins
fékkst ekki uppgefið.
„Eins og staðan er núna tel ég
þetta okkar sterkasta hóp. Þess
skal reyndar getið að ég hef ekki
séð allar okkar stelpur sem spila
erlendis og mér fannst óþægilegt
að velja leikmenn sem ég hafði
ekki skoðað og vissi ekki hvort
væru í lagi. Þannig að vonandi
eigum við fleiri leikmenn inni,“
sagði Júlíus. Nokkrir leikmenn
gáfu ekki kost á sér í hópinn en
koma þrátt fyrir það til greina í
hópinn fyrir undankeppnina.
Júlíus ætlar sér að rífa upp
metnaðinn fyrir landsliðinu hjá
stelpunum og meðal annars verð-
ur dagskrá landsliðsins langt fram
í tímann sett inn á vefsvæði HSÍ
og ætlast Júlíus til þess af stelpun-
um að þær skipuleggi sumarfrí,
afmæli og brúðkaup í kringum
dagskrá landsliðsins.
„Ég vil koma þeim hugsunar-
gangi inn hjá stelpunum að þær
plani í kringum landsliðið. Ef þær
ætli sér að vera landsliðskonur
verði að taka verkefni og dagskrá
liðsins alvarlega. Með þessu er
auðvelt að sjá hvaða leikmenn
hafa metnað fyrir landsliðinu og
hvaða leikmenn hafa ekki þann
metnað sem þarf,“ sagði Júlíus en
hann játar fúslega að hafa ekki
fylgst mikið með kvennaboltanum
áður en hann var ráðinn landsliðs-
þjálfari.
„Ég sá einstaka leik en var ekk-
ert að sækja leiki. Ég hef verið
duglegur upp á síðkastið en get
gert betur og þarf að gera betur.
Boltinn hér heima er nokkuð góð-
ur og leikirnir upp og ofan.“
Þetta er fyrsta þjálfunarverk-
efni Júlíusar með stelpur og því
liggur beint við að spyrja hvernig
það leggist í hann?
„Ég er ekkert stressaður en
auðvitað þarf ég að breyta ein-
hverjum áherslum. Sumir frasar
sem virka á strákana munu ekki
virka á stelpurnar.
Það skemmtilega við svona
verkefni er að maður þarf að spá í
hvernig eigi að nálgast hlutina því
það er ekki hægt að gera nákvæm-
lega sömu hlutina hjá stelpum og
strákum,“ sagði Júlíus en ætlar
hann að öskra minna á stelpurnar
en strákana? „Nei, ekkert endi-
lega. Það gildir það sama með
stráka og stelpur að það er mis-
jafnt hvað þarf að öskra mikið á
hvern einstakling.“
henry@frettabladid.is
Ætlast til að stelpurnar skipuleggi frí
og brúðkaup í kringum landsliðið
Júlíus Jónasson, nýráðinn landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, tilkynnti sinn fyrsta landsliðshóp í gær.
Hann ætlar að rífa upp metnaðinn hjá stelpunum fyrir landsliðinu.
HARÐUR HÚSBÓNDI Júlíus Jónasson, nýráðinn landsliðsþjálfari kvenna í handknatt-
leik, ætlar sér ekki að vera með neina farþega í íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÓPURINN:
Hrafnhildur Skúladóttir SK Århus
Drífa Skúladóttir Valur
Berglind Íris Hansdóttir SK Århus
Íris Björk Símonardóttir Grótta
Rakel Dögg Bragadóttir Stjarnan
Kristín Clausen Stjarnan
Hildigunnur Einarsdóttir Valur
Guðbjörg Guðmannsdóttir Fredriksh.
Ragnhildur Guðmundsdóttir Skive
Sólveig Lára Kjærnested Stjarnan
Anna Úrsula Guðmundsdóttir Grótta
Eva M. Kristinsdóttir Grótta
Arna Sif Pálsdóttir HK
Auður Jónsdóttir HK
Jóna Margrét Ragnarsdóttir Stjarnan
Hanna G. Stefánsdóttir Haukar
FÓTBOLTI Framherjinn Jóhann Þór-
hallsson er búinn að skrifa undir
þriggja ára samning við KR. Þetta
er í annað sinn sem hann kemur í
herbúðir félagsins; hann var þar á
sínum yngri árum en sneri aftur
til Akureyrar eftir að hafa fengið
fá tækifæri með Vesturbæjar-
liðinu.
Jóhann var samningsbundinn
Grindavík til tveggja ára og KR
varð því að kaupa Jóhann frá
Grindavík. Hann er annar leik-
maðurinn sem fer í KR úr Grinda-
vík á skömmum tíma en Óskar
Örn Hauksson samdi við KR á
dögunum.
„Það er mjög ánægjulegt að
vera kominn aftur í KR. Það eru
mjög spennandi tímar fram undan
hjá félaginu og ég er mjög spennt-
ur. Þetta er öðruvísi en þegar ég
var síðast hjá liðinu,“ sagði Jóhann
við Fréttablaðið í gær en hann
valdi KR aðallega út af þjálfaran-
um Teiti Þórðarsyni.
„Teitur trekkir að. Það er ekki
spurning. Ég hef mikla trú á Teiti.
Ég hefði getað fengið meiri pen-
inga annars staðar en mér fannst
KR mest spennandi. Það er mikill
metnaður hjá félaginu, vel staðið
að öllum hlutum og ekki skemmir
fyrir að liðið er í Evrópukeppni á
næsta ári,“ sagði KR-ingurinn
Jóhann Þórhallsson. - hbg
Jóhann Þórhallsson kominn á fornar slóðir eftir að Grindavík seldi hann til KR:
Teitur Þórðarson trekkir að leikmenn til KR
ALLIR Í KR Jóhann Þórhallsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við KR.
Hann segist hafa valið félagið frekar en peninga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fylkismenn hafa samið
við þrjá leikmenn sem munu
styrkja liðið á næstu leiktíð. Þeir
eru varnarmennirnir David
Hannah og Kristján Valdimarsson
sem léku báðir með Grindavík í
sumar og Freyr Guðlaugsson,
leikmaður Þórs á Akureyri.
Hannah er 33 ára miðvörður
sem á langan feril að baki í Skot-
landi þar sem hann lék meðal ann-
ars með Celtic og Dundee United.
Hefur hann leikið á þriðja hundr-
að leiki í skosku úrvalsdeildinni
með þessum liðum.
„Þetta er reyndur leikmaður
sem ætti að nýtast okkur vel,“
sagði Leifur Garðarsson, þjálfari
Fylkis, við Fréttablaðið. „Okkur
hefur vantað reynslu í okkar hóp
og vonandi færir hann okkur eitt-
hvað slíkt.“
Kristján er uppalinn Fylkis-
maður sem samdi við Grindavík
fyrir síðastliðið tímabil en ákvað
að ganga aftur til liðs við Fylki
eftir að Grindavík féll í haust.
„Það er gott að fá Kristján aftur
heim. Hann er samviskusamur
leikmaður sem hefur bætt sig
mikið í sumar. Hann er líka kom-
inn heim til að standa sig enn
betur en hann hefur gert hingað
til.“
Að síðustu fengu Fylkismenn
Frey Guðlaugsson, 23 ára varnar-
og miðjumann. „Þetta er ungur
strákur sem hefur spilað nánast
alla leiki með Þór síðustu fjögur
árin. Hann er duglegur og sam-
viskusamur og með metnað til að
ná enn lengra. Vonandi náum við
að virkja hann vel í liðinu.“
Þó nokkrir leikmenn Fylkis eru
að renna út á samningi en Leifur
segir að viðræður við þá gangi
vel. Um er að ræða Sævar Þór
Gíslason, Arnar Þór Úlfarsson og
Jón Björgvin Hermannsson.
Björn Viðar Ásbjörnsson hefur
þegar gefið það út að hann ætli
ekki að spila áfram með Fylki.
- esá
DAVID HANNAH Hér í leik með Grinda-
vík í sumar gegn KR. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
David Hannah, Kristján Valdimarsson og Freyr Guðlausson til Fylkis:
Fylkir fær þrjá nýja leikmenn
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Hondúras hefur boðið Diego
Maradona að taka við landsliði
þjóðarinnar og stýra því á HM í
Suður-Afríku árið 2010. „Við
viljum heyra hljóðið í Maradona
og athuga hvort við ráðum við
það fjárhagslega að ráða hann í
vinnu,“ sagði forseti knattspyrnu-
sambands Hondúras.
„Allt er mögulegt ef allir
stefna í sömu átt. Ég er viss um
að hægt sé að gera gott landslið í
Hondúras. Ég hef talað við
nokkra kunnuga sem allir hafa
sagt að þeir eigi góða leikmenn,“
sagði Maradona, sem var á sínum
tíma langbesti knattspyrnumaður
í heimi. - dsd
Diego Armando Maradona:
Næsti þjálfari
Hondúras?
LIFANDI GOÐSÖGN Maradona býðst nú
að taka við landsliði Hondúras.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Harry Kewell er enn að
jafna sig á meiðslum sem hann
hlaut á HM í sumar og mun
líklega ekki spila leik fyrr en í
mars á næsta ári. Kewell hefur
verið í endurhæfingu í Ástralíu
síðustu sjö vikurnar og bindur nú
vonir við að nýir skór muni
hjálpa honum að ná bata.
Kewell hefur sagt upp
samningi sínum við Adidas en
nýju skórnir eru framleiddir af
litlu fyrirtæki í Brisbane í
Ástralíu. „Fyrst þegar ég prófaði
þessa skó leið mér eins og ég
væri að máta inniskó. Ég hef
verið með samning við Adidas í
u.þ.b. tíu ár en nú er einfaldlega
tímabært að hugsa um fæturna á
sér,“ sagði Kewell. - dsd
Harry Kewell:
Bindur vonir
við nýja skó
HARRY KEWELL Verður ekki klár í slaginn
fyrr en í mars á næsta ári.
�������� �� ������
���������������
�������������������������������������
��������������������������������
������������������������������
�����������������������������������
��������������������������